|
|
|
ELDRI FÆRSLUR OG GÖNGUR Á HENGILSSVÆÐIÐ; Saga og breytingar á heimasíðunnar í stuttu máli. 11. febrúar 2008. Ný síða um gamla Nesjavallabæinn settar inn. Sjá hér. nesjavellir; Saga byggðar af gamla Nesjavallabænum. Er enn að reyna að gera forsíðuna mína aðlaðandi en virðist seint og illa ganga. 06. desember 2007. Breytingar á heimasíðunni. Myndir stækkaðar og texti færður í nýtt form. 01. júlí 2007. Lagfæringar gerðar á síðu um Útilegumenn í Engidal. En gleymdist að setja þar inn að sá Eyvindur sem minnst er á er forveri og alnafni hins þekktari Fjalla-Eyvinds. En svona er þetta stundum, þakka fyrir ábendinguna. 06. febrúar 2007. Bætti við upplýsingum um skátaskálann Þrym í síðuna um skálar á Hengilssvæðinu. Þakka Baldri skáta fyrir þessar upplýsingar. 24. nóvember 2006. Hef tekið mér vetrarfrí frá göngutúrum. Þó gerði ég minniháttar útlitsbreytingar á forsíðu heimasíðunnar. Frekari vinnu og upplýsingaöflun á Hengilssvæðinu er í vinnslu og með vorinu mun ég birta eitthvað nýtt 7.ágúst 2006. Gengið var frá línuveginum vestan meginn við Húsmúla. Stefnan var tekin á Engidal og þann helli sem þar á að vera. En sagnir eru til um að Fjalla-Eyvindur (þann fyrri) hafi hafst við í þessum helli árið 1678. Veður var milt og gott og gekk gangan vel. Engidalur leynir á sér en ég hef lítið fjallað um þennan dal og þá einnig Maradal, verð að bæta úr því seinna, en ýmsar sögur má finna sem tengjast þeim. Að finna hellinn gekk vel og gat ég tekið ágætis ljósmyndir af báðum hellunum sem Lýður Björnsson, sagnfræðingur fjallaði um. Ég bætti við síðu um Útilegumenn í Engidal. Í leiðinni tók ég ljósmyndir af skála Orkuveitunnar í Engidal og bætti við í síðu um skála á Hengilssvæðinu. Góð ganga sem nýttist mér vel, nokkrar flugur slegnar í einu að þessu sinni. 2. ágúst 2006. Loksins kom veðrið sem maður var að bíða eftir, nýtti að sjálfsögðu tækifærið tók stefnuna á Hengilssvæðið, tók myndir, kynnti mér þá sögu sem gamli Nesjavallabærinn eða Nesjar höfðu að geyma. Ég mun birta síðu um Nesjar, myndir og fróðleik fljótlega. En framundan hjá mér er að ganga í Engidal og finna helli sem útilegumenn höfðust í hér fyrr á öldum. Ætlunin er að taka ljósmyndir, bera saman heimildir og birta hér á síðunni. 21. júní 2006. Setti saman síðu um fornar götur og vörður á Hellisheiði. Fannst það við hæfi þar sem vegur hefur legið um Hellisheiði frá fornu fari. Sjá nánar á síðu um Fornar götur, stígar og vörður. Bætt við gps hnitum og myndum vegna skála starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Úlfljótsvatn. 16.júlí 2006. Vegur um Hellisheiði og Hengilssvæðið hefur legið lengi þar um, fólk ferðaðist við misjafnar aðstæður, oft í vondu veðri, og háði jafnvel baráttu upp á líf og dauða. Margir týndu lífi sínu á þessum ferðalögum. Nánar á síðu um mannskaða á Hellisheiði. 03. júlí 2006. Fékk kærkomnar viðbótarupplýsingar um skála á Hengilssvæðinu. Bætti þeim inn í síðu um skálana. En um er að ræða gamla skátaskála. Ég þakka Sigurði V. fyrir þessar upplýsingar. 