Október 2004 word
Febrúar 2004 word Þessa útgáfu er ágætt að prenta út sem "tvær síður á blaði".
Október 2003 word Þessa útgáfu er ágætt að prenta út sem "tvær síður á blaði".
Apríl 2003 vefsíða og word
Febrúar 2003
vefsíða og word
Eldri fréttabréf
![]() |
Hér er að finna þau fréttabréf félagsins sem gefin voru út 1999 og voru auðfáanleg á rafrænu
formi. Þau eru hér í þeirri tímaröð
að nýjasta fréttabréfið er efst. Ábm.
Ólafur Patrick Ólafsson Pósthólf 5019, 125
Rvk.
|
|
FYRIRLESTUR Miðvikudaginn 27. október mun Guðmundur Guðmundsson flytja fyrirlestur sem nefnist Rannsóknir á farleiðum farfugla með hjálp ratsjár í þremur leiðöngrum um Norðurheimsskautssvæðið 1994-99. Sagt verður frá þremur leiðöngrum á vegum sænsku heimsskautarannsóknastofnunarinnar um norðurhöf í máli og myndum og greint frá helstu niðurstöðum rannsókna á farfuglum. Fyrsti leiðangurinn (Tundra Ecology-94) var farinn um "Norðausturleiðina" sumarið 1994 með ströndum Síberíu, allt frá Kólaskaga í vestri að Wrangeleyju í austri. Annar leiðangurinn (Arctic Ocean-96) var farinn sumarið 1996 um austanvert Norðuríshafið og á Norðurpólinn. Þriðji leiðangurinn (Tundra Northwest-99) var farinn um "Norðvesturleiðina" síðastliðið sumar. Fyrirlesturinn verður haldinn í Lögbergi, stofu 101 og hefst kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Rannsóknir á farleiðum farfugla með hjálp ratsjár í þremur leiðöngrum um Norðurheimsskautssvæðið 1994-99.
Sagt verður frá þremur leiðöngrum á vegum sænsku
heimsskautarannsóknastofnunarinnar um norðurhöf í máli og myndum og greint
frá helstu niðurstöðum rannsókna á farfuglum. Fyrsti leiðangurinn (Tundra
Ecology-94) var farinn um "Norðausturleiðina" sumarið 1994 með ströndum
Síberíu, allt frá Kólaskaga í vestri að Wrangeleyju í austri. Annar
leiðangurinn (Arctic Ocean-96) var farinn sumarið 1996 um austanvert
Norðuríshafið og á Norðurpólinn. Þriðji leiðangurinn (Tundra Northwest-99)
var farinn um "Norðvesturleiðina" síðastliðið sumar.
Eins og lesendur hafa væntanlega tekið eftir hefur félagið nú tekið upp
nýtt merki.
Lagabreytingar Á síðasta aðalfundi voru samþykktar fjórar lagabreytingartillögur. Til glöggvunar fyrir félaga eru gildandi lög félagsins birt hér í heild sinni. Lög Líffræðifélags Íslands
20. árg. 6. tbl. september 1999 MYNDAKVÖLD
Miðvikudaginn 6. október mun Líffræðifélag Íslands standa fyrir
myndakvöldi. Þar mun Oddur Sigurðsson sýna myndir af skordýrum og veita
örlitla innsýn í heim þeirra.
SkordýrOddur Sigurðsson Myndirnar sem ég ætla að sýna eru allar teknar á Íslandi á síðustu 10
árum. Þar er fyrst og fremst um skordýr og önnur smádýr að ræða, en einnig
myndir úr jurtaríkinu. Myndavélin sem ég nota er með 6 X 4.5 cm formati og fást
þannig myndir
sem henta betur til stækkunar en 35 mm myndir.
Ráðstefnufréttir
Eins og félögum er væntanlega kunnugt, stendur félagið fyrir stærstu
ráðstefnu sinni til þessa, dagana 18.-20. nóvember á Hótel Loftleiðum, í
tilefni af 20 ára afmæli félagsins á þessu ári. Ráðstefnan ber
yfirskriftina "Líffræðirannsóknir á Íslandi" og verður líklega stærsta
íslenska ráðstefnan á sviði rannsókna sem haldin hefur verið en rúmlega 250
tilkynningar um framlög bárust.
