document.write("
25. júní 2006 – sunnudagar
RIP - Rest in, please?
Hva, ég er ekki dáinn, bara fluttur.
Þeir sem hafa áhuga á að sjá nýja dvalarstaðinn geta smellt sér á slóðina http://snillingurinn.blog.is, sem gömlu atvinnurekendurnir bjuggu til handa fólki eins og mér.
25. 06. 06 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
9. ágúst 2005 – þriðjudagur
Út í opinn dauðann eða hvað?
Um ellefuleytið í morgun stöðvaði ég sjálfan mig frá því að skrifa athyglisverðustu fyrirsögn frá því ‘Ingibjörg Sólrún reið borgarstjórn’.
Sat með fingurna frosna á lyklaborðinu. Hugsaði upp til skýja, til geimferjunnar Discovery sem maraði í svartnættinu ofan við gufuhvolfið – rúm klukkustund til lendingar og allir á nálum, jafn oftan sem neðan við skýin. Myndu hitahlífarnar halda?.
Hristi þetta af mér með bros vör og strokaði út úr huganum: ‘Áhöfn Discovery undirbýr jarðarför’. Fannst það ekki við hæfi. Kannski næst…
9. 08. 05 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
24. júlí 2005 – sunnudagur
Tæknilegar pyntingar á öryrkjum
Las um daginn á vef Tölvuheims að Bill Gates, stofnandi og stjórnarformaður Microsoft, hafi sagt á læknaráðstefnu í Singapúr að hann væri spenntur fyrir því að stinga tölvum í samband við fólk – og öfugt. Hafði hann á orði að sjálfur hefði hann lítinn áhuga á að stinga tölvu í samband við sig – eða stinga sér í samband við tölvu – heldur sæi hann fyrir sér að þetta mætti gera við blinda og heyrnalausa. Þetta fannst honum mikil framför enda hægt að bæta fyrir heilkenni, sem valda miklum sársauka.
Já já. Sé fyrir mér að sé tölvu plöggað í þau sárafáu göt sem náttúran setti á líkamann muni það valda verri – og öðruvísi sársauka en þeim sem heilkennin valda. Sársaukinn verður varla andlegur – nei, hann veru púra líkamlegur ef, segjum, plöggað er í eyra, nef eða sparigat, líkt og annar subburitstjóranna á DV kallar saurgatið.
Held reyndar að blindir og heyrnalausir verði fyrir miklum andlegum sársauka í viðbót við þann líkamlega vitandi alla daga að þeir eru með malandi örgjörva í rassinum.
Sveimérþá, það á gjörsamlega að ganga frá öryrkjunum með hag tækninnar í fyrirrúmi. Spurning hvort það væri ekki snöggtum skemmtilegra að leyfa blindum að njóta þess að plögga þeim fáu innstungum sem náttúran skaffaði þeim í göt á tölvum fremur en öfugt...
24. 07. 05 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
21. júlí 2005 – fimmtudagur
Veió!
Þá er maður mættur aftur. Feitur og slepjulegur með svita rennandi niður af glansandi skallanum eftir glampandi sumarhita tvo daga í röð.
Þar sem ekkert hefur verið gert í bloggheimum er það helsta að frétta að litli prinsinn verður 4 mánaða eftir fjóra daga – fjórir fjórir – skemmtileg tilviljun það!
Hann var skírður Eysteinn undir sveittri en kristilegri hönd einhver prests í Háteigskirkju sem ég man ekki lengur hvað heitir.
Erum bæði sammála um að skírnin hafi minnt á nokkur valin atriði í Rosemary’s Baby og The Exorcist. Fór samt nokkuð friðsamlega fram þar sem enginn fór úr hálsliðnum og enginn blótaði, nema ef vera skyldi í hljóði.
Samkvæmt Hagstofu Íslands heitir stráksi litli Eysteinn Auðar Jónsson.
Þar hafið þið það.
21. 07. 05 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
27. mars 2005 – sunnudagur
Nýr einstaklingur í heiminum
Þá verða sagðar fréttir.
Keisaraborinn drengur leit dagsins ljós klukkan 10:57 á föstudaginn langa. 14 merkur og 51 cm. Fæðingin gekk einsog í sögu enda frábært starfsfólk á LSH. Öllum heilsast vel.
Við horfðum hissa á nýfæddan einstakling, vissum ekki hvað við áttum að segja. Höldum að hann hafi horft á okkur líka, en verið orðlaus.
27. 04. 05 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
21. mars 2005 – mánudagur
Spurning um einkajobb eða opinbera eyðslu
Ein athyglisverðasta auglýsing ársins birtist í Fréttablaðinu á sunnudag. Er þar á ferðinni Helgi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri sælgætisoffitufyrirtækisins Góu-Lindu.
Ef mig brestur ekki minnið hefur Helgi gagnrýnt Lífeyrissjóðina einu sinni til tvisvar á ári. Aðallega hefur hann bent á fjármagnið sem berast í sjóðina á hverri mínútu eða klukkustund og er sérstaklega minnisstætt þegar hann kom í Kastljós fyrir ári síðan og henti fimmþúsundköllum á borðplötuna á milli hans og þular á fimm mínútna fresti.
Í auglýsingunni sem birtist á sunnudag gagnrýnir hann hins vegar Jóhannes Sigurgeirsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins, sem sat beggja vegna samningaborðsins og veitti óáreittur sjálfum sér litla 43 milljónir króna í starfslokasamning.
Frétt um málið má lesa hér.
Það vita allir að lífeyrisgreiðslur meðaljónsins eru afar litlar. Það sem mig fýsir hins vegar að vita eru hversu háar fjárhæðir Helgi Vilhjálmsson ætlar að veita sjálfum sér þegar hann lætur af störfum.
Þeir sem vilja sjá auglýsinguna í heild geta smellt sér á vef vísis og flett upp á blaðsíðu 5 í Fréttablaðinu
. 21. 04. 05 | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
17. mars 2005 – fimmtudagur
Hundahótel hvað? Blogghótel er framtíðin!
Fáir samnemenda vita hvað næsta sumar ber í skauti sér. Var að velta fyrir mér væntanlegri sumarvinnu og uppgötvaði að ef allt brestur þá gæti ég mögulega opnað hótel fyrir bloggara.
Þetta yrði eins og hundahótel fyrir fólk í sumarfríi.
Ég hugsa hótelið fyrir einstaklinga sem halda úti virkum bloggsíðum. Þegar þeir fara í sumarfrí þá geri ég fastlega ráð fyrir því að þá langi fátt annað en að halda bloggsíðum sínum virkum. Þeim er það hins vegar hægt um vik sökum aðstæðna. Í fyrsta lagi getur verið slítandi að leita að netkaffihúsi og í öðru lagi finnst makanum viðkomandi alveg geta sleppt því í að blogga á meðan sumarfríinu stendur og njóta tímans sem hann/hún hefur með fjölskyldunni á ströndinni. Eða uppi í fjöllunum á miðhálendinu. Það fer allt eftir því hvert haldið er í sumar.
Þegar svona bjátar á kem ég til skjalanna.
Áður en lagt er í fríið getur bloggarinn haft samband við mig. Við sammælumst um að hann gefi mér aðgangsorð og aðra lykla að síðu sinni. Svo fer hann áhyggjulaus í fríið. Tveimur dögum síðar hringi ég í hann og spjalla við hann um það sem á dag hann dreif. Að því loknu sest ég við skriftir og geri mitt besta til að blogga um sumarfríið í sama eða svipuðum stíl og viðkomandi svo engan gruni að hann hafi fengið utanaðkomandi aðila til að halda síðunni virkri fyrir sig. Eftir þetta hringi ég í viðkomandi viðskiptavin á sama tíma á hverjum degi, eða þar til hann snýr aftur úr fríinu.
Að þessu loknu hringi ég í hina 10 eða 100 sem halda úti virkum bloggsíðum en eru staddir fjarri tölvum og öðrum tækjabúnaði.
Þetta er að mínu mati enn ein leiðin til að virkja atvinnumöguleika Netsins, sem enn í dag er svotil óplægður akur. Nú er bara að kortleggja markaðinn og gera skrá yfir alla þá fjölmörgu bloggara sem ætla að leggja land undir fót í sumar!
17. 04. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
15. mars 2005 – þriðjudagur
Spurning um bölvun
Ég var alla síðustu viku í starfsnámi á Morgunblaðinu. Dvölin í köldu faðmlagi kolkrabbans var furðu góð. Eiginlega skemmtilegt. Endurnærandi fyrir líkama og sál. Nema það sé starfið…
Eitt verkefnið krafðist ljósmyndara. Fékk til liðs við mig Jim nokkurn Smart, enskan kumpána sem búið hefur hér á landi í hundrað ár. Eða lengur. Ég man það ekki. Sá smarti var hrukkaður og hóf störf hér á landi á dögum gömlu filmuvélanna.
Í bók sem ég nældi mér í á bókamarkaðnum í Perlunni á laugardag, Nýjustu fréttir. Saga fjölmiðlunar á Íslandi frá upphafi til vorra daga, eftir Guðjón Friðriksins, er mynd af Jim Smart. Hún var tekin árið 1981.
Á flakki okkar um bæinn sagðist hann hafa unnið á flestum dagblöðunum sem til hafi verið í Reykjavík. Hann byrjaði á Þjóðviljanum. Fór síðan yfir á Helgarpóstinn, að því loknu á Pressuna og dvaldi eftir það lengi hjá Vikunni og fleiri sneplum í eigu Fróða, að mig minnir. Nú hefur hann verið í nokkur ár á Morgunblaðinu. Hann var sáttur enda höfðu flest öll blöðin sem hann hafði unnið á frá upphafi orðið gjaldþrota eða lent í endurskipulagningu. Í öllum tilfellunum hvarf Jim Smart á braut. Hann taldi víst að á sér hvíldi bölvun en hló síðan að vitleysunni í sér.
Á föstudag var síðasti dagur starfsþjálfunar á Morgunblaðinu. Um tíuleytið sáust toppar blaðsins skáskjóta sér á milli herbergja og upp úr hádegi bárust fréttir þess efnis að hópur fjárfesta hyggðist kaupa ráðandi hlut í útgáfufélagi blaðsins og koma því upp úr skuldasúpu. Einhvers staðar sagði að nýr fjölmiðlarisi væri í fæðingu.
Ég gat ekki annað en hugsað til Jim Smart og velti því fyrir mér hjá hvaða fjölmiðli ég hitti hann næst.
15. 04. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
8. mars 2005 – þriðjudagur
Satanískar bilanir
Skrattans klúður endalaust að uppfæra þennan blessaða vef. Fyrst þarf að tengjast smáklettinum Tokelau, þar sem hlekkurinn er vistaður, til að ná í grunnstöffið, síðan í centrum, svo að opna Word og skrifa textann í fremur óaðlaðandi umhverfi. Að því loknu þarf að gera allt afturábak, með von um að ná sambandi við Tokelau.
Ekki veit ég hvað lesendur vita. Nema hvað Tokelau er smáklettur í Eyjaálfu með 1500 íbúa, sem líklega reykja gras fremur en rækta það fyrir sauðféð, og gera út á netfangaleigumarkaðinn.
Sveimér þá, ef netleigan sé ekki helsta tekjulind eyjaskeggja.
Einhver staðar á þessu langa ferli sem það tekur að koma þessari vefsíðu óbrenglaðri til skila hefur sambandið rofnað. Annaðhvort missti ég sambandið við eyjuna, tölvan sambandið við Netið – einhverja fítus sem ég kann ekki að nefna – eða ég missti sambandið við sjálfan mig. Tel síðasta kostinn líklegan
Lítið signal hefur blundað inní manninum síðustu daga. Held það heiti stress.
Ekki bætti starfsetningavilla úr skák, netsambandsleysi við útlönd, álag og táfýla, hljómsveit sem æfir sig úti í skúr og langar til að verða númer eitt í Músíktilraunum, eins og greifarnir, og áhyggjur af hlýnandi loftslagi fyrir íbúa Tokelau.
Bögg heimsins er bókstaflega að slíta af mér herðarnar!
8. 04. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
6. mars 2005 – sunnudagur
Enn meira um framtíð blaðasnápa
Fór á árshátíð M.A. nema í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands á Hótel Sögu á föstudag. Veislustjórinn ég með hjartað í buxunum allan tímann og stundaði barinn frekar en laugarnar, glasalyftingar með 33 cl flöskum frekar en ólympískar lyftingar og snakk við samnemendur og kennara fremur en skák.
Hátíðargestur var Ómar Ragnarsson. Í stuttu máli sagt var ræða hans eins og námskeið í fréttamennsku. Að ótöldu gríninu kom þar margt fram sem ég hafði aðeins leyft mér að halda: blaða- og fréttamönnum finnst flestum stundum eins og þeir séu með allt niðrum sig og séu alveg við það að verða reknir. Það fer hins vegar allt eftir smekk og lundarfari ritstjóranna hverju sinni hvernig fer.
Semsagt. Það eru stutt spor á milli snilldar og svekks.
Til að bæta sálarástandið í kjölfar ræðunnar var barinn tæmdur. Hálfgrátandi yfir dapurri framtíð tölti framtíð íslenskrar blaða- og fréttamennsku niður á Grand Rokk og fylgdist þar með frammistöðu blaðasnápsins Guggu, sem hamraði á svarthvíta takka hljómgervilsins í Brúðarbandinu. Sannaðist þar enn og aftur að það skiptir engu máli hvernig tónlist kvenfólk spilar. Ef þær eru annað borð með hljóðfæri í höndunum, þá eru þær töff. Það skiptir kannski engu hvort þær eru með hljóðfæri eða ekki ...
Það kom mínum hins vegar á óvart hversu jövulmóðs góðar þessar fraukur eru á sviði. Og ekki spilltu brúðarkjólarnir fyrir! Skiljanlega sitja kjólarnir í minningunni enda kann snillingurinn – ég ekki að flauta eitt einasta lag ...
6. 04. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
4. mars 2005 – föstudagur
Leyndardómar námsins
Stundum botna ég ekki í þessu blessaða meistarnámi í blaða- og fréttmennsku sem snillingurinn – ég legg stund á þessa dagana. Þegar upp er staðið virðist mér mikilvægasta reynslan felast í blendinni tilfinningu.
Í fyrsta lagi finnst mér sem ég sé að gleyma einhverju og í öðru lagi að ég hafi misst af því.
Furðulegur árangur það.
Held að framhaldsnám í fræðunum felist í viðbrögðum við streitu og afleiðingum hjartaáfalls.
4. 03. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
2. febrúar 2005 – miðvikudagur
America speaks anew to the peoples of the world
Ég veit svei mér þá ekki hvort þessi ræða í stíl nítjándu aldar er samin af snillingi eða almennu fífli. „Peoples of the world“ er aðeins toppurinn á ísjakanum.
Endilega tékkið á innsetningaræðu Jorge W. Bush í embætti forseta Bandaríkjanna.
2. 02. 05  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
15. desember 2004 – miðvikudagur
Hollenskir múslimar eða múslímskir Hollendingar?
Blaðamenn Moggans er stundum sniðugir.
Sérstaklega var skemmtileg frétt um aukna kynþáttahörku hægrimanna í Hollandi á vef samsteypunnar í dag. Þar kom fram að 60 prósentum tilvika var ráðist á múslima í Hollandi en í 20 prósentum tilvika ráðist á hollenska ríkisborgara.
Ég velti því fyrir mér í kjölfarið hvenær hollenskt ríkisfang varð að trú. Nema auðvitað að múslimar séu nú ein þjóð eins og Kóraninn kveður á um. Maður bíður eftir því að gyðingar krefjist aukinna réttinda sem ein þjóð.
Guð sé oss næstur!
Dæmi hver fyrir sig. Hér er fréttin eins og hún kom af kúnni.
15. 12. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
13. desember 2004 – mánudagur
For i am Knig Arthur!
Yfirleitt lít ég persónuleikapróf hornauga. Samt naumast sem maður er öflugur á sviði sem skiptir ekki nokkru einasta máli í hversdagslífinu.
Held að fátt sé skemmtilegra en að vera jafningi Arthurs, knugen av Cameltoe
Take the quiz: ’Which Holy Grail Character Are You?’
Arthur, King of the Britons
Arthur, son of Uther Pendragon, from the castle of Camelot. King of the Britons, defeater of the Saxons, Sovereign of all England'
13. 12. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
5. desember 2004 – sunnudagur
Góðir áhorfendur
Um daginn brugðum við skötuhjúin okkur á útgáfutónleika einyrkjagaldrakarlsins Mugison. Dúndur gaman þar enda magnað að sjá hann hamast einan á sviðinu innanum tæki og tól og reyta af sér brandara um kúk. Semsagt. Frekar heimilisleg stemning og fannst okkur eins og við hefðum slasast inn kósí vina- og vandamannateiti Mugisons.
Ekki spillti fyrir að sjá þessar kveðjur frá meistaranum að westan.
Að tónleikum loknum og sérstaklega eftir að hafa heyrt nýju plötuna þá er ég sannfærður um að Muggasonurinn á allar tilnefningar Íslensku tónlistarverðlaunanna fyllilega skilið.
5. 12. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
3. desember 2004 – föstudagur
Gagnsemi námsins
Merkilegt. Þessa dagana er maður alltaf að lesa eitthvað skemmtilegt. Það er þó mest fyrir skólann – sumt skemmtilegt og annað þvert á móti …
Í dag las ég um tilraunir Jóns nafna Axels Ólafssonar til að verða ríkur í DV í dag. Nafni er löngu þekktur sem yfirmaður Norðurljósasamsteypunnar. Fyrir einhverju síðan heyrði ég af honum í viðskiptafræði í Háskóla Íslands. Var haft eftir nafna að hann hygðist auka þekkingu sína á sviði fjármála með náminu. Allt gott og blessað með það enda frábært þegar miðaldra maður sér skyndilega ljósið og ákveður að auka við þekkingu sína með grunnnámi.
Eins og hann þekkti ekki kaupin á Eyrinni ágætlega áður en hann settist á skólabekk. Nema hvað. Sem ég blaðaði í DV í dag rak ég augun í umfjöllun um nafna. Hafði viðskiptafræðineminn miðaldra ekki komist í kynni við fjármálafyrirtækið T5PC á einni af fjölmörgum ferðum sínum um Noreg og gerst einhvers konar talsmaður fyrirtækisins á skerinu heima. Nafni heillaðist náttúrlega af forsvarsmönnum fyrirtækisins enda voru skrifstofurnar fínar og óku jakkafataklæddir framkvæmdastjórar fyrirtækisins á dýrindis límósínum. Í framhaldi af ferðinni keypti nafni einhverja smáræðis 66.678 hlutabréf í fyrirtækinu og tók að sér að dreifa gylliboðum á Fróni.
Nú hefur hins vegar komið í ljós að fyrirtækið flotta í Noregi var frontur fyrir fjármálahít sem gleypir endalaust við fjármunum hluthafa og skilar ekki krónu til baka.
Ég nenni ekki að fara í smáatriði. En samkvæmt úttekt DV í dag reyndist nafni hafa tapað einhverjum 13 millum á athæfinu. Hundruð Íslendinga sitja í súpunni ásamt öðrum rúmlega <v>39.000 manns sem hugðust græða einhver trilljón ósköp. Að sögn DV segist nafni ekki sjá eftir millunum þrettán enda vinni maður ekki alltaf.
U win some, u loose some … tja, já, það er ljóst að í þessu tilviki tapaði nafni stórum upphæðum sem hann kemur aldrei til með að sjá nokkru sinni aftur.
Nema hvað. Sem ég skokkaði yfir götuna í Nóatún og blótaði sjálfum mér fyrir að hafa ekki farið í Bónus þar sem oststykkið væri miklu ódýrara var mér litið yfir á næsta kassa. Var þar ekki nafni allur samankominn að tína upp úr innkaupakörfunni.
Og sjá!
Afgreiðsluborðið var yfirfullt! Hann hrúgaði upp á það lambahryggjum, lærisneiðum, grillkolum og hverju eina sem meðalJóninn ég kaupi í Bónus. Þetta hefur áreiðanlega kostað mjög langt yfir einhverjum tugum þúsunda. Sveimérþá!.
Fýsti náttúrlega að skreppa yfir til hans og spyrja hvernig honum liði, hvort það sæist ekki heljarinnar ósköp á bankareikningnum eftir að hafa hent þrettán millum út um gluggann og hvernig honum liði eftir þetta nú þegar hann ætti að vita betur eftir alla umfjöllunina um svindlarana frá Nígeríu.
Og hvernig var þetta með námið í viðskiptafræðinni? Græddi hann svona mikið að loknu námi að hann getur leyft sér þetta?
Ég hljóp ekki neitt heldur gekk heim og velti fyrir mér hvers konar lukkunnar pamfíll ég hefði verið að fara hvorki í viðskiptafræði né hafa orðið yfirmaður hjá Norðurljósum. Svo maður tali nú ekki um að ég þekki engan í Noregi sem er fús til að svindla á mér.
3. 12. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
18. nóvember 2004 – fimmtudagur
Fyrsti túristinn?
Sem ég las fréttir um vesæla nýja apamanninn sem fannst nú fyrir skemmstu rétt utan við Barcelona á Spáni komst ég ekki hjá því að sjá hann sem fyrsta túristann.
Þessi fundur er doldið nýr vinkill á þróun apa til manns. Samkvæmt kenningum fornleifa- og mannfræðinga er uppruna mannsins ekki einasta að finna í Afríku heldur á apinn, sem mér finnst eins og hafi hlotið nafnið Homo Costa del Solus, átt að hafa lagt upp frá Afríku einhvern tíma í öndverðu, farið yfir Gíbraltarsund og mestan hluta Norður-Spán í átt til Mið- og Norður-Evrópu. Rétt utan við Barcelona, sem getur vart hafa verið meir en flatlendi við strönd í þessa tíð, gaf apinn upp öndina.
Nema honum hafi verið stútað af mannvígu apagerpi (Homo Basqua) ofan frá norðurstöndum Spánar.
Persónulega hef ég efasemdir um kenningar apaferðanna neðan frá Afríku og upp til Evrópu. Þeim virðist í fljótu bragði ekki annað ætlað en að gera fyrsta manninn, Homo erectus, sem síðar varð, að mínu mati, Homo Automobilus og Homo PlayStation 1 og 2, að Evrópubúa fremur en Afríkukarli.
Það er í það minnst einhver kynþáttalykt af þessu máli og verður spennandi að fylgjast með því í framtíðinni.
Þeir sem hafa áhuga á málinu geta lesið hér um þennan ólukkulega fyrsta opinbera túrista mannkynssögunnar.
19. 11. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
18. nóvember 2004 – fimmtudagur
Forvitnileg sjónarmið fréttamiðla
Ef dyggum lesendum er að skipta þá er greinilegt að ég hef haft yfrið nóg að gera í mánuð. Endalaus verkefnaskil eru einfaldlega að brjóta á manni bakið. Sumhver þeirra eru reyndar svo skemmtileg að mann langar að dúlla við þau aðeins lengur.
Í gærkvöldi var skroppið á myndina Stjórnherbergið eða „Control Room“ eins og hún heitir uppá enska tungu. Þetta er heimildamynd eins og þær gerast skemmtilegastar. Leikstjóri myndarinnar, Jehane Noujaim, fór til Íraks og Katar á fyrstu dögum innrásar Bandaríkjamanna og misheimskra bandamanna þeirra og fylgdist með mismunandi áherslum og fréttamati bandarískra fréttastöðva og hinnar mjög svo umdeildu Al-Jazeera, sem hefur bækistöðvar sínar í arabíaörríkinu Katar.
Þrátt fyrir lélegt hljóð og vonda stól var þetta hin athyglisverðasta upplifun.
Að sýningu lokinni fóru fram pallborðsumræður undir styrkri stjórn Hjálmars Sveinssonar, ofvitrings Spegilsins á RÚV. Þær voru ekki síðri en sjálf myndin.
Með hliðsjón af þeim ólíka fréttaflutningi fréttastofanna tveggja sem myndin tók á var forvitnilega að aðeins voru frummælendur frá tveimur fréttastofum hér á landi: tveir voru frá Morgunblaðinu en aðeins einn frá Stöð 2. Hjálmar Sveinsson er að vísu undanskilinn þessari upptalningu.
Merkilegast við þessar pallborðsumræður voru fullyrðingar flestra, ef ekki alla, um að þeir hefðu vantreyst fréttastöð Al-Jazeera fyrstu vikurnar enda hafði hún ekki orðið fræg fyrir neitt annað en að dreifa boðskap Bin Laden í kjölfar 11. september. Þegar nánar var kafað ofan í málið kom hins vegar annað í ljós. Al-Jazeera var ekki sjónvarpsstöð fúlskeggjaðra barbara með bækistöð í hellakerfi Afganistan heldur þrautreyndir fyrrverandi starfsmenn Austurlandadeildar BBC sem sagt var upp í hagræðingu móðurstöðvarinnar á Englandi.
Merkilegt nokk, hugsaði ég.
Al-Jazeera dreifir efni um gervihnött og ná yfir 40 milljónir manna útsendingum stöðvarinnar. ALLIR miðlar á Íslandi ná í mesta lagi til 300.000 einstaklinga (ég gef mér auðvitað að auk íslendinga erlendis þá fylgist einhverjir íslenskumælandi útlendingar á erlendri grundu með miðlunum héðan frá skerinu). Það er sárlega lítil dreifing samanborið við þá sem ná útsendingum Al-Jazeera. Þótt ég fjölyrði ekki um það frekar þá komst ég ekki hjá því að velta því því fyrir mér hvort starfsfólk á fréttamiðlum á Íslandi telji sína fréttamennsku eitthvað merkilegri en þá fréttamennsku sem stunduð er hjá Al-Jazeera - þeir gerðu það í það minnsta á fyrstu vikunum sem heyrðist af tilvist stöðvarinnar. Ætli það sé kannski einhver munur á því að miðla fréttum þaðan sem ekkert gerist og það sem alltof mikið er að gerast? Ég bara veit það ekki …
18. 11. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
16. október 2004 – laugardagur
Sorg, depurð og helbert þunglyndi
Hún er merkileg fréttin sem birtist í Morgunblaðinu í dag um rannsókn Jóns Viðars - þetta er heldur klént - Jónssonar, leikhúsfræðings, á dapra stórskáldinu Jóhanni Sigurjónssyni.
Fréttin er sumsé sú að ljóð Jóhanns, Sorg var í upphaflegu handriti öðruvísi en eftir að Sigurður Nordal, sá mæti maður, krukkaði í því fyrir útgáfu þess í tímaritinu Vöku árið 1927.
Um er að ræða síðustu línur ljóðsins, sem upphaflega voru svona:
’Í svartnætti eilífðarinnar vakir lífið og grætur, sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg’
Þegar  Nordalinn hafði farið höndum um ljóðið leit það svona út:
’Í svartnætti eilífðarinnar flýgur rauður dreki og spýr eitri. Sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg’
Ekki mikil breyting sosum. Persónulega hefði ég tekið út þetta endalausa stagl um ‘svartnætti eilífðarinnar’ enda álíka leiðinleg tugga og bækur um aldraða togarasjómenn sem búa á útkjálkapleisi sem misst hefur kvótann yfir í annað pláss eða í hendur stórfyrirtækis.
Með öðrum orðum: ritstýring af hinum góða. Meiri ritstýring er betri. Vondan kveðskap á bara ekki að gefa út.
16. 10. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
11. október 2004 – mánudagur
Síðasta flug Súpermans
Sá það einhvers staðar að Christopher Reeves hafi geispað golunni.
Sorglegt þetta enda maðurinn ekki nema 52 ára. Fatlafólið í skikkjunni var goð mitt þegar ég var í kringum sjö ára aldur. Reyndar sá ég einhverju sinni eina eða tvær aðrar myndir með Reeves eftir að hann lagði skikkjuna á hilluna. Hann heillaði mig ekki. Í raun var karlinn ekkert númer fyrr en hann lenti í hjólastólnum í kjölfar mænuskaða af völdum slyss.
