ÿþ<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01 Transitional//EN"> <html> <head> <title>Líffræðifélag Íslands</title> <link rel="STYLESHEET" type="text/css" href="css/style.css"> </head> <body> <div class="box"><a href="tilkynn.htm">Á döfinni:</a> <br> <br>* Fyrirlestur um hvali <br> 31.jan 2007 <br> </div> <!--box endar> <div class="title">Fræðslufundur um hvali</div> <br>Miðvikudaginn 31. janúar n.k. mun Gísli A. Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknarstofnun, halda fræðsluerindi um hvali á vegum Líffræðifélags Íslands. <br>Fundurinn verður í Öskju, Náttúrufræðahúsi háskólans, í sofu N-132 og hefst <b>kl: 20.30</b>. Allir velkomnir! Gísli A. Víkingsson mun greina frá helstu niðurstöðum viðamikilla hvalatalninga sem fram fóru 1987-2001. Einnig mun hann kynna frumniðurtöður nokkurra þátta hrefnurannsókna sem staðið hafa síðan 2003. <br><br> <div class="title">Málþing um rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum 30. nóvember 2006</div> <br> Líffræðifélag Íslands stendur ásamt Vísindasiðanefnd fyrir málþingi um fyrirhugaðar breytingar á lögum um tæknifrjóvgun, sem varða stofnfrumurannsóknir á fósturvísum. Á málþinginu, sem haldið er í Norræna húsinu, fimmtudaginn 30. nóvember kl. 13-18, munu fræðimenn á sviði líffræði, heimspeki og læknisfræði fjalla um stofnfrumurannsóknir, sér í lagi með tilliti til fyrirliggjandi tillagna að breytingum á löggjöf á þessu sviði. <br>Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Áhugamenn um löggjöf og stjórnsýslu á sviði heilbrigðisvísinda og  rannsókna eru hvattir til að kynna sér fyrirliggjandi frumvarpsdrög á http://www.heilbrigdisraduneyti.is/frettir/nr/2230 <br><a target="new" href="stofnfr_dagskra.htm">Dagskrá málþingsins</a> <br><br> <div class="title">Fjöruferð laugardaginn 13.maí</div> <br> Líffræðifélag Íslands stendur fyrir fjöruferð við Gróttu laugardaginn 13. maí næstkomandi. Mæting verður á bílastæði við Gróttu kl. 12:00. Líffræðingarnir María Björk Steinarsdóttir og Halldór Pálmar Halldórsson munu fræða gesti og gangandi um lífið í fjörunni og aðstoða við greiningu þeirra lífvera sem þar finnast. <br>Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis en þátttakendur eru hvattir til að taka með sér fötur til að safna lífverum í. <br><br> <div class="title">Ný stjórn Líffræðifélags Íslands</div> <br> Langt er síðan heimasíða Líffræðifélags Íslands var síðast uppfærð. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hafa orðið þáttaskil í félaginu. Á vormánuðum 2005 lognaðist starfsemin að mestu út af og litlu mátti muna að félagið yrði lagt niður. Á haustmánuðum 2005 var fyrir tilstuðlan Ólafs Patricks Ólafssonar leitast við að hafa uppi á fólki sem gæti tekið stjórn félagsins að sér. Það markmið náðist og var fyrsti fundur félagsins undir nýrri stjórn haldinn nú í febrúar. <br> <br>Núverandi stjórn skipa: <br>Gunnar Þór Hallgrímsson, formaður <br>Valþór Ásgrímsson, varaformaður <br>Snorri Páll Davíðsson, gjaldkeri <br>Gróa Pétursdóttir, ritari <br>Óskar Bjarni Skarphéðinsson, fulltrúi hagsmunafélags líffræðinema (HAXI) <br>Ólafur Patrick Ólafsson, ritstjóri fréttabréfs <br><br> Inga Hrund Gunnarsdóttir mun áfram gegna hlutverki vefstjóra heimasíðu félagsins. <br> Fráfarandi stjórn skilaði góðu búi og er henni þakkað heilshugar fyrir vel unnin störf. Núverandi stjórn vinnur þessa stundina að spennandi dagskrá fyrir árið 2006. Nú þegar hefur verið ákveðið að leggja aukna áherslu á fræðsluferðir auk þess að standa fyrir nokkrum málþingum um þætti sem mikið eru í umræðunni. Dagskrá ársins verður kynnt hér á vefnum innan skamms. <br><br><br> <div class="title">Aðalfundur 2005</div> <br>Aðalfundur Líffræðifélags Íslands, sem frestað var af óviðráðanlegum ástæðum sl. vor, verður haldinn í félagsherbergi Haxa, Náttúrufræðahúsinu Öskju, Sturlugötu 7, fimmtudaginn 29. september 2005 kl.18.00. <br> Dagskrá: <br> a. Skýrsla stjórnar.<br> b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.<br> c. <A href="TillogurAdLagabreytingum2005.doc">Lagabreytingar</A>.<br> d. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.<br> e. Inntaka nýrra félaga.<br> f. Ákvörðun félagsgjalda.<br> g. Önnur mál.<br> <br> Athygli er vakin á því að allir meðlimir stjórnar hyggjast hætta störfum á komandi aðalfundi. Félagar eru eindregið hvattir til að tilnefna stjórnarmenn til starfa næsta vetur, til að félagið geti áfram starfað að útgáfu fréttabréfs, skipulagningar ráðstefnu og annarra starfa, eins og fyrirhugað er. <br>Fyrirspurnir sendist á olof.yrr.atladottir@vsn.stjr.is <br><br><br> <div class="title">Líffræðifélag Íslands</div> Líffræðifélag Íslands var stofnað í Reykjavík árið 1979 í þeim tilgangi að "auka þekkingu á líffræði, auðvelda samband og skoðanaskipti milli félaga, og tengsl þeirra við erlenda aðila með svipuð áhugamál", eins og segir í lögum félagsins. Þótt segja megi að Internetið og tölvupóstur hafi nú gert síðarnefndu markmiðin að sínum lifir félagið enn góðu lífi. Félagar eru nú um 400 talsins, langflestir líffræðimenntaðir, en félagið er þó opið öllum sem áhuga hafa á líffræði og skyldum greinum og vilja stuðla að framgangi þeirra. <a href="umfelagid.htm">Nánar...</a> </body> </html>