"Líffræðirannsóknir á Íslandi" er kjörið tækifæri fyrir alla áhugamenn um líffræði að kynnast þeim gróskumiklu líffræðirannsóknum sem fram fara á Íslandi um þessar mundir. Í tilefni 20 ára afmælis Líffræðifélags Íslands hefur verið ákveðið að félagið styrki einn nema í framhaldsámi til ráðstefnuferðar. Ráðgert er að veita styrkinn við hátíðlega athöfn á afmælisráðstefnu félagsins í nóvember. Ef vel tekst til er ætlunin að styrkur þessi verði veittur árlega, eftir efni og aðstæðum félagsins hverju sinni. Reglur um nemendastyrk Líffræðifélags Íslands - Styrkurinn er kr. 40 000- og er úthlutað til að standa straum af kostnaði vegna ráðstefnuferðar á tímabilinu 01.09.1999 - 31.08.2000. - Allir framhaldsnemar í líffræði eða líffræðitengdu námi, sem eru að vinna að sjálfstæðu rannsóknarverkefni og eru félagar í Líffræðifélagi Íslands, geta sótt um. - Skilyrði fyrir úthlutun styrksins er að nemandinn kynni verkefni sitt á viðkomandi ráðstefnu á formi fyrirlesturs eða veggspjalds. Umsóknir skulu innihalda eftirfarandi 1) Vísindagrein um efnið sem kynna á á ráðstefnunni. Lengd hennar skal vera mest 6 A4 blaðsíður (þ.m.t. myndir og heimildaskrá), með minnst 11 punkta letri, línubili 1.5 og 2.5 cm spássíum á alla kanta. Greinin skal fylgja hefðbundinni uppbyggingu með inngangi, efni & aðferðum, niðurstöðum, umræðu og heimildaskrá. 2) Ferilsskrá (curriculum vitae) umsækjanda. 3) Meðmæli um gagnsemi ferðarinnar frá aðalleiðbeinanda. 4) Fjárhagsáætlun verkefnisins undirrituð af leiðbeinanda. 5) Upplýsingar um ráðstefnuna sem sótt er um ferðastyrkinn til (ráðstefnubæklingur eða annað sambærilegt). - Greinar fara til sérfræðinga á viðkomandi sviði. Skila þeir umsögn um efnistök greinarinnar til dómnefndar, sem samanstendur af þriggja manna (ólaunaðri) nefnd sem tekur endanlega ákvörðun um úthlutun styrksins hverju sinni. - Umsóknir skulu vera skriflegar og berast pósthólfi félagsins (Pósthólf 5019, 125 Reykjavík) eigi síðar en 25. október 1999. Enn um rukkun félagsgjalda
Eins og frá var sagt á sínum tíma og frægt er orðið urðu mistök við prentun
og útsendingu gíróseðla fyrir árgjaldið 1998 sem rukkað var í vor.
Póstlisti Settur hefur verið upp póstlisti fyrir Líffræðifélagið. Ætlunin er að hann flytji félagsmönnum tilkynningar hvers konar frá félaginu á fljótan og skilvirkan hátt. Verið er að ganga frá endanlegu sniði listans, en að því loknu verður send kynning á listanum til þeirra félagsmanna hvers netföng eru félaginu kunn. Kynningu þessari munu fylgja ofureinfaldar leiðbeiningar um hvernig megi skrá sig af listanum, lítizt fólki illa á hann. Póstlistinn verður s.k. "lokaður" listi, þ.a. stjórn félagsins mun hafa milligöngu um allt efni sem sent er út. Þetta er gert svo að óvandaðir aðilar úti í bæ geti ekki hellt ruslpósti yfir félagsmenn, komizt þeir á snoðir um listann. Félagsmenn eru hvattir til að láta þetta á engan hátt aftra sér í að senda inn (biologia@centrum.is) tilkynningar, fréttir eða annað sem það telur að erindi eigi við félaga (þó ekki slúðursögur, þótt það væri óneitanlega gaman). Þeir félagar (og aðrir) hvers netföng eru ekki skráð hjá félaginu verða að bíða næsta fréttabréfs, en þar verða birtar upplýsingar um hvernig megi skrá sig á póstlistann og af honum. Þetta er eins nálægt ritstjóraspjalli og þið komist í þetta skipti vegna plássleysis (aftur?). Lesendur hafa vafalaust átt von á djúpri heimspekilegri vizku (að ekki sé minnzt á innsæi) eftir sumarlanga bið, en það verður að bíða.
20. árg. 6. tbl. apríl 1999. Smelltu hér til að vista. Efst Ábm. Ólafur Patrick Ólafsson Ár í lífi refsins Páll Hersteinsson prófessor við Háskóla Íslands Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessar rannsóknir og farið víða yfir sviðið. Byggt verður á atferlisrannsóknum á Ströndum og í Hornstrandafriðlandi, fæðuvals- rannsóknum, krufningum til þess að meta líkamsástand, frjósemi og orkubúskap, merkingum til þess að meta far ungra dýra að heiman o.fl. Greint verður frá lífsháttum refsins eftir árstíðum og reynt að skýra hvernig atferli og líkamlegir eiginleikar gera honum kleift að lifa við þær aðstæður sem ríkja á Íslandi og annars staðar á norðurslóðum. Hver árstíð hefur sinn vanda sem refurinn þarf að glíma við og milljón ára aðlögun gerir honum það kleift. Ljósmyndanámskeið
Þann 15. og 16. maí nk. mun Líffræðifélagið
standa fyrir ljósmyndanámskeiði. Leiðbeinandi verður
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari. Á námskeiðinu
verður farið lítillega í grunnatriði ljósmyndunar
og að því loknu munu þátttakendur fara út
og taka 2 – 3 slidesfilmur á eigin myndavélar. Filmurnar
verða framkallaðar, árangurinn skoðaður og hver
þátttakandi fær leiðbeiningar um hvað má
helst laga. Hámarskfjöldi þátttakenda er 15 manns.
Aðalfundur Líffræðifélags Íslands
Við minnum á aðalfund félagsins þann 21.
apríl nk. að Grensásvegi 12, stofu G6 kl. 20:00. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta og taka þannig þátt
í störfum félagsins, hitta aðra félagsmenn
og njóta með þeim veitinga að fundi loknum.
