Það er ýmislegt hægt að gera sér til skemmtunar á meðan dvalið er í Þurranesi.  

Margir áhugaverðir og sögufrægir staðir eru í Dalasýslu og nágrenni.

Hægt að leggja land undir fót og fara í góða gönguferð í nágrenninu eða skella sér í bíltúr Frá Þurranesi er hægt að skoða marga staði án þess að fara alltaf sömu leið og víða hægt að njóta útsýnis. Nánari upplýsingar fást í Þurranesi.

Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa undanfarið unnið að útgáfu á veglegum göngu- og útivistarkortum fyrir Vestfirði og Dali.

Tvær sundlaugar eru í grennd við Þurranes.

Byggðarsafn er að Laugum í Sælingsdal og svo er skemmtilegt að skoða  Eiríksstaði í Haukadal.

 

Það er jafnvel hægt að skella sér í siglingu á Breiðafirði.

 

Hægt er að komast í skotveiði, nánari upplýsingar í Þurranesi.  

 

Til baka