![]() |
Hrafnhildur útskrifaðist úr Söngskólanum í Reykjavík 1995, með Þuríði Pálsdóttur sem aðalkennara. Einnig hefur hún sótt tíma hjá Ólöfu K. Harðardóttur og Prófessor Anke Eggers í Berlín.Helstu einsöngshlutverk Hrafnhildar í Íslensku Óperunni og víðar eru Gréta í Hans og Grétu, Sópransóló í Carmina Burana, Giannetta í Ástardrykknum, Adele í Leðurblökunni, Næturdrottningin í Töfraflautunni, Frasquita í Carmen, Laurey í Oklahoma og Sögumaður í söngleiknum Jósep. Í febrúar árið 2000 söng Hrafnhildur hlutverk Luciu í óperunni The rape of Lucretia hjá Íslensku Óperunni. Hrafnhildur býður upp á létt og klassíkt prógramm við öll tækifæri og getur einnig orðið við sér óskum um lagaval. " Hrafnhildur söng Næturdrottninguna lystilega og af miklum krafti og glæsileik " úr Mbl. 15 júní 1999 " Rödd Hrafnhildar er sem sniðin fyrir Adele og hún hefur einnig til að bera þokka og útgeislun sem gæða hlutverkið karakter " úr Mbl. 4 maí 1999 |