Ráðstefnufréttir
Með síðasta fréttabréfi fylgdi skráningareyðublað
fyrir þá sem hafa hug á að senda inn efni á
afmælisráðstefnu L.Í. í nóvember.
Við hvetjum áhugasama til þess að senda eyðublöðin
til Sigurðar S. Snorrasonar, Líffræðistofnun Háskólans,
fyrir 15. maí nk.
20. árg. 5. tbl. apríl 1999 Efst
Fyrir aðalfundi liggja fjórar tillögur til lagabreytinga. 1. Stjórn leggur fram tillögu að breytingu á
d lið 5. greinar, sem hljóðar nú svo:
2. Stjórn leggur fram tillögu um að núverandi
7. grein skuli framvegis auðkennd sem 9. grein.
3. Stjórn leggur fram tillögu um aði 7. grein
hljóði þess í stað svo:
4. Stjórn leggur fram tillögu um að 8. grein hljóði
svo:
Netfang – netfang Til tíðinda bar á dögunum að Líffræðifélagið
fékk sitt eigið netfang. Ekki nóg með það,
heldur er það líka komið með slóð fyrir
væntanlega vefsíðu. Fengin hefur verið manneskja
sem ætlar að koma heimasíðunni upp, án þess
að taka margföld mánaðarlaun meðallíffræðings
fyrir.
Ritfregn Nýlega kom út greinasafnið "Íslensk votlendi – verndun og nýting". Háskólaútgáfan gefur verkið út í samvinnu við Fuglaverndarfélag Íslands og Líffræðifélag Íslands. Ritstjóri greinasafnsins er Jón S. Ólafsson. Alls eru 25 greinar eftir 28 höfunda í greinasafninu sem er 283 blaðsíður, skipt í þrjá hluta: "Yfirlit yfir íslensk votlendi", "Rannsóknir á íslenskum votlendum" og "Verndun - nýting ". Í fyrsta hlutanum eru greinar sem fjalla almennt um votlendi á Íslandi, vatnafræði votlendis, jarðveg í votlendi og einstaka flokka votlendra svæða, s.s. sjávarfitjar, vötn og jarðhitasvæði. Annar hlutinn fjallar um niðurstöður nýlegra rannsókna á íslenzkum votlendum í 12 greinum, sem koma meðal annars inn á áhrif framræslu á gróðurfar og fuglalíf, tvær greinar fjalla um áhrif umhverfisbreytinga á flórgoða og greint er frá mikilvægi votlendis fyrir einstaka fuglategundir. Í síðasta hlutanum, "Verndun - Nýting", er fjallað um verndargildi votlendis, alþjóðlegar skuldbindingar vegna verndunar votlendis, ýmsa nýtingarmöguleika og endurheimt votlendis. Texti greinanna er skrifaður með það fyrir augum að hann nýtist jafnt leikum sem lærðum. Verð bókarinnar er kr. 1 980-. Félagar í Líffræðifélagi Íslands geta fengið bókina með 20% afslætti (kr. 1 584-), þeir sem vilja nýta sér þennan aflátt skulu snúa sér til skrifstofu Fuglaverndarfélagsins að Hlemmi 3. Þeir sem utan Reykjavíkur búa geta snúið sér beint til Háskólaútgáfunnar (s: 525 4003) og fengið bókina senda. Takið fram að þið séu félagar í Líffræðifélaginu. Hér fylgir með efnisyfirlit bókarinnar. ÍSLENSK VOTLENDI
YFIRLIT YFIR ÍSLENSK VOTLENDI
RANNSÓKNIR Á ÍSLENSKUM VOTLENDUM
VERNDUN - NÝTING
Lærið að þekkja plönturnar Fyrirhugað er að halda fjögurra daga námskeið
í plöntugreiningum á vegum Náttúrufræðistofnunar
Íslands næstkomandi sumar ef næg þátttaka
verður. Námskeiðið verður haldið dagana
8. til 11. júlí að Hrafnagili í Eyjafirði
í samvinnu við Hótel Vin. Gisting og fæði
á staðnum fyrir þá sem þess óska.
Tilboð 3 er miðað við þá sem hugsanlega
búa í grennd við staðinn, eða kjósa að
gista á tjaldstæði og sjá sér sjálfir
fyrir fæði.
Ráðstefnufréttir Með þessu fréttabréfi fylgir eyðublað
þar sem þeir sem hug hafa á því að
senda inn efni á afmæliráðstefnu L.Í. í
nóvember geta skráð sig til leiks. Frestur til
að skila þessum eyðublöðum er til 15. maí.
Eftirtaldir hafa þegar tekið að sér að vera
tenglar fyrir við undirbúningsnefndina:
Sigurður S. Snorrason formaður, Líffræðistofnun,
s:525-4612, sigsnor@rhi.hi.is
Skelfileg mistök!!! Ekki linnir vandræðunum með gíróseðlana. Ekki eru öll kurl enn komin til grafar í því máli og virðist sem eitthvað af gíróseðlunum hafi hreinlega vantað. Stjórnin er nú að yfirfara þetta mál og mega þeir sem væntu gíróseðils í marz, en fengu eigi, búast við honum í haust. Íþróttir Nú fer að líða að vori og sumri með blóm
í haga (og sæta langa sumardaga, eins og þar segir).
