English

Hrafnhildur Björnsdóttir

Sópransöngkona

Hrafnhildur útskrifaðist úr Söngskólanum í Reykjavík 1995, með Þuríði Pálsdóttur sem aðalkennara. Einnig hefur hún sótt tíma hjá Ólöfu K. Harðardóttur og Prófessor Anke Eggers í Berlín. 

Helstu einsöngshlutverk Hrafnhildar í Íslensku Óperunni og víðar eru Gréta í Hans og Grétu, Sópransóló í Carmina Burana, Giannetta í Ástardrykknum, Adele í Leðurblökunni, Næturdrottningin í Töfraflautunni, Frasquita í Carmen, Laurey í Oklahoma og Sögumaður í söngleiknum Jósep. Í febrúar árið 2000 söng Hrafnhildur hlutverk Luciu í óperunni The rape of Lucretia hjá Íslensku Óperunni. 

Hrafnhildur býður upp á létt og klassíkt prógramm við öll tækifæri og getur einnig orðið við sér óskum um lagaval. 

" Hrafnhildur söng Næturdrottninguna lystilega og af miklum krafti og glæsileik " úr Mbl. 15 júní 1999 

" Rödd Hrafnhildar er sem sniðin fyrir Adele og hún hefur einnig til að bera þokka og útgeislun sem gæða hlutverkið karakter " úr Mbl. 4 maí 1999 

[ Skrifaðu í gestabókina mína ] - [ Lesa gestabókina mína ]

Tölvupóstur hrafnhildurb@visir.is
Sími 896-1239