Það er hálf sorglegt frá því að segja að úr stólnum lyfti þessi fyrrum Súperman grettistaki í málefnum fatlaðra.
Í kvöld ætla ég að taka tappa úr flösku, minnast Súpermans í lífi mínu og hlusta á eftirfarandi lög:
Fly away!
Free as a bird
I wish i could fly
Ég sendi aðdáendum samúðarkveðjur.
11. 10. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
27. september 2004 – mánudagur
Fyndinn forseti
Það er ekki oft sem ég hlæ við lestur morgunblaðanna. Pistill Guðmundar Andra Thorssonar, rithöfundar, í Fréttablaðinu í morgun varð hins vegar til þess að ég gat ekki haldið aftur af hláturgusunum.
Þegar ég kem heim í dag verð ég að muna að þurrka kaffisletturnar upp af stofuborðinu.
27. 09. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
11. september 2004 – laugardagur
Framtíðin býr í blokk
Seint í gærdag festum við skötuhjúin snillingur – jón og smáfríður aðdáandi af gagnstæðu en ekkert veikara kyni kaup á nýju heimili. Líkt og dagblöðin sögðu á dögunum eru arftakar þjóðarinnar að flytjast æ meir í blokkir og auðvitað gerðum við eins og blöðin sögðu.
Framtíðin felst sumsé í Stóragerði 24 – sem er annaðhvort tilviljun eða djöfullegt plott af æðri (eða neðri – þetta fer allt eftir því hvernig maður horfir á hlutina) máttarvöldum – enda vita þeir sem til okkar þekkja að við höfum síðustu árin búið í Blönduhlið 24.
Flutningar hefjast í kringum mánaðarmótin október – nóvember og því verða þeir sem ólmir vilja hjálpa til að fara að haska sér í form því íbúðin er á efst uppi í fjögurra hæða blokk.
11. 09. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
7. september 2004 – þriðjudagur
Fótosjoppaður til fortíðar?
Einkennilegur fjandi sem ég lenti í síðastliðinn sunnudag. Var staddur á ættarmóti vestur á Kjalarnesi þar sem systurdóttir ömmu í Hafnarfirði gekk upp að mér og sagði forviða: „Guð minn góður! Ég hélt að þú værir ... “ Hún benti á mig en sagði ekkert meir. Hún stundi.
Ég vissi hvað hún ætlaði að segja en hristi höfuðið. Þetta var ekki ég.
Einhvern tíma löngu seinna á þessu sama ættarmóti gamalmennanna var brugðið á það ráð að láta slædsmyndir renna eina af annarri á tjaldi á meðan ættin snæddi kökur og kaffi. Í miðju átinu benti níu ára frændi á tjaldið og spurði: „Er þetta þú?“
Ég gat ekkert sagt enda með með hálfétna brauðtertu í munninum. Í staðinn hristi ég höfuðið. Nei, þetta var ekki ég.
Þeir sem hafa séð þennan eymingja mig hljóta að reka upp stór augu.
Þessi á myndinni hér til hliðar er ekki fótósjoppaður ég í slagtogi við eldri menn heldur afi minn fyrir fjörutíu árum – eða einhverjum betur. Þarna er hann rúmlega þrítugur við hlið tengdaforeldra sinna, langafa og langömmu í móðurætt, líklega í Reykjavík.
Sjálfur sagði ég: „Nei, hvur andskotinn!“ þegar ég sá þessa mynd.
Forvitnir geta fengið stærri mynd með því að smella hér.
7. 09. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
5. september 2004 – sunnudagur
Tunglið, tunglið, taktu mig …
Furðulegt. Í gærkvöldi var himininn einkennilega blár. Gult tungl bar bar við himinn. Það var engu líkara en að heimurinn væri djúpur brunnur og að Guð – eða Krishna, eða Allah, eða hver svo sem er þarna upp í raun – hafi lokið upp brunninum til að kíkja niður á okkur mannfólkið.
Þetta var óneitanlega svolítið skelfileg tilhugsun og áreiðanlega þess valdandi að mig dreymdi brotna steikarpönnu. Vonandi að það boði gott.
5. 09. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
26. ágúst 2004 – fimmtudagur
Medulla
Í næstu viku kemur nýjasta plata Bjarkar í búðir. Óskar bróðir komst yfir eintak og lét bróðir sinn fá, sem nú er búinn að hlusta á hana í tvígang. Án þess að segja meir, þá féll ég fyrir Debut og Post. Homogenic var sömuleiðis ágæt þrátt fyrir tormeltið. En ...
Ég nenni ekki að rífa þetta í tætlur, fjalla um smáatriði, kafa ofan í hvern söngvara fyrir sig né fara út í tæknileg atriði heldur dembi mér í gagnrýni á stöffið.
Lagið Pleasure is all mine er sæmilega tormelt við fyrstu hlustun en batnar við hverja endurtekningu. Er orðin hálfgerð lullabía í þriðju hlustun. Rödd Bjarkar minnir óneitanlega á Lata Mangeshkar, sem er kvenkyns ellilífeyrisþegi á áttræðisaldri frá Indlandi og syngur þvers og kruss með titrandi englasvingi. Skemmtileg blanda þetta, en er endurtekin svo oft að hún verður leiðigjörn.
Það er engu líkara en Björk sé að hita á sér raddböndin í Show me forgiveness. Laglínan fer upp og niður og til hliðanna eins og hjá Lata og svífur fram og til baka frá ensku yfir í íslensku. Frekar óþægilegt við fyrstu hlustun og batnar lítið við þá næstu. Kostur lagsins er umfram allt lengdin, en það er rétt tæp ein og hálf mínúta.
Upphitun raddarinnar er orðin hvimleið í laginu Where is the line. Bassasöngvarinn, hver sem hann nú er, gefur laginu hins vegar skemmtilega vídd. Gott ef tölvutrommur eru ekki bakgrunni, sem hlýtur að teljast einkennilegt þar sem fréttir hermdu að hljóðfæri væru notuð eins lítið og kostur var. Lagið í heild er hins vegar lítið annað en síendurtekinn titill lagsins og smávegis skringilegheit í viðbót, tölvutromman, pissfullur kór frá skítapleisi í ballarhafi og djúpraddaði bassasöngvarinn. Ágætt stöff en tilbreytingalítið.
Vökuró er voða huggulegt lullabía. Sífulli kórinn frá skítapleisinu hummar í bakgrunni. Einstaka raddir sem brjótast upp úr alkahólismanum færa söng Bjarkar upp á hærra plan og minna englasöng. Krúttlegt stöff þarna á ferðinni enda búið að kasta artífartíinu fyrir róða.
Öll birtan er enn ein raddæfingin. Fremur þreytandi að hlusta á Björk syngja margmixað ofan í sjálfa sig. Tíminn er plús enda lagið tæpar tvær mínútur.
Who is it er gæðastöff. Þarna er á ferðinni Björk eins og hún var í gamla daga. Bygging lagsins er fremur hefðbundin: lag – kórus – lag – kórus etc. Laglínan er fín enda næstum því popp – í háum klassa, náttúrlega. Og ekki skemmir fyrir að bassassöngvarinn og tölvutromman, eða hvað sem þetta nú annars er, er komið aftur.
Submarine byrjar á raddæfingum, og orðnar nokkuð þreytandi þegar þarna er komið við sögu. Fljótlega breytist æfingin í upphitun í heimahúsi hjá Manhattan Transfer því Björk kíkir við og úr verður artífartí kokteilboð. Það er engu líkara en Björk æpi og skræki á klóin á meðan Manhattan Transfer hummi inni í stofu en mixermaðurinn sitji inni í eldhúsi og blandi öllu saman. Eftir þrjár mínútur af hummi og tilheyrandi er maður tilbúinn til að láta sig hverfa yfir í annað og skemmtilegra partí.
Ólympíulagið Oceania byrjar fallega. Kórinn úr skítapleisinu er kominn í partí með Manhattan Transfer og greinilegt að alkahólið fer vel í hummarana því laglínan er fremur hefðbundin og næstum skemmtileg. Töff lína með tilheyrandi skringilegheitum. Gott ef það minnir ekki á „venjulegt“ lag eftir Weil eða álíka stöff.
Sonnet / Unrealities IX  er eins og tekið af Vespertine. Fullur Grænlendingur í sauðskinnskóm og lopapeysu spilar á hljómborð á meðan Björk syngur upp og niður um „how to make it right ...“ með hörðum ísl – enskum texta. Nokkur tvist í hljómborðinu gera artífartíið bærilegra. Manni verður óneitanlega hugsað til fulla hljómborðsleikarans frá Grænlandi. Nema það sé fullur smiður frá Egilsstöðum ...
Í Desired constellation er artíið komið aftur í fullu svingi. Björk syngur upp og niður á meðan fullur kór hummar upp og niður í bakgrunni. Áreiðanlega fín upphitun fyrir röddina það.
Ancestors er önnur hugguleg lullabía. Samt ekki víst hvort börn nenni að hlusta á það. Vællinn minnir á Sigur Rós. Sem sumir kalla löst á lagi. Fulli Grænlendingurinn er nú kominn á flygilinn og greinilegt að vínið er farið að segja til sín enda spilar hann með einum fingri. Á bak við stynur vinur hans svo illa að mann verkjar í punginn. Spurning hvort þetta sé deleríum tremens.
Djúpraddaði bassaleikarinn snýr aftur í Mouth’s cradle. Fulli kórinn með englaraddirnar stynja í bakgrunni, ein þó talsvert meira en aðrar. Inn á milli heyrist önnur dimmraddaðri stuna. Fulli píanóleikarinn er fjarri góðu gamni – eða hvað?
Í laginu Miðvikudagur hitar Björk í sér röddina enn á ný. Fyrir hvað? Þetta næstsíðasta lagið á plötunni. Nennessuvarlalengur. Lengd lagsins er kostur. Það er ein og hálf mínúta.
Í Triumph of the heart eru allir komnir saman. Upphitun, bassasöngvari, fullur píanóleikar á síðasta snúning og englakór gera skemmtilega artíblöndu í venjulegu lag - kórus – lag poppi. Ef þeim hefði verið hent út fyrir hefðbundin hljóðfæri væri komið prýðisrafpopp í anda Debut. Sem er flott.
Hnotskurn: Medulla er nær því að vera listaverk en hefðbundin plata. Artíið er í fullu svingi og verður hún því seint gleðigjafi í partíum pöpulsins. Spurning hvort útvarpsstöðvarnar hafi áhuga.
26. 08. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
25. ágúst 2004 – miðvikudagur
Til hamingju ég
Jæja. Kominn aftur einu sinni enn. Er nýr og betri maður og fallegri í þokkabót, sérstaklega eftir rakstur og bað.
En nóg um það.
Skolaði þriðju persónunni af sjálfum mér í sturtu og mun eftirleiðis skrifa í fyrstu persónu. Spurning hvað Óskar bróðir segir við því.
Til hamingju ég!
25. 08. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
5. ágúst 2004 – fimmtudagur
Baugi sé lof!
Í gærkvöldi fór snillingur – jón í bíó ásamt Onkelnum. Sá síðastnefndi bauð reyndar þeim fyrrnefnda í bíó enda hafði Baugur veitt starfsfólki sínu frímiða á sérstaka forsýningu á nýjustu mynd Michael Moore, Fahrenheit 911.
Fahrenheit 911 er stórskemmtileg mynd enda deilir Moore þar eins og allir vita með grófum hætti en sniðugum á núverandi forseta BNA. En hvort fullyrðingarnar eru réttar eða rangar sem þarna koma fram ætlar snillingur – jón hvorki að sanna né afsanna heldur bendir hann á afskaplega skemmtilega umræðu sem átti sér stað í Kastljósinu á RÚV í gærkvöldi þar sem Ólafur Teitur Guðnason benti á að Moore ríður röftum í hrærigraut staðreynda, bulls og þvættings. Sannaðist þar enn og aftur að landsmenn ættu að snúa baki við Ólafi og hætta að hlusta á bullið í honum enda virðist sem hann sé með bæði bundið fyrir augun og bómull í eyrunum.
Hvern er hann eiginlega að verja? hugsaði snillingur – jón og velti því fyrir sér hvort Ólafur hafi horft á þætti Hannesar Hólmsteins um Ísland á tuttugustu öld í sjónvarpinu á síðasta ári. Í stuttu máli fær Hannes heldur slælega dóma hvað varðar dýrðarhjal hægri vinstri um aðkomu Sjálfstæðisflokksins að velferð þjóðarinnar. En nóg um það ...
snillingurinn nennir hvorki að rökræða um heimskustig Bush og Ólafs Teits né rökin með og á móti innrás í Írak. Hann nennir ekki heldur að ræða um heimildamyndina í heild sinni. Það sem snillingnum fannst merkilegast við myndina eru þau augnablik þar sem George Bush, í hlutverk forseta BNA, lætur grímu forsetans falla þannig að myndavélar sjónvarpsstöðva – og annarra – ná af honum bulla út í loftið. Nægir að nefna viðbrögð hans við árásinni á Tvíburaturnana, svipbrigðageiflur framan í myndavélar áður en hann tilkynnir landsmönnum sínum að herinn hafi gert innrás inn í Írak, og fleira til - snillingurinn ætlar að taka niður punkta þegar hann fer á myndina í annað sinn.
snillingurinn hugsaði aðeins: það er af sem áður var þegar Jón forseti Sigurðsson lifði lífi sínu eins og hann væri í mynd allan tímann. Og var það þó löngu fyrir daga fréttaljósmyndunar! Fyrir utan mögulegt sífílis, sem hann sýktist kannski og mögulega af á hóruhúsi í Kaupmannahöfn á þarsíðustuöld og fræðimenn hafa lengi deilt um, þá var ekki blettur á högum hans. Líf hans var í föstum skorðum eins og hann væri opinber persóna hvern einasta dag. Samt var hann bara forseti Hins íslenska bókmenntafélags. Er ekki hægt að ætlast til hins sama af forseta Bandaríkjanna?
5. 08. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
3. ágúst 2004 – þriðjudagur
Kominn aftur og enn á ný!
Þá er snillingur-jón loks kominn úr fríinu. Þetta var ágætur tími með aðdáanda að gagnstæðu kyni.
Í grófum dráttum er ferðasagan svona: Þau ferðuðust víða á litla nýja hálfjeppanum. Brunuðu sem leið lá upp að Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum og sprændu. Þar var lagt á frekari ráð á ákveðið að fræsa yfir svarta sanda til Veiðivatna – en þar sem þau eiga ekki stafræna myndavél og snillingur hafði ekki nennu til að setja inn myndir af disk frá Kódak ruplaði hann rafmynd Arnar Óskarssonar, kennara í líffræði, af svæðinu sem sést hér til hliðar.
snillingurinn þekkir til Vatnaklasann.  Þarna kom hann einu sinni á ári, öðru hvoru megin við Verslunarmannahelgi á árunum 1993 til 1998 og stundaði silungsveiði í net, sem er töluvert árangursríkari aðferð en að dorma allan liðlangan daginn við smápoll með stöng. Þessu til skýringar verður náttúrlega að geta þess að snillingurinn var þarna á vegum Veiðimálastofnunar og var tilgangur ferðarinnar að framkvæma vísindalegar rannsóknir á víðfrægum silungi sem lifir á vatnasvæðinu ásamt því að snæða fisk í hvert mál, matreiddum á mismunandi hátt – og drekka bjór og viskí og vodka í lítravís að lokinni hverri máltíð.
En sumsé. Þessi ferð snillings ásamt aðdáanda var fyrsta ferð hans síðan sumarið 1998. Og það var sennilega vegna þessa sem hann kannaðist ekkert við sig lengur. Ekki svo að skilja að hægt sé að styðja sig við landamerki svörtu sandaldanna sem liggja þvers og kruss um biksvarta sanda. En þar sem búið var að færa veginn vegna Vatnsfellsvirkjunar svo ekki var lengur hægt að fara yfir Þjórsá eða hvað sem hún nú heitir smásprænan sem rennur úr Þórisvatni og eitthvað út í buskann. Um tíma velti snillingurinn því alvarlega fyrir sér að nú væri hann villtur og vildi snúa við.
En aðdáandinn af gagnstæðu kyni ýtti honum áfram – og lengra áfram. Og enn lengra þar til hann taldi nú gengi þetta ekki lengur, drap á hálfjeppanum, opnaði skottið, tók matarkassann út og úr honum espressókaffikönnu og gaskút. Hellti hann upp á dýrindiskaffi út í kaldi svarteyðimörk og öðlaðist útlenskan kraft að nýju. Að því loknu gekk hann frá stöffinu og brunaði af stað á ný, aðeins til að stöðva eftir u.þ.b. fimm mínútur fyrir framan nokkurra metra vað. Hann vatt sér út úr bílnum, fór úr skóm og sokkum, brá sér í strigaskó sem hann hafði meðferðist og greip göngustafi og óð út í ánna. Þar sem vatnið náði ekki nema upp í ökkla taldi hann öruggt að aka yfir á hálfjeppanum. Hann fór úr skónum, aðdáandinn þerraði fætur hans og klæddi hann í þurra sokka. Þegar gönguskórnir voru komnir aftur á fagurlagaða fæturna brunuðu þau enn af stað, bara til að stoppa við næsta vað einhverjum fimm mínútur síðar. Og nú var honum öllum lokið enda áttaði hann sig á því að þótt vegurinn væri ekki sá sami þá var vaðið það sama og hann hafði komið að sex árum áður. Hann steig út en fann hjá sér litla nennu til að dýfa tá í ískalda sprænu. Þess í stað skannaði hann vaðið, leit á stöku steina og sagði þetta allt í lagi. Síðan setti hann í fjórhjóladrif og fyrsta gír og dólaði út í vatnið. Þegar bíllinn hallaði sísvona og alltíeinu svo mikið fram að nöturkalt vatn skvettist upp yfir húddið og framrúðuna varð honum að orði, að máske hefði hann frekar átt að kanna þetta vað fremur en hitt. Dynkur og brestir undir bílnum urðu til þess að samferðakonan tók undir orð hans. Stuttu síðar komust ferðalangar á langþráðan áfangastað.
Veiðivötn er heillandi svæði og mælir snillingur – jón með því að hver sem verða vill leggi leið sína þangað. Ef eitthvað hér á landi er líkt Mars eða Tunglin - og þá á hann ekki við skemmtistaðinn við Lækjargötu heldur steindauða steinkumbaldann sem fylgir móður jörð - þá eru það Veiðivötn.
Fyrir utan billjónamagn af mýflugum sem sveimuðu inn um augu og eyru og endaþarm snillings, þá var hreint og beint æðislegt að dveljast þarna í þrjá daga. Enda af nógu að taka á jafn litlu svæði.
Eftir að hafa vaknað tvisvar í tjaldi klukkan fjögur um nótt til að pumpa meira lofti í vindsængina pökkuðu þau snillingur – jón og samferðakona hans skralli sínu saman í farangursrými hálfjeppans og brunuðu sem leið lá aftur til Hálendismiðstöðvarinnar í Hrauneyjum. Ætlunin var að fylla á tankinn og fræsa sem leið lá eftir Sprengisandi og inn í Nýjadal, sem liggur í landinu miðju eins og loðinn nafli á annars hárlausum líkama.
Af leiðinni á Sprengisand er nóg að taka og mun snillingurinn reifa ferðasöguna í örstuttu máli og morgun eða hinn. Af myndasögunni um hnappana og fjölmiðlafrumvarpið er það að frétta að myndasagan er tilbúin. Vandinn er hins vegar að skanna myndirnar á disk svo hægt sé að birta þær á vefnum. Niðurstaða fæst í málið í vikunni og verður þá kátt á hjalla. Gott ef snillingurinn blæs ekki til rafræns útgáfuteitis á vefnum! Og nú er bara að bíða og sjá.
3. 08. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
16. júlí 2004 – föstudagur
snillingur á ferð og flugi!
snillingur – jón hefur því miður ekki haft tíma til að skrifa mikið síðustu tvo daga. Það eru annir á öðrum ritvelli sem draga úr getunni á bloggvellinum. Og enn mun skrifunum fækka. Í næstu viku mun hann ferðast eitthvað um landið, nokkuð sem hann hefur ekki gert síðan hann sat ungur og saklaus ásamt Óskari bróður sínum aftur í bíl foreldra sinna.
Hann mun hins vegar snúa aftur einhvern tíma í vikulokin og mun hann þá taka upp þráðinn þaðan sem frá var horfið, enda hyggst hann koma tvíefldur eða þríefldur til baka.
Eitt það fyrsta sem snillingurinn mun gera þegar hann snýr aftur úr ferðalagi um landið þvert og endilangt er að birta teiknimyndasögu þar sem hnappar túlka fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar. Er engu það logið að sýn hnappa á frumvarpið er með því ferskasta sem gerist á Íslandi í dag. Ekki einu sinni fjölmiðlar hafa bryddað upp á þessu sjónarhorni, og er þá mikið sagt!
Og nú er bara að bíða sjá ... snillingur – jón biður bara alla að lifa vel á meðan hans nýtur ekki við á bloggvellinum.
16. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
14. júlí 2004 – miðvikudagur
Er búið að klippa Bruna BB úr Rokki í Reykjavík?
snillingur – jón og smáfríður aðdáandi hans af hinu kyninu ákváðu á sunnudag að horfa á snilldarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokk í Reykjavík (1983).
Þau fóru á eina af betri myndbandaleigum bæjarins og spurðust fyrir um eintak.
- nei, því miður, það er bara búið að stela því, sagði afgreiðslustúlka og fannst þetta heldur miður. Þegar snillingurinn spurði um fyrstu mynd Tarantinos var svarið það sama.
snillingurinn fór ásamt smáfríða aðdáandanum af gagnstæða kyninu á aðra og miklu stærri myndbandaleigu í Múlanum og spurðist fyrir um myndina.
Svarið var á sama veg. Þarna var bæði búið að stela Rokki í Reykjavík og Reservoir Dogs - og ekki aðeins myndbandinu heldur DVD diskunum líka! Hvílíkt og annað eins, snillingur – jón átti ekki til orð og ekki smáfríði aðdáandinn af gagnstæða kyninu heldur.
Á leiðinni heim uppgötvuðu þau sér hins vegar til mikillar ánægju að myndin gæti, mögulega, kannski ... verið til á Klapparstígnum. Sem hún og var! Og ekki bara hún heldur Reservoir Dogs líka.
snillingur – jón tók glaður við myndinni og gekk frá skráningu í gagnagrunninn á meðan aðdáandinn af gagnstæða kyninu valdi gotterí af kostgæfni í poka.
Rokk í Reykjavík Myndin er fín, stórskemmtileg eiginlega. Tónlistin vissulega barn síns tíma (en ekki hvað?) og tískan ægileg. snillingnum fannst eiginlega stórskemmtilegt að horfa á barnalegan Bubbann tjá hug sinn til eiturlyfja og tónlistar – og aðdáandi snillings velti þeirri spurningu upp hvort það hefði ekki verið hann sem stal báðum eintökunum af Rokki í Reykjavík svo börnin hans gætu ekki heyrt hug föður síns til þessa málefnis. Hvort hann var sekur um stuldinn á Reservoir Dogs gat hún hins vegar ekki sagt til um.
En þótt Rokk í Reykjavík hafi verið fín, barn síns tíma etc. þá var eins og eitthvað vantaði. Fyrir utan að hafa verið sjálfur hálfgerður unglingur þegar snillingurinn sá myndina fyrst, sennilega með Onkelnum og Pétri á Selfossi upp úr nítjánhundruðáttatíuogátta eða hérumbil, þá fannst honum eins og það hefðu verið fleiri viðtöl. Þau skorti sárlega. Og jafnvel sögumann, það hefði verið flott heimildamynd. En tónlistin – sem sumhver var leiðinleg – fékk að njóta sín. snilling minnti hins vegar að þar sem hann sat og sá myndina í fyrsta eða annað sinn við síðasta áratug síðustu aldar, þá hafi verið magnað atriði með Bruna BB á Nýlistarsafninu þar sem meðlimir bandsins komu í halarófu á svið og slátra kjúklingi eða svíni eða einhverju álíka dýri. Það má hins vegar vel vera að snillingur – jón hafi látið glepjast af áhrifum skruggugra gjafa í den og barasta dreymt atriðið. Skrýtið samt að honum fannst hann hafa séð það í tvígang – það er að segja myndina með nákvæmlega sömu atriðum!
Nema hvað nú var þetta atriði ekki að finna í myndinni og samt var snillingur – jón alveg bláedrú á sunnudagskvöldi. Og hann dreymdi það ekki einu sinni! Var kannski búið að klippa myndina upp á nýtt og henda atriðinu í ruslið? snillingur – jón gat með engu móti sagt aðdáanda sínum almennilega frá því.
Sumsé. snillingnum fannst Rokk í Reykjavík stórmerkileg mynd. Hún leið hins vegar nokkuð fyrir skort á viðtölum og tengingu við tíðaranda. Það væri þessvegna brilljant að rusla henni út á DVD á næstu árum og bæta við hana einhverju helling af efni. T.a.m mætti hafa uppi á þeim pönkurum sem enn hafa ráð og rænu, ræða við þá um myndina og gera áhorfendum kleift að láta þá tala um eitt og annað ofan á tónleikaskotin. snillingur – jón er þess fullviss að þetta töfrakrydd nútímatækninnar myndi ekki aðeins gefa þessari frábæru samtímaheimild um tónlistarlífið í Reykjavík í byrjun áratugarins töluvert meiri dýpt heldur nýja vídd í ofanálag.
Nú er bara að bíða og sjá hvað Friðrik Þór gerir með þessa hugmynd snillings – jóns í framtíðinni.
14. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
9. júlí 2004 – föstudagur
Íslendingar vildu undir kónginn!
snillingur – jón rakst á eftirfarandi í DV í dag:
„Prófessor doktor Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur lengi haft það áhugamál að forsetaembættið verði lagt niður en atburðir undanfarinna vikna hafa orðið til þess að tvíefla hann og fer hann nú hamförum gegn embættinu. Meðal annars ritaði hann nýlega lærða grein þar sem hann vitnaði til fornrita Íslendinga því til sannindamerkis að landsmenn hefðu aldrei viljað hafa yfir sér „höfðingja“. Telur hann greinilega valdalítinn forseta til höfðingja en valdamikinn forsætisráðherra ekki, því engum sögum fer af því að Hannes vilji losna við embætti forsætisráðherra ...“
Þetta þykir snillingnum stórmerk tíðindi úr Kampinum.
snillingur – jón hefur ekki lesið þessa lærðu grein Hannesar enda veit hann ekki hvar hún birtist.
Hitt er annað, að árið 1997 gaf Háskólaútgáfan út meistararitgerð Ármanns múrs Jakobssonar, íslenskufræðings, Í leit að konungi – konungsmynd íslenskra konungasagna.
Í bókinni beinir Ármann sjónum að þeim íslensku konungasögum sem skrifaðar voru á 13. öld og hugmyndum manna um konungsvald. Leiðir hann að því líkum að sögurnar séu leit Íslendinga, sem þá voru konungslausir, að réttu yfirvaldi enda fjalli þær að miklu leyti um þá eiginleika sem Íslendingar telji að konungur eigi að bera – svo ítarlega er tekið á málinu að ef snillingnum skjöplast ekki, þá er velt fyrir sér hárgerð konunga, augnalit, líkamsbyggingu og framvegis! Af þess leiðir Ármann að sjálfssögðu að ritun sagnanna tengist því að Íslendingar gengu Noregskonungi á hönd árið 1262.
snillingur – jón hefur brennandi áhuga á því að lesa grein konungssagnaritara forsætisráðherra enda langar hann að vita hvernig Hannes leiðir út af kenningum Ármanns. En svo er að spyrja, hvort Hannes hafi nokkuð vitað af henni og styðjist þarmeð ekki við hana.
9. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
9. júlí 2004 – föstudagur
Æfingabúðir fyrir alþingismenn?
snillingur – jón rakst á ótrúlegan leik á Netinu. Um er ræða sköpun þjóðríkja og stjórnunar innan þeirra. Á heimasíðu leiksins segir eftirfarandi:
„Jennifer Government: NationStatesTM is a free nation simulation game. Build a nation and administer it according to your own political ideals, however warped they may be. You can create a Utopian paradise for society's less fortunate or a totalitarian corporate police state. Care for your people or deliberately oppress them. Join the United Nations or remain a rogue state. It's really up to you.“
Það er spurning hvort stjórnmálamennirnir á hinu hnignandi Alþingi ættu ekki að vera skikkaðir til að nota sumarfríið sitt í að spila þennan leik og reyna að læra af honum áður en þeir koma aftur saman í haust.
9. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
8. júlí 2004 – fimmtudagur
Af hverju Microsoft?
Í morgunsárið rak snillingur – jón svefnvana augun í þessa frétt á vísi.is. Þeim sem ekki nenna að lesa fréttina á enda – (það má svo sannarlega gefa sér að það eru ekki þeir sem lesa vef snillings! – segir sig svosem sjálft - ah, þvílík heimspekileg hringavitleysa sem þetta er!) getur snillingurinn sagt að hún fjalli um nýja íslenska þýðingu á Window stýrikerfinu og Office hugbúnaðarvöndlinum frá Microsoft. Minnugur um afdrif síðustu þýðingu stýrikerfisins finnst snillingnum ekki mikið til þessa framtaks koma.
Að vísu lofar framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi að ekki komi upp reklavandamál enda byggi þýðingin á allt annarri tækni og því vart samanburðarhæf við þá hörmung sem borin var á borð tölvunotenda árið 2000.
snillingur – jón er efins um þetta annars ágæta framtak enda hefur hann sjálfur lítinn áhuga á því að byggja upp notendaorðabókina á nýjan leik. „Ræsa tölvu“ er t.a.m. of neikvætt í hans augum – það tekur kúlið úr tölvunotkun að hafa allt á íslensku. En þarna er kannski komin fín jólagjöf fyrir foreldrana!
En hvað um það, þýðingin er góðra gjalda verð og afrek að standa í þessu enda Ísland án efa minnsta málsvæðið sem Microsoft þýðir fyrir.
Það sem hins vegar stakk í augu snillings er að þýðingin er unnin í góðu samstarfi við stjórnvöld á Íslandi. Gott mál svosem, hugsar snillingur – jón, en hvað í ósköpunum eru stjórnvöld að gera með puttana í þýðingu á stýrikerfi og þartilgerðu stöffi Microsoft? Hann hélt einhvern veginn að þetta væri frjálslynd stjórn sem hefði hag og framtak einstaklingsins á loft fremur en að taka þátt í þessu sjálf. Og af hverju styrkja stjórnvöld þá ekki einhverja nörda útí bæ til að þýða stýrikerfi frá Linux og hugbúnaðarvöndla því tengdu?
snillingnum er spurn enda veit hann ekki betur en að Linux bjóði enn upp á ókeypis stýrikerfi – reyndar felst einhvern aukakostnaður í kaupum á tengdum hugbúnaði, s.s. skrifstofuvöndli.
Einkennilegur andskoti þetta. Stýrikerfi Microsoft og meðfylgjandi hugbúnaður er fínn. Hann kemur hins vegar til með að kosta þá sem nota íslensku útgáfuna umtalsverð fjárútlát.
Ætli ríkisstjórnin láti skóla landsins kannski fá aukið fjármagn til að standa straum af kostnaði kerfisins? snillingnum er spurn...
8. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
6. júlí 2004 – þriðjudagur
Nýjar samsæriskenningar í farvatninu
Fjarstýrða geimfarið þeirra Bandaríkjamanna og Evrópubúa sem síðustu sex árin hefur verið að dóla þetta að reikistjörnunni Satúrnusi hefur sent frá sér fyrstu myndirnar af hringjum plánetunnar. Þykir mörgum mikið til koma. snillingnum finnst þetta ekki merkilegt. Telur hann eins líklegt að um samsæri sé að ræða enda líkjast þessir hringir fáu nema dyra – og gluggakörmum eins og þeir gerast bestir í húsum í Reykjavík sem byggð voru frá þarsíðustu aldamótum til 1950.
Þetta má sjá glöggt á myndunum. Hringirnir sýnast hvítir og rúnaðir – eins og dyrakarmar – og í þykkari kantinum – eins og dyra – og gluggakarmar voru í þessum gömlu húsum í Reykjavík sem byggð voru fram um miðja síðustu öld. Telur snillingurinn eins líklegt að þetta milljarðasamstarf stórveldanna sé blöff og hafi nokkrir starfsmenn Geimferðastofnananna verið fengnir til að taka nokkrar velvaldar myndir af dyra – og gluggakörmum í Reykjavík og punta upp sem hringi Satúrnusar. Nema þetta hafi náttúrlega gerst fyrir slysni í partýi enda er myndin svolítið skökk.
snillingnum er spurn enda hafa vísindamenn á vegum Nasa verið að vappast um landið í leit að landslagi sem líkist Mars, Tunglinu, eða hvað það er sem þeir vilja rannsaka næst.
Það verður spennandi að sjá hvort samsærissjúklingarnir sem drógu í efa ferðina til Tunglsins hér um árið taki upp þráðinn og dragi þessa partýferð geimsnillinganna til Reykjavíkur í efa. Nei, snillingurinn átti við ferðina til Satúrnusar! En dæmi nú hver fyrir sig.
6. 07. 04   | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
5. júlí 2004 – mánudagur
Dýrar bækur!
Ef eitthvað er að marka upplýsingarnar á þessari síðu þá er myndasögusjoppan Nexus við Hverfisgötuna dýrasta verslun í heimi.
snillingur – jón var að leita að skemmtilegum teiknimyndablöðum, já eða myndböndum, en missi andlitið yfir verðinu.
Hér má sjá heildarútgáfu Hringadróttinssögu í kiljuformi, ásamt einu eintaki af Hobbitanum á aðeins 2,990 dollara – það samsvarar hvorki meira né minna en rúmum 220.000 íslenskum krónum! Það er huggun gegn harmi að um tilboð er að ræða en áður kostaði pakkinn 3,740 dollara.
Það er spurning hvort sjoppueigendurnir ættu ekki að uppfæra síðuna þar sem íslensk þýðing á Hringadróttinssögu í þýðingu Þrándar Thoroddsens kom út á kiljuformi fyrir síðustu jól. Þótt snillingnum hafi fundist sá pakki dýr var hann ekkert í líkingu við verðið á vasabrotsbókunum á frummálinu.
5. 07. 04   | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
5. júlí 2004 – mánudagur
Smá uppfærsla
Þeir sem hafa fulla einbeitingu, þjást af lítilli eða engri lesblindu, líklega edrú og ekki blindir taka vonandi eftir því að snillingur – jón hefur uppfært síðuna. Þetta er pínulítil en mikilvæg uppfærsla, sem vonandi á eftir að gleðja lítil hjörtu. Um er að ræða hvorki meira né minna en gtestabók!
ok, þetta var létt mánudagsgrín fyrir þessa lebslibndu!
Samt er ekki víst að þeir hafi tekið neitt sérstaklega eftir því. Það er bara aukagrín fyrir hina. Og nú er bara að tjá sig, elskan!
5. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
3. júlí 2004 – laugardagur
Hvað er spurning?
Á dögunum tók snillingur – jón þátt í getraun sem Onkel snillings birtir á heimasíðu sinni. Er um að ræða skjámynd úr einni af DVD myndum í eigu hans og spyr Onkel, úr hvaða mynd umrætt brot sé.
Þar sem snillingur – jón vissi svarið – enda lítið mál þar sem hann taldi onkel eiga fáar dvd myndir, fjórar, mest fimm – þá skrifaði hann svarið í kommentakerfi frændans.
Seinna um daginn spjallaði snillingur – jón við meintan Onkel, sem vildi meina að ekki væri um getraun að ræða. Þetta þótti snillingnum heldur einkennilegt, sér í lagi vegna þess að spurt var úr hvað mynd skjábrotið væri. Einkennilegur andskoti þetta og deildu þeir lengi um svarið.
snillingurinn gat ekki annað en velt því fyrir sér hver munurinn væri á getraun og getraun.
Þetta minnir óneitanlega á þjóðsöguna af prófi sem ónefndur nemandi á að hafa þreytt í Forspjallsvísindum hjá Páli Skúlasyni.
Segir sagan að ein spurning hafi verið til prófs og var hún svohljóðandi:
Hvað er spurning?
Á þessi tiltekni nemandi að hafa skrifað stutt og laggott svar, sem var svona:
Ef þetta er spurning, þá er þetta svar.
Að þessu loknu á nemandinn að hafa skilað prófinu, gengið út og orðið hæstur. Gott ef hann var ekki sá eini sem náði prófinu í þokkabót! Saga þessi hefur gengið um árabil án þess að nokkur hafi getið þess að með einfaldri rökleiðingu er hægt að leiða í ljós að svar nemandans gengur ekki upp. snillingurinn nennir ekki að birta svarið hér nema margir leiti til hans og óski þess.
Það er hins vegar góð spurning hvort getraun Onkels krefst svars þar sem ekki erum getraun að ræða.
3. 07. 04  | Tjáðu þig, elskan!")
document.write("
2. júlí 2004 – föstudagur
Illgresi er mesta prýði!
Þegar snillingur – jón brunaði framhjá Esjunni á dögunum vakti það athygli hans hversu ljósflekkóttar hlíðar fjallsins eru. Hann benti smáfríðri samferðakonu og einlægum aðdáanda á þetta og spurði hvort frístundabændur sem fyrir nokkrum árum settu fé sitt á beit í hlíðum Esju hefðu nú tekið upp á því að heyja þarna í brekkunni í þokkabót. Hún sagði það vel vera og leit upp í fjallið. Síðan leit hún á snilling – jón og sagði hátt og snjallt:
Jedúddamía! Aðeins vitleysingar fara svo hátt upp að heyja!
samferðakona snillings ákvað að kanna þessa ljósflekkóttu bletti í hlíðum Esju nánar og komst hún að því, sér til mikillar skelfingar, að um illgresistegund er að ræða sem vex um hvippinn og hvappinn. Tíðkaðist í hennar fjölskyldu að kalla óværuna „Jurtina“ og var ráðist á hana hvar sem hún kom niður í sveitinni.
Hvorki snillingur – jón né samferðakona hans botnuðu í því hvað jurtin væri að gera þarna í hlíðum Esjunnar en komust að þeirri niðurstöðu að þar sem hennar hefði aldrei orðið vart fyrr mátti vel vera að blessaður bústofn frístundabændanna sem bannað var að halda fé í hlíðum fjallsins hafi etið ógresið svo það sást aldrei.
snillingur – jón og samferðakona hans hafa sí og æ þurft að horfa upp á þennan fjandagróður enda hefur hann lagt undir sig mikinn hluta Öskjuhlíðar í þokkabót.
Ekki veit snillingurinn hvað garðyrkjufræðingar borgarinnar eru að pæla, en illgresi virðist vera orðinn mesta prýðin í henni Reykjavík.
Hér á myndinni má sjá Esjuna skarta snjó. Flekkirnir sem um ræðir í dag eru hins vegar stærri en snjórinn og neðar, fáum til yndisauka nema kannski Hrafni Gunnlaugssyni, sem hefur illgresið fyrir augum sér frá Laugarnesinu.
2. 07. 04 ")
document.write("
30. júní 2004 – miðvikudagur
Tveir Hannesar
Úthlutun styrkja til útgáfu hinna og þessa fræðibóka úr  Menningarsjóði hefur vakið nokkra gremju á meðal fræðimanna. Sér í lagi er það styrkur upp á litlar 250.000 krónur vegna endurútgáfu ævisögu Hannesar Hafstein, bindi I-III eftir Kristján Albertsson. Það sem mest fer í taugarnar á mönnum er sóttu á styrkjamiðin, er að ævisagan er hreint lofrit um Hannes og þarf af leiðandi léleg sagnfræði.
Páll Björnsson, sagnfræðingur, bendir á það á umræðuvettvanginum Gammabrekka, að í raun sé óþarfi að gefa út þetta lofrit um Hannes Hafstein út á nýjan leik enda sé Guðjón Friðriksson að ljúka við ritun ævisögu um sama mann. Það þarf vart að taka það fram að Guðjón er margverðlaunaður höfundur ævisagna.
Það sem vekur hins vegar athygli við þessa ónauðsynlegu úthlutun á endurútgáfu skjalls um dauðan mann er ritstjóri bókarinnar. Það er enginn annar en hinn „orðprúði dálkahöfundur Viðskiptablaðsins, Jakob F. Ásgeirsson,“ eins og Páll kemst að orði í pistli sínum.
Lofræðan er sumsé að koma út á nýjan leik – í þetta sinn eftir annan fylgismanns Hannesar.
Það var margt sem vakti athygli snillings er hann leit yfir styrki Menningarsjóðs. Hann hló sig hins vegar máttlausan í augnablik þegar hann sá styrkveitingu fyrir bókina Fleyg orð á íslensku eftir Hannes Hólmstein Gissurarson og ætlar Hannes sjálfur að gefa bókina út - no wonder why! Titill bókarinnar, sem snillingur – jón tók beint af síðu Menningarsjóðs, lætur óneitanlega einkennilega í eyrum.
Brosið hvarf hins vegar samstundis þegar snillingurinn sá upphæðina sem Hannes fær til útgáfunnar. Það eru litlar 500.000 krónur og er það fjórða hæsta upphæðin sem veitt er fyrir einstakt verk!
30. 06. 04 ")
document.write("
25. júní 2004 – föstudagur
Maður verður að kunna að neita sér um hlutina
snillingur – jón horfði á Baldur Ágústsson, athafnamann í London og forsetaframbjóðanda á Íslandi, kynna framboð sitt í Íslandi í dag á Stöð 2 á miðvikudag. snillingur – jón skilur ekki hvað Baldur er að gera með þessu framboði. Þetta er stór maður í stórum líkama í jakkafötum af yfirstærð. Hann kemur illa út á skjánum og þegar kom að því að svara krefjandi spurningu færðist myndavélin aftan við hann svo aðeins sást í ógnarsvera fingur teygja sig eftir vatnsglasi áður en Baldur svaraði á mótsagnakenndan hátt við sjálfan sig.
snillingurinn skilur ekki í því hvað Baldur er að gera í framboði. Hver einasta skoðanakönnun sýnir að hann getur ekki unnið. Enda á enginn séns á móti sitjandi forseta, enginn hefur nokkru sinni átt séns og Baldur hefur sýnt fram á að hann verður ekki sá fyrsti til að brjóta hefðina.
Baldur verður í fyrsta lagi að laga útlitið. Það skiptir engu máli hversu velviljaður Baldur er að miðla málum á bak við tjöldin nái hann kjöri, það vill enginn forseta sem lítur út eins og víkingur á sterum.
Það er deginum ljósara af þeim auglýsingum Baldurs í sjónvarpi og útvarpi að hann er að teygja sig eftir atkvæðum gamalmenna, öryrkja og þeirra sem ekki hafa gert upp við sig hvað þeir ætli að kjósa. Allt í góðu með það, Frjálslyndi flokkurinn fór eins að og rakaði inn atkvæðum í síðustu Alþingikosningum.
En svo eru það stefnumál Baldurs, sem eru tvö:
a) hann ætlar að reisa forsetaembættið til virðingar. M.ö.o. Baldur ætlar að  banna Spaugstofunni og öðrum grínistum að gera grín að forsetaembættinu og svipta þar með eldri borgana, sem hann er að reyna að ná til, einni af sárafáum gleðistundum sínum á laugardagskvöldi. Næstu skref hans væru náttúrlega að banna Gísla Martein líka og þarmeð er hann búinn að eyðileggja kvöldið fyrir þeim for gúdd.
b)  Baldur hefur ítrekað sagt að hann muni ekki vinna gegn vilja Alþingis og nýta sér þann margumrædda málskotsrétt sem Ólafur Ragnar, forseti, nýtti sér á dögunum. Hann ætlar sumsé ekki að fara að vilja þjóðarinnar, heldur fylgja í kjölfar ungra og saklausra alþingismanna í stuttbuxum sem sjá sér einn kost nauðugan að játa hvaðeina undir járnhæl annarra – uhumm .... Hann hefur hins vegar ítrekað haldið því fram að þjóðin eigi þennan málskotsrétt, verði að virða hann og megi nýta sér hann, sem hann gerir þjóðinni ekki kleift að gera nýti hann sér ekki réttinn sjálfur. Furðuleg rök. Þau má setja á annan veg:
Flestir Reykvíkingar sjá Esjuna og margir hafa gengið á fjallið. Segjum sem svo að forsetinn girði fjallið af og leiði rafmagn í girðinguna með þeim afleiðingum að enginn leið er lengur að því. Forsetinn getur vissulega haldið því fram að vegna þess að fjallið sé þarna þá sé hverjum og einum frjálst að ganga á það – hann getur teygt lopann og sagt að hverjum og einum sé í raun skylt að ganga á fjallið til að upplifa frelsið og hvaðeina! – hann er hins vegar ekki til í slökkva á rafmagninu og gefa þar með fólki kost á að ganga þangað óhindrað. Þetta er sumsé kjarni raka Baldurs og snillingur – jón skilur ekki hvað hann er að gera með svoleiðis vitleysu í forsetaframboð. Miklu frekar ætti Baldur að læra að neita sér um hlutina frekar en að neyta þeirra – en snillingur – jón vill ekki fara nánar út í þá sálma. Það ríður allavega á að laga lögin um forseta Íslands svo hvaða vitleysingar sem er með næga peninga í rassvasanum geti ekki farið í framboð. En vissulega má líka finna góð rök gegn þeim lögum.
25. 06. 04 ")
document.write("
2. júní 2004 – miðvikudagur
Megrun er hættuleg
snillingur – jón rak augun í sérkennilega frétt um megrun á vef Morgunblaðsins í kvöld. Samkvæmt fréttinni, sem fjallar um niðurstöður í rannsókn sem einhvern tíma var gerð í útlöndum, dregur síendurtekinn megrunarkúr úr virkni ónæmiskerfisins.
snillingur – jón hrökk í kút enda hefur hann margoft farið í megrun – gott ef hann hafi ekki gert fjórar tilraunir á þessu ári einu.
Einn rannsakandinn dró reyndar í land og sagði það ekki skaðlegt að hafa lést einu sinni um 4,5 kíló eða meira á 20 árum.
Ekki fannst snillingnum mikið að léttast um 4,5 kíló eða meira á tuttugu árum enda gerir sá kúr sem hann er á nú ráð fyrir því að viðkomandi léttist um 5 til 8 kíló á hálfum mánuði – það er að segja, fylgi hann kúrnum í einu og öllu. Það hefur snillingur – jón aldrei gert og þarf hann því að lifa við það að verða – vonandi – slank og flottur með handónýtt ónæmiskerfi.
snillingur – jón skilur ekki hvernig fólk á að fara að því að megra sig ef það ætlar að hlýða niðurstöðum rannsóknarinnar. Ekki fannst snillingnum mikill árangur að léttast um 4,5 kíló á tuttugu árum – meðaltalið er hrikalegt, einhver aumingjans grömm á mánuði. Kannski þetta sé spurning að léttast um 5 kíló í einu eða 7. Gaman væri hins vegar að taka þetta með trukki og léttast um tuttugu kíló með trukki … En tja, varla mögulegt líkamlega séð. Húðin myndi leka niður á þeim sem það reyndi, undirhakan næði án efa langt niður fyrir brjóstkassa, brjóstin sjálf við hné og maginn við tærnar – eða undir þeim. Nei, nei, þá er nú betra að halda sig við auma megrunarmeðaltalið sem felst í því að losa sig við aum 4,5 kíló á tuttugu árum.
Þeir sem vilja lesa nánar um hættur megrunar geta lesið fréttina hér.
2. 06. 04 ")
document.write("
28. maí 2004 – föstudagur
Kolvetnissprengdir svartálfar í fínum gír – og einn í fríi
snillingur – jón fór að sjá konunga nýbylgjunnar rokka Kaplakrika í tætlur á huggulegu miðvikudagskvöldi. Undarlegt þótti honum samt að halda tónleika af þessari stærðargráðu í Kaplakrika; bæði er aðkoman tyrfin, bílastæði af skornum skammti og plássleysið yfirgnæfandi. Þá er og engin áfengissala í íþróttahöllinni, sem snillingnum finnst að megi leyfa á meðan tónleikar sem þessir fara fram. Ef Íslendingar ætla einu sinni að standast samanburð við aðrar þjóðir, sér í lagi þessar nágrannaþjóðir, sem þeir bera sig við í sífellu, þá verða þeir að auðvelda aðgengi að áfengi á samkomustöðum sem þessum. Þetta sannaðist best á því að einhverjir voru stöðvaðir við innganginn með kippu af bjór á meðan þeir sem töldu sig fyrirhyggjusama mættu ofurölvaðir á staðinn. Aðrir mættu næstumþví edrú, eins og snillingur – jón.
Stuttu eftir að snillingur – jón gekk í salinn ásamt smámeyjum sem fylgja honum og ritstjóranum, frænda hans, hvert fótmál blés upphitunarbandið í lúðra. Hvort það var vegna innkomu snillings og co. veit samt enginn. Ghostigital hitaði lýðinn. Fantagott en krefjandi band með brilljant hljóm og telur snillingur fullvíst að það muni gera góða hluti í framtíðinni. Allavega heyrði hann útundan sér að margir ætluðu að fjárfesta í disknum – og segir það nokkuð um gæðin. Reyndar fannst honum nokkur hljóð sveitarinnar sem fengin að láni frá Björk, sér í lagi fyrstu þungu taktarnir, sem minntu á Army of me. En það var í lagi enda ekki langt að leita að góðum takti, sér í lagi fyrir Einar Örn
Þegar rótarar glömruðu amatörslega á gítara, stilltu magnara og meðfylgjandi og áhorfendur höfðu stappað fótum og höndum saman til ólífis birtust loks goðin á sviðinu.
Áhrifavaldarnir stigu loks á svið, goðin sem höfðu þau afdrífaríku áhrif á snilling – jón að hann dreif sig út í búð fyrir rúmum tíu árum, fjárfesti í gítar og magnara og skaðaði á sér eyrun í tætlur.
Byrjunin var hugljúf, einhver ofurróleg melódía sem snillingurinn mundi ekki eftir, sungin með englaröddu Deal, sem helst leit út fyrir að hafa ryksugað síðustu árin og vart snert við bassanum. Skiljanlega svolítið amatörlegt að sjá og stundum að heyra, en það skipti engu – hún brosti svo fallega, eins og geðsjúklingur á hamingjupillum.
Svo var brunað af stað í gegnum svita og tár og öskur og ískur, grátur og gnístur: Bone Machine, Hey, Monkey gone to heaven og allan þann snilldarskít sem bandið gaf út á fyrstu þremur plötunum.
snillingurinn svitnaði á höndum og fótum við tónana, bak hans var votara en mýrarfen og handarkrikarnir blautari en Laugardalslaug. Gott ef honum vöknaði ekki um hvarmana.
Það var aldrei stoppað á milli laga, aldrei spjallað við áhorfendur, ekki nema til að fá sér sopa. Það sást hver réð ferðinni; öskrarinn himneski, fitukleppurinn Frank Black var óskoraður höfðingi sviðsins.
Í uppklappinu var þrumað í gegnum þrjú lög, tvö af síðustu tveimur plötunum. Stöppuðu áhorfendur eins og bavíanar þegar bandið lokaði ballinu, en ritstjórinn hrópaði upp yfir sig: „þeir spiluðu aldrei Cactus!“ Það er skemmst frá því að segja að nefndur slagari er uppáhald ritstjórans.
snillingur – jón var sveittur. Hann var sveittari en sveittur en ákvað samt að fara ekki í sturtu heldur sofa í drullunni þar sem um Pixíska svitaupplifun var að ræða. Í ofanálag þjáðist hann af ískrandi suði fyrir eyrunum eftir alveg hreint frábæra tónleika í afleitri hljóðblöndun. Sorglegt að hljóðmaðurinn gat ekki gert betur. En … Frábært, tær snilld, Pixies eins og þeir gerðust bestir, sjálfsagt eins og snillingurinn sá þá fyrir sér fyrir fjórtán árum og tuttugu kílóum síðan.
Þegar snillingur – jón og smáfríða föruneytið, sem fylgir honum hvert fótmál, gengu út í ferska loftið varð þeim litið undir innganginn að Kaplakrika. Og sjá: var þar ekki sá Svarti sjálfur á leið einn inn í upphækkaðan silfurfák, sem bakkaði út. Afgangur Svartálfanna fór seinna.
Blakkur hvarf sumsé einn á braut og grunaði snilling að bandið kæmi vart til með að endast sumarið á enda. „Og þá springur það aftur,“ sagði snillingur – jón við föruneytið og sá fyrir sér Blakkinn senda bandfélögunum skeyti um miðjan júlí, segðist hættur í bandinu.
Þetta verður í mesta lagi Hróarskelda, svo verða Pixies aldrei meir …
28. 05. 04 ")
document.write("
27. maí 2004 – fimmtudagur
Frelsið fuðrar upp
Það er ótrúlegt hvað Bandaríkjamenn eru upp til hópa miklar teprur. snillingur – jón, sem síðustu tvö, kannski þrjú árin, hefur fylgst með skörulegri framgöngu Michael Moore og keppikefli hans, að sýna löndum sínum spegilmynd sína. Og sú mynd er ekki fögur. Hún riðlar öllum hugmyndum þeirra um sjálfa sig – þ.e.a.s. að þeir séu máttarstólpar lýðræðisins, baráttumenn frelsishugsjónarinnar, jafnréttisins og bræðralagshugsjónarinnar og … nei, þetta á nú við um Frakkaland.
Nema hvað síðastliðin þrjú ár hefur Michael Moore sýnt það og sannað með Óskarsverðlaunum og nú síðast með Gullpálmanum í Cannes, að hann er óskoruð skynsemisrödd Bandaríkjanna.
Merkilegt að Bandaríkjamenn kuna ekki að meta slíkt. Móðurfélag Miramax, sem framleiddi mynd Moores, Disney, neitar að dreifa nýjustu kvikmynd hans og stendur jafnfætis því í vegi fyrir að forráðamenn dótturfyrirtækisins geti keypt dreifingarréttinn af þeim; ástæðan fyrir því er sögð að Disney hafi verið á móti framleiðslu myndarinnar frá upphafi og hafi bræðurnir Weinstein, framleitt hana fyrir aura sem þeir lögðu lymskulega til hliðar og átti að fara í annað. Einhversstaðar las reyndar snillingur – jón að Disney væri í Flórída. Þar er Jeb Bush, bróðir forsetans, einmitt ríkisstjóri. Gæti hann hæglega hrifsað aftur til sín allar þær skattaívilnanir sem Disney hefur hingað til fengið fyrir að töfra fram huggulegan heim þar sem allir eru vinir á hvíta tjaldinu.
Merkilegt.
Í kjölfar þess að Moore vann Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina fletti snillingurinn upp í Internet Movie DataBase. Og sjá! Fahrenheit 911 fær 6.6. stjörnur af tíu mögulegum og svotil enga umfjöllun. Gagnrýnendur sem skrifa á vefinn eru hins vegar gapandi yfir viðbrögðum landa sinna.
Eins og glögglega kemur fram í stjörnugjöfinni hér til hliðar sést að 447 áhorfendur gáfu myndinni 10 í einkunn á meðan 160 gáfu henni falleinkunn, þar af gáfu 130 henni 0.