Af því tilefni þykir ritstjóra fréttabréfs
félagsins tími til kominn að stofnaður verði
krikketklúbbur á Íslandi. Í fjölmiðlum
heyrist að aukin harka sé í íþróttum
hérlendis. Hvað er þá betra en að bregða
sér í krikket, þar sem reglur kveða á um
séntilmannlega hegðun, óaðfinnanlegan hvítan
klæðnað og tepásur? (Hættið þessum
hlátri strax!). Að öllu gamni slepptu er krikket
mjög skemmtileg íþrótt. Verst er að þá
þarf að slá blómin í haga, svo pláss
sé til a spila á ...
Nýtt árþúsund? Stjórn félagsins er þeirrar skoðunar að
þeir sem finna sig knúna til að deila um hvort nýtt
árþúsund hefjist 1.janúar árið 2000
eða 2001, hafi of mikinn frítíma og þurfi alvarlega
að huga að því að finna sér önnur
áhugamál.
Fleyg tilvitnun “When you think about something at 3 o´clock in the morning and
then again at noon the next day, you get different answers…”
Næsti fyrirlestur Margir muna eflaust eftir skemmtilegu og velheppnuðu myndakvöldi
Esterar Rutar Unnsteinsdóttur, Hólmfríðar Sigþórsdóttur
og Páls Hersteinssonar í óktóber síðastliðnum
þar sem þau sýndu myndir frá refarannsóknum
í Hlöðuvík sumarið 1998. Þriðjudaginn
20. apríl mun Páll Hersteinsson greina hluta af niðurstöðum
þessara rannsókna. Fyrirlesturinn verður í
Lögbergi, stofu 101, og hefst kl. 20:00.
Ritstjóraspjall (part deux) Síðast var fráþví sagt að fólk
gerði sér almennt ekki grein fyrir að aldrei hefur tekizt
að staðfesta eina einustu frásögn um yfirskilvitleg
fyrirbæri, hvað þá sýna fram á tilvist
slíkra fyrirbæra, þrátt fyrir áratuga
langa sögu dularsálfræðilegra rannsókna.
Eftir gaumgæfilega yfirferð á beztu rannsóknargögnum
sem völ er á um slíkt, komst Rannsóknarráð
Bandaríkjanna (NRC) árið 1988 að eftirfarandi niðurstöðu.
Rétt þykir að birta frumtextann, hvort sem fleiri eða
færri (líklega þó hið fyrrnefnda) skilja
hann:
20. árg. 4. tbl. mars 1999 (Vista)
Efst
Þriðjudaginn 23. marz heldur Hrefna Sigurjónsdóttir
fyrirlestur í Lögbergi, stofu 101, kl. 20:00:
Félagshegðun íslenska hestsins
Vorið 1997 hófst rannsókn á félagshegðun hesta á Skáney í Reykholtsdal. Áhersla var lögð á að rannsaka samskipti hryssna. Í stóðinu voru margar hryssur , bæði fylfullar og geldar, en líka tryppi og geldingar, alls 34 einstaklingar auk 9 folalda sem bættust við á tímabilinu. Með rannsókninni er vonast til að bæta nokkuð úr þeim skorti sem hefur verið á rannsóknum á hegðun íslenska hestsins. Hesturinn er í eðli sínu mikil félagsvera sem flýr undan hættu og leitar í hópinn sér til varnar. Búast má við að íslenska hestakynið sýni ýmis konar félagshegðun sem eru horfin úr öðrum kynjum vegna meiri ræktunar, minna frelsis og skorti á tækifærum að alast upp í félagskap margra annarra. Áhugavert er því að bera hegðun íslenska hestsins saman við hegðun villtra hesta sem gengið hafa sjálfala í Bandaríkjunum í langan tíma þó ekki sé um sambærileg stóð að ræða því þar fá graðhestarnir að vera frjálsir og keppa um hryssurnar. Hegðun hestanna í stóðinu var skráð með hjálp tölvu allan sólarhringinn frá 16. maí þar til 18. júní og hluta hópsins lengur eða til 22. júní. Hegðun hryssnanna var flokkuð og tímamæld og tíðni mismunandi samskipta milli nafngreindra einstaklinga stóðsins var skráð. Sérstök áhersla var lögð á að rannsaka hegðun sem flokkast undir íhlutun, þ.e.a.s. þegar einn blandar sér í samskipti annarra eða ver einhvern fyrir ágangi. Hestamenn hér á landi þekkja slíka hegðun en henni hefur ekki verið lýst meðal annarra hestakynja. Um mjög viðamikil gögn er að ræða og hefur
margt mjög áhugavert komið í ljós.
Hestarnir höfðu mikil samskipti; þeir kljáðust,
léku sér, ógnuðu hverjir öðrum, slógust,
sýndu ýmis konar kynhegðun og skiptu sér af öðrum
sem voru að leika sér eða kljást og einnig vörðu
sumir merar með ung folöld.
Reiknuð var út virðingaröð sem byggð var
á bæði ógnunaratferli og merkjum um undirgefni.
Ekki var um fullkomna línulega röð að ræða
en greinilegt hverjir voru ofarlega, um miðbikið og neðarlega.
Merarnar ríktu nær undantekningarlaust yfir geldingunum og
tryppunum. Jákvæð tengsl voru á milli stöðu
í virðingaröð og aldurs og gæti það
reyndar skýrt hvers vegna merarnar voru ofar en hinir.