11. júní 2006. Fór að Ölfusvatni til að skoða mannvistarleifar sem þar má finna. Tók nokkrar ljósmyndir til að klára síðuna um Ölfusvatn. Það var ekki sérstaklega hentugt veður til að vera úti, úrhellisrigning. Einnig myndir teknar á Nesjavöllum og Botnadal. GPS punktar teknir. Alls ekki með öllu tilgangslaus ökuferð. 04. júní 2006. Hreinsað til á heimasíðunni, gömlum myndum skipt út fyrir nýrri og skýrari. Fullt af myndum eyddar út, fullt af sömu myndum með sitthvor heitin. 02. júní 2006. Leit gerð að helli í Henglinum sem útilegumenn áttu að hafa haldið til í hér fyrr á öldum. Gengið frá Sleggjubeinsdal og inn í Innstadal. Mögulegur hellir fundinn, stemmir við lýsingar sem finna mátti í heimildum, illkleift var að komast inn í hellinn, en bergið fyrir framan hellinn er gríðalega bratt. Ekki gerlegt að komast inn í hann nema með línum og búnaði. Mun stefna að því að fara aftur seinna, en þá betur búinn. Ég bara spyr; hvað var fólk að gera á svona óaðgengilegum stöðum fyrir langa löngu? :) Gengið í 5 klst. Útilegumenn í Henglinum. 31. maí 2006. Bætti við síðu vegna Hellisheiðarvirkjun. Þetta er aðallega til glöggvunar fyrir göngufólk en vegna þessarra framkvæmda þá hefur aðgengi að Hengilssvæðinu lítillega raskast, þó aðallega í kringum Sleggjubeinsdalinn og Kolviðarhól. 30. maí 2006. Hef átt í vandræðum með gestabókina mína, og hef verið að reyna að vinna úr þeim tæknilegu vandamálum. Færði gömlu gestabókina yfir í nýja, þetta er ekki endanleg gestabók en verður að duga þar til ný og betri verður sett upp. Þakka öllum sem sýna þessu áhuga. Athugasemdir og hól alltaf vel þegið. :) 29. maí 2006. Framundan hjá mér er að leita að hellinum í Henglinum þar sem útilegumenn héldu til í. (sjá 04.06.06) 24. maí 2006. Bætti inn fróðleik og upplýsingum varðandi huldufólkskirkjuna í Botnadal. Var alltaf með vitneskju um þessar sagnir en einhvern veginn þá hafði ég alltaf gleymt að færa hana í heimasíðuna, en hér er hún kominn. Botnadalsbær og sagnir um huldufólkskirkju. 12. maí 2006. Rölti um Húsmúlann, fór um Húsmúlarétt og Sæluhúsið við Draugatjörn. Nokkur ár síðan ég fór þarna um. Ég tók nokkrar myndir til endurnýja á heimasíðunni. 03. maí 2006. Þá hefur heimasíðan fengið nýtt útlit, en ég ákvað að leggja í smá breytingar á síðunni. Ekki hef ég bætt neinu við hana að þessu sinni, nema kannski reynt að auka við upplýsingar um einstaka gönguleiðir. Ég vonst til að geta bætt við fekari upplýsingum og ljósmyndum í sumar. Ég hef verið með þessa síðu frá árinu 2001 og margar af myndunum eru það gamlar að þær voru teknar áður en ég eignaðist stafræna myndavél. 