Líffræði - vaxandi vísindi
Afmælisráðstefna Líffræðifélags Íslands og
Líffræðistofnunar HÍ 19.-20.nóvember 2004
Dagskrá ráðstefnu, erindi
Ráðstefnuritið (pdf)
Verð: Aðgangseyrir er 3000 kr. fyrir báða dagana (ekki ódýrara seinni daginn), kaffiveitingar eru innifaldar.
Skuldlausir félagar í líffræðifélaginu borga 2000 kr. og námsmenn 500 kr.
Athugið: Stærð veggspjald skal ekki vera stærri en 90cm breidd x 124cm hæð en það er rúmlega stærð A0 blaðs.
Fréttir
Skráningar
Skil á
útdráttum
Á laugardagskvöldinu 20.nóvember, eftir ráðstefnuna, verður skemmtun fyrir líffræðinga og vini þeirra á Hótel Borg frá kl.22.00. Aðgangseyrir er 1200 kr og innifalið er fordrykkur og einhverjar veitingar. Óli Palli (Rás 2) verður plötusnúður og stór kostar 500 kr.
Í tilefni af 25 ára afmæli Líffræðifélagsins og
30 ára afmælis Líffræðistofnunar Háskólans verður boðað til ráðstefnu til
almennrar kynningar á líffræðirannsóknum á Íslandi. Ráðstefnan verður
haldin á tveim til þrem dögum, 19.-20. nóvember n.k.
Ráðstefnan
verður með svipuðu sniði og afmælisráðstefnan sem haldin var fyrir fimm árum en
hún þótti takast með miklum ágætum. Þá voru haldin 100 erindi og sýnd ríflega
130 veggspjöld. Að þessu sinni er áformað að halda nokkur yfirlitserindi (45
mín., plenary) í stórum sal en einnig er reiknað með 50-80 styttri erindum (20
mín.) þar sem líffræðingum gefst kostur á að kynna rannsóknir sínar. Þá er
einnig gert ráð fyrir að margir vilji kynna rannsóknir með veggspjöldum.
Skráning
Skráning gesta - Vinsamlegast skráið ykkur svo
að hægt sé að útbúa nafnspjöld og fá
upplýsingar um fjölda gesta vegna prentunar ráðstefnurits, veitinga o.s.frv.
Tölvuskráningu á ráðstefnu er lokið. Skráning verður á staðnum (í Öskju).
Skráning á ráðstefnu - frestur til að skila inn
óskum um að halda erindi eða sýna veggspjald er útrunninn.
Útdrættir
Frestur
til að skila inn útdrætti erindis eða veggspjalds er til 4. október.
Útdrættirnir verða birtir í ráðstefnuriti sem verður tilbúið fyrir 19. nóvember.
Útdráttum skal skila á rafrænu formi og senda til biologia@centrum.is.Útdráttur skal tiltaka höfunda, heimilisföng (stofnanir)
þeirra og tölvufang 1. höfundar svo og texta útdráttar. Texti útdráttar (þá er
ekki átt við titil, nöfn höfunda og heimilisföng) má ekki vera meira en 1300
slög, þar með talin bil milli orða.
Fyrri
ráðstefnur