Að rannsókninni standa Hrefna Sigurjónsdóttir,
Kennaraháskóla Íslands, Anna Guðrún Þórhallsdóttir,
Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri,
Ingimar Sveinsson fyrrum kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri og Machteld van Dierendonck, sjálfstætt starfandi
sérfræðingur frá Hollandi. Vísindasjóður,
Kennaraháskóli Íslands, Bændaskólinn
á Hvanneyri og hjónin á Skáney styrktu rannsóknina.
Aðalfundur Aðalfundur félagsins verður haldinn 21. apríl nk. Skriflegar tillögur að lagabreytingum skulu hafa borizt í félaginu fyrir 1. apríl. Núverandi stjórn gefur kost á sér áfram utan Kristínar Lóu Ólafsdóttur ritara. Félagsmenn eru hvattir til að gefa kost á sér! Fréttir af afmælisráðstefnu Annar fundur undirbúningsnefndar vegna afmælisráðstefnu
félagsins var haldinn 12. marz sl. Helztu fréttir eru
að ákveðið var að þeir sem hafa hug á
að flytja erindi eða vera með veggspjald á ráðstefnunni
skuli tilkynna það fyrir 15. maí nk. Þar til
gert skráningareyðublað verður sent félagsmönnum
fyrir lok marz.
Netfang félagsins Ráðgert var að birta netfang félagsins í
þessu tölublaði. Ekki tókst þó að
ganga frá því í tæka tíð. Nánari
fréttir af netvæðingu félagsins mun birtast í
næsta tölublaði.
Ritstjóraspjall Hinn indverzki yogi og guru Sai Baba (Sathyanarayana Ratnakaru Raju)
og undraverðir hæfileikar hans hafa verið nokkuð til
umfjöllunar í íslenzkum fjölmiðlum undanfarið.
Við heyrum aðdáendur hans staðhæfa að hann
geti búið til "vibhuti" (heilaga ösku/olíu), gullhringi
og jafnvel armbandsúr einfaldlega með því að
rétta hönd sína út í loftið, að
hann hafi reist fólk upp frá dauðum, svifið í
lausu lofti og læknað alvarlegustu sjúkdóma, ásamt
fleiri undrum.
Erratum *Félagsmenn hafa eflaust tekið eftir því að
gíróseðill sá sem fylgja átti með síðasta
blaði gerði það ekki. Ástæða þessa
var sú að fyrir mistök voru gíróseðlarnir
með gjalddaga 2019. Fylgir hann því hér með.
Príonsjúkdómar í mönnum
og dýrum - áhrif arfgerða príongensins.
Riða í sauðfé er einn af svokölluðum
príonsjúkdómum, en aðrir þekktir príonsjúkdómar
eru Creutzfeldt-Jakob og Kuru í mönnum, og kúariða
(BSE) í nautgripum. Þessir sjúkdómar eru ólæknandi
en einkennandi fyrir þá eru skemmdir á taugakerfi,
sem verða vegna uppsöfnunar á smitefninu í heila
sjúklinganna. Orsakavaldurinn er nú talinn vera smitandi
prótein, en ekki veira eða baktería, því
ekkert erfðaefni hefur fundist í smitefninu. Ákveðið
gen sem finnst í erfðamengi allra spendýra, svokallað
príongen, ber forskrift þess próteins sem á
umbreyttu formi er talið valda sjúkdómnum. Þegar
einstaklingur verður fyrir smiti, kemur hið umbreytta prótein
af stað keðjuverkun þannig að príonprótein
þess sem sýkist komast einnig á umbreytt og sýkjandi
form og svo koll af kolli.
Rukkun félagsgjalda Með þessu fréttabréfi fylgir gíróseðill
fyrir árgjaldi félagsins árið 1998. Á
aðalfundi 1998 var samþykkt að árgjald yrði 900
kr. Gjaldkeri biður alla að bregðast vel við og greiða
gjaldið hið fyrsta. Fyrirséð er að þetta
ár verði félaginu kostnaðarsamt. Meðal
útgjaldaliða má nefna netvæðingu félagsins,
kostnað við fyrirlestra og síðast en alls ekki sízt,
afmælisráðstefnu og fagnað í nóvember.
Ritstjóraspjall Nú á ég eftir að fá það óþvegið,
en samt sem áður …
Ólafur Patrick (opo@rhi.hi.is) * Áhugasamir geta skoðað heimasíður
World Federalist Movement
Afmælisráðstefna Líffræðifélagsins Í desember næstkomandi verður Líffræðifélag
Íslands 20 ára. Stjórn félagsins hefur
ákveðið að halda upp á afmælið með
viðeigandi hætti og boðar til afmælisráðstefnu
í haust. Ætlunin er að horfa vítt og breytt
yfir líffræðina og við vonum að allir geirar og
afkimar líffræðinnar eigi sína fulltrúa
á þessari ráðstefnu. Hún ber því
yfirskriftina “Líffræðirannsóknir á Íslandi”.