19. janúar 2006. Skipulagðar gönguferðir eru farnar árlega á vegum Ferðafélagsins Útivistar um Hengilssvæðið en önnur félagasamtök og hópar hafa einnig verið með skipulagðar gönguferðir um svæðið. Einnig hefur verið boðið upp á stuttar áhugaverðar fræðsluferðir þar sem stiklað er á sögu svæðisins með tilliti til náttúru, samgöngu og menningarminja sem er jafnvel hulið þeim sem ekki þekkja til. 3. desember 2005. Ákvað að uppfæra forsíðuna en það eru nokkur ár síðan ég fór að birta þessa heimasíðu og mikið af myndum og efni síðunnar hefur breyst að undanförnu. Þó er helst að nefna framkvæmdirnar sem eiga sér stað vegna Hellisheiðarvirkjunar, í kringum Kolviðarhól og þar í námunda. Til stendur hjá mér að uppfæra meira þegar ég get gefið mér tíma til. 21. febrúar 2005. Hef bætt inn upplýsingum um skála sem eru staðsettir á Hengilssvæðinu. Ljósmyndir, GPS hnit og fleira. Ekki tæmandi upplýsingar, en byrjunin. Skálar á Hengilssvæðinu. 2. október 2004 LOKSINS gat ég gefið mér tíma til að klára síðuna um HELSTU GÖNGULEIÐIR á Hengilssvæðinu. En þar er að finna upplýsingar um aðal og helstu gönguleiðir á Hengilssvæðinu. Ekki er um tæmandi upplýsingar að ræða en vonandi gefur þetta fólki sem hafa áhuga á útiveru og gönguferðir um þetta svæði einhverja hugmynd um hvers er að vænta á ferð um Hengilssvæðið. Samt mun ég smátt og smátt bæta við vel völdum og áhugaverðum myndum þegar tími gefst til. Ég vona að þessar upplýsingar eigi eftir að nýtast fólki eða í það minnsta kveiki áhuga hjá einhverjum um gönguferðir á Hengilssvæðinu. 27.júlí 2004 Hef verið að kynna mér baðhveri á Hengilssvæðinu, eða hveri sem eru mátulegir og hafa verið notaðir til baða. Helst bera að nefna hveri í Innstadal og í Reykjadal. Mun vonandi fljótlega setja myndir og kannski gps hnit af þessum stöðum. 06.júlí.2004. Fór í göngutúr um Innstadal. Ég lagði af stað frá Sleggjubeinsdal. Það var annsi langt síðan ég fór um þennan dal. Nýtti tækifærið og tók nokkrar myndir. Bætti þeim sérstaklega inn í síðu um Innstadal. 03.maí 2004. Mér var bent á að hér vantaði upplýsingar um heita hveri á Hengilssvæðinu, náttúrulega hveri þar sem hægt væri að baða sig í. Fannst þetta stórsniðug hugmynd því ég var ekki búinn að hugsa út í þetta. En nokkra slíka hveri er að finna á svæðinu. Þakka fyrir ábendinguna. Mun bæta þessu við síðuna fljótlega. 04.apríl 2004. Bætti inn myndum í tengslum við gönguleiðir um Botnadal. Nokkuð lengi hef ég átt frekar lítið af myndum frá þeim stað enda hef ég lítið gengið þar um að undanförnu. Reyndi að bæta úr því og tók nokkrar myndir og bætti inn í síðuna, gönguleiðir um Botnadal. 18. mars 2004. Þar sem ég var svo duglegur við ljósmyndatöku þann 15. mars þá ákvað ég að sökkva mér ennfrekar í Íslandssöguna. Ég ákvað að lesa mér til um sögunar á bak við Búastein og Hellisskarð. Og í tilefni af því þá bætti ég inn nokkrum myndum og hnitmiðuðum upplýsingum um það efni. Hellisskarð og Búasteinn. 15. mars 2004. Gekk gömlu vörðuðu leiðina "þjóðleiðina" frá sæluhúsinu á Hellisheiði og að Kolviðarhóli. Ég get fullyrt það að það komu fortíðarstraumar um mig er ég gekk þessa gömlu götu. Hægt var að ímynda sér hvernig var að ferðast um þetta svæði í aftakaveðri. Það hefur verið miður skemmtilegt en ég var þó heppinn að njóta eins góðs "vetrarveðurs" og hugsast getur. Nýtti mér tækifærið og tók nokkrar myndir sem mig vantaði í tengslum við sögu Kolviðarhóls. |