Merkilegt.
Líklegt má telja að þarna séu á ferðinni vinir og vandamenn Bushfjölskyldunnar.
27. 05. 04 ")
document.write("
26. maí 2004 – miðvikudagur
Róleg hverfi, hvað?
snillingnum þykir orðið lítið koma til auglýsinga um róleg hverfi. Sérstaklega þykir honum hugtakið, rólegt hverfi skyggja svolítið á annars sólríkt sumar.
snillingur – jón býr í Hlíðunum, sem er rólegt hverfi. Þar búa einnig Björn Bjarnason, dómsmálabloggari, og Friðrik Skúlason, vírusbani, sem enn hefur ekki notið þess að um hann hafi verið skrifuð ævintýri, líkt og um starfsbróður hans, Sigurð, sem kom Fáfni fyrir kattarnef. Einhverjir leikarar búa einnig í hverfinu, Evróvisjónhjónin Selma og karlinn hennar, sem snillingur – jón man ekki lengur hvað heitir, rithöfundurinn Sigurður Pálsson og hans kona, sem snillingurinn man heldur ekki hvað heitir – svo má lengi telja.
Hlíðarnar hafa um árabil verið talin til rólegri hverfa borgarinnar, enda uppfullt að íbúum í eldri kantinum, eins og húsin, gangstéttirnar, trén sem mætti alveg sneiða niður við rót, göturnar sem mætti endurnýja og fleira.
Nema hvað virðist allt á hraðbyr inn í tímabil breytinga í Hlíðunum. Það virðist allavega sem eldra liðið hafi komist yfir ellina og poppað feitt, horfið yfir móðuna miklu, farið á fund forfeðranna, og hvað sem þetta heitir allt saman. Yngra fólk hefur flutt inn í næstu hús við snilling – jón, með viðhangandi krakkaskara, skrílslæti, hamagang – og hvað þetta heitir nú allt saman.
Voða sætt, myndu sumir segja. Helvítis hávaði! segir snillingur – jón.
Síðastliðið sumar poppaði rólegur nágranni snillings ansi feitt (snillingurinn tekur svona til orða, enda telur hann, að viðkomandi hafi flutt yfir í Grafarvog, sem í huga snillings er lengra en að fara yfir móðuna miklu – okei, Selfoss er kannski lengra í burtu. En hvað um það). Þegar karlinn var á braut og burt flutti par á miðjum aldri – líklega um fertugt – inn í húsið. Þrjú börn fluttu með.
Húsið hafði látið á sjá og þarfnaðist viðamikilla endurbóta. Og garðurinn sömuleiðis. Fagmenn í húsa – og garðvinnu unnu á báðum stöðum allt sumarið og langt fram á haust með tilheyrandi hávaða fram í desember og var snillingur – jón á tíðum svo viti sínu fjær af hávaða að hann heyrði vart lengur hvað hann hugsaði.
Jólin voru fallegur og rólegur tími. Lak friðar lá yfir hverfinu og svo framvegis. Þetta var alltsaman huggulegt, börn fengu eitthvað fleira en kerti og spil og þar fram eftir götunum.
Í vor vaknaði snillingurinn hins vegar við vondan draum. Hann vaknaði eiginlega við trommuslátt, gítarspil og tilheyrandi úr næsta skúr. Hann kannaði málið í gegnum glugga og komst að raun um að þarna voru á ferðinni synir nýju hjónanna, ásamt vinum, að æfa fyrir þátttöku í Músíktilraunum. Hvílík leiðindi!
snillingurinn er samt guðslifandifeginn að Mínus flutti ekki í skúrinn.
Það er skemmst frá því að segja að snillingurinn gaf þeim frest fram að Músíktilraunum. Það virkaði náttúrlega ekki enda komust þeir ekki í úrslit og hömuðust fram eftir vori til að bæta sig.
En nú eru þeir hættir, þakka þér Guð!
En meira um gömul hverfi og róleg, gömul hús og svo framvegis.
Það er öllum ljóst að gamalt er gamalt og það þarfnast endurbóta. Og hávaði er samfara endurbótum.
Nú er sumsé verið að laga stéttina fyrir utan hús snillings. Það er búið að rífa upp gömlu stéttina í hálfri götunni, merja hana og berja frá því í síðustu viku, þjappa nýju undirlagi í jarðveginn og hamast á þessu öllu saman svo ekki þurfi að endurnýja þetta alltsaman þar til á næstu öld. Og hvílíkur hávaði! Piparstaukar snillings hafa hrunið úr hillum, tónlistin höktir í geislaspilaranum og hugsunin kemst ekki ósködduð í höfuðið sökum skruðninga og niðurbrots. Þetta er eins og Einsturzende Neubauten, án takts.
snillingurinn vonar svo sannarlega að verkinu verði lokið á næstu dögum. Þessar framkvæmdir síðasta árið hafa hann hins vegar fengið hann til að íhuga hvort róleg hverfi séu ekki bara yfirskin fasteignasala yfir hverfi með gömlum húsum, lélegum gagnstéttum og eldri fólki sem þarfnist endalausra endurbóta.
Að vísu má undanskila gamla fólkið frá endurbótunum. Það fer annað hvort yfir móðuna miklu eða í Grafarvog og ungt fólk flytur inn með enn yngri börn sem eiga þann draum heitastan að taka þátt í Músíktilraunum.
Það er sveimérþá spurning hvort það sé ekki kominn tími á snilling – jón að flytjast í nýtt og spennandi hverfi með fullt af ungu fólki. Þar getur hringrásin í það minnsta haldið áfram – í þetta sinn með snillingnum.
26. 05. 04 ")
document.write("
25. maí 2004 – þriðjudagur
Hver var aftur Atkins?
Hún var einkennileg fréttin sem snillingur – jón las í einu dagblaðanna í gær. Hún var í litlu stærra broti en fyrsta fréttin af eyðni árið 1980 – og eitthvað, sumsé lítil og ásjáleg svo enginn tæki almennilega eftir því að einmana ferðalangur tók apa í bleiku botnholuna.
Litla fréttin sem snillingur – jón rak augun í á mánudagsmorgni fjallaði ekki um lítinn og aumkunarverðan apa með auman botn í frumskógum Afríku. Nei, fréttin sem sló snilling svolítið út af laginu fjallaði um Atkins-kúrinn sem stjórnarkólfar landsins hafa verið að hakka í sig – sem í sannleika sagt ætti að vera, „ekki að hakka í sig“, þar sem um megrunarkúr er að ræða – síðustu tvö árin. Gott ef Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari, skrifaði ekki bók um hann eftir að hafa étið af sér þrjátíu kíló og gott betur.
Jú annars, það má segja að um át sé að ræða enda markmið kúrsins – og um það fjallaði fréttin í blaðinu – að skipta öllum kolvetnisríkum mat út fyrir prótein. Í stað brauðs kemur rjómi, í stað kartaflna hangikjöt. Í stað hrísgrjóna kemur beikon, egg og önnur próteinrík fæða. snillingur – jón hefur einu sinni snætt hjá fólki sem var á kúrnum, og líkaði honum að sjálfsögðu kræsingarnar.
Tilefni fréttarinnar var niðurstaða rannsóknar bandarískra vísindamanna sem skrifuðu grein í bandaríska læknablaðið Annals of Internal Medicine þess efnis að Atkins-kúrinn virkar hraðar en aðrir kúrar. Reyndar kom fram að þeir hafi efasemdir að hann endist til langframa. Sem lætur einkennilega í eyrum. Sjaldan hefur snillingur – jón fremur kosið hart brauð og grænmeti þegar rjómi, beikon og egg eru annars vegar.
En hvað um það. Atkins – kúrinn er grennandi.
Það er einmitt meint heilbrigði kúrsins sem snillingurinn gapaði svolítið yfir sig undrandi á þessum mánudagsmorgni, þessi staðreynd að kolvetni er vont, en prótein gott. Hann rekur í minni fréttaumfjöllun – álíka smágerð og sú sem fjallaði um einmana ferðalanginn í Afríku og afleiðingar gjörða hans – sem hann rak augun í fyrir nokkrum árum og fjallaði um niðurstöður á áralangri rannsókn á Alzheimer. Vísindamenn höfðu sumsé komist að því – og snillingur – jón tekur fram að þetta var fyrir nokkrum árum –að mikil neysla próteinríkrar fæðu gæti verið orsakavaldur alzheimersjúkdóms. Hvort niðurstöðurnar voru áreiðanlegar veit snillingur – jón hins vegar ekki. Og ekki veit snillingur – jón hvers vegna vísindamenn draga aldrei þessa rannsókn fram í dagsljósið. Það má annars vel vera að þeir hafi neytt of margra próteinríkra eggja og séu búnir að steingleyma niðurstöðunum.
snillingnum finnst þetta að sjálfssögðu hræðileg þróun.
Eftir þetta tíu fimmtán ár, og kannski tuttugu, verða tágrannir stjórnmálamenn á rjúkandi alzheimertrippi, Sigurður Kári kannast ekki lengur við Davíð Oddsson, sem skiptir kannski ekki máli þar sem tágrannur Davíð – og hann mátti við því – man heldur ekki hver Sigurður Kári er, og hringir því í stæltan og spengilegan Egil Helgason, sem kannast ekki við þann sem hringdi. Hann veltir því fyrir sér í augnablik að hringja í Halldór Ásgrímsson eða Guðjón A. Kristjánsson úr Frjálslynda flokknum – en hugsunin hverfur jafnskjótt og hún kom. Ásmundur Stefánsson verður sýnu gloppóttastur þar sem hann byrjaði fyrstu á próteininu. Og sömu sögu verður að segja af hálfri þjóðinni. Það verður hins vegar spurning hvað verður um snilling – jón, sem étur hvað sem að kjafti kemur og hefur nú ákveðið að halda sig við pizzutilboðin!
25. 05. 04 ")
document.write("
24. maí 2004 – mánudagur
Setjum lög á alþingismenn og vini þeirra!
snillingur – jón gat svosem sagt sér að Fjölmiðlafrumvarpið yrði samþykkt í dag. Sem og var gert. Hann nennir ekki að velta kosningunni meira fyrir sér. Ekki fremur en ástæðunni fyrir því að Jónína Bjartmarz, sem fyrir einu eða tveimur árum síðan var valin kynþokkafyllsti alþingismaðurinn, skyldi hafa setið hjá. snillingur – jón nær vart upp í nef sér þegar þingmenn sitja hjá. Er annars ekki nóg að þeir sitji alla sína hundstíð sem alþingismenn á kostnað almennings og hlýði sitjandi á blaður um eitt og annað undir eitt, heldur sjái þeir sig tilneydda til að sitja hjá þegar kemur að kosningum í málum. Og snillingnum er nokk sama þótt þeir geri grein fyrir hjásetu sinni, eins og Jónína á víst að hafa gert í púlti Alþingis í dag, því ekki veit hann betur en að hjáseta þýði það sama og að skila auðu í Alþingiskosningum. Í sveit snillingur – jón, fæðingarbæ Skítamórals, var talað um auð og ógild atkvæði ef slíkt gerðist og voru þau sett í svartan ruslapoka og enduðu lífdaga sína undir urð og mold. Já, þegar Jónína Bjartmarz steig í pontu á Alþingi í dag hefði hún allt eins getað farið með ferskeytlu, ofurlitla stöku, það hefði allavega kætt Halldór Blöndal.
En snillingur – jón nennir ekki að skrifa um skræfurnar á Alþingi sem þorðu ekki að standa við eigin sannfæringu heldur óðu eld og brennistein og skítkast og drullu á eftir foringjum sínum. Nei, snillingi – jóni finnst nefnilega fjölmiðlafrumvarpið heldur lítilfjörlegt. Það er ómerkilegur pappír, sannkölluð hrákasmíð sem unnin var í flýti. Það hefði verið miklu nær að setja lög á stjórnarformenn, nefndarformenn, stjórnmálamenn sem sitja í nefndum þvers og kruss og aðhyllast svipaðar stjórnmálaskoðanir, sitja jafnvel saman í flokki og stjórna einu fyrirtæki á milli níu og tíu, öðru á milli ellefu og tólf og kannski fjórum öðrum eftir hádegi. Tvisvar í viku hittast þeir svo í nefndum og ræða sín á milli. Það á líka að setja lög á vini alþingismanna – enda hafa þeir hag hvor af öðrum. Það ætti sumsé að setja lög á samráð Esso, Olís, tryggingafélögin í heild sinni, bankana, fjárfestingafélögin og hvað þetta heitir allt saman. Og það á að setja lög á ofvirka stjórnmálamenn sem sitja í bygginganefndum Þjóðleikhúsa og sinna öðrum opinberum hjáverkum þegar þeir eiga fremur að sinna kjósendum sínum frá Alþingi
Svo mætti náttúrlega skikka alþingismenn að segja annaðhvort „já“ eða „nei“ í stað þess að skila auðu. Til þess voru þessir einstaklingar líka kosnir á Alþingi. Eða því trúir snillingur – jón
Það eru svona lög sem snillingur – jón vill miklu fremur sjá en lög um fjölmiðla.
24. 05. 04 ")
document.write("
23. maí 2004 – sunnudagur
Borðað með Pixies
Bandaríska hljómsveitin Pixies mun halda tvenna tónleika í Kaplakrika í Hafnarfirði í vikunni. Bandið er nýkomið til landsins og á laugardag fóru meðlimir hljómsveitarinnar út að borða ásamt einhverjum úr krúinu á veitingastaðnum Austur – Indía við Hverfisgötuna. snillingur – jón var að sjálfssögðu á staðnum.
Samkvæmt upplýsingum snillings átti bandið pantað 12 manna borð klukkan hálf tíu. En eins og gjarnt er með heimsfræga einstaklinga, og aðra nafntogaða hópa, þá birtist ekki sála fyrr en nær hálfellefu. Starfsfólk sem snillingur – jón sögðust hafa haldið ró sinni.
Það kom snillingnum á óvart þaðan sem hann horfði að mest ró virtist vera yfir krúinu öllu saman; fólk spjallaði og hló og virtist sem það rafmagnaða ástand sem hann hafði lesið í tímaritum frá fyrri tíð fyrir löngu fyrir bí. Að sögn þjóna staðarins reyndust þetta mestu öðlingar. Þeir pöntuðu næstum hvern einasta rétt á matseðlinum og nutu til hins ýtrasta – það mátti nú líka sjá á vaxtarlaginu: fyrir utan að hafa elst nokkuð – skiljanlega svosem þarf sem tíu eða fimmtán ár eru síðan bandið var starfandi – þá hafa þau vaxið svolítið meira til hliðanna en upp. Sér í lagi Deal. Það fannst snillingnum svosem í lagi, enda sjálfur ekki saklaus á vigtinni. Það sem kom snillingnum hins vegar á óvart var að vart sást vín á fólki. „Eru þau kannski svona dópuð og róleg eins og rokkara er siður?“ spurði snillingur eina af þjónustustúlkum staðarins. Nei, svo var ekki, enda tjáði viðkomandi snillingnum að tvö ungabörn voru með í för og mætti skrifa rósemdina á reikning tillitssemi við þau. Hverra manna börnin voru vissi starfsfólk staðarins hins vegar ekki.
„Merkilegt,“ hugsaði snillingurinn og varð hugsað til þess eldheita ástand á milli Frank Black, sem ýmist hefur kallað sig Francis Black eða Black Francis, lagahöfund og söngspíru – sem óhnyttinn gagnrýnandi sagði reyndar eitt sinn eftir þriðju og án efa lélegustu sólóplötu kappans að ætti fremur að breyta nafni sínu í Frank Blank – og Kim Deal, bassaleikara bandsins, sem varð til þess að hljómsveitin splundrast á sínum tíma. Það vottaði ekki fyrir þessu og óttaðist snillingur – jón á tímabili að tónleikarnir sem hann ætlar að njóta verði dauðyflislegri fyrir vikið. Honum kom því til hugar að fara úr öðrum skónum og henda í annað hvort Black eða Deal í von um að annað ryki á hitt og rifi þannig upp gamalt spennuástand. Þegar á hólminn var komið gat hann ekki gert upp við sig hvort þeirra fengi skóinn í sig. Hann brá því á það ráð að hafa samband við ritstjórann, frænda sinn, tjá honum fréttirnar og spyrja ráða. Svarið var ekki af gæfulegu sortinni.
„Mana þig til að skalla Black Francis og slumma Kim Deal ... eða öfugt.“
Þetta var ekki góður kostur enda miklu meiri líkur á að viðkomandi myndi skalla snilling á móti. Svo var allt eins spurning hver yrðu viðbrögð við kossinum. Það kom allavega ekki til greina frá bæjardyrum snillings séð að mr. Black slummaði á móti. Þá kysi hann frekar rothögg!
23. 05. 04 ")
document.write("
22. maí 2004 – laugardagur
Listaglæpur
snillingur – jón rak upp stór augu þar sem hann sat í bláa sófanum sínum og las eftirfarandi frétti í laugardagsútgáfu DV:
Finnbogi Pétursson myndlistarmaður: „Ég hef það ljómandi fínt og er að undirbúa sýningu í Basel með Gjörningaklúbbnum.“ Að sögn lögreglu hefur enginn verið yfirheyrður vegna málsins.
snillingurinn áttaði sig fljótt á því að hann hafði óvart slegið saman tveimur fréttum; einni sem fjallaði um velgengni Finnboga í myndlistarheiminum og annarri um eld í Lundarskóla.
Það er hins vegar skemmst frá því að segja að eftir að hafa séð sýningu Gabríelu Friðriksdóttur þá trúði snillingurinn samanslegnu fréttinni í nokkrar sekúndur.
22. 05. 04 ")
document.write("
4. maí 2004 – þriðjudagur
Ekki á allt kosið
Afmælisdagur snillings – jóns varð ekki eins og hann ætlaði. Hann vaknaði við frábæran morgunmat, krásum hlaðið borð með jarðarberjum, sulti, osti og þvíumlíku sem hann fékk að snæða yfir morgunblöðunum – já, öllum þremur. Veðrið var hins vegar hið prýðilegasta, næstum hlýtt. Verkalýðurinn sem hamraði á kröfum sínum niðri í bæ komst sumsé skraufþurr frá öllu saman.
Seinna um daginn bilaði tölvan. Drap hún á sér trekk í trekk, ræsti sig að nýju og engu skipti hvort módemið var notað, hún neitaði að tengjast Netinu. Jamm, jövlans satans Sasser B kominn í tölvu snillings og eyðilagði þar með fyrir honum laugardaginn, sunnudaginn og mánudaginn líka. Og þá gat snillingur ekki lengur setið rólegur á sínum og gekk niður í Frisk og festi kaup á veiruvörn.
Eftir fjögurra tíma skönnun og tilheyrandi er þetta loksins allt að skríða saman.
4. 05. 04 ")
document.write("
1. maí 2004 – laugardagur
Til hamingju ég!
snillingi – jóni finnst eitt atriði umfram annað sérlega skemmtilegt við 1. maí. Það er kröfuganga verkalýðsins frá Hlemmi – eða hvaðan sem hún nú byrjar – og niður á Lækjartorg þar sem hamrað er á kröfum verkalýðsins í hundraðasta og eitthvað sinn.
Það er eiginlega alltaf rigning á 1. maí. Samt sem áður lætur niðurbarður verkalýðurinn það ekki á sig fá og þrammar niður göturnar í þennan klukkutíma eða tvo sem kröfugangan og tilheyrandi tekur. Það finnst snillingnum sérlega skemmtilegt enda verður barátta niðurbarða verkalýðsins svo hjáróma og veikluleg í rigningunni.
Það sem snillingnum finnst með eindæmum skemmtilegt við 1. maí er að þetta er frídagur verkalýðsins sem þrammar niður helstu götur heimsborganna - og í rigningunni í Reykjavík – og hamrar á kröfum sínum. Frídaginn ber aðeins örsjaldan upp á almennum vinnudegi; stundum er frí á mánudegi, stundum á þriðjudegi og svo framvegis. Á síðasta ári hamraði verkalýðurinn á kröfum sínum á fimmtudegi. Í ár ber dag verkalýðsins hins vegar upp á hlaupaári, á laugardegi, sem gerir það að verkum að föstudagurinn dettur út. Ákveðið svekkelsi að standa í rigningu á laugardegi og hamra á kröfum sínum. Á næsta ári ber frídag verkalýðsins upp á sunnudegi, sem hljómar enn verr. Mann fer að langa í frí! Verðskuldað frí!
Það verður væntanlega stuð eftir tvö ár, en þá ber frídag verkalýðsins loks upp á mánudegi. Það er hins vegar spurning hvort nokkur verði til að hlusta á verklýðinn gráta hlutskipti sitt þar sem helgin verður löng og flestir fara úr bænum.
Það er orðin spurning hvort ekki sé skynsamlegast að færa frídag verklýðsins fram á fyrsta mánudag í maí – eða eitthvað þvíumlíkt.
Það sem snillingi – jóni finnst langskemmtilegast við 1. maí er að þann dag á hann afmæli. Hann hefur þess vegna aldrei farið í kröfugöngu niður í bæ heldur setið heima og spænt í sig afmæliskökur.
1. 05. 04 ")
document.write("
30. apríl 2004 – föstudagur
Samúð á röngum forsendum
snillingur – jón sat opinmynntur við skjáinn síðastliðinn miðvikudag og fylgdist grannt með umræðum Svanhildar læðu og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, um fjölmiðlafrumvarpið í Kastljósi.
Eins og búast mátti við hentaði uppstillingin kona á konu afar vel. Bjóst snillingurinn við kvennaslag á hverju augnabliki.
Það sem sló snilling – jón einna helst út af laginu var samúð menntamálaráðherra. Hún vorkenndi sumsé Davíð Oddssyni vegna þeirrar persónulegu árásar sem dunið hafði á honum undanfarna daga. Hafði hún sjaldan orðið vitni að jafn ógeðfelldri aðför að einum manni og nú.
Þetta var snillingi – jóni með öllu óskiljanlegt enda vissi hann ekki betur – eins og allir, fyrir utan nokkra sjálfsstæðismenn sem hafa sett Davíð í guðatölu - en að fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar mætti að mestu, ef ekki öllu leyti, skrifast sem hugarfóstur forsætisráðherra.
snillingnum datt helst í hug að Þorgerður neitaði sér um þann munað að skilja forgangsröðunina enda störf hundruða einstaklinga í húfi verði fjölmiðlafrumvarpið samþykkt á Alþingi. Nei, hún kaus heldur að vorkenna höfundi frumvarpsins sem hefur störf einstaklinga – sem verður starfsleysi að lokinni samþykkt – á samviskunni.
Þorgerður má miklu frekar prísa sig sæla að hafa ekki orðið skotspónn fjölmiðla í þessu máli með sama hætti og Davíð enda er spurning hvort hún hefði staðið álagið.
Það er svo aftur spurning hvort hún hefði ekki bara gert eins og Davíð, sem í hita umræðnanna fór í opinbera heimsókn til Oxfordháskóla að afhenda styrk ríkisstjórnarinnar til íslenskunáms.
30. 04. 04 ")
document.write("
28. apríl 2004 – miðvikudagur
Vegir Davíðs eru órannsakanlegir
snillingur – jón botnar lítið í Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, þessa dagana. Hann virðist allavega gera allt sem í valdi hans stendur til að gera stuðningsmenn sína vandræðalega. Nokkrir sjálfstæðismenn sem snillingur hefur rabbað stuttlega við á dögunum virðast styðja fjölmiðlafrumvarp Davíðs, í það minnsta í orði. Þegar kemur að rökstuðningi hringir ýmist síminn skyndilega svo þeir þurfa að stökkva frá eða þeir fá bráðavírus í augað.
Ef snillingur - jón bregður fyrir sig betri samræðufætinum og bryddar upp á vináttu – og ættingjaráðningum Davíðs í gegnum tíðina fá þeir sýkingu í bæði augun og eru ekki viðræðuhæfir í nokkra daga.
snillingur – jón er ekki frá því að helst megi líkja Davíð Oddssyni við Guð almáttugan. Það er að segja ef slíkur karakter er til á himnum. Allavega haga þeir sér báðir eins og þeim sýnist og eru báðir hafnir yfir rök. Aðspurðir um rök gjörða sinna vísa þeir á aðra. Í tilviki Guðs sitja páfar og biskupar fyrir hellidembu rakanna, en  Halldór Ásgrímsson, núverandi utanríkisráðherra og verðandi forsætisráðherra gegnir páfahlutverki Davíðs.
snillingur - jón komst ekki hjá því að vorkenna Halldóri pínulítið þar sem hann sat í Kastljósi á RÚV í gærkvöldi og svaraði fyrir einkafrumvarp Davíðs Oddssonar. Og eins páfar og biskupar sem og allir þeir sem gert hafa tilraunir til að svara fyrir gjörðir Guðs á himnum þá átti Halldór engin svör á reiðum höndum um gjörðir Davíðs í Stjórnarráðinu.
Af hverju fór Davíð ekki sjálfur fram og svaraði fyrir sig? Nú, ástæðan er einföld: Guð svarar ekki fyrir sig. Hann lætur undirsátana um það.
28. 04. 04 ")
document.write("
7. apríl 2004 – miðvikudagur
Halldór og staðfasta þjóðin
snillingur – jón á ekki til orð yfir staðfestu Halldórs Ásgrímssonar, núverandi utanríkisráðherra og verðandi forsætisráðherra. Það ætlar ekki að skipta einu einasta máli hverju hann heldur fram, snillingur – jón mun alltaf verða andstæður honum í skoðunum. snillingur – jón telur reyndar að flestir skynsamir landar hans séu öndverðir skoðunum Halldórs...
MEIRA")
document.write("
3. apríl 2004 – laugardagur
Niðurhalanlegt Sauðfé í netheimum!
Þær ótrúlegu fréttir voru að berast snillingi – jóni í morgunsár þessa fallega dags að eldævagamlar upptökur hljómsveitarinnar Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur séu nú komnar á vef www.rokk.is...
MEIRA")
document.write("
2. apríl 2004 – föstudagur
Hryðjuverkastarf ríkisins
snilling – jón rak heldur en ekki í rogastans þegar hann fletti DV í morgun og las fréttir þess efnis að skera ætti niður þáttagerð hjá RÚV. Þótti honum nú nóg komið af skemmdarverkastarfssemi menntamálaráðherra...
MEIRA")
document.write("
31. mars 2004 – miðvikudagur
Janis Joplin og Lalli Johns
Það er eitthvað í sambandi við bandarísku söngkonuna Janis Joplin sem hefur alltaf farið í fínustu taugar snillings – jóns. Kannski er það söngurinn. Kannski er það hippisminn sem hún stóð fyrir og dó fyrir. Það er eitthvað. Þegar útvarpsstöð á höfuðborgarsvæðinu spilaði lagið Me and Bobby McGee í morgun smullu púslin saman í höfði snillings – jóns…
MEIRA")
document.write("
30. mars 2004 – þriðjudagur
Þrjár mínútur hjá Marteini
Af ástæðum sem óþarft er að tíunda hér sá snillingur – jón laugardagsþátt Gísla Marteins ekki fyrr en um hádegisbil á sunnudag. Hvað hann heitir man snillingurinn hins vegar ekki; það má  vel hafa verið Á tali með Gísla Marteini eða Í ylhlýjum faðmi. Í huga snillings – jón heitir þátturinn hins vegar Tíu mínútur með Marteini. Smágerða stórskáldið Sigurður Pálsson var gestur Gísla Marteins á laugardag…
MEIRA")
document.write("
26. mars 2004 – föstudagur
Mega ræstitæknar framkvæma uppskurði?
