|
|
fréttabréf
24. árgangur 1. tölublað
febrúar 2003.
Líffræðifélag Íslands leitar nú nýrra leiða í starfsemi sinni. Meðal þess sem til stendur er að gefa út
fréttabréf með breyttu sniði.
Fyrirhugað er að safna upplýsingum sem víðast um fræðslufundi,
fyrirlestra, námskeið og hvaðeina sem vakið getur áhuga áhugafólks um líffræði. Þetta er gert í ljósi reynslunnar; mikið framboð er á hvers kyns fyrirlestrum,
fræðslufundum og námskeiðum fyrir áhugamenn um líffræðileg málefni og því þykir
stjórn Líffræðifélagsins það vel þess virði taka saman yfirlit um framboðið
fyrir félagsmenn, þeim til hægðarauka.
Á sama tíma hefur verið ákveðið að falla frá reglulegu fyrirlestrahaldi
vegna dræmrar aðsóknar á undanförnum árum.
Eftir sem áður eru félagsmenn hvattir til að koma á framfæri áhuguverðu
efni til fyrirlestrahalds eða öðrum hugmyndum um nýjungar í starfsemi félagsins.
Af þessu tilefni langar stjórn LÍ að bjóða stofnunum, félagasamtökum og
öðrum að kynna dagskrá sína hér í fréttabréfinu. Stefnt er að því að fréttabréfið komi út a.m.k. á tveggja mánaða
fresti og verði þá stútfullt af möguleikum markhópsins til fróðleiks og
afþreyingar.
Netfang fréttabréfsins er biologia@centrum.is og netfang formanns
er oatladottir@hotmail.com.
Ábm. Ólöf Ýrr Atladóttir/Elín
Ásgeirsdóttir
Útgefandi: Líffræðifélag Íslands
Pósthólf 5019, 125 R
Á döfinni í febrúar-mars 2003
Námskeið
hjá Endurmenntun HÍ – vor 2003
Vefir
vitundarinnar: Lífeðlisfræði streitu
Farið
er í eðli og uppbyggingu streitukerfis mannslíkamans. Hvernig miðla heilasvæði
áhrifum streitu um sjálfvirka taugakerfið og með hormónum til mismunandi
marklíffæra? Greint er frá því hvernig innra ójafnvægi í tauga- og
hormónastjórnun tengist menningarsjúkdómum, s.s. offitu, háþrýstingi,
fullorðinssykursýki og þunglyndi. Einnig hvernig ýmsir þættir í heilsueflingu,
s.s. svefn, slökun, hreyfing og mataræði, geta stuðlað að betra jafnvægi og
vellíðan.
Kennari: Gunnlaugur B. Ólafsson atferlis- og lífeðlisfræðingur.
Tími: Mán. 10. feb.-31. mars 2003 kl.
20:15-22:15 (8x).
Vísindaleg
aðferðafræði og greinaskrif
Fjallað
er um þýðingu vísindalegrar aðferðar og markvissrar rannsóknarspurningar í
allri rannsóknarvinnu. Kynntar eru helstu aðferðir í faraldsfræði og
sérstaklega fjallað um skekkju (bias). Þýðing tölfræði fyrir skipulag
rannsókna. Rannsóknaráætlun. Tölvuforrit, Netið og fleiri hjálpargögn sem
styðjast má við í skipulagi og úrvinnslu í rannsóknum. Kynning á íslenskum og
alþjóðlegum reglum um rannsóknir og hvernig útvega eigi tilskilin leyfi. Kynnt
eru dæmi um klíníska rannsókn og dæmi um áhrif grunnrannsókna á lyfjaþróun.
Fjallað um skrif vísindaritgerðar og nokkur hjálpartæki kynnt. Heimaverkefni.
Umsjón: Magnús Jóhannsson prófessor við HÍ.
Tími: Mán. 17. feb.-5. maí 2003 kl. 16:15-18:00 (10x - páskafrí 14. og
21. apríl
Fyrirlestratækni
Markmiðið
er að auka færni þátttakenda í að undirbúa og halda árangursríka fyrirlestra
eða kynningar. Oft vill brenna við að fyrirlestur nái ekki tilgangi sínum vegna
þess að uppbygging er ómarkviss, glærur illa uppsettar, notkun annarra
hjálpartækja handahófskennd eða að þau eru í aðalhlutverki, uppröðun í salnum
er slæm, lýsing og/eða hljóð truflar framsetningu efnis.
Kennari: Vilmar Pétursson M.Sc. í Evrópustjórnun, stjórnendaþjálfari og
ráðgjafi hjá IMG Deloitte.
Tími: Þri. 18. feb. 2003 kl. 8:30-12:30.
Uppsetning
sýninga
Fjallað
er um uppsetningu sýninga frá ýmsum sjónarhornum. Sérstaklega er fjallað um
nýjustu strauma og stefnur í sýningagerð en einnig um sígild mál eins og
uppsetningu texta og framsetningu efnis.
Umsjón: Stjórn FÍSOS, Gerður Róbertsdóttir deildarstjóri fræðsludeildar
Árbæjarsafns og Karl Rúnar Þórsson safnvörður Byggðasafni Hafnarfjarðar.
Fyrirlesarar
verða bæði innlendir og erlendir sérfræðingar á þessu sviði. Nánar auglýst
síðar.
Tími: Fim. 20. og fös. 21. feb. 2003, kl.
9:00-17:00.
