Úrskurður nefndar sérfræðinga, svonefndrar eigendanefndar, markaði þáttaskil í umræðunni um afkomu Kárahnjúkavirkjunar. Niðurstaða hennar var í stuttu máli að aðferðir Landsvirkjunar væru faglegar og stæðust kröfur fjármálafræða. Nefndin setti þó ákveðna fyrirvara við niðurstöður sínar. Úrskurðinn má sjá hér.
Úrskurður eigendanefndar vegna Kárahnjúkavirkjunar
Ekki stóð á viðbrögðum. Morgunblaðið taldi úrskurðinn sýna að þeir sem höfðu haft í frammi efasemdir um arðsemi virkjunarinnar hefðu haft rangt fyrir sér og fór hörðum orðum um þá. Forystugrein Morgunblaðsins má sjá hér.
Forystugrein Morgunblaðsins um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar
Náttúruverndarsamtök Íslands brugðust við með því að ráðast að starfsheiðri formanns eigendanefndarinnar, Friðriks Más Baldurssonar, að mati sumra. Samtökin minntu á fyrri skrif hans um málefnið.
Fréttatilkynning Náttúruverndarsamtakanna
Komið var inn á skýrslu eigendanefndar á baráttufundi í Borgarleikhúsi. Fundurinn hafði lítil áhrif, enda gleymdist að boða stuðningsmenn virkjunarinnar.