Árið 1939 byggðu Ólafur Skagfjörð Ólafsson og Þórey Guðmundsdóttir steinhús í Þurranesi. Það tók við af torfbæ sem stóð þar rétt fyrir neðan. Eftir lát þeirra bjó þar Ragnheiður dóttir þeirra með syni sínum Ólafi Skagfjörð Gunnarssyni. 1974 byggðu hann og kona hans Ingunn Jóna Jónsdóttir nýtt íbúðarhús þar skammt frá. Árið 1998 hófu þau svo ferðaþjónustu í gamla húsinu. Sambyggt gamla húsinu var fjós sem nú er búið að rífa og er þar nú nýbyggð vélageymsla.