Þær eru einkennilegar fréttirnar sem berast af skrípafyrirtækinu Impregilo ofan af Kárahnjúkum þessa dagana. Ekki einasta hefði með fyrirbyggjandi aðgerðum mátt koma í veg fyrir vofeiglegt andlát ungs manns sem var við vinnu sína í gilinu, heldur verða ökumenn þungavinnuvéla á vegum fyrirtækisins nú að greiða fyrir bilanir og skemmdir á vinnutækjum…
MEIRA")
document.write("
26. mars 2004 – föstudagur
Tímamót í saurlosun
Nýjustu fréttir úr Mosfellsbæ eru sérdeilis athyglisverðar. Bæjaryfirvöld vestra hafa nú ákveðið að hætta að veita saur bæjarbúa út venjubundna leið og hafa nú látið grafa skurð yfir Korpu við Korpúlfsstaði með það fyrir augum að tengjast saurveitusystemi Reykjavíkur. Er ætlunin að skola Mosókúknum sömu leið og þeim góða brúna úr Reykjavík…
MEIRA")
document.write("
25. mars 2004 – fimmtudagur
Hvers manns hugljúfi?
snillingur – jón hefur legið yfir skýrslunum í líkfundarmálinu sem DV hefur dundað sér við að birta það sem af er vikunnar. Þetta er á stundum svo æsispennandi að snillingurinn hélt niðri í sér andanum allan þriðjudaginn og sagði ekki orð fyrr en hann hellti óforvarandi kaffi á hægri fótlegg sinn á miðvikudag …
MEIRA")
document.write("
23. mars 2004 – þriðjudagur
Í sjöunda himni, eða hvað …?
snillingur - jón hlustaði dolfallinn á nýja Júróvisjónlagið sem RÚV ætlar að senda fyrir hönd Íslendinga austur til Tyrklands í maí. Hann átti ekki til orð …
MEIRA")
document.write("
19. mars 2004 – föstudagur
Þetta er svo sjálfssagt
- segir snillingur – jón
snillingur - jón er nú kominn heim eftir vöknun af tæpum tveggja mánaða blundi á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Í dag tók hann Matrix – próf á Netinu og komst að þeirri sjálfssögðu niðurstöðu að hann væri persónan Neo…
MEIRA")
document.write("
17. mars 2004 – miðvikudagur
snillingurinn vaknaður
snillingur - jón vaknaði af næstum tveggja mánaða svefni á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi um áttaleytið í gærkvöldi. snillingurinn, sem undanfarið hefur verið haldið sofandi í kjölfar afar flókinnar lýtaaðgerðar þar sem útliti hans var aðlagað útliti bandaríska stórleikarans Keeanu Reeves, segir vöknunina hafa verið all hastarlega og hafi hann einna helst haldið að geimverur hafi numið sig á brott og væru nú í miðju próbi…
MEIRA")
document.write("
3. mars 2004 – miðvikudagur
Dogmað með Degi
Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings – jóns datt heldur en ekki í lukkupottinn í gærkvöldi. Forsaga málsins er sú að hann gerði sér ferð á öldurhús í borginni og hitti hann þar kvikmyndagerðamanninn góðkunna Dag Kára Pétursson, sem gert hefur það gott í útlöndum með myndinni Nói albínói. Óskar og Dagur fóru heim til Dags í Sandgerði og dogmuðu þeir langt fram undir morgun…
MEIRA")
document.write("
1. mars 2004 – mánudagur
Fortíðin og fyrsta vökvakennda ástandið
Til hamingju með daginn! Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillins – jón gerir fátt annað í dag en að lifa í minningunni um fyrsta bjórdaginn, 1. mars árið 1989. Þennan dag fór hann ásamt bróður sínum og sameiginlegum vini þeirra bræðra í heimsókn til ellilífeyrisþega á Selfossi…
MEIRA")
document.write("
24. febrúar 2004 – þriðjudagur
Húsmæður kveikja í Arnaldi
- líkindin við spennusagnahöfundinn eru ekki að gera sig, segir Óskar Aðalsteinn
Á meðan snillingur – jón liggur á Háskólasjúkrahúsinu í Fossvogi og jafnar sig eftir heljarinnar lýtaaðgerð dedúar Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir hans, eitt og annað. Í tilefni af konudeginum, sem var síðastliðinn sunnudag, sendi Óskar nokkrum nánum vinum og kunningjum mynd af sjálfum sér…
MEIRA")
document.write("
21. febrúar 2004 – laugardagur
Falleg mynd í Fréttablaðinu
- bróðir minn er meira en sexí, segir Óskar Aðalsteinn
Í Fréttablaðinu í dag (bls. 24)er mynd af snillingi – jóni. Af myndinni að dæma, sem tekin var af snillingnum keppa fyrir hönd Fjölbrautaskóla Suðurlands í  Spurningakeppni framhaldsskólanna á síðustu öld, virðist sem snillingur - jón sé að læða svari við afar flókinni spurningu til félaga síns, Sveins Sveinssonar, Sveinssonar, Sveinssonar. Á hinum enda borðsins situr Eiríkur Guðmundsson, en hann starfar nú sem læknir einhversstaðar…
MEIRA")
document.write("
4. febrúar 2004 – miðvikudagur
snillingurinn sefur enn!
- Æðisleg breyting, segir Óskar Aðalsteinn
snillingur – jón liggur enn í fasta svefni á Landsspítala – Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi eftir frekar auðvelda lýtaaðgerð og fær hann næringu í æð. Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings, segir ástæðuna fyrir því að bróður sínum sé haldið sofandi þótt tvær vikur séu liðnar frá aðgerð sé hagræði hjá bæði sér og spítalanum.
MEIRA")
document.write("
20. janúar 2004 – þriðjudagur
Eins og ósýnilegi maðurinn
- segir Óskar Aðalsteinn um snilling – jón bróður sinn
snillingur – jón lagðist undir fegrunarhnífinn um síðastliðna helgi og liggur hann nú á Háskólasjúkrahúsinu í Fossvogi. Er líðan hans eftir atvikum og telur Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir hans, að snillingur muni stíga fram á sjónarsviðið sem fullkomin eftirmynd bandaríska leikarans Keeanu Reeves á fimmtudag eða föstudag.
MEIRA")
document.write("
13. janúar 2004 – þriðjudagur
Ég græt
- segir Óskar Aðalsteinn. Hann hefur nú misst fjóra nána vini vegna samlíkingarinnar við Arnald Indriðason
Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings – jóns er ósáttur við samlíkinguna við Arnald Indriðason. Segist hann sár og hafi tapað allt að fjórum nánum vinum vegna þessa.
’Bróðir minn gerði mér illan leik þegar hann sagði mig líkan rithöfundinum Arnaldi Indriðasyni. En við erum bara ekkert líkir! Ég skil þetta ekki,’ segir Óskar og bendir á að nánir vinir sínir hafi hringt í sig vegna málsins og hafi þeir lýst yfir vonbrigðum sínum vegna þessa. ‘Giftur maður í Vesturbænum, sem ég þekki frekar náið og hitti reglulega, hringdi í mig strax á miðvikudagskvöldið og sagði mér að hann skyldi í raun ekkert í sér, að þótt honum fyndist Arnaldur krúttlegur, þá væri hann fremur vöðvalaus, hárlítill og þannig séð fremur boddilí óaðlaðandi. Sagðist hann ekki vilja sjást með manni sem liti út eins og Arnaldur og ættum við því að slíta ‘vinskapnum’,’ segir Óskar og viðurkennir að hann hafi næstum brotnað niður þegar hann hitti annan fremur náinn kunningja sinn, og þekkt andlit í viðskiptalífinu, á göngu sinni um hverfið á fimmtudag.
’Maðurinn þóttist ekki þekkja mig. Þegar hann kom nær leit hann upp í loftið, eins og þar væri eitthvað að sjá annað en ský og endalausan himinn. En þegar við höfðum fjarlægst nokkuð – í metrum talið – hringdi gemsinn. Það var maðurinn og sagði hann að þetta væri rétt sem bróðir minn snillingurinn hefði látið hafa eftir sér: ég er líkur Arnaldi Indriðasyni.’ Hann sagðist ekki vilja hitta mig oftar en spurði svo eins og í framhjáhlaupi hvort þetta væri rétt sem hann hefði heyrt, að bróðir minn, snillingur – jón, ætlaði að leggjast undir hnífinn og láta breyta sér í Keeanu Reeves. Hvað ég svo vera og spurði hann þá um gemsanúmer bróðir míns. Þetta með Arnald er allt frekar undarlegt mál,’ segir Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings – jóns sem nú hefur misst fjóra nána vini vegna þess að hann er svipaður í útliti og Arnaldur Indriðason.
MEIRA")
document.write("
13. janúar 2004 – þriðjudagur
Ég er ekki Arnaldur!
Síðustu dagar snillings – jóns hafa verið heldur en ekki undarlegir. Að hans sögn hófst þetta fyrir nokkrum vikum en ágerðist síðastliðinn föstudag þegar hann var í verslunarleiðangri í Kringlunni.
Hann segir: ‘Það vatt sér upp að mér eldri kona, vart meira en sjötug, og féll hún í yfirlið við fætur mínar. Taldi ég um áfall að ræða og fór því fljótt á kné til að aðstoða konuna. Furðu þótti mér hins vegar sæta hversu áhrifarík munn-við-munnaðferðin gekk, en í þann mund sem ég ætlaði að fara að blása inn um opinn munn konunnar – ég viðurkenni það hér og nú vegna fjarlægðar við atburðinn, að mér þótti hún andfúl – þá opnaði hún skyndilega augun og sagðist aldrei hafa verið ferskari. Dró hún fram blaðsnepil og fékk hún mig til að hripa niður nafn mitt. Sagði hún ástæðuna vera þá, að hún ætlaði að launa mér lífgjöfina. En þegar þessi aldna kona leit á snepilinn varð hún öskuvond, kallaði hún mig pervert sem nýtti sér veikleika eldri borgara og hótaði að kalla á öryggisvörð myndi ég ekki hypja mig á braut. Sem ég gerði hið snarasta,’ segir snillingur – jón sem sá sér ekki annað fært en að gefa verslunarferðina upp á bátinn.
snillingurinn sá fram á að missa af janúarútsölunum og brá því fyrir sig betri fætinum næsta dag. Hann hóf ferðina í Hagkaupum enda hugðist hann næla sér í sokka á tilboðsverði, skyrtu og eitthvað smálegt án virðisauka. En ferðin var skammvinn. ‘Eldri maður, sæmilega klæddur, skiljanlega grár og gugginn af aldri og svolítið heyrnasljór, ef ekki bældur að sjá af harðneskjunni á Íslandi, kom til mín og sagðist hafa týnt konunni sinni. Spurði hann hvort ég gæti hjálpað sér að finna hana og myndi hann launa mér ríkulega fyrir. Ég samþykkti það og gaf hann mér ljósmynd af konunni sinni sem hann geymdi í veskinu,’ segir snillingur – jón.
Hann fann týndu konuna á nokkrum mínútum en eftirleikurinn var erfiður. ‘Konan stóð í felum á bak við dvd myndirnar í barnadeildinni í Hagkaupum. Einstaka sinnum leit hún laumulega til hliðar við kassann og þegar hún sá mig nálgast tók hún á rás inn eftir barnadeildinni og ég fylgdi í humátt á eftir. Þetta var ekki erfiður eltingaleikur enda var þessi aldna kona skiljanlega hæg og stirð í hreyfingum. Ég skil annars ekki hvað hún var að reyna að hlaupa enda stoppaði hún skyndilega í skódeildinni og kallaði á búðarloku til að aðstoða sig. Þegar ég nálgaðist, hægt og rólega, brosti hún til mín og sagði: Þá ertu loksins kominn. Ég skildi ekki við hvað hún átti. Og enn síður skildi ég hana þegar eiginmaðurinn birtist óforvarandis og spurði hvar hún hefði verið enda sagði hún að þessar vondu búðarlokur í <h>Hagkaupum hefðu rænt sér og ætlað að skipta á sér og teikningum eiginmannsins að nýja kjarnaofninum sem hann hefði þróað í frítíma sínum. Ég var alveg bit,’ segir snillingur – jón sem fékk að launum 10.000 krónur úr hendi eiginmannsins.
Að sögn snillings virtust maðurinn og konan hin hamingjusömustu við endurfundina. Maðurinn dró upp litla skrifblokk úr vasa sínum og fékk hann snilling til að hripa niður nafn sitt. ‘Þau sögðust ætla að bjóða mér í kaffi,’ segir snillingur - jón. ‘En þegar þau litu á miðann urðu þau öskureið. Maðurinn hreytti ónotum í mig. Sagði hann mig gera mig út fyrir að vera annan en ég væri, að ég væri ekki Arnaldur – en þættist það - og sú gamla slengdi handtöskunni í mig. Ég varðist fimlega og reif hún þá skó af standi og þeytti honum að mér. Hann lenti ofarlega á enninu og ber ég þess merki enn í dag,’ segir snillingur – jón sem var farið að líða afar undarlega með þetta allt saman.
En skýringar eru til á öllu saman og hefur nú komið á daginn að svo virðist sem eldra fólk rugli saman snillingi – jóni við rithöfundinn Arnald Indriðason. ‘Þetta hefur eitthvað með spennuleysi að gera hjá gömlu fólki,’ segir snillingur – jón og bætir við að svo virðist sem marga ellilífeyrisþega dreymi um að Arnaldur leysi úr öllum þeirra vandamálum. ‘Þetta er einkennilegur fjandi enda virðist eldra fólk ekki gera greinmun á Arnaldi og Erlendi löggu sem er aðalsöguhetja flesta bóka hans,’ segir snillingur. ‘Eins og myndirnar hér að ofan sýna er fátt líkt með okkur - Óskar bróðir er miklu líkari honum á meðan ég tel mig miklu líkari leikaranum Keeanu Reeves,’ segir snillingur – jón.
document.write("
11. janúar 2004 – sunnudagur
snillingur – svarthöfði?
snillingur – jón hrökk heldur en ekki í kút þegar hann fletti síðum föstudagsblaðs DV um hádegisbil á sunnudag. Að vísu skrýtið að lesa þriggja daga gömul blöð á sunnudögum. Ástæður þessa verða því miður að liggja milli hluta. Kannski er það tímaskortur og flýtir, eða bara bið eftir kósí stund til að fletta blöðum… Og sunnudagar eru fínir dagar.
Nema hvað. Hann fletti blaðinu, fékk sér kaffisopa, neri stírurnar og hrópaði upp yfir sig: Nei, hvur andskotinn!
Svarthöfði, sem veltir vöngum yfir mönnum og málefnum á síðu blaðsins hvern einasta dag, hugsaði alveg nákvæmlega eins og snillingurinn sjálfur hafði hugsað þegar hann horfði gamalt porn á sjónvarpsstöðinni Sýn, Silfur Egils og afhendingu Óskarsverðlaunanna í vor sem leið. Hugsanatengslin voru svo nákvæmlega eins að snillingur – jón hélt um stund að hann væri kominn á kaf í dóp og hefði fengið sér svo svaðalega í bæði hægri og vinstri nösina að hann hefði dreymt þetta allt saman í vor. Nema sjálfur Svarthöfði sé draumur – eða martröð – það fer allt eftir því hvernig maður horfir á hlutina. Hvílíkt og endemis sem hann snillingur tapaði næstum frá sér glórunni þar sem hann sat í bláa sófanum og renndi á hundavaði í gegnum dægurblaður þess Svarta.
Sem var kannski hann sjálfur eftir allt saman. Hvílík endemis skelfing sem þessi dagur byrjaði illa.
En. Tilefni greinarinnar var sjónvarpsgláp þess svartklædda; hann hafði skipt statt og stöðugt á milli Kastljóss og Íslands í dag, og botnaði ekkert í því hvernig oftíttnefndur Hannes Hólmsteinn Gissurarson Gullrasssonar gat látið taka sig í bakaríið á tveim stöðum í einu. Það hlaut að vera sárt. snillingur – jón skilur hugsarástand Svarthöfða afskaplega vel. Hann hefur upplifað sömu stemmningu. Það var síðastliðið vor þegar hann hann horfði á þrjá gjörsamlega óskilda atburði á skjánum, sem af eðlilegum ástæðum blönduðust saman í einn þátt í undirmeðvitundinni af eðlilegum orsökum ofneyslu áfengis á meðan horft var á sjónvarpið.
Það sem snillingur – jón hnaut hins vegar um í grein þess Svarta og varð til þess að hann hellti upp á annan kaffibolla í þessu drungalega sunnudagshádegi - og klukkan var að nálgast eitt - og hann hrópaði í tvígang upp yfir sig: Nei, hvur andskotinn! var bæði upphaf greinarinnar og niðurlag.
Í upphafi lýsti Svarthöfði því hvernig hann kom sér dægilega fyrir við sjónvarpstækið enda átti hann von á viðtölum við prófessorinn sem ekki aðeins fékk ársleyfi frá háskólakennslu til að gera umtalaðasta klippiverk aldarinnar – okei, hún er svosem nýbyrjuð, það er aldrei að vita hvað Ólafur Elísson, þáverandi umtalaðasti myndlistarmaður þjóðarinnar, ef hann er þá íslenskur, tekur sér næst fyrir hendur - heldur fær Hannes ríflega kauphækkun við sama skóla vegna vinnuframlags til fræðanna – ef verk Hannesar er í raun klippiverk (e. cut & paste), eins og svo margir vilja halda fram, þá ætti hann fremur að leggja það fram fyrir nefnd í  Listaháskólanum en Háskóla Íslands, nema þetta sé allt orðið sama battaríið.
En nóg um það. Svarthöfði sat fyrir framan sjónvarpið og horfði á Hannesinn láta taka sig á tveimur stöðum í einu. Og fyrr en varði lenti allt í tómu rugli. Þ.e.a.s. hjá Svarthöfða. Hann skrifar: ‘Stundum reifst Hannes við sjálfan sig eða útskýrði eitthvað kurteisislega fyrir Hólmsteini – eða þá að Þórhallur Gunnarsson áminnsti Kristján Kristjánsson stranglega um heiðarleg vinnubrögð – og Jóhanna Vilhjálmsdóttir tók Svanhildi Hólm aldeilis í bakaríið… Svarthöfði skildi aldrei almennilega fyrir hvað […] og Kristján hvessti augun á Þórhall og Hannes setti ofan í við Hannes fyrir ósanngjarna spurningu.’
Um þetta hnaut snillingur – jón örmagna af örstuttum svefni á hádegiseftirmiðdegi þar sem hann sat í bláa sófanum sínum og saup úr kaffibolla með ámálaðri mynd af akfeitu svíni. Þetta minnti hann aðeins á sjálfan sig, eigin upplifun þegar hann neytti áfengis og horfði á Silfur Egils etc. Þeir sem nenna að lesa upplifun hans geta smellt hér:
Egill Helgason, Óskarsverðlaun og laugardagsporn
document.write("
3. janúar 2004 – laugardagur
Gleðilegar sprengjur!
snillingur – jón bókstaflega steingleymdi að óska öllum, hér heima og erlendis, gleðilegra jóla og brilljandi árs, sem nú er komið. Þetta gamla löngu liðið í áranna skaut og svo framvegis.
Þá er það ekkert nema eðlilegt að snillingurinn er fyrir löngu hættur að lofa nýársheitum upp í ermina á sér líkt og hann hefur gert síðastliðin sjö átta ár, eða kannski níu, enda hefur hann aldrei staðið við þau. Og í staðinn fyrir endalaus loforð sem hann kemur aldrei til með að standa við, fyrirheit og fullyrðingar, sem allt eins væri hægt að skola niður um klósettið, þá ætlar hann að lofa öðru og öfugsnúnara.
1. snillingur – jón ætlar að borða nú sem aldrei fyrr. Hann ætlar svoleiðis að éta á sig gat hvern einasta dag að slíkt hefur aldrei sést, hvorki fyrr né síðar; hann er að tala um mat með sultutaui og rjóma í hvert mál. Í lok ársins ætlar hann að standa uppi sem sigurvegari í keppninni um feitasta mann landsins.
2. snillingur – jón ætlar ekki að skrifa bókstaf út allt árið. Hann ætlar rétt svo að kveikja á tölvunni svo hann geti horft á eina góða dvd – ræmu á meðan hann maular eitthvað matarkyns með rjómaslettu og sultutaui útá.
3. Hann ætlar ekki að rokka neitt. Klassísk tónlist verður í hávegum höfð, nútímatónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar Ragnarsson og fuglahljóð af trjágreinum. Hvílíkur unaður að hlýða á.
4. snillingur – jón ætlar ekki að stunda einu einustu líkamsrækt. Það verður spurning hvort hann hreyfi sig yfir höfuð nokkurn skapaðan hlut. Blái sófinn blívur.
5. snillingur – jón veit ekki hvað Óskar, bróðir hans, ætlar að gera. Sjálfur ætlar hann í lýtaaðgerð enda hefur hann lengi langað til að líta út eins og Keeanu Reeves. Sá draumur mun án efa rætast á árinu.
Og nú er nóg komið af því að troða loforðum upp í skyrtuermina. snillingur – jón óskar öllum velfarnaðar á árinu og biður alla vel og lengi að lifa.
document.write("
29. desember 2003 – mánudagur
Með jólin í buxunum!
Þau sem lásu hið illræmda Fréttablað á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag göptu heldur en ekki af forundran þegar fagurt og blítt andlit snillings – jóns blasti skyndilega við þeim. snillingur – jón, sem ætlaði að njóta þess að slaka á í rólegheitum í volgum potti og horfa á stjörnurnar á aðfangadag, kennir samkynhneigðum bróður sínum um að hann var með hjartað í brókunum yfir hátíðirnar.
’Það hringdi einhver blaðakona hingað til okkar Óskars á þriðja fyrir jól sem hafði heyrt af því að ég ætlaði við annan mann – í mínu tilfelli var það kvenmaður austur yfir fjall og eyða aðfangadegi og þremur næstu dögum í sumarbústað í Ölfusborgum,’ segir snillingur – jón sem kennir sjálfum sér um að hafa ekki verið heima þegar blaðakonan hringdi til Óskars sem var við hreingerningar.
‘Óskar sagði mér frá því seinna um daginn að hann hefði orðið svo glaður í hjartanu að einhver frá fjölmiðlunum sýndi mér áhuga að hann hefði einfaldlega ákveðið að þykjast vera ég,’ segir snillingur – jón. ‘Hann opnaði víst hjarta sitt, tjáði henni að ég ætlaði við kvenmann austur yfir fjall, hyggðist taka á því í heitum potti og hafa þetta að mestu leyti öðruvísi jól. Blaðakonan tók þessu auðvitað fagnandi og hamraði á lyklaborðið sem mest hún mátti.’
Blaður Óskars Aðalsteins, samkynhneigðs bróður snillings – jóns var hins vegar ekki það versta. ‘Auðvitað þurfti að hafa mynd við greinina um þessi öðruvísi jól mín fyrir austan fjall þar sem ég ætlaði að taka á því í heita pottinum og svoleiðis og var því ljósmyndari sendur til að taka portrett af mér. Auðvitað tók Óskar bróðir það hlutverk að sér enda er það á allra vitorði að hommar þjást af strípiþörf.
snillingur – jón varð skiljanlega fyrir sárum vonbrigðum með myndina sem birtist af honum í Fréttablaðinu á Aðfangadag. ‘Ég verð að viðurkenna að ég missti svolítið andlitið þegar ég opnaði blaðið á aðfangadag og sá nafn mitt við myndina af þessum líka feita og pattarlega homma, honum Óskari bróður. Það var greinilegt að hann gerði tilraun til að hylja magann en undirhakan var skýr og greinileg. Og hvaðan kom þetta skegg, þessi hýjungur sem hann kallar kitlarann? Þetta er ógeðslegt, hrein hörmungar afskræming á sjálfum mér. Sem betur fer var búið að breyta yfirsögninni: ‘Tekið á því í heitum potti’ í ‘slakað á’. Ég hef hugsað mér að fara í mál með þetta en veit hreinlega ekki hver lagaleg staða mín er í málum sem þessu,’ segir snillingur – jón sem fór austur yfir fjall aðfaranótt aðfangadags, bjó um sig og sína en tókst ekki að sofa út því síminn hringdi statt og stöðugt frá því klukkan níu um morguninn.
’Glansmyndin sem birtist í greininni í Fréttablaðinu um afslöppun í sumarbústað breyttist í hreina hörmung. Í ofanálag vorum við með hjartað í buxunum enda hefði Óskar bróðir allt eins getað sent öllum krimmum höfuðborgarsvæðisins boðskort til að segja þeim að ég yrði ekki heima yfir hátíðirnar. Þegar við skoðuðum málið nánar komumst við að þeirri niðurstöðu að þar sem ég bý í risi yrði í versta falli brotist inn til fólksins á hæðinni fyrir neðan.’
Til allrar hamingju varð reyndin önnur. Þegar snillingur – jón opnaði hurðina á koti sínu var sjónvarpið, myndbandstækið og græjurnar á sínum stað í stofunni. En jafn undarlega og það hljómar þá getur snillingur – jón vel hugsað sér að eyða jólunum á öðrum stað en heima hjá sér í framtíðinni. ‘Þetta var vissulega martröð. En að svo mörgu leyti ævintýralegt og öðruvísi enda fórum við í messu á Selfossi eins og forseti Íslands og hans erlenda ektafrú hafa gert undanfarin ár – flestum að óvörum kusu þau Bessastaðakirkju í þetta sinn - elduðum þennan líka stórgóða hamborgarhrygg upp úr klukkan tíu og tókum upp pakka til klukkan eitt um nóttina. Eftir það slökuðum við á í heita pottinum til klukkan tvö. Ég gæti vel hugsað mér að endurtaka leikinn,’ segir snillingur – jón sem nú er byrjaður að undirbúa áramótin en neitar að tjá sig um hvað hann ætli að gera umfram það að borða góðan mat, drekka vín og horfa á Áramótaskaupið.
document.write("
22. desember 2003 – mánudagur
Botnlaus bjartsýni
Mikið ofsalega geta sumir verið svo miklu bjartsýnni og hamingjusamari en aðrir. snillingur – jón gat vægast sagt ekki haldið aftur af hamingju sinni helgina þegar hann stóð í bókabúð Eymundson í Kringlunni og blaðaði í nýjasta tölublaði Séð og heyrt.
snillingur – jón mælir sérstaklega með þessu blaði vegna viðtals við þau Írisi (28), fyrrum söngspíru úr Buttercup og unnusta hennar Egil (21), fyrrum trommara úr sömu sveit.
Þetta viðtal veitti snillingi – jóni alveg einskæra gleði og hamingju. Hann langaði svo til að hoppa af hamingju að hann neyddist til að halda fyrir munninn til að koma í veg fyrir að útbleyta sýniseintakið eins og saltfisk.
Það var alveg yndislegt að sjá hvað þau Íris og Egill voru hamingjusöm þrátt fyrir að nú væri meira en ár liðið síðan þau voru rekin með skömm úr Buttercup eftir að hafa dregið sig saman.
Þau voru rífandi glöð yfir því að vera búin að stofna nýja hljómsveit, Ber, sem þrátt fyrir alla sína æðislegu kosti hefur ekki verið að ganga neitt æðislega vel. Hljómsveitarmeðlimir hafa hætt – að sögn þeirra Írisar og Egils, vegna ‘barneigna’ – en þau eru með nýja meðlimi í sigtinu. Þetta er allt að koma hjá þeim!
snillingur – jón gat ekki annað en samglaðst þeim hjónaleysum vegna nýju íbúðarinnar sem þau voru að kaupa sér í Hafnarfirði. Enda er það fæðingarbær þeirra snillings – jóns og Óskars, samkynhneigðs bróður hans, yndislegur bær með frábærri lykt svona öðru hverju þegar síldin og loðnan eru brædd einhversstaðar við höfnina á sumrin. Þessa glæsilegu íbúð hafði frænka Írisar átt – en í hvaða legg það var man snillingur því miður ekki. En þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Þarna koma þau skötuhjú fyrir plasmaskjánum og heimabíókerfinu sem þau gáfu hvort öðru í jólagjöf, sem og nýja tvíbreiða rúminu, sem Írisi (28) finnst æðislegt að liggja í. Mikil óskapar lukka var að þau skyldu fjárfesta í svona æðislegu kerfi. Þar sem nýja hljómsveitin er hreinlega ekki að gera sig hafa þau Íris og Egill (28 og 21) getað setið flestum stundum fyrir framan nýja plasmaimbann og farið síðan beint upp í rúm. Að sögn Írisar langar hana mikið til að festa kaup á tvíbreiðri sæng vegna þess að hún er farin að breikka á þverveginn. Þó ekki sökum barneigna heldur vegna of mikils sjónvarpsgláp. Hvílík einskær jövlans hamingja á þeim bænum!
