|
|
| Við Ferðamiðstöðina í Árnesi eru tvö gestahús, annað með 20 rúmum, sólpalli og heitum potti, hitt er með 18 rúmum. Í báðum húsunum er eldhús og setustofa. |
![]() |
Glæsileg tjaldstæði, með góðri hreinlætisaðstöðu, nuddpotti, leiktækjum, sundlaug og heitum pottum, íþróttavöll, sturtur, glæsilegar veitingar, frábært morgunverðarborð og úrvals matseðill, hestaleigu, gistingu, bar, verslun, stór samkomusalur, fallegt umhverfi og stutt í stórkostlega náttúru Suðurlands. |
| Í Árnesi er góð aðstaða
til veisluhalda allt árið. Ættarmót, árshátíðir, þorrablót
o.fl.Gerum föst tilboð fyrir hópa, skóla og fyrirtæki. Rétt við
Árnes er Verslunin Árborg þar
sem hægt er að fá margskonar þjónustu.
|
![]() |
![]() |
Gnúpverjahreppur* er byggðin milli Þjórsár að austanverðu og Stóru-Laxár að vestan. Sveitin er vel gróin og búsældarleg. Efsti hluti sveitarinnar heitir Þjórsárdalur og er hann austasti dalur Árnessýsu. |
| Á þjóðveldisöld var blómleg byggð í Þjórsárdal og fleiri en 20 bæir í byggð. Hekla spúði eldi árið 1104 og huldi byggðina í Þjórsárdal ljósri gjósku og lagði byggðina í eyði. Húsin varðveittust sum hver undir gjóskunni og voru nokkrir bæjanna grafnir upp árið 1939. Heillegastar voru rústirnar á Stöng og er hægt að skoða þær allt árið um kring. | ![]() |
![]() |
Gnúpverjahreppur er góður heim að sækja og hefur margt að bjóða ferðafólki; fagra sveit, öræfi, fossa og sögustaði. |