Stofnun hlutafélags um knattspyrnuna í Grindavík

Þann 29. febrúar 2000 var hlutafélagið GK 99 stofnað.   Segja má að sú breyting sé tímans tákn.  Við álítum að hefðbundinn rekstur knattspyrnudeildarinnar sé genginn sér til húðar.  Kröfuharkan um góðan árangur og veltan er orðin slík að það er ekki lengur leggjandi á fáeina stjórnarmenn í sjálfboðavinnu að eyða öllum sínum frítíma (og oft vinnutíma líka) í að halda fjölþættu starfinu gangandi.

Markmiðin eru skýr.  Hlutafélagið verður fjárhagslegur bakhjarl alls reksturs knattspyrnudeildarinnar.  Hlutafélagið mun byggja stúku við nýjan grasvöll, þar sem malarvöllurinn er nú í góðri samvinnu við Grindavíkurbæ.  Stúkan verður glæsileg, með sæti fyrir allt að 1000 manns.  Samhliða verður byggt 550 fermetra þjónustuhús á tveimur hæðum með glæsilegri aðstöðu fyrir áhorfendur og leikmenn.  Knattspyrnusamband Evrópu verður óheimilt að selja aðgang að knattspyrnuvöllum eftir árið 1999 nema ströngum skilyrðum um aðstöðu fyrir áhorfendur og leikmenn sé fullnægt.   Knattspyrnudeildin mun hér eftir sem hingað til sjá um rekstur á öllum flokkum karla og kvenna með öflugum stuðningi hlutafélagsins GK 99.  Helstu markmið hlutafélagsins eru þessi:

  • Að fjölga þátttakendum
  • Að efla fjölbreytt barna og unglingastarf
  • Að auka menntun leiðbeinenda og þjálfara til muna
  • Að auka gæði alls starfsins
  • Að auka fræðslu um skaðsemi ávana- og fíkniefna.
  • Að bæta aðstöðu til iðkunnar knattspyrnu í samvinnu við stjórn Grindavíkurbæjar.
  • Að meistaraflokkur nái hámarksárangri og tryggi sér þátttökurétt á alþjóðamótum.
  • Að móta knattspyrnumenn framtíðarinnar, sem munu skila sér í meistaraflokka félagsins, landslið Íslands og jafnvel til erlendra stórliða.

Við skorum á bæjarbúa sem og aðra stuðningsmenn okkar að leggja fjármagn að mörkum, gerast hluthafar í GK 99 og tryggja sér þar með góðan skattaafslátt og virka þátttöku í starfinu.  Upphæð hlutafjár er að vali kaupenda, en lágmarkshlutur er 10.000.

Þessar glæsilegu myndir sýna hið glæsilega mannvirki sem GK 99 mun reisa.  Smelltu á myndirnar ef þú villt fá þær í fullri stærð. mynd1.jpg (19845 bytes)
mynd2.jpg (21992 bytes) mynd3.jpg (21095 bytes)