![]()
|
Atli kenndi tónsmíðar um árabil við Tónlistarskólann í Reykjavík, og hefur haldið fyrirlestra við marga erlenda háskóla.Hann var einnig höfundur vinsælla tónlistarþátta í Ríkisútvarpinu. Atli fékk Tónlistarverðlaun Norðurlanda árið 1976 fyrir Flautukonsert sinn. Árið 1993 var hann kjörinn meðlimur í hinni Konunglegu sænsku tónlistarakademíu. Verk Atla hafa verið víða flutt. Meðal þeirra má nefna óperurnar Silkitrommuna, Vikivaka, Tunglskinseyjuna og söngleikinn Lands míns föður. Þá má nefna 9 einleiks-konserta fyrir víólu, flautu, fagott, básúnu, fiðlu, selló, saxófónkvartett 2 píanókonserta, fjölda hljómsveita-, kammer- og einleiksverka, svo og tónbálkinn Tíminn og vatnið við ljóð Steins Steinarrs, sem senn kemur út á geisladiskum Atli hefur nýlokið: við óperuna Hertervig við texta norska skáldsins Paal-Helge Haugen Þá er Atli að semja óperu um kristnitökuna á Íslandi ásamt Þorsteini Gylfasyni.
|