Þessi breikkun líkama fyrrum söngspíru Buttercup sést vel á síðum Séð og heyrt, sérstaklega þar sem hún pósar í nýju og stækkuðu eintaki af kjól sem hún klæðist þegar hún kemur fram með kór einhverrar kirkju í Firðinum. Æðislegt.
snillingur – jón getur ekki annað en samglaðst þessu ótrúlega hamingjusama pari í Hafnarfirði. Sveimérþá ef þau eiga ekki skilið að hljóta bjartsýnisverðlaun Bröstes þetta árið!
document.write("
16. desember 2003 – þriðjudagur
Ellistyrkurinn gæti talið í milljörðum
snillingi – jón hefur síðan á sunnudag borist heilmargar fyrirspurnir varðandi tensl frumvarps um breytingar á ellistyrk forsætisráðherra, alþingismanna og fleiri til sem samþykkt var á Alþingi í gær og meints dauða Davíðs Oddssonar, sem snillingur – jón vill meina að hafi átt sér stað fyrir þremur árum.
snillingur – jón segir ótímabært andlát Davíðs Oddssonar skipta miklu varðandi ellistyrkinn. Bendir hann á að samkvæmt breytingunni sé Davíð gert kleift að hætta 55 ára, og fá við það kvartmilljón ofan á þingfararkaup og önnur hlunnindi, eða skipta einfaldlega um ráðuneyti – nema hann kjósi að sitja sem óbreyttur þingmaður út í eitt – og fá þannig ennþá meira. ‘Í ljósi þess að Davíð Oddsson lést þegar hann var 52 ára ætti hann í fyrsta lagi ekki að fá neinn ellistyrk,’ segir snillingur – jón og bendir á að það sé eins og Davíð kannist einfaldlega ekki við eigið andlát. ‘Að auki neitar hann að kannast við Óskar Aðalstein, samkynhneigðan bróður minn, en eins og alþjóð veit nú eyddu þeir síðustu stundum forsætisráðherra saman,’ segir snillingur – jón og bendir á að Óskar hafi frá því á sunnudag reynt ítrekað að ná símasambandi við Davíð, en án árangurs. ‘Það er ýmist sagt að hann sé á ríkisstjórnarfundi, bundinn við atkvæðagreiðslur um ellistyrkinn handa sjálfum sér á Alþingi, í sumarhúsinu á Þingvöllum eða í sólabaði á Kanaríeyjum ásamt Kristjáni í Frjálslynda flokknum.’
snillingur – jón segir það vera hneyksli að frumvarp um ellistyrk forsætisráðherra hafi verið samþykkt á Alþingi í gær. Ekki sé þó við Sjálfsstæðismenn eina að sakast, heldur eigi Samfylkingin alveg jafn mikin hlut í máli, sem og aðrir flokkar. ‘Sjálfsstæðismenn hlýða í blindni hverju einasta orði Davíðs. Skiptir þá engu hvort hann segist verða að fá meiri ellistyrk, hvort jörðin sé flöt eins og pönnukaka eða að hann sé á lífi. Sem hann svo sannarlega er ekki!’ segir snillingur – jón.
Hann bendir á að meirihluti Alþingismanna hafi gert á sig í málinu. ‘Það er alveg satt sem Davíð segir, hann varð ekki langlífur. Hann lést 52 ára í stofunni hjá Óskari. Það ósanna í málinu er hins vegar það að hann þykist vera enn á lífi,’ segir snillingur – jón og bendir á að uppvakningar eins og Davíð geti orðið nokkuð hundruð ára. ‘Sjáið bara Vlad greifa í Rúmeníu. Hann er betur þekktur sem Drakúla og varð nokkuð hundruð ára gamall – eða þar til einhver kom honum fyrir kattarnef. Við erum að tala um að stjórnarandstaðan hafi átt að kanna málin betur – ræða þau í einingar, kanna dánarvottorð Davíðs – ef það hefur þá nokkurn tíma verið gefið út! Við erum ekki að tala um nokkrar millur heldur milljarða króna haldi Davíð út í nokkuð hundruð ár!’ segir snillingur – jón. ‘Einfaldasta aðferðin til að kanna málið er náttúrlega að bíða eftir því að Davíð haldi ræðu á Alþingi. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Steingrímur J. Sigfússon er fús til hlaupa til og reka einn eða tvo hvítlauksgeira ofan í forsætisráðherra. Það er hins vegar spurning hvort nauðsynlegt sé að stinga í hann tálguðum fleyg eða skjóta með silfurkúlu að auki,’ segir snillingur – jón og tekur fram að Steingrímur þurfi að fara að öllu með gát. ‘Dauðir einstaklingar hafa reynst hinum lifandi erfiður ljár í þúfu í gegnum tíðina.’
document.write("
14. desember 2003 – sunnudagur
Blessuð sé minning forsætisráðherra, segir snillingur - jón
Davíð Oddsson, forsætisráðherra Íslands, er látinn. Hann var 52 ára þegar hann lést. Þetta segir snillingur – jón sem kvað úr um andlátið í ágústbyrjun árið 2000.
Síðastliðna viku hefur samfélagið logað vegna breytinga á ellistyrk alþingismanna sem setið hafa á þingi í svo og svo langan tíma. snillingur – jón segir þetta skiljanlegt í ljósi þess að Davíð Oddsson lést á heimili hans í ágústbyrjun fyrir rúmum þremur árum síðan.
‘Ég og Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir minn sem þá var í heimsókn eftir tökur á kvikmynd í Austurríki, vorum á leiðinni heim eftir rölt á milli bara í miðbænum. Hittum við þá ekki Davíð Oddsson svona líka röflandi fullan. Óskar taldi hann á að koma heim með okkur og sátum við þar að sumbli til kannski klukkan fjögur en þá gafst ég upp og fór í rúmið. Þeir Óskar og Davíð sátu hins vegar eftir, enda ætluðu þeir að hlusta á allt Bítlasafnið sem ég á inni í skáp.’
Þegar snillingur – jón kom fram um morgun og var búinn að drekka fyrsta kaffibollann blasti við honum skelfileg sjón.
’Ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en þegar skynjunin fór í gang eftir kaffibollann. Davíð Oddsson lá allsnakinn á grúfu í stofusófanum með höfuðtólin á höfðinu og Bítlana á fullu blasti. Þetta var vægast sagt hryllingur,’ segir snillingur – jón sem nær samstundis vakti Óskar bróður sinn sem lá jafn fáklæddur við hlið forsætisráðherrans í sófanum. Nokkrum mínútum síðar tók snillingur – jón púls á forsætisráðherranum en komst að raun um að þar var ekkert að finna. ‘Ég sagði Óskari að hann hafi verið dáinn lengi, eflaust hafi hann látist upp úr klukkan fimm. Óskar sagði hins vegar að það hefði ekki getað verið þar sem þeir voru að – ég neita mér um aðra hugsun en þá að þeir hafi verið að hlusta á Bítlana – til níu eða tíu um morguninn. Að svo sögðu fór hann fram á bað og kastaði upp.
Það opinberast hér með að þeir bræður hafi ekki viljað blanda sér frekar í mál – eða vandamál – forsætisráðherrans. Þeir rúlluðu honum því inn í stofuteppið, stungu honum í skottið á bílaleigubíl sem Óskar hafði tekið á flugvellinum og brunuðu með hraði norður í land þar sem þeir köstuðu líkinu í Ódáðahraun. Bundust þeir eftir þetta trúnaðarböndum enda bjuggust þeir við að vera nú lausir allra mála. En sú varð ekki raunin.
’Heldurðu að Davíð hafi ekki poppað upp í pontu á Alþingi strax mánudaginn eftir þetta. Hress og allt, og gott ef ekki kjaftforari en nokkru sinni,’ segir snillingur – jón sem horfði dolfallinn tímunum saman á beina útsendingu frá Alþingi. ‘Þetta var ótrúlegt!’
Undanfarna mánuði hefur forsætisráðherra farið offari á þingi. Hefur hann sakað öryrkja um lygar, eldri borgara um að svíkja undan skatti – það sama á við um íslenska ríkisborgara með fast aðsetur á Bretlandseyjum – smásala, heildsala, bensínafgreiðslufyrirtæki, banka og tengda aðila og fleira til. Þá er undanskilin tuggan að stjórnarandstaðan misskilji forsætisráðherra. Í síðustu viku tók hins vegar steininn úr þegar þingheimur allur lagði til að ellistyrkur forsætisráðherra verði hækkaður um hundruðir milljóna. snillingur – jón á skýringu á þessu hátterni forsætisráðherrans.
Ég trúi því staðfastlega að Davíð hafi dáið þarna í föðmum Óskars bróður fyrir þremur árum. Það er mér hins vegar ráðgáta hvernig hann rúllaði sér úr teppinu og komst óséður aftur til Reykjavíkur. Miðað við það sem ég hef lesið og séð af hryllingsmyndum í gegnum tíðina þá held ég að Davíð sé enn dáinn, í versta falli er hann uppvakningur. Og hann hefur verið það í þrjú ár,’ segir snillingur – jón sem skilur ekki í því að samflokksmenn forsætisráðherra hafi ekki gert sér grein fyrir þessu fyrr. Nema miðstjórn flokksins sé ábyrg fyrir því að vekja Davíð upp á nýjan leik. snillingur – jón telur, að Samfylkingin eigi án nokkurs efa og fá botn í málið enda séu um að ræða bæði heiður og trúverðugleika stjórnmála á Íslandi. ‘Það er einfaldlega ekki viðunandi að láta uppvakning stýra Íslandi inn í nýja öld, það er þess vegna sem ég kem nú fram með þessar mikilvægu upplýsingar,’ segir snillingur – jón sem ætlar á næstu dögum að einbeita sér að málinu.
document.write("
11. desember 2003 - fimmtudagur
Úldið tómatakast
Dagný Jónsdóttir, nýbakaður þingmaður Framsóknarflokksins á Austurlandi gerði heldur betur feitt á sig í Kastljósinu í gær.
snillingur – jón fussaði og sveiaði þar sem hann horfði á Ólaf Ágúst – eða öfugt - eitthvað-son hans Gústa sem talaði alltaf eins og fátæklingur með poka heimsins á bakinu þótt hann ætti nóg af peningum og henti nunnum og einstæðum og lúbörðum mæðrum út úr húsnæði samtakanna. Jamm, þar var hans fjölskylda að verki.
En allavegana. Ástæðan fyrir því að Dagný var stödd í Kastljósinu ásamt eitthvað – son var sú að hún kaus á Alþingi gegn eigin sannfæringu; hún neitaði að styðja tillögu um aukin fjárframlög til Háskóla Íslands, baráttumál sem hún sjálf hafði barist fyrir í Stúdentaráðinu þess sama skóla. Undarlegur snúningur það – maður!
Rök stelpunnar fyrir þessari splunkunýju ákvörðun sinni – að pissa í skóinn sinn, éta hattinn sinn etc – var sú að flokkurinn væri á móti auknum fjárframlögum til gamla skólans hennar. Og vegna þess að flokkurinn er á móti þessu þá er hún á móti þessu líka.
Erðanú sjálfstæður og gagnrýninn hugsanaháttur sem þessi flunkunýi alþingismaður íslensku þjóðarinnar flaggar eftir námið í HÍ! gargaði snillingur – jón upp yfir sig þar sem hann sat í bláa sófanum og dottaði. En þetta vakti hann svo um munaði. Engin furða að Dagný er á þingi. Henni hefur verið sparkað úr skólanum fyrir flöktandi hugsanahátt.
Allavega er þetta dæmigerður sauðaháttar – eins og svosem Framsóknarflokkurinn þykist standa fyrir. Senjor Paprika sem situr í varaformannssæti flokksins hefur í það minnsta látið í dýrahegðunina skína. Flokksmenn eru sauðir, rollur í eftirdragi úlfs í selsham og papriku í mannslíki. Dagný er eftirlamb sem fylgir hjörðinni og segir me…
Ímyndið ykkur hvernig lífið væri ef þingmenn hefðu alltaf gert eins og formenn flokkanna vildu.
Ísland væri annaðhvort enn skattland Danmerkur eða hefði (kannski) fengið sjálfsstæði að stríði loknu – þ.e.a.s. þegar danski kóngurinn losnaði undan hernámi nasista.
Það væri enginn sími á Íslandi
Það væri engin höfuðborg – landsmenn byggju enn í niðurgröfnum sveitabæjum.
Haftastefnan væri í fullu gildi og landsmenn þyrftu sérstök leyfi hjá hinu opinbera til að byggja hús, kaupa bíla og fleira til.
Það væru engar paprikur á Íslandi.
Guðni Ágústsson hefði aldrei sagt ‘obobbobb…’
snillingur – jón segir: Dagný, veik öp beibí!
document.write("
10. desember 2003 - miðvikudagur
Goths on ice!
Þar sem snillingur – jón gekk í rólegheitum niður eftir Hamrahlíð í Reykjavík um fjögurleytið í dag munaði litlu að hann skiti tvisvar sinnum í bláu gallabuxurnar sínar.
Hann var staddur gegnt Blindraheimilinu - ekki svo að skilja að þeir blindu hafi nokkuð orðið hans var þar sem stóð – á vinstri hönd var gata snillings - ekki það að blindir hafi séð hana heldur. Þeir hafa í mesta lagi þuklað hana. En nóg um blinda.
Nema hvað þar sem snillingur - jón gekk niður Hamrahlíðina sá hann hvar tveir svona evil looking gotharar í leðurfrökkum, með bauga undir augum – hvítt meikið náði ekki að fela þá, hring í nefinu og ábyggilega tattú á bak við eyrun – kolbikalitað hárið sem náði þeim niður á mjaðmir huldi tattúin. Og þeir stímdu á snilling – jón sem á þessu augnabliki hefði hæglega getað skitið á sig í fyrsta sinn. Þetta var alveg hreint agalegt. Farturinn á þeim var allavega svo mikill að hann hélt að þeir ætluðu í hann.
Hann herpti hringvöðvann og bað til Guðs í hljóði. En þá skrikaði öðrum óvænlega gotharanum óvænt fótur á ísnum með þeim afleiðingum að hann virtist taka dansspor, gera tilraun til að svífa í hring og… Þegar snillingur velti því fyrir sér hvort gotharinn væri í endurfæddur skautadansari í röngum líkama og röngu átfitti eins og Anna Kristjánsdóttir (sem einu sinni hét Kristján) og væri í þann mund að fara í heljarstökk afturábak baðaði hann allt í einu út öngunum – sólin speglaðist á hverjum hring, hann blótaði út í loftið og hrundi niður á hægra hnéð með óhljóðum. Um stund leit út fyrir að hann ætlaði að biðja um hönd hins gotharans, sem nota bene, var af sama kyni.
Það þarf vart að taka fram að snillingur – jón sprakk úr hlátri fyrir framan þessa vígalegu karlmenn á ísnum. En hann var fljótur að kæfa óhljóðin, setja lófa fyrir munn og þykjast hósta. Þegar þessir svartklæddu en heldur ólukkulegu, The goths on ice, litu að því virtist með hatursfullu á augnaráði á snillinginn lá við að hann skiti á sig í annað sinn. Hann var vægast fljótur að líta á ímyndaða klukku á vinstri hönd, snúa við og halda til Kringlu þar sem hann eyddi um klukkustund í að fletta jólabókum í Eymundsson. Hann var vægast sagt á nálum og fór aðra leið heim.
En varðandi ásökun um botnaprób frá í gær. snillingur – jón hljóp heldur betur á sig þegar hann skellti skuldinni á geimverur og vísindalegar tilraunir þeirra um blánætur. Þær eru blásaklausar greyin enda viðurkenndi annar aðili sök í málinu. En nóg um það. Þetta er eitthvað sem snillingurinn þarf að eiga við viðkomandi.
document.write("
9. desember 2003 - þriðjudagur
Heilabú óskast
snillingur – jón er alveg einstaklega hugmyndalaus um þessar mundir. Það er eins og geimverurnar sem stela honum í svefni einstaka nætur hafi gert eitthvað annað og meira en að pota staut upp í botninn á honum.
Til allrar hamingju er hann þó ekki jafn heilalaus og stelpan sem fjallað er um í þessari frétt.
document.write("
5. desember 2003 - föstudagur
Þetta eru asnar (guð)jón
snillingur – jón er alveg gapandi yfir því hvað íslenska ríkisstjórnin samanstendur af miklum ösnum. Það virðist í það minnsta eitthvað hafa skolast til hjá PR – deild ríkisstjórnarinnar. Allavega virðist það vera að koma á daginn núna að fjárlagafrumvarpið sem Geir H. Haarde hefur síðastliðin ár auglýst eins og Biblíu – afgangurinn átti að skila milljörðum í ríkisskassann, allt átti að batna, þetta var eina ríkisstjórnin sem hefur náð þessum mikilvæga árangri og bla bla – hefur skilað nákvæmlega enginn og skuldir Ríkisins hafa hækkað margfalt ef eitthvað er. Ekki gott PR í gangi þar.
Hvað er ríkisstjórnin á Íslandi annars að pæla? Það mætti allavega halda að þeir hafi grafið Árna Magnússona handritasafnara upp í heilu lagi og gert að félagsmálaráðherra. Veruleikafirrtari einstakling hefur snillingur – jón ekki séð í langan tíma. Hann er auðvitað að tala um manninn sem segir að fátækt sé ekki til, manninn sem segir fátæklinga rangnefni á fólki sem kann ekki að fara með peninga og eyði öllu í spilakassa. Þetta er maðurinn sem segir að fátæklingar eigi að leita sér hjálpar við spilafíkn. Þetta minnir snilling einna helst á það sem Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagði um geðsjúklinga sem ráfuðu um í reiðileysi eftir að hann lokaði hælunum – en samkvæmt honum voru þeir aumingjar sem nenntu ekki að vinna. Það sama á víst við hann sjálfan þessa dagana. Alzheimer er sumsé afsökun aumingja sem nenna ekki að leggja það á sig að muna nokkurn skapaðan hlut.
snillingur – jón nennir ekki að hugsa rökrétt um þetta. Að öllum fíflunum ólöstuðum í ríkisstjórn þessa blessaða ískalda lands, þá langar hann að óskar nafna sínum Kristjánssyni alls hins besta. Hann á ekkert nema gott skilið. Fyrir utan það hvað hann heitir fallegu nafni áttu samverkamenn hans einfaldlega engan rétt á að taka fram í fyrir hendurnar á honum. Það var illa gert. snilling – jón langar til að segja nafna sínum: Jón, þetta eru asnar. Hættu í ríkisstjórn og segðu allt af létta. Segðu að Davíð sé stjórnsamur vitleysingur og að Halldór hafi farið í opinbera heimsókn til Írans til að kynna sér ‘góða og réttláta’ stjórnarhætti áður en hann sest í forsætisráðherrastólinn hans Davíðs eftir áramót. U owe it to me, beibí. Opnaðu þig maður. Speak up!. Kúktu á kónginn!
document.write("
3. desember 2003 - miðvikudagur
Er DV að gera grín?
snillingur – jón náði vart upp í sitt fallega nef af undrun þegar hann fletti DV seint í gær – ástæðan fyrir því hversu seint það gerðist var einfaldlega sú að blaðið kom í hús upp úr fimm. Sem er óforskammarlegt!
Nema hvað. Fréttin sem snillingur staðnæmdist í forundran yfir fjallaði um áhuga iðnaðarhúsaeigandans í Kópavogi – þessa sem hefur í óskráðan tíma dútlað við amfetamíngerð í hjáverkum, þessi sem átti vin sem eitt sinn var efnafræðiprófessor í Háskóla Ísland og drýgði dræmar tekjur af kennslunni með framleiðslu á sama efni í heimahúsi, en með stolnum græjum úr skólanum – þetta var ægileg réttlæting og snillingur – jón gat ekki annað en borið hann saman við eldri borgarana á neðri hæðinni sem drýgja ellipeninginn frá Ríkinu með léttvínsbruggi í kjallaranum. Það er spurning hvað þau gera þegar löggan kíkir í heimsókn. Vonandi skjóta þau ekki af sér höfuðin eins og vinur Kópavogsbúans. Hann er víst enn að jafna sig á áfallinu, þ.e.a.s. vinurinn í Kópavogi.
En nóg um það. Það er ýmislegt sem snillingurinn skildi ekki í varðandi fréttaflutning DV.
Í fyrsta lagi var fjallað um framleiðslu mannsins eins og dútl, að saklaus iðnaðarhúsaeigandi í Kópavogi hafi verið tekinn fyrir krimma – meira að segja er vitnað í ‘vinkonu’ mannsins sem staðfest gat söguna. Nema hún hafi sagt söguna alla. Þeir sem snillingur – jón þekkir til skilja ekki í þessu enda var haft eftir lögreglunni að ‘mikil’ sprengjuhætta væri af viðlíka framleiðslu / dútli í iðnaðarhúsnæði. Þeir skildu síst í því að lögreglan skildi sitja úti í bíl og fylgjast með húsinu þar sem einhverjir tugi einstaklinga býr og starfar. Og ef snilling brestur ekki minnið, þá býr áhugamaðurinn í þessu sama húsi. Amfetamínverksmiðja er tifandi tímasprengja, líf og limir í húfi og lögreglan sat á sínum heita botni úti í bíl. Hvílík löggæsla! Fáir skilja í þessu.
Heimildamenn snillings – jóns vorkenndu þessum tveimur karlmönnum á tvítugsaldri – eða á þrítugsaldri, þeir voru mjög ungir - sem handteknir voru og sakaðir í fyrstu um framleiðsluna. Þeir sögðu, að nú væru þessi grey grátandi í klefum sínum og eflaust að velta fyrir sér tveimur afar slæmum kostum: a) að dúsa í óskráðan tíma á Hrauninu og eyðileggja þar með framtíð sína í höndum Ríkisins eða b) skvíla og eiga þarmeð á hættu að eyðileggja líkama sína í höndum glæframanna. Amfetamínsframleiðsla krefst mikillar þekkingar og þá þekkingu hafa þessir unglingar víst ekki.
snillingur – jón ætlar ekki að dæma einn né neinn en fannst lýsingin á dútlaranum í Kópavogi ansi skondin, en hann er einn af þessum þægilegu sérvitringum sem stöðugt eru að prófa sig áfram á jaðri samfélagsins. Yeah, right! Þá er ‘maðurinn [...] einhleypur og hefur ekki verið í föstu starfi undanfarið heldur tekið að sér einstök störf. Þá helst þau sem tengjast áhugamálum hans sem eru [...] lyfja – og efnafræði.’ Úha! Það er spurning hvort hann hafi borgað virðisaukaskatt af þessum einherjastörfum í gegnum árin.
snillingur – jón veit ekki hvort DV er að grínast eða hvað. Það er spurning hvort hann skreppi þangað yfir og sæki um starf.
document.write("
1. desember 2003 - mánudagur
Dingling!
snillingur – jón og Onkel eru þess fullvissir að Ísland hafi um árabil verið alþjóðlegt tilraunaland markaðsfræðinga – hverjir þeir eru vita þeir fyrrnefndu hins vegar alls ekki.
Fyrsta tilraun var auðvitað bjórbannið. Það var vissulega heimskulegt bann. Fáránlegra er hversu lengi Íslendingar þoldu við.
Notkun kreditkorta í stað seðla og krónupeninga var án efa tilraun númer tvö. Tilraunin hefur nú staðið yfir í nokkur ár – nú er svo komið að hver einasti kjaftur á skerinu er með allt niður um sig í fjármálum, visaskuldir upp að nasahárum og yfirdrátt í bankanum til að kovera afganginn.
Það þarf engann snilling til að gera sér grein fyrir tilraun númer þrjú. Það er jólaæðið!
Jólin í Danmörku hefjast um miðjan desember, kannski þann tuttugasta. Sömu sögu er að segja um Svíþjóð, Finnland og Noreg. Og svo má lengi telja. Ólíkt samanburðar – og nágrannalöndunum hafa jólin á Íslandi síðastliðin fimm ár eða svo hins vegar hafist einum og hálfum mánuði fyrr, eða um miðjan október.
Þetta finnst þeim snillingi og Onkel meira en lítið skrýtið, enda virðist sem íslensk jól hefjist í Ikea um miðjan október og nái hámarki sínu þann 24. desember. Jólin, þessi tími frá miðjum október til 24. desember einkennist af miklu kaupæði – sem er sambland geðveikrar korta- og yfirdráttarnotkunar – og bjórþambs (nokkuð sem þekktist ekki fyrir nokkrum árum).
Að sögn Onkels er ástandið orðið óbærilegt, enda brotnaði hann undan álagi barna sinna og hóf að skreyta litla básinn sinn á skrifstofunni með músastigum og glimmeri, júðakertum, litlum jólastyttum og tilheyrandi við upphaf jóla, þann 19. október síðastliðinn. Aðventukransinn, setti hann í gluggakistuna í morgun – og jólahúfuna sömuleiðis sem hann ber á milli klukkan 9 og 5.
snillingur – jón er í rífandi jólastuði. Hann hóf hins vegar ekki að taka til fyrr en í gærkvöldi. Að undanskildum aðventukransinum sem settur var á stall í gærkvöldi, þá á enn eftir að setja upp jólaskrautið. Kortagerð er hins vegar komin á fullt. Lesendur geta nú sent snillingnum póst (e. E-mail) og óskað eftir sérstaklega persónulegu jólakorti frá snillingnum til að setja í jólaskóinn sinn. Enda er fátt betra en jólakortin hans snillings – jón!
Það er spurning hvort ekki sé réttilegast hjá þessum markaðsfræðingum sem lengt hafa jólin hér á landi svo um munar, að prófa að lengja áramótin sömuleiðis. snillingur – jón mælir með því að á næsta ári verði áramótin haldin hátiðleg frá 31. desember til 21. desember næsta ár. Þá fyrst er hægt að jafna sig á þynnkunni og heilir þrír dagar til að hengja upp jólaskrautið. Í beinu framhaldi af áramótunum er svo náttúrlega mátulegt að halda jólin í svona sirka þrjá til sjö mánuði. Einhvern tímann í ágúst á þarnæsta ári má svo fara að velta næsta markaðsátaki fyrir sér.
document.write("
28. nóvember 2003 - föstudagur
Þessi þáttur var EKKI styrktur af Tuborg
Helvíti var hann lélegur sjónvarpsþátturinn um dönsku pulsuluætuna Lars Ulrich, trommuleikara METALLICA, sem sýndur var í ríkisbatteríinu RÚV í gærkvöldi.
Auðvitað var þetta vælukjóaþáttur pölsespiseranna í Danmörku um ‘reiðasta’ danann, þennan síberjandi Ulrich, þennan sem ætlaði að verða þekktur tennisleikari í USA en hafði hvorki hæfileika né nennu til þess og gerðist í staðinn trommari - og það ekki góður, tæknilega séð - en tók síðar til við að eyðileggja Napster - svona eins og í framhjáhlaupi í krafti frægðarinnar.