Þar sem þetta verður væntanlega viðamesta ráðstefna
félagsins, enn sem komið er, höfum við fengið Líffræðiskor
og Líffræðistofnun H.Í. til að standa að
ráðstefunni með okkur. Ráðstefnan verður
haldinn föstudaginn 19. og laugardaginn 20. nóvember að
Hótel Loftleiðum. Undirbúningsnefnd hefur verið
mönnuð og hana skipa:
Ljósmyndanámskeið Nú eru nokkur ár síðan félagið stóð
fyrir ljósmyndanámskeiði. Því fannst
stjórninni tilvalið að leita á ný til Guðmundar
Ingólfssonar hjá Ljósmyndastofunni Ímynd.
Hann tók vel í að hafa námskeið fyrir félaga
og verður það líklega í maí. Nánari
upplýsingar birtast í fréttabréfinu síðar.
Næsti fyrirlestur
Næsti fyrirlestur verður þriðjudaginn 23. marz.
Þá mun Hrefna Sigurjónsdóttir, dósent
við K.H.Í. flytja fyrirlestur sem hún nefnir:
20.árg 2.tbl. febrúar 1999 Efst Lífræn ræktun - búskapur í sátt við umhverfið Þróun landbúnaðar á 20. öldinni,
þó einkum á seinni hluta hennar, hefur auk tæknivæðingar
byggst mjög á efna- og lyfjavæðingu framleiðslunnar
í þeim tilgangi að hún sé sem mest og notendur
fái matvæli á sem lægstu verði. Í
mörgum tilvikum hafa umhverfis- og búfjárverndarsjónarmið,
og jafnvel hollustusjónarmið, verið sniðgengin og sveitabyggð
hefur stöðugt dregist saman. Lengst nær sú
þróun í svokölluðum verksmiðjubúskap.
Vankantar þessara breytinga eru að verða æ ljósari
víða um heim og er verið að leita nýrra leiða
í sátt við umhverfið. Hefur athyglin m.a. beinst
að lífrænni ræktun og þeim búskap sem
henni tengist, einkum undanfarin 20-30 ár. Sú vakning
gerði þó lítið vart við sig hér
á landi fyrr en á þessum áratug. Í
erindinu verður greint frá nokkrum undirstöðuatriðum
lífrænnar ræktunar með tilvísun í
frumkvöðla á borð við Rudolf Steiner í Austurríki,
Eve Balfour í Bretlandi og Sesselju Sigmundsdóttur á
Sólheimum í Grímsnesi. Þá verður
vikið að skilyrðum til lífræns búskapar
hérlendis, alþjóðlegum og innlendum reglum um lífræna
framleiðslu, eftirliti og vottun, faglegu og félagslegu starfi
til eflingar lífrænum búskap og markaðsmálum,
þar sem saman fara sjónarmið bænda og neytenda í
anda sjálfbærrar þróunar. Þætti
lífræns búskapar í alhliða umhverfisvernd
og vistmenningu (permaculture) verða gerð nokkur skil frá
sjónarhóli grænnar hugmyndafræði og varpað
fram hugmyndum í ljósi íslensks raunveruleika.
Því ætti efni erindisins að höfða til margra
líffræðinga og einnig til ýmissa utan raða
þeirra.
Félagsgjöld Gjaldkeri vill nota tækifærið til að minna félagsmenn
á að greiða félagsgjöldin. Allmargir eiga
enn eftir að greiða gíróseðla sem sendir voru
út í marz á síðasta ári. Það
er ekkert gamanmál að falla út af félagaskrá
vegna skulda!
Lög Líffræðifélags Íslands Aðalfundur Líffræðifélagsins verður haldinn í apríl. Lögin eru birt hér til kynningar fyrir félaga. Skriflegar lagabreytingartillögur ásamt greinargerð skulu berast félaginu fyrir 1. apríl næstkomandi. 1. Félagið heitir Líffræðifélag Íslands. Heimili þess og varnarþing eru í Reykjavík. 2. Tilgangur félagsins er að efla þekkingu á líffræði, að auðvelda samband og skoðanaskipti milli félaga sinna og að auðvelda tengsl þeirra við erlenda aðila með svipuð áhugamál. 3. Félagar geta orðið allir þeir sem áhuga hafa á líffræði og vilja stuðla að framgangi hennar. 4. Stjórn félagsins skipa formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og ritstjóri fréttabréfs. Skulu þeir kosnir á aðalfundi félagsins til eins árs í senn, hver í sínu lagi. Auk þess skulu líffræðinemar skipa einn fulltrúa í stjórn félagsins. 5. Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir apríl lok
ár hvert og skal boðaður skriflega með tveggja vikna
fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til
hans boðað. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér
segir:
6. Aðalfundur ákveður árgjald til félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis þeir sem greitt hafa árgjald. Þeir sem ekki hafa greitt árgjald til félagsins í tvö ár í röð falla sjálfkrafa út af félagaskrá og teljast þá ekki lengur félagar. 7. Verði félaginu slitið skulu eignir þess renna til Vísindasjóðs og verði þeim varið til að styrkja líffræðirannsóknir. Viltu starfa fyrir félagið? Eins og fram kemur hér að framan er stjórn félagsins
kosin á aðalfundi og til eins árs í senn.
Öllum félagsmönnum er frjálst að gefa kost
á sér til starfa fyrir félagið. Því
er rétt fyrir félaga að leiða hugann að því
hvort þeir hafa áhuga á að gefa sig fram til starfa.