Hagnýt
líftölfræði í rannsóknum
Fjallað
er um notkun á hagnýtri tölfræði (líftölfræði) með hjálp algengra forrita fyrir
smátölvur en umfjöllun um stærðfræðilega undirstöðu er haldið í lágmarki.
Þjálfun með úrvinnslu heimaverkefna. Mælingar og mæligildi, skipulag tilrauna,
dreifing, öryggisbil, aðfallsgreining, fylgni og tilgátuprófun. T-próf, ANOVA,
kíkvaðrat, próf sem eru óháð dreifingu, stærð úrtaks, styrkur (power), útlagar
(outliers) o.fl. Val aðferða og túlkun á niðurstöðum.
Kennari: Magnús Jóhannsson prófessor við HÍ.
Tími: Fös. 21. feb.-2. maí 2003 kl. 15:15-17:00
(10x).
Áhrif
stera á mannslíkamann
Hvað eru
sterar og hvernig vinna þeir? Fjallað er um hvaða áhrif sterar hafa á
mannslíkamann og hvaða ávinningur sé af þeim í meðferð. Hverjar eru
afleiðingarnar fyrir líkama og sál? Sterar og fæðubótarefni. Hjartasjúkdómar og
hormónastarfsemi. Þrek og kyngeta. Læknisfræðileg, lagaleg og siðfræðileg
álitamál við sterameðferð.
Umsjón: Pétur Ingvi Pétursson heilsugæslulæknir á
Akureyri og Magnús Jóhannsson prófessor við HÍ.
Tími: Fös. 28. og laug. 29. mars 2003 kl. 9:00-16:00.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Erindin eru haldin í fundarsal RALA á Keldnaholti kl. 10-11.
|
|
|
Gæði á
reyktum laxi, niðurstöður úr Evrópuverkefni |
|
Helga
Gunnlaugsdóttir |
|
|
Jarðvegshitun
grasvalla |
|
Björn
Gunnlaugsson |
|
|
|
Þróunarvinna
hjá Matra fyrir kjötframleiðendur og kjötiðnað |
|
Magnús
Guðmundsson |
Náttúrufræðistofnun
Erindi verða haldin á miðvikudögum kl. 12.15 í sal
Möguleikhússins á Hlemmi, gengið inn á horni Hverfisgötu og Hlemms. Erindin eru
um 25 mínútur að lengd, auk 10 mínútna til fyrirspurna og umræðna.
|
12. febrúar |
Kristján
Jónasson, jarðfræðingur: |
Kísilríkt
berg á Íslandi |
|
26. febrúar |
Ólafur
Einarsson, fuglafræðingur: |
Náttúruverndaráætlun
- tillögur N.Í. |
|
12. mars |
Ólafur Karl
Nielsen, vistfræðingur: |
Rjúpan og
viðkoma fálkans |
|
26. mars |
Sveinn P.
Jakobsson, jarðfræðingur: |
Hryggir og
stapar á Langjökulssvæðinu |
Frá Garðyrkjuskólanum:
Asparryð og kynbætur -umhirða og grisjun trjáa í þéttbýli: Námskeið haldið í Þjóðmenningarhúsinu í
Reykjavík þriðjudaginn 11. febrúar frá kl. 09:00 til15:30. Fyrir hádegi
verður fjallað um umhirðu og grisjun trjáa í þéttbýli en eftir hádegi um
rannsóknir á asparryði(Melampsora larici-populina) og kynbætur á ösp til
þess að verjast ryði. Skráningar og
nánari upplýsingar: Endurmenntunarstjóri Garðyrkjuskólans, mhh@reykir.is eða á
heimasíðu skólans, www. reykir.is.
LANDSÝN - landgræðsla, skógrækt og skipulag
Landgræðslan, Suðurlandsskógar og Rannsóknastöð
Skógræktar ríkisins á Mógilsá standa fyrir ráðstefnu um skipulag mismunandi
landnýtingar, svo sem landgræðslu og skógræktar. Breyttar áherslur í
landnýtingu hér á landi kalla á umræður um vinnubrögð í skipulagsmálum og
viðhorf til þessara mála í samfélaginu.
Ráðstefnan verður haldin á Kirkjubæjarklaustri dagana 26.-27. febrúar
2003 og er öllum opin. Föstudaginn 28.
febrúar verður haldin námsstefna á sama stað fyrir skógarbændur og fagfólk í
skógrækt. Fyrri hluta dagsins verða fluttir fyrirlestrar um skógrækt en eftir
hádegi verður fjallað um skógrækt og ferðaþjónustu. Nánari upplýsingar fást hjá Suðurlandsskógum í síma 480 1824.
Líffræðifélag Íslands hyggst standa
fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni “Friðun”, laugardaginn 12. apríl 2003.
Fyrirhugað er að fjalla um friðun í breiðustu merkingu þess orðs, með hliðsjón
m.a. af líffræði, umhverfisfræði, jarðfræði og heimspeki. Umfjöllunarefnin
verða m.a. forsendur friðunar, friðun tegunda, landsvæða og einstakra
náttúrufyrirbrigða og hagfræði friðunar.
Skipulag ráðstefnunnar verður með svipuðum hætti og ráðstefna um
siðfræði lífvísinda nú á haustdögum.
Líffræðifélagið lýsir hér með eftir áhugasömum einstaklingum sem taka
vilja þátt í skipulagningu þessarar ráðstefnu. Jafnframt er þeim sem hafa áhuga
á að flyrtja erindi á ráðstefnunni bent á að hafa samband við formann
félagsins, Ólöfu Ýrr Atladóttur, s. 6952039/551 7100.