Að öðru ólöstuðu virðist karlálkan Ulrich samt eitthvað sjá eftir því núna. Hann var í það minnsta eitthvað svo eyðilagður yfir því hálfa ári sem fór í að berja á smástrák sem kunni á tölvur og vildi gefa öllum hlut af kökunni sem plötuframleiðendur sneiddu handa sjálfum sér. Nei! Ulrich heimtaði að halda sinni köku – gott ef þeir í bandinu gefi ekki út undir eigin nafni - og eyddi meira en hálfu ári sem reyndi meira á hann en góðu hófi gegnir. Í ofanálag gerði hljómsveitin svo lélega plötu að aðdáendur hljómsveitarinnar vildu ekki kannast við hljómsveitina – hún var NOTA BENE ekki heldur talin upp á meðal platna Metallica. Platan sem snillingur á við er Loaded eða Reloaded. Eða bæði. Og með lögum á borð við ‘Gamli Nói’, ‘Skip og hoy’, ‘Ég sá mömmu kyssa jólasvein’ eða eitthvað álíka þaðan af vondu og verra, gömlu endurnýttu og útgubbuðu.
Á alvöru íslensku kallast þetta að pissa í skóinn sinn. Eins og flestir vita er það skammgóður vermir.
Nema hvað þar sem vælukjóinn Ulrich sat og grenjaði í slitnum fötum sem virtust kosta túkall í verslun Hjálpræðishersins en kostuðu áreiðanlega tíuþúsundsinnum meira í einhverri Armani-búð í LA – þar heldur snillingur í það minnsta að þessir rokkarar versli – þá fór hann ekki að skæla fyrr en hann tjáði sig um vinaslit við James Hetfield.
AUMINGI!! gargaði snillingur – jón upp yfir sig þar sem hann sat einn í bláa stofusófanum á þessu annars ágæta fimmtudagskvöldi með heimabíóið í botni þar sem hann ætlaði að hlusta á fantarokk, sem aldrei kom. Lars Ulrich er AumiNgi með stóru a-i og stóri n-i innan í til áhersluauka (hvers vegna? Bara).
Ástæða vinaslitanna – eða allavega endanlega ástæðan – virðist vera drykkja Hetfields sem átti, eins og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar, erfitt með að vinna úr ótímabæru andláti Cliff Burtons, sem lést í umferðarslysi árið sautjánhundruð og súrkál. KOMMON!
snillingur - jón áttaði sig auðvitað samstundis á því að þessir nískupúkar hafi ekki tímt að nurla saman aur í sálfræðing eftir slysið og ætlað að drekka það frá sér með ódýrum bjór. snillingur – jón átti ekki til orð. Hann einfaldlega gat ekki hrópað einsatkvæðisorð að sjónvarpsskjánum yfir hneykslun.
Botninn tók hins vegar úr þegar þeir Hetfield plús Ulrich föðmuðust eins og gamlir hommar fyrir tónleika á Hróarskeldu um mitt þetta ár og sögðu að svona hefðu þeir ekki getað gert fyrir fimm árum. YEAH RIGHT! snillingur – jón er andskotanum sannfærðari um að þeir hafi svo sannarlega gert það fyrir fimm árum og gott betur. Það er bara spurning hvort þeir muni eftir því þar sem þeir lágu alltaf í ódýrum bjór – ábyggilega eitthvað sem Ulrich fékk að ráða.
Nema þeir þori ekki að viðurkenna það.
DJÖ… Eftir þennan aumingjaþátt á RÚV er Lars Ulrich og Metallica öllsömul komin á kúkaplanið hjá snillingnum.
document.write("
27. nóvember 2003 - fimmtudagur
Tip sicrit
Ef allt fer að óskum mun snillingur – jón verða soldið fyrirferðamikill í fjölmiðlum hér á landi næstu tvo þrjá mánuðina. Þá er hann nær einungis að tala um glanstímaritin – hann sér til með hitt, þ.e.a.s. dagblöðin – ef eitthvað er um að tala. Það er aldrei að vita nema þau kaupi þetta (nema þau berjist um efnið, það fer eftir því frá hvaða sjónarhorni maður horfir á hlutina).
Allavegna. snillingurinn er með hugmyndir að helling af greinum í farteskinu og takist honum að selja einhvern hluta þeirra er líklegt að hann verði svolítið upptekinn þessa næstu mánuði.
Drög að grein nr. 1 var lögð í dag með viðtali – tip sicrit stöff - og nú situr hann sumsé við skriftir við nýju tölvuna (var hann búinn að segja frá henni? Í skiptum fyrir Huyndai 166 mghz (1.5 gb harður diskur) frá síðustu öld, skipti hann yfir í nútímagræju, HP laptop 2.4 mhgz (40 gb harður diskur). Þetta gerði hann fyrir 2 vikum, kannski 3). Hvað snillingur – jón er hins vegar að skrifa um þessa dagana – og næstu tvo þrjá mánuði - er náttúrlega hernaðarleyndarmál og birtist ekki í glansandi tímariti fyrr en um miðjan næsta mánuð.
Í tölvupóstinum liggja svo rafræn bréf til annarra ritstjóra með glansandi hugmyndum. Allt saman hernaðarleyndarmál, því miður, sem snillingur vonar svo sannarlega að þeir kaupi. Enda um heljarinnar brilljant eldheitt og skemmtilegt stöff að ræða. snillingur – jón er sko kominn í sambönd… Það er kannski spurning um að komast lifandi úr þessu.
Ansans. Það hefði verið gaman að hafa frá einhverju almennilegu að segja en óopinberum hernaðarleyndarmálum sem kannski / kannski ekki líta dagsins ljós að fullu eftir hálft ár.
document.write("
25. nóvember 2003 - þriðjudagur
Ríkisljónið ræskir sig
snillingur – jón var ekkert smá ánægður þegar ríkisljónið Davíð Oddsson gekk loksins út úr hýði sínu, steig upp á afturlappirnar og tjáði sig með rámri röddu. Ástandið í skóginum Íslandi var einfaldlega ekki gott - botninn tók úr þegar tveir æðstu stjórnendur einkafyrirtækisins Búnaðarbanki – Kaupþing ætluðu að skenkja sér hundruðir milljóna í eigin staup fyrir þann góða árangur að gefa viðskiptavinum sem inni eiga í séreignalífeyrissjóðum bankans, handklæði fyrir æðisleg viðskipti. Þetta var auðvitað svolítið yfirdrifið hjá greyjunum - sem þó fá nóg í eigin vasa um hver einustu mánaðarmót - og Davíð ríkisljón sá sér ekki annað fært en að rísa upp og mæla gegn braskinu. Sem snillingi - jóni finnst auðvitað æðislegt. Gott hjá Davíð! Verst þykir honum hins vegar að Davíð skuli ekki gera þetta oftar. T.d. þegar útséð er að olíufélögin eru að græða daglega milljónir á tám og fingrum á hverjum einasta bíleiganda allt árið um kring. Svo snillingur - jón tali nú ekki um allt samráðið. Hvers vegna segir Davíð ríkisljón ekkert við samráðinu? Kannski of mikil orka fari í Baug.
snillingur - jón hefur tekið saman nokkur fyrirtæki og óeðlilegar álagningar sem Davíð ríkisljón getur talað gegn:
Álagning á áfengi - (það segir sig sjálft!)
Álagning á innflutta matvöru - bæði kjöt og grænmeti - (í stað þess að hafa innflutta matvöru á eðlilegu verði og tollalausa er Íslendingum 'kennt' að íslensk vara sé sú besta í heimi - sem hún einfaldlega er ekki!).
Margföld álagning á bækur - (snillingur - jón veit ekki hvort almenningur hefur velt því fyrir sér áður, en erlendar kiljur er almennt tvöfalt dýrari hér á landi en í nágrannalöndunum. Svo maður tali ekki um Bandaríkin og Bretland!).
Verð í kvikmyndahús - (það er ógnvekjandi og áreiðanlega þrefalt hærra en í nágrannalöndunum).
Samkeppnisbrot Símans gegn öðrum sambærilegum fyrirtækjum - (say no more).
Embættisveitingar stjórnmálamanna (það segir sig svosem sjálft).
Davíð Oddsson - (maðurinn ætti að taka sjálfan sig í gegn áður en hann fer að tala gegn öðrum). Og fleira og fleira og fleira og fleira...
document.write("
19. nóvember 2003 - miðvikudagur
Sauðfé
snillingi – jóni hlýnaði heldur en ekki um hjartaræturnar þegar hann las eftirfarandi af vef Erlings Brynjólfssonar:
’Eitt er ég viss um: Að fara til Florida og eignast disk með hljómsveit sem hét ‘Sauðfé á undir högg að sækja í landi Reykjavíkur’ er með ótrúlegri ferðum sem ég hef lent í. Orsakaferlið er nánast órekjanlegt eftir eðlilegum hugsanaferlum. Sem sagnfræðingur verð ég að muna að sagan er ekki línuleg eða gengur eftir fyrirfram ákveðnum brautum. Það eru einmitt atvik eins og þessi sem minna mig á það. Og nú er ég sem sagt hreykinn eigandi að lögum með þessu magnaða bandi, sem ég hlustaði einu sinni á á tónleikum í Gjánni á Selfossi og var tvímælalaust furðulegasta uppákoma sem ég varð vitni að í þeim kjallara.
Og er þá ansi mikið sagt. Gummi Torfi gaf mér sem sagt disk með lögum eftir þetta frábæra band. Þar sem söngur Vals Arnarsonar nýtur sín...eða þannig. Ég hef alltaf sagt að súrheysturn úr járni og sleggja , og hljóðkútslaus Zetor séu einu hljóðfærin sem hæfa hans söngrödd.’
Skemmtilega tilviljunin þetta. snillingur, sem var einmitt gítarleikari í þessar lönguhættu – og eflaust lönggleymdu – hljómsveit, finnst heldur en ekki gaman að vita til þess að nú, tíu eða ellefu árum síðar, hafi a.m.k. einum fundist gaman á þessum tónleikum í Gjánni á Selfossi. Það var stuð.
Og önnur skemmtileg tilviljun: snillingur – jón hitti ofangreindan Val fyrir rúmri viku og rifjuðu þeir ýmislegt upp frá dögum bandsins auk þess að ræða um afdrif þeirra hinna sem í bandinu voru. Það var skemmtilegt. Og fyrir þá sem ekki vita, þá stofnaði bassaleikari Sauðfjárins Forgarð helvítis ásamt siggapönk eftir að bandið hætti störfum. Skítamórall tengdist hljómsveitinni ekkert!
Það sem snillingi finnst hins vegar merkilegast af öllu, er að til skuli vera diskur með hljómsveitinni. Tampatorfinn hefur eflaust fært hljóðversupptökur af snældum yfir á stafrænt, sem er ekkert nema snilld. snillingur – jón bara bókstaflega verður að ná sér í eintak… Takist það er aldrei að vita nema hann setji eitt eða tvö lög inn á vefinn fyrir jólin.
p.s. snillingur - jón fékk myndina af pönkfénu að láni af vef siggamúss
document.write("
18. nóvember 2003 - þriðjudagur
Útlit / innihald
Í gær, mánudag, sendi Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings – jóns, eftirfarandi orðsendingu í tölvupósti:
Mikilsmetnir menn í samfélaginu hér á landi hafa sett sig í samband við mig vegna skrifa míns elskulega bróður um Illuga Jökulsson frá því um síðustu helgi. Finnst þeim sem bróðir minn vegi heldur illa að Illuga, enda sé um að ræða góða sál, velskrifandi penna – æðislegan mann í öllu – sem hann er! En töffleiki í hugsun er í engu hlutfalli við útlitið og hegðunina.
Ekki svo að ég þekki neitt af reynslu af því síðastnefnda.
En ég talaði við bróður minn í síma í gær og erum við snillingur nokkurn veginn algjörlega sammála þessum mótrökum í nokkrum meginatriðum.
Satt er, að innihald Jökulssonar er töff. Reyndar er það svo töff, að ef hægt væri að deila snillings – titlinum á tvo einstaklinga, þá yrði Illugi án efa snillingur – Illugi. En það er hann ekki. Þótt innihald Illuga er án nokkurs efa töff, sem það svo sannarlega er, þá vantar soldið upp á útlitið – allavega ef marka má myndina af manninum sem birtist í Fréttablaðinu á föstudaginn í síðustu viku. Þar var hann einfaldlega ekki töff, það er að segja Illugi.
Ég meina, er Illugi í alvörunni krullhærður? Eða fékk hann sér kannski alveg eins permó þegar hann byrjaði á DV og hann hafði á dögum Þjóðviljans? Er þetta svona permó í tilefni dagsins? For old times sake?
Og hvað á þessi marblettablái jakki eiginlega að þýða? Oh my god. Það er allt og sumt sem ég get sagt. Oh mæ!
Sumsé. Innihald Illuga er töff en útlitið ekki. Plús með mínus er mínus, það vita nú allir. Eða flestir, geri ég ráð fyrir. Hvað eru þessir útlitshönnuðir á DV annars að hanga? Hvers vegna reyna þeir ekki að flikka aðeins upp á blessaðan ritstjórann?
Aftur á móti er snillingur – jón töffari af lífi og sál, ekki aðeins að innanverðunni heldur hefur hann útlitið með sér. Svo sannarlega! Á því er nokkur efi enda hef ég heyrt Svavar Örn (einusinniógeðslegakúlhárgreiðslumeistara) lýsa því yfir í svefni! Plús og plús er svo sannarlega plús. Það ættu nú allir að vita.
Alas! snillingur – jón er töff! Og hana nú!
Að fenginni þessari vísindalegu og röklegu niðurstöðu hef ég aldrei verið sáttari við útlitið á elskulegum bróður mínum og einmitt nú.
document.write("
17. nóvember 2003 - mánudagur
Múrsteinar
Um helgina brá snillingur – jón sér í heimspekilega skótauið. Hann sagði við samstarfsstelpu: Þetta er ekkert persónulegt. En ef þú værir múrsteinn, í hvernig húsi myndirðu þá vilja vera?
Stelpan sagðist ekki geta svarað þessari svo mjög heimspekilegu spurningu í svipin, því hún þyrfti að hugsa sig um. Hún birtist nokkru síðar og sagði: Ef ég væri múrsteinn, þá myndi ég vilja vera í útveggur í leikskóla. Þar er alltaf nóg um að vera, nóg líf. Krakkarnir fengju að teikna myndir á mig og svoleiðis. Svo væri nóg að gera, í það minnsta á vorin og haustin. Þetta yrði kannski verst á sumrið, það er að segja þennan mánuð sem leikskólinn er skikkaður í frí, því þá myndi ég aldrei hitta neinn.
Dæmi hver hann vill, en það verður að viðurkennast að þetta var sveimérþá heimspekilegt svar hjá stelpunni, hugsaði snillingur – jón.
En hvernig múrsteinn myndir þú vilja vera? spurði stelpan snemmhendis.
snillingur – jón hugsaði sig um, en sagði síðan: Ég myndi vilja vera múrsteinn í sólbrenndu húsi einhvers eyðimerkurkúreka í Mexíkó. Ég vona allavega að hann spili kúrekalög á munnhörpu. Eitthvað eftir Ðe Lónlí Blúbojs, það væri fínt.
Oj, svaraði stelpan og hristi höfuðið. Kúrekar kunna ekki að elda neitt nema bakaðar baunir úr dós. Húsið angar svoleiðis eftir eldamennskuna. Það yrði ógeðsleg lykt af þér!
Dæmi hver hann vill, en snillingur – jón varð sérdeilis kjaftstopp eftir þessi mjög svo heimspekilegu mótrök samstarfsstelpunnar.
document.write("
16. nóvember 2003 - sunnudagur
DV – dagblað töffara?
Fyrsta tölublað DV undir stjórn nýrra eigenda leit dagsins ljós á föstudaginn. Í Fréttablaðinu þann sama dag birtist þessi mynd (sem snillingur – jón fékk ‘lánaða’ af vef Vísis.is) af þeim Gunnari Smára Egilssyni, framkvæmdastjóra Fréttar ehf, sem gefur blaðið út, og ritstjórunum tveimur, þeim Mikael Torfasyni og Illuga Jökulssyni, blaða í gegnum frumburðinn.
Engum blöðum er um það að fletta að Gunnar Smári er töff. Hann hefur alltaf verið töff og mun vera það svo lengi sem leðurjakkinn helst utan á honum og hann nennir að tjá sig. Án leðurjakkans og síráfandi skoðana jafnt til vinstri og hægri þá hljómar hann svo sannfærandi að snillingur – jón trúir honum í næstum því öllu. Hann jafnvel gengur svo langt að kyngja við öllu gumsinu þótt Gunnar viðri gagnstæða skoðun í leiðara Fréttablaðsins daginn eftir.
Það er ekki hægt að segja annað en að Mikael sé líka töff. Allavega er hringurinn í eyranu, skemmtilegar skoðanir um móðurríðingar í æsku, piss í hliðarpoka ásamt slatta af öðrum subbuskap ekkert nema töff.
Það er langt í frá að snillingur – jón sé tískulögga. En þegar hann sá þremenningana virða sameiginlegan frumburðinn fyrir sér á fyrstu síðu Fréttablaðsins á föstudaginn gat hann ekki annað en hrópað upp yfir sig: Illugi Jökulsson er ekki töff!
Allavega er hann það ekki á myndinni sem prýddi fyrstu síðu Fréttablaðsins síðastliðinn föstudag. Og kannski er það einmitt vegna þessa – vegna klæðaburðarins – sem hann er alltaf settur á hliðarlínuna, í útvarp eða hið skrifaða orð. Ástæðan fyrir þessum hliðarlínutendens kom berlega í ljós á myndinni úr Fréttablaðinu. Illugi stendur til hliðar í laxabláum – eða hvaða litur er þetta eiginlega? – þunnildisjakka frá Duran Duran tímabilinu og með hár í stíl. Illugi fær hins vegar plús fyrir bolinn sem virðist töff. Þetta er ekki að ganga. Það er sama hvað Illugi býr til gott blað – sem snillingur – jón hefur fulla trú á að honum takist að gera – þá verður hann að gera eitthvað í stílnum. Það er máske spurning hvort útlitshönnuðirnir á DV taki höndum saman og taki Illuga í gegn rétt eins þeir gerðu við blaðið. Hann getur ekki annað en skánað.
document.write("
13. nóvember 2003 - fimmtudagur
Lægð í bloggheimum
snillingur – jón getur svo sannarlega tekið undir með strípigellunni á Badabing.is sem segir að bloggheimurinn á Íslandi hafi verið í hættulegri lægð síðustu mánuði. Mestur var krafturinn upp úr síðustu áramótum og náði hann hámarki við enda vorsins. En í sumar lagðist allt í lægð og hafa bloggararnir vart snúið sér aftur að skrifunum.
snillingur – jón hefur skýringar á takteinum. Í vor voru margir bloggara landsins annað hvort í skóla eða föstu starfi. Í sumar útskrifuðust einhverjir þeirra en aðrir fóru í sumarfrí. Þar af leiðandi gerðist lítið í bloggheimum. Ef skilja má ráðamenn þjóðarinnar rétt – snillingur – jón leyfir sér að efast um að það verði nokkurn tíma hægt – þá er rjúkandi atvinnuleysi í landinu, belti atvinnulífsins komið í síðasta gat og þrengingar bæði í fortíð og framtíð. Sem er náttúrlega agalegt því greinilegt er að einhverjir hinna fyrrum bloggara landsins á atvinnuleysisskrá. Það kemur í veg fyrir að þeir geti borgað af ADSL – inu. Þar fyrir utan er atvinnuleysi eitur fyrir hugmyndir, mann langar hreinlega ekki til að gera neitt nema hlusta á Skítamóral og Land og syni – og snillingurinn segir það satt: það er meira stuð að skjóta sig! Þeir sem hanga í vinnu, eða fengu vinnu að lokinni útskrift, skrifa líka lítið sem ekkert. Því er atvinnurekendum að kenna, þeir hafa séð að bloggarar eru eins og reykingamenn: þeir eyða allt of löngum tíma í kjaftæði og eigin þarfir sem nýtast engum nema þeim sjálfum. Og allra síst nýtist bloggið atvinnurekendum.
Þetta er allavega hugmynd...
document.write("
12. nóvember 2003 - miðvikudagur
snillingur – jón og Bráðavaktin!
Þótt snillingur – jón hafi horft á næstum hvern einasta þátt af Bráðavaktinni síðastliðin 800 ár eða svo þá hefur hann aldrei skilið þá til fulls.<\p>
Í fyrsta lagi er dánartíðnin inni á þessum spítala þar sem þættirnir gerast óvenju há. Allavega virðist sem átta af hverjum tíu gefi upp öndina. En það er sosem skiljanlegt. Ekki er nóg með læknarnir á bandarísku bráðavaktinni starfa við svo margfalt álag heldur höndla þeir sjúklingana á svo vitlausan hátt að amma snillings gæti gert betur – og það með lokuð augun! Þeir hnika þeim hastarlega til, setja nálar á vitlausa staði og sprauta svo framhjá æðunum stórhættulegum leysingavökva, nítrati eða hvað sem þetta heitir nú alltsaman. Þá virðist hendingu ráða hvar hníf þeirra bregður niður á búk sjúklinganna. Eða svo skildi snillingur – jón af eldgömlu Stúdentablaði sem hann las einu sinni. Við eðlilegar aðstæður hefðu hagsmunasamtök lækna og annarra starfsmanna sjúkrahússins, sosem verkalýðsfélög, fyrir langa löngu gripið í taumana og heimtað lagfæringar á þessu kolbrenglaða vaktaálagi lækna sem verður þess eina valdandi að sjúklingar hefðu allt eins getað drepist heima hjá sér eins og inni á hvítmáluðum spítalanum.<\p>
Í öðru lagi er karaktersafnið á Bráðavaktinni orðið alveg stórfurðulegt. Það er svosem ekkert nýtt enda hefur lesbíski krypplingurinn, sem stjórnað hefur batteríinu með harðri vinstri hendi, (hin styðst við hækju), verið í þáttaröðinni frá upphafi. Svo undarlega vill hins vegar til að í kjölfar Öryrkjadómsins virðist þeim hinum sömu fara ört vaxandi innan raða læknanna á Bráðavaktinni. Fyrstur til að breytast í öryrkja var náttúrlega skurðlæknirinn, Rómanó eða Raymondo eða eitthvað álíka – þessi sem snillingurinn er nú alveg sannfærður um að hafi fengið skalla í kjölfar krabbameins. Allavega. Í reiðiskasti veifaði hann hönd upp aftan við þyrlu, sem skar hana af honum í einum grænum. Nú og fyrir tveimur þáttum síðan birtist einn öryrkinn til viðbótar; svartur læknanema – sem í raun virðist alltof gamall miðað við meðal nemanda – en með ... Parkinsonsjúkdóm sem gerir það að verkum að hann hristist og skelfur og getur varla opnað pilluglas án þess að missa það í gólfið. Hann ætti fremur heima á kokteilbar en á bráðavakt þar sem snör og ÖRUGG handtök skipta máli.<\p>
En kannski verður bara stuð að fylgjast með svarta Parkinsoninn færast upp í stigagjöfinni og gerast skurðlæknir enda fer þá nú líka blóðbaðið að hefjast fyrir alvöru!<\p>
Og sjá! snillingur – jón hefur komist að gagnstæðri niðurstöðu en hann lagði upp með. Hann vill sjá enn fleiri öryrkja í Bráðavaktinni, enda er það von hans að þeir muni breyta þessum líka ömurlega þætti í alvöru splatter á nokkrum vikum!
document.write("
1. október 2003 - miðvikudagur
Sneiðum ann, steikjum ann...!
Strípalingurinn á Badabing.is hreykir sér heldur en ekki af því að hrista alþýðuslenið af snillingi – jóni. Og sem betur fer! Þetta er hins vegar heljarinnar puð. Onkel snillings, sem strípillinn hreykti sér heldur en ekki að hafa skákað hringdi óðamála í snilling – jón og tjáði honum að honum liði skelfilega yfir monti Strippa.
Þetta er svo dæmigert af þessu $%/!$ AA-slekti að kúka svona á allt og alla og biðjast svo fyrirgefningar á öllu eins og Siggi pönk gerði þegar hann hætti að dópa hér um árið. Þetta sagði onkel snillings næstum orðrétt. Reyndar kúkaði Siggi aldrei á neinn og þegar hann hringdi þvers og kruss að biðjast fyrirgefningar, þá sagði hver kjaftur í landinu sem haft hafði einhver samskipti við manninn að ráði: Hva, ertu hættur að drekka? Þetta var stuð! Þegar hann baðst fyrirgefningar á einhverju sem hann gat með engu móti munað hvað var, þá kannaðist enginn við neitt. Það var einfaldlega stuð.
Því er greinilega ólíkt farið með stríparann. Hann kúkaði á allt og alla á meðan hann drakk og heldur áfram eftir að hann hættir að drekka! Þetta sagði Onkel alveg hundrað prósent orðrétt. Þetta helvítis kristnital sem AA treður inní hausinn á fólki. Þetta er ekkert nema $/%&! þræla og hundsviðmót í fólki, eins og hann Nietszche sagði. Og þá ætla ég ekki að tíunda örlög Nietzsches eftir að hann sagði þetta. Kannski Guð hafi verið að verki þar. Djö…. hefnigirni alltaf hreint!
Og onkel kom með ágætis hugmynd sem fólst í því að ganga alla leið með þessa (fallegu) kristnu hugmynd. Taldi hann réttast að gera líkt og snillingur hafði eitt sinn haldið fram að væri ódýr og auðveldur refsikostur og dusta rykið af eldgamalli refsilöggjöf úr suðri.
Við krossfestum kauða! sagði onkel. Við neglum hann upp á Skólavörðuholti, eða á einhverjum álíka stað. Og þetta er áhrifaríkara, því negldur á krossi getur hann varla teygt sig í alkahólið. Onkel hló tryllingslega að þessari hugmynd sinni. Svo sagði hann:
Þegar stríparinn fer að kvarta og kveina þarna veinandi uppi á krossinum, þá gerirðu bara eins og Rómverjarnir gerðu í den. Þú tekur fram spjótið þitt stinna og stingur hann í rifin . Svo slettirðu skyrinu á hann!
snillingur – jón hefur enn ekki tekið heilshugar undir með onkel í þessu máli. En það nýjasta af snillingi er að frétta að hann endurnýjaði samning sinn við himnaríki og verður í sælunni út vikuna – hvílíkur unaður! Það er spurning um næstu viku. Fyrir þá sem ekki vita, þá er himnaríki yndislegur staður þar sem stelpur eru hundraðfalt fleiri en strákar. Say no more...!
document.write("
29. september 2003 - mánudagur
Skítkast brjálaða stripparans!
Brjálæðingurinn á strípibúllunni <a='http://www.badabing.is/arc/002123.html'>Badabing.is sletti heldur en ekki skyrinu á fyrrum starfsfélaga sinn, hann snilling - jón, í sjálfumhverfa blogginu sínu gær. Og þótt skyr hafi löngum talist til mýkri mjólkurafurða beljunnar, þá sveið snilling heldur en ekki undan því.
Það getur vel verið gaman að sletta skyri. Og snillingur - jón er þess fullviss að Helgi Hóseasson hafi haft gaman af því að sletta á afa strípikellingarinnar á Badabing. En óþarfa fannst honum að sæma hann heiðurstitlinum aumingjabloggari.
Aumingjabloggari! Þetta hljómar eins og öryrkjavæl ofan úr Breiðholti. En þannig er snillingur - jón ekki. Enda er hann hvorki aumingi né öryrki. Nei! Hann er ofurmenni. Súpermenni! Hann er snillingur - jón!