Ef fleiri en einn gefa kost á sér í tiltekið embætti,
verður kosið á milli þeirra. Ef engin framboð
berast í lausar stöður áskilur stjórnin sér
rétt til að leita eftir því við einstaklinga
að þeir gefi kost á sér.
Frá formanni
Ég hef fregnað að sú ákvörðun
mín að afhenda Össuri Skarphéðinssyni, félagaskrána,
að hans beiðni, hafi valdið óánægju meðal
a.m.k. nokkura félagsmanna. Mér var það ljóst
að Össur hugðist senda líffræðingum í
Reykjavík bréf til kynningar á sér fyrir nýafstaðið
prófkjör. Mér var einnig ljóst að félagar
yrðu eflaust mishrifnir af þessari ákvörðun.
Næsti fyrirlestur
Næsti fyrirlestur félagsins verður haldinn miðvikudaginn
10. marz. Þá mun Stefanía Þorgeirsdóttir
flytja fyrirlestur sem hún nefnir:
20.árg. 1.tbl. febrúar 1999
Efst
Fuglar og fuglaljósmyndun Jóhann Óli Hilmarsson heldur mynda- og fræðslukvöld
á vegum Líffræðifélagsins fimmtudaginn 11.
febrúar næstkomandi. Þá mun Jóhann
Óli kynna galdra fuglaljósmyndunar fyrir gestum. Mun
hann stikla á stóru varðandi tækni (myndavélar,
linsur, filmur, þrífætur, felutjöld o.s.frv.),
myndbyggingu og aðra leyndardóma iðju sinnar og verður
umfjöllunin byggð á skyggnum úr safni hans.
Ritfregn
Innan fárra vikna kemur út greinasafnið
"Íslensk votlendi - verndun og nýting". Útgefandi
er Háskólaútgáfan í samvinnu við
Fuglaverndarfélag Íslands og Líffræðifélag
Íslands. Ritstjóri er Jón S.Ólafsson.
Ritið er gefið út í framhaldi af samnefndri ráðstefnu
Líffræðifélagsins og Fuglaverndarfélags
Íslands, sem haldin var dagana 22.-23. apríl 1994.
1) yfirlit um íslenzk votlendi
Stefnt er að því að áhugasamir
félagar í Fuglaverndarfélaginu og Líffræðifélaginu
geti keypt ritið á hagstæðu verði (nánar
auglýst síðar), en reynt verður að halda almennu
smásöluverði þess innan við 2000 krónur.
Ritstjóraspjall
Stjórn Líffræðifélags Íslands vill byrja árið á að óska félagsmönnum öllum gleðilegs og góðs nýs árs. Í tilefni nýhafins árs er vert að minna á að franski læknirinn, skáldið og svikahrappurinn Michel de Notredame (Nostradamus, þið vitið) ritaði á sínum tíma: L´an mil neuf cens nonante neuf sept mois
eða Árið 1999 og sjö mánuðir
Þrátt fyrir þetta hefur
stjórn félagsins ekki í hyggju að fela sig undir
rúmi í júlí og hvetur félagsmenn þess
í stað að vera öðrum fordæmi og nota mánuðinn
til hollrar og líffræðilegrar útivistar.
Ólafur Patrick (opo@rhi.hi.is)
Auglýst eftir gömlum gögnum félagsins
Það er vel þekkt vandamál hjá félögum
sem hafa ekkert fast heimilisfang að gögn þeirra eru á
eilífu flandri á milli stjórna. Gögnin
eru oft geymd í pappakössum sem enda ýmist á
skrifstofum eða heimilum stjórnarmanna. Síðastliðið
vor barst félaginu bréf frá Borgarskjalasafni Reykjavíkur.
Efni bréfsins var “Varðveisla heimilda um Reykjavík”.
Þar lýsir Borgarskjalasafn þeim áhuga sínum
að fá til varðveislu bréf, fundargerðabækur,
fréttabréf og annað útgefið efni, sjóðsbækur,
ársreikninga og önnur fróðleg skjöl.
Skjöl félaga eru heimildir um félögin og forða
þeim frá gleymsku. Til boða stendur að starfsmaður
safnsins fari yfir skjölin og verði félaginu innan handar
um hvað skuli varðveita. Borgarskjalasafn býðst
til að bera kostnað sem hlýst af frágangi afhentra
skjala í viðeigandi umbúðir, skráningu þeirra
og varðveislu í traustum geymslu safnsins. Félagið
fengi lista yfir þau gögn sem það afhendir og hefðu
félagar fullan aðgang að þeim.
Guðjón. (gudjon@hafro.is)
Næsti fyrirlestur
Næsti fyrirlestur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar. Þá mun Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur, fjalla um lífræna ræktun á Íslandi.