Það er ástæða fyrir þessari endalausu þögn snillings að þessu sinni. Undanfarin rúman mánuð eða svo - frá síðustu viku ágústmánaðar, til loka september - hefur hann verið að leyfa alþýðunni, þér og honum, manninum í næsta húsi etc... - að að njóta krafta sinna. Og það ofan á allt annað sem hann gerir! Og þótt hann nefni ekki hér og nú hvað hann geri, í hverju þessi þjónustulund hans og góðmennska felst, þá veit hann ekki samt ekki alveg fyrir víst hvort hann sé staddur í himnaríki eða helvíti. Eða kannski á bili beggja.
Þarna eru eitthvað um 2000 stelpur (plús mínus 300) og einhverjir strákar sem ranghalast um ganga íverustaðarins og skipta þessvegna engu máli. Allavega telja þeir pínötts í hlutfalli við stelpnafjöldann.
snillingur veit sveimérþá ekki hvort sé himnaríki eða helvíti. Hvílík sæla. En hvílík kvöl og angist sem snillingur - jón þarf að þola hvern dag á milli klukkan níu og fjögur. Í enda hvers dags er ísköld sturta hrein guðsgjöf! Svo maður minnist ekki á þá fullnægju sem felst í því að berja bak sig með þurrum birkivendi að sturtu lokinni og loka þannig fyrir alla þá hugarvíla og ímyndanir sem troðið hafa sér leið inn í hugarflugið allan liðlangan starfsdaginn!
Jú, þetta er áreiðanlega himnaríki!
Samt er snillingur - jón síður en svo dauður úr öllum æðum. Nei! Herra Strípill, hér kemur snillingur - jón á hundrað kílómetra hraða inn á vefinn!
Aumingjabloggari hvað!
document.write("
21. ágúst 2003 - fimmtudagur
snillingur - jón í hörkukeppni!
snillingur - jón hefur fundið heldur athyglisverðan vettvang til að virkja keppnisandann. Þetta er Gegnir, leitavél Þjóðarbókhlöðunnar...
MEIRA")
document.write("
8. ágúst 2003 - miðvikudagur
Dr. Gunni gerir skurk í draumi snillings!
Onkel snillings - jóns sagði honum næstum skipandi í gær, að þetta gengi ekki lengur og yrði hann að uppfæra heimasíðuna hið snarasta...
MEIRA")
document.write("
26. júlí 2003 - laugardagur
Allir sofa
... á sínu græna í Hlíðunum. snillingur - jón gat ekki sofið: hann vaknaði upp með andfælum af draumi sem hann getur ekki skilgreint öðruvísi en hljóti að vera matröð. Hann dreymdi Braga Ólafsson, fyrrum Sykurmola og núverandi rithöfund...
MEIRA")
document.write("
25. júlí 2003 - föstudagur
Mjólk er góð
Óheppilegasta myndbirting í íslenskum fjölmiðli er án nokkurs efa stóra baksíðumyndin í Morgunblaðinu í dag...
MEIRA")
document.write("
25. júlí 2003 - föstudagur
Sumarið er tíminn
Mikið var að snillingur - jón fór eitthvert í sumarfrí, en slíkt hefur hann ekki gert í háa herrans tíð. Í þetta sinn ók hann ásamt elsku sinni suðurleiðina austur á land, tjaldaði á Höfn í Hornafirði og Egilsstöðum og svaf ótrúlega vel. Á laugardagsmorgni þann 19. júlí hoppuðu þau upp í rútu sem brunaði upp að eyðibýlinu Kleif sem er lengst inni í Fljótsdal...
MEIRA")
document.write("
16. júlí 2003 - miðvikudagur
Síðustu dagar etc.
snillingur - jón? Jú, hann er ennþá til, meira að segja nýrakaður og fínn. Allavega hann hefur svo hræðilega böns mikið að gera að ekkert hefur orðið af uppfærslu á þessari blessuðu heimasíðu hans. Hér má sjá smávegis...
MEIRA")
document.write("
2. júlí 2003 - miðvikudagur
snillingur-jón óskast til starfa
Það er ekki einleikið hvað snillingi - jóni gengur illa að finna skapandi og skemmtilega vinnu handa sjálfum sér. Atvinnurekendur virðast í það minnsta ekki taka eftir framúrskarandi hæfileikum hans, stinnum og fallegum búk (það má svosem liggja á milli hluta) og svo framvegis...
MEIRA")
document.write("
23. júní 2003 - mánudagur
Óvenju spennandi mánudagur
snillingur - jón lifir ótrúlega spennandi lífi. Hann vaknar á morgnanna, gengur inn á kló, fær sér AB-mjólk í morgunmat og drekkur tvo kaffibolla á eftir. Ótrúlegt...
MEIRA")
document.write("
21. júní 2003 - laugardagur
Þetta
...er ekki alveg að takast hjá snillingnum. Honum ætlar einfaldlega ekki að takast að nota bloggið sem vefdagbók svo einhver úti í heimi geti fylgst náið með hversdagslífinu hans. Sem, nb, er ekkert sérlega spennandi.
MEIRA")
document.write("
20. júní 2003 - föstudagur
Maðurinn kominn aftur á stjá
Þótt snillingur - jón hafi ekkert skrifað á vefinn í nokkra daga er ekki þar með sagt að hann hafi farið á námskeið í meðferð skotvopna og svo framvegis og stytt sér aldur á heldur subbulegan hátt...
MEIRA")
document.write("
12. júní 2003 - fimmtudagur
Draumur snillings - jóns
Um daginn dreymdi snillinginn afar undarlegan draum. Telur hann ekki nokkra von að draumur þessi, sem var furðulegt nokk stútfullur af hræðilega vondum mongólítum, hafi litla eða þá nokkra þýðingu eins og draumarnir í Biblíunni...
MEIRA")
document.write("
4. júní 2003 - miðvikudagur
Ég ekki vera íslenska þjóðin
snillingur - jón hefur undanfarna mánuði dundað sér við að kenna félögum sínum frá fyrrum ríkjum Júgóslavíu næga íslensku svo þeir geti bjarga sér í íslensku samfélagi...
MEIRA")
document.write("
3. júní 2003 - þriðjudagur
Pssst...
Jövlans! Nú vísa slúðurkerlingar fréttum gærdags aftur heim í hérað og segja Árna P. Diddy Johnsen (sem er ágætis millinafn) sitja enn við sitt prjón og hekl á gæðarúmdýnum sem hann pantaði á Kvíabryggju...
MEIRA")
document.write("
2. júní 2003 - mánudagur
The return of Árni Johnsen: Stuð í sturtu
snillingur - jón á ekki eitt aukatekið orð enda segja honum óstaðfestar slúðursögur að fjárglæframaðurinn Árni Johnsen hafi verið sendur burt frá Kvíabryggju á Litla - Hraun fyrir agabrot...
MEIRA")
document.write("
31. maí 2003 - laugardagur
Helvítis Ibiza!
Á fimmtudaginn fór snillingur - jón upp í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Hann fór að morgni fimmtudags og söng og trallaði sig hásan sökum útvarpsleysis í Coltanum. Þegar komið var í bústað elskufamilíunnar í dalnum rak hann í rogastans: vegna þurrka og vætulítils veturs var vatnsból dalsins vatnslaust og bústaðurinn sömuleiðis...
MEIRA")
document.write("
28. maí 2003 - miðvikudagur
Þolinmæðin þrautir vinnur og þessháttar? Fukket!
Nú er þolinmæði snillings - jóns endanlega runnin til þurrðar. Atvinnurekendur vilja ekki sjá hann í alminnilegri og skemmtilegri vinnu, segja því miður og í augnablikinu, um þessar mundir etc. og  snillingur - jón er við það að rykfalla á eigin heimili. Framvegis ætlar hann að gefa skít í allt og alla, leggjast í þunglyndi, sparka í liggjandi hund og segja gömlum konum að fara í bað...
MEIRA")
document.write("
27. maí 2003 - þriðjudagur
Fífl með augun fyrir neðan nefið
Að undanskilinni spenningnum fyrir Evróvisjón reið allt á reiðiskjálfa í síðustu sviku vegna uppsetningar á verkum Matthews Barney, unnusta Bjarkar Guðmundsdóttur, í Nýlistarsafninu. RÚV var með sérstakan þátt um kappann auk þess sem Lesbók birti opnugrein um karlinn. snillingur - jón sat gapandi alla vikuna og skildi ekki neitt í neinu...
MEIRA")
document.write("
23. maí 2003 - föstudagur
Tveir að gera á sig í Riga
Og talandi um blogg. Nýjustu risar bloggsins eru 'félagarnir' Logi Bergmann Eiðsson og Gísli Marteinn Baldursson sem dvalið hafa alla vikuna í herbúðum Evróvisjón í Riga í Lettlandi. Skrif félaganna eru stórskemmtileg enda velta þeir sér endalaust upp úr slúðrinu á staðnum. Þeir skrifa um asnalega framlagið frá Austurríki, lellurnar í Tatu og samkynhneigðu fréttamennina sem kunna öll lögin í Evróvisjón frá upphafi...
MEIRA")
document.write("
23. maí 2003 - föstudagur
Óvirkasti bloggari í heimi?
Herra snillingur - jón hefur stundum áhyggjur af því hversu sjaldan hann uppfærir vef sinn. En sjá! Honum til mikillar gleði er rithöfundurinn Auður Jónsdóttir ennþá verri. Hún er án nokkurs efa með óvirkari bloggurum í heimi.
document.write("
22. maí 2003 - fimmtudagur
Farvel aukakíló!
Líkt og illgresið í garðinum í gamla húsinu hennar ömmu hafa aukakílóin sprottið út búk snillings sem aldrei fyrr. Þetta er hörmung, jövlans helvítis súkkulaði - sökum aldurs er engin leið að ná þeim af. snillingur hefur nú tekið upp á því að púla innan um aðra sveitta skolta í líkamsræktarstöð í Skeifunni...
MEIRA")
document.write("
20. maí 2003 - þriðjudagur
snillingur - jón: óeftirminnilegasti starfsmaður ársins?
snillingur - jón er sannfærður um að Þórarinn Þórarinsson, yfirsenjorinn á strípibúllunni Badabing.is, þjáist af sárum Delerium tremens. Enda birti hann nýverið ítarlega lýsingu á veislu fyrrverandi starfsmanna Vísis.is sem getur ekki verið annað en tremens - speaking, afleiðingar áralangrar ofdrykkju. Nema... nema snillingur - jón sé einfaldlega ekki eftirminnilegur fyrrverandi starfsmaður...
MEIRA")
document.write("
17. maí 2003 - laugardagur
Guðfaðirinn snillingur - jón
snillingurinn horfði á Guðföðurinn hakka óvini sína niður á RÚV í gær. Marlon Brando, annar eins megakarakter hefur áreiðanlega aldrei sést á skjánum - snillingur - jón setur alltaf samasemmerki á hans og Guðföðurins. Samt gæti hann sett samasemmerki á milli guðföðurs og sín enda er snillingur - jón guðfaðir frænda síns...
MEIRA")
document.write("
16. maí 2003 - föstudagur
Norrænn bolti og jarðarfarir
Nú er enska og þýskan deildin að syngja sitt síðasta og tapliðin að hverfa undir græna torfu í 1. deild. Norræni boltinn kemur hins vegar sterkur inn og má búast við undarlegum niðurstöðum fyrstu vikurnar. Því er er um að gera að vera með og spila
MEIRA")
document.write("
16. maí 2003 - föstudagur
Rómantískasti maður Íslands og helgarboltinn
Síðustu tvo daga hefur snillingur - jón unnið að því hörðum höndum að bæta vef sinn. Strax í dag spáir snillingur - jón í helgarboltann og á fimmtudaginn birtist viðtal hans við Lárus Hafliða, sem margir segja einn rómantískasta mann Íslands. Tékkið að lengjuspá snillings - jóns!
document.write("
13. maí 2003 - þriðjudagur
Að vera eða ekki að vera SpassiTommi
Á göngu sinni um Hamrahlíð í morgun rak snillingur - jón heldur en ekki upp stór augu. Á móti honum hlykkjaðist maður sem hann hafði ekki séð í nokkurn tíma. Var ekki þarna lifandi kominn SpassaTommi ráðherra sem snillingur fjallaði um í pistli fyrir nokkru...
MEIRA
document.write("
13. maí 2003 - þriðjudagur
Einnar nætur kosningagaman og glóðarauga
Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillings - jóns sneri óvænt heim úr Dieter í Austurríki og skellti sér á djammið á kosninganótt. Að sögn hans var þetta æsispennandi nótt sem endaði með glóðarauga...
MEIRA
document.write("
12. maí 2003 - mánudagur
Jövlans pikles á súkkulaðinu
Vefur vefur snillings hefur verið eins og útmakaður í súkkulaði síðustu tvo dagana. Orsökin er tæknilegs eðlis enda hefur snillingur - jón aldrei gert mannleg mistök...
MEIRA
document.write("
10. maí 2003 - laugardagur
Brotist undan sjálfsfróun
Í nýjasta tölublaði Tölvuheims getur að líta viðtal við bráðfallegt egó snillings - jóns. Fjallar greinin að mestu leyti um skúffuhöfunda sem reyndari höfunda er birta verk sín á Netinu...
MEIRA
document.write("
9. maí 2003 - föstudagur
Fylltar lambagarnir með uppsópi og lauk
Veröldin er agnarsmá. Í gær fór snillingur - jón í sinn daglega göngutúr og rölti hann á nokkrum mínútum alla leið út í hinn stóra Heim - við Borgartún og lenti hann á heljarinnar spjalli um risa íslenskra bókmenntanna, Helgu Sigurðardóttur...
MEIRA
document.write("
6. maí 2003 - þriðjudagur
Framsókn í dúr og moll
Framsóknarflokkurinn er kominn í rífandi auglýsingastuð. Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins og utanríkisráðherra Íslands, lét sig ekki muna um að taka lagið sem snillingur man aldrei hvað heitir í þætti Gísla Marteins fyrir nokkru og syngja í að minnsta kosti fjórum tóntegundum...
MEIRA
document.write("
3. maí 2003 - laugardagur
Gamli klár
snillingur - jón hefur ekkert skrifaði í heilan dag og er það miður. Kennir hann verkalýðskaffinu á afmælisdeginum sínum 1. maí þar um - Betty Crocker, sem hann hrærði út af stakri snilld og bætti vanilludropum útí, virðist hafa slökkt á heila hans. Nema það sé aldurinn, þessi plús tvævetra...
MEIRA
document.write("
1. maí 2003 - fimmtudagur
Hann á afmæli í dag!
snillingur - jón kom í heiminn á rigningardegi verkalýðsins fyrir nokkrum árum. Hann neitar að gefa upp aldur. Hann er meir en tvævetra ...
Héðan í frá ætlar hann að ljúga til um aldur...
MEIRA
document.write("
29. apríl 2003 - þriðjudagur
Amerísk fífl
Á sunnudagskvöld lá snillingur - jón í bláa sófanum ásamt elskunni sinni og horfði á hinn margauglýsta þátt American Idiol í truflaðri útsendingu á Stöð 2. En þótt þau gátu hlustað á þáttinn þá var þetta ekki skemmtileg upplifun.
MEIRA
document.write("
28. apríl 2003 - mánudagur
Steikt brauð á pönnu
Í gær fékk snillingur - jón heldur sérkennilega fyrirspurn frá kunningja í e-mail: 'Áttu í handraðanum uppskrift að venjulegum pönnukökum? Ef svo er þá þætti mér vænt um ef þú sendir mér hana. Ég er með einhverja uppskrift sem er bara sull, það er eitthvað afbrigðilegt, útlenskt.'...
MEIRA
document.write("
27. apríl 2003 - sunnudagur
Stórveldi ljóta fólksins
Í kjölfar þess að snillingur - jón dró sjálfsagðar ályktanir af þeirri bresku könnun sem hann fjallaði um í gær, hafði onkel hans samband til að tjá honum sínar útskýringar á barnaleysi langskólagenginna frauka í Bretlandi...
MEIRA
document.write("
26. apríl 2003 - laugardagur
Herfur
Í dag sá snillingur - jón umfjöllun um nýja og athyglisverða könnun frá Bretlandi en vísindamenn þar í landi komust að þeirri niðurstöðu að 50 prósent kvenna með háskólapróf eignist síður börn en stuttskólaðar stelpur...
MEIRA
document.write("
25. apríl 2003 - föstudagur
Sjúga batterí?
snillingur - jón sá samstundis eftir því að segja að náttúra Íslands taki úr manni allan mátt. Að landið hafi sogið úr honum lífskraftinn og andann svo hann hafi engu komið í verk...
MEIRA
document.write("
24. apríl 2003 - fimmtudagur
snillingur - jón snýr aftur úr páskafríi
Nú er snillingur - jón komin heim úr margra daga páskafríinu sem átti að endurnýja hann, hlaða batteríin, hreinsa sálina og skola syndum spillta snillingsbotninn í hreinni fjallalind og svo miklu miklu MEIRA á svipuðum skáldlegum nótum.
Það var fínt og stórskemmtilegt en samt er snillingurinn ekkert sérlega endurnýjaður. Það er eiginlega á hinn veginn. Já ef búkurinn gengur fyrir batteríum þá hljóta þau sem í snillingi eru að heita Húmbúk fremur en Hellesens...
MEIRA
document.write("
15. apríl 2003 - þriðjudagur
Bylgjan - heimspekilegt útvarp!
snillingur - jón tileinkaði allri síðustu viku í hlustun á útvarpsstöðina Bylgjuna. Einhverjir kunna að spyrja hvers vegna hann leggi út í svona vitleysu, en svarið er einfalt: hann langaði að kanna hvort Bylgjan væri eins leiðinleg og af er látið. Niðurstaðan var skelfileg, enda telur snillingur - jón að Bylgjan snerti jafnt á þýskri tilvistarheimspeki Heideggers og andskotatrú...
MEIRA
document.write("
14. apríl 2003 - mánudagur
Dauður hundur og Tony Soprano
Á hverju einasta mánudagskvöldi horfir snillingur - jón á Tony Soprano ganga út í garð á morgunsloppnum sínum í samnefndum þætti á RÚV og setja vænar fúlgur fjár í kistuna sem geymir fuglafóðrið... MEIRA
document.write("
11. apríl 2003 - föstudagur
Ljóslifandi minningar?
Um daginn hitti snillingur - jón kunningja sinn við grænmetisbásinn í Hagkaupum. Kunningi þessi vinnur við að sannfæra ungabörn um gæði kristindómsins og hjálpa þeim við að staglast á játningunni fyrir ferminguna...
MEIRA
document.write("
10. apríl 2003 - fimmtudagur
Kosningasjónvarp dauðans!
Kosningaumfjöllun Kastljóssins á RÚV eitt það leiðinlegasta sjónvarpsefni sem sögur fara af. Samt gerði snillingur - jón tilraun til að vera ábyrgur kjósandi í vikunni og horfði á tvo síðustu kosningaþætti Kastljóssins...
MEIRA
document.write("
9. apríl 2003 - miðvikudagur
snillingur - jón: skrefi á undan DV!
Fréttablaðið hælir sér á hverjum degi þótt það eigi það engan veginn skilið. snillingur - jón er hógvær, hann hælir sér aðra hverja viku, stundum skemur. En síðastliðinn mánudag henti hann heldur en ekki höndum í loft og hrópaði: H - A -L - E - L - Ú - J - A!...
MEIRA
document.write("
8. apríl 2003 - þriðjudagur
Laugardagur með Íslands - Tyrkjum
snillingur - jón getur með engu móti borað almennilega í nef sitt af forundran yfir opnuviðtalið DV síðastliðinn laugardag. Opnuviðtalið er í raun allt hið sorglegasta...
MEIRA
document.write("
6. apríl 2003 - sunnudagur
Komdu blessaður, Magnús!
snillingur - jón gerði ýmislegt skemmtilegt um helgina. Til að mynda lá hann svoleiðis legið yfir tveimur nýjustu bókum heimilisins um helgina að hann gleymdi að spila í enska boltanum í Lengjunni - en það er nokkuð sem hann gleymir aldrei...
MEIRA
document.write("
5. apríl 2003 - laugardagur
Óskarsverðlaunarinn er ábyggilega dauður!
snillingur - jón hefur beðið með óþreyju í næstum hálfan mánuð eftir svari Óskarsverðlaunahafans Michaels Moore við spurningu hans hvers vegna fylgismenn Bush séu ekki fyrir löngu búnir að koma Moore fyrir kattarnef og grafa í ómerktri gröf uppi í fjalli...
MEIRA
document.write("
4. apríl 2003 - föstudagur
Dagur Sigurðarson og lýðveldið Ísland
Uppvakningurinn dr Gunni greinir frá samskiptum skáldsins Dags Sigurðarsonar við einn af forsetum lýðveldisins Ísland á heimasíðu sinni...
MEIRA
document.write("
3. apríl 2003 - fimmtudagur
Sumir eru meiri fífl en aðrir
snillingur - jón las afar merkilegt lesendabréf í DV í gær frá einhverjum Pétri Jónssyni...
MEIRA
document.write("
2. apríl 2003 - miðvikudagur
Hnappur, nr. 3
Hnappamynd snillings - jóns í dag, miðvikudag, sýnir geðveikan einstakling á miðjum aldri, sem gleymdi að borga fyrir kaffi í Ráðhúsi Reykjavíkur, standa á brúnni gegnt Iðnó og garga úr sér lungun...
MEIRA
document.write("
1. apríl 2003 - þriðjudagur
Ford, Bush og snillingur - jón
Síðasta föstudagskvöld var afar fagurt. snillingur - jón kom heim af kvöldgöngu, settist fyrir framan sjónvarpið, sá Harrison Ford leika forseta Bandaríkjanna, og gat ekki rifið sig frá skjánum upp frá því. snillingurinn reif sig einu sinni upp til að spræna, þurfti að beita  til þess öllu valdi. Kannski forsetavaldi...
MEIRA
document.write("
30. mars 2003 - sunnudagur
Heimskir hvítir menn og krumpaðir rassar
Bandaríski leikstjórinn Michael Moore var heldur en ekki í fréttum í liðinni viku. Ekki var nóg með að hann lyfti afhendingu Óskarverðlaunanna á hærra svið þegar hann tók við gullhúðaðri styttu fyrir heimildamynd sína 'Bowling for Columbine' og mótmælti yfirgangi Bandaríkjamanna í Írak...
MEIRA
document.write("
28. mars 2003 - föstudagur
Hnappur, nr. 2
Myndasýning snillings heldur nú áfram. Mynd dagsins er hnappur nr. 2. snillingur - jón vann að myndsköpun sinni um jólaleytið 2002 og birtust nokkrar myndanna í jólakortum hans og heittelskuðu það sama ár. Óskar Aðalsteinn, samkynheigðum bróðir snillingsins, skrifaði eftirfarandi um myndirnar í tölvupósti...
MEIRA
document.write("
28. mars 2003 - föstudagur
snillingurinn á Innherjaspjalli á Vísir.is!
Ótrúlegt en satt! Nú er snillingur - jón heldur en ekki orðinn málsmetandi maður á skútunni MS Íslandi! Ástæðan er sú að einhver 'óháður' hefur stolið pistli snillings - jóns um Birgittu Haukdal eins og hann lagði sig og klístrað inn á Innherjaspjallið á Vísi.is...
MEIRA
document.write("
27. mars 2003 - fimmtudagur
Egill Helgason, Óskarsverðlaun og laugardagsporn
Á sunnudag flatmagaði snillingur - jón í bláa sófanum sínum í stofunni og góndi á Silfur Egils, afhendingu Óskarsverðlaunanna, upptöku af laugardagshálfporni á Sýn og beinar útsendingar BBC og CNN frá stríðinu í Írak...
MEIRA
document.write("
26. mars 2003 - miðvikudagur
Hnappur, nr. 1
Um síðustu jól sagði snillingur - jón við gesti og gangandi að á vordögum myndi hann hafa myndasýningu. Hann hefur nú staðið við orð sín! Óskar Aðalsteinn, samkynhneigður bróðir snillingsins, skrifar inngangsorð að sýningarskránni...
MEIRA
document.write("
24. mars 2003 - mánudagur
Heimtum lögbann á Haukdælu!
snillingnum finnst afar gaman að horfa á sjónvarpsauglýsingar; sérstaklega finnst honum athyglisvert að sjá þær vörur sem fólki á að finnast ómissandi. Hann rak samt í rogastans um daginn þegar hann sá gyðju smástelpnanna, Birgittu Haukdal, bryðja Rís og skola því niður með Pepsíkóla...
MEIRA
document.write("
22. mars 2003 - laugardagur
Áhrifalausu kontóristarnir og utanríkisstefna Íslands
Nú er það lýðnum ljóst að einn vina snillings - jóns fæddist undir óheillastjörnu. Hann hefur aldrei unnið í lottói, hefur aðeins einu sinni unnið í Getraunum - vinningurinn var undir tíu þúsund krónum, og allir gera betur en það...
MEIRA
document.write("
20. mars 2003 - fimmtudagur
SpassiTommi ráðherra
Þeir sem þekkja til snillings - jóns vita að hann býr í Hlíðunum og fer flesta sinna ferða á tveimur jafnfljótum. Á hólnum ofan við Menntaskólann í Hamrahlíð, á bak við híbýli snillings er hverfi efnaðra...
MEIRA
document.write("
19. mars 2003 - miðvikudagur
Roth, Houellebecq, Torfason og mamma
Ótrúlegt en satt: einn vinur snillings, sem kíkti í heimsókn til hans í gær, spurði hvort Philip Roth hafi eitthvað dónast af viti síðan í Sabbaths Theater (1995). snillingur - jón benti honum á að lesa í það minnsta fjórar bækur fyrir 1990 og allavega eina til...
MEIRA
document.write("
18. mars 2003 - þriðjudagur
Fyrsti joggarinn á Netinu?
Eins og eftir eyðimerkurgöngu um margumtalað hálendi landsins snýr snillingur - jón nú aftur í þriðja sinn. Í þetta sinn virðist það vera til frambúðar...
MEIRA
document.write("
17. mars 2003 - mánudagur
Neyðin kennir nöktum Indverjum
Um helgina heyrði snillingur - jón skrýtna sögu sem kom til þegar tveir kunningjar hans af indverskum ættum ræddu um þarlenda kvikmynd á vídeóformi...
MEIRA
document.write("
15. mars 2003 - laugardagur
Maður án minnis borðar aldrei neitt
Í gær, föstudag, barst nýja aukablaðið Birta með Fréttablaðinu. snillingur - jón, sem blaðaði gegnum snepilinn, rak upp stór augu yfir grein Bryndísar Schram sem skrifaði um bíóferð í Finnlandi...
MEIRA
document.write("
13. mars 2003 - fimmtudagur
Philip Roth á vorkvöldi í Reykjavík
Pervertisminn lá í loftinu þegar snillingur - jón rölti yfir Klambratún í gærkvöldi...
MEIRA
document.write("
12. mars 2003 - miðvikudagur
skrýtinn fyrirboði...
Í nótt dreymdi snilling - jón heldur sérkennilegan draum. Það var júní og snillingur lá á sólstól við sundlaugarbarm...
MEIRA
document.write("
11. mars 2003 - þriðjudagur
Það var kominn tími til að tengja
snillingur  - jón náði loks í endalokin á Zombie, nýjasta afkvæmi þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og dr. Gunnars L. Hjálmarssonar á Radíó - X. Það var komi tími til að tengja karlana almennilega saman...
MEIRA
document.write("
10. mars 2003 - mánudagur
er ég orðinn alveg snar?
Það er alveg stórmerkilegt hvað snillingur - jón hefur sett mikla pressu á sjálfan sig. Það er næstum sama hvað hann gerir, alltaf verða vangavelturnar áleitnari, hvað hann eigi að skrifa í næsta bloggi...
MEIRA
document.write("
8. mars 2003 - laugardagur
snillingurinn bloggar
Af engri sérstakri ástæðu hefur snillingur - jón ákveðið að ryðja sér til rúms á vettvangi bloggsins...
MEIRA