Fréttabréf nóvember 1998 Efst
Félaginu barst snemmsumars erindi frá Félagi raungreinakennara og Samtökum líffræðikennara, þar sem vakin var athygli á fyrirhuguðum breytingum á námsskrá fyrir framhaldsskóla. Í stuttu máli mun ætlunin að draga úr umfangi raungreinakennslu á mála- og félagsfræðibrautum framhaldsskóla. Í stað 12 eininga nú komi “6 eininga heilstætt en þverfaglegt náttúrufræðinám”, svo sem segir í bæklingi Menntamálaráðuneytisins “Betri skóli”. Tók stjórn félagsins málið fyrir á fyrsta fundi starfsársins, þar sem ákveðið var að senda menntamálaráðherra bréf þar sem gerð var grein fyrir áhyggjum stjórnar félagsins af málinu. Í bréfinu var gerð grein fyrir því áliti stjórnar að góð menntun í raungreinum væri einn af hornsteinum nútímasamfélags. Ekki væri ljóst hvernig fækkun kennslustunda samræmist yfirlýstu markmiði um að “veita nemendum almennt vísinda- og tæknilæsi”. Almennt vísindalæsi væri sízt nógu gott hér á landi, svo sem sjá mætti á vísindaumfjöllun fjölmiðla. Að auki væri yfir 80% kennaranema með stúdentspróf af ofangreindum brautum. Fyrirsjáanlegt sé að kennarar framtíðarinnar hafi síðri grunn í raungreinum en nú. Stjórn félagsins telur 6 eininga nám í raungreinum engan veginn veita nægilega undirstöðuþekkingu.
Fréttabréf október 1998
Efst
Ráðstefna Líffræðifélagssins um erfðabreyttar
lífverur var haldin þann 6. apríl 1998 í Norræna
húsinu og þótti takast mjög vel. Yfir hundrað
manns sóttu ráðstefnuna og hlýddu á þau
níu erindi sem flutt voru. Ætlunin er að gefa erindin
út því mikill skortur er á upplýsingaefni
um þessi mál. Stjórn félagsins þakkar
fyrirlesurum og fundarstjórum fyrir þeirra framlag, svo og
undirbúningsnefnd ráðstefnunnar fyrir vel unnin störf.
Skýrsla aðalfundar
Aðalfundur Líffræðifélagsins var haldinn
þann 29. apríl síðastliðinn í stofu
G-6 að Grensásvegi 12.
Ný stjórn var kosin og hana skipa: Formaður Guðjón Ingi Eggertsson (gudjon@hafro.is)
Endurskoðendur Sigrún Guðnadóttir, Jón
Sólmundsson.
Heldur fækkaði í félaginu, en alls var 51 félagi
tekinn af félagaskrá, 47 vegna skulda, þ.e. höfðu
ekki greitt árgaldið síðastliðin þrjú
ár, og 4 af öðrum ástæðum. Á aðalfundi
voru 28 nýir félagar samþykktir í félagið
og eru félagar nú rétt um 300.
Tekjur Gjöld
Efnahagsreikningur 1997 – 1998 Ógreidd árgjöld 186300,00
Nýir félagar samþykktir á aðalfundi:
Anna Heiða Ólafsdóttir, Arnar Pálsson,
Auður S. Bjarnadóttir, Árni Kristmundsson, Benedikta
St. Hafliðadóttir, Birkir Þór Bragason, Eiríkur
Benedikz, Elín Ellertsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Guðmundur Guðjónsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir,
Hlynur Óskarsson, Hólmfríður Sigþórsdóttir,
Inga Hrund Gunnarsdóttir, Ína Björk Hjálmarsdóttir,
Kristín Lóa Ólafsdóttir, Menja von Schmalensee,
Ólafur E. Sigurjónsson, Ragnar Freyr Rúnarsson,
Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir, Rannveig Magnúsdóttir,
Rúna Björk Smáradóttir, Sigrún María
Bjarnadóttir, Sigurbjörg Hauksdóttir, Snorri Páll
Davíðsson,Sólveig Sif Halldórsdóttir, Þórður
Óskarsson, Þórgunnur E. Pétursdóttir,
Ritstjóraspjall
Sakir andleysis verður eiginlegt ritstjóraspjall ekkert að
þessu sinni. Þess í stað hyggst ég
misnota aðstöðu mína í kynningarstarfsemi.
Þeir sem fylgjast með fjölmiðlum hafa veitt því
athygli að umfjöllun um hjátrú, hindurvitni og gervivísindi
hvers konar hafa aukizt mjög síðustu misseri. Samhliða
því finnst mörgum að gagnrýnin hugsun sé
almennt á undanhaldi og að áherzla á raungreinar
í skólakerfinu fari heldur minnkandi. Eftirlætisfélag
mitt (fyrir utan Líffræðifélagið að sjálfsögðu)
er tileinkað umfjöllun um þessi mál. Félagið
nefnist CSICOP (Committee for the Scientific Investigation of Claims of
the Paranormal), en í stjórn þess eru m.a. nokkrir
vel þekktir líffræðingar, s.s. Francis Crick, Richard
Dawkins og Stephen J. Gould. Færi vel á því
við upphaf starfsárs Líffræðifélagsins
að þeir sem láta sig þessi mál varða
kynni sér heimasíðu CSICOP, (http://www.ciscop.org/)
þar sem fræðast má um starfsemi þess og lesa
valdar greinar úr tímaritinu “Skeptical Inquirer” og fréttabréfinu
“Skeptical Briefs”, sem er raunar öllu veglegra en fréttabréf
Líffræðifélagsins (sé slíkt á
annað borð mögulegt).
Frá formanni
Nýtt starfsár Líffræðifélagsins
er hafið. Ný stjórn er tekinn við taumunum
og stefnir hún m.a. að því að auka félagatöluna
og kynna félagið betur.
|