Tilkynningar
11.nóv 2004
Dagskrá ráðstefnu, erindi
Á laugardagskvöldinu 20.nóvember, eftir ráðstefnuna, verður skemmtun fyrir líffræðinga og vini þeirra á Hótel Borg frá kl.22.00. Aðgangseyrir er 1200 kr og innifalið er fordrykkur og einhverjar veitingar. Óli Palli (Rás 2) verður plötusnúður og stór kostar 500 kr.
Við hvetjum fólk til að drífa nú sauma-, golf - eða matarklúbbinn ykkar úr líffræðinni til að hittast, fá sér eitthvað í gogginn saman og skella sér á þessa skemmtun.
29.okt 2004
Stærð veggspjald skal ekki vera stærri en 90x124 cm en það er rúmlega stærð A0 blaðs.
22.okt 2004
Opnað hefur verið fyrir skráningu gesta á ráðstefnuna sem verður 19.-20.nóvember. Aðgangseyrir verður 3000 kr. fyrir báða dagana (ekki ódýrara seinni daginn) og eru kaffiveitingar innifaldar.
Félagsmenn í Líffræðifélagi Íslands fá 1000 kr. afslátt. Framhaldsskólakennarar fá ráðstefnugjöld endurgreidd frá Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara.
9.maí 2004
AFMÆLISRÁÐSTEFNA LÍFFRÆÐIFÉLAGS ÍSLANDS OG LÍFFRÆÐISTOFNUNAR HÁSKÓLANS 2004

Í tilefni af 25 ára afmæli Líffræðifélagsins og 30 ára afmælis Líffræðistofnunar Háskólans hafa forstöðumenn félagsins og stofnunarinnar ákveðið að boða til ráðstefnu til almennrar kynningar á líffræðirannsóknum á Íslandi. Áætlað er að halda ráðstefnuna á tveim til þrem dögum, 18.-20. nóvember n.k.
Ráðstefnan verður með svipuðu sniði og afmælisráðstefnan sem haldin var fyrir fimm árum en hún þótti takast með miklum ágætum. Þá voru haldin 100 erindi og sýnd ríflega 130 veggspjöld. Að þessu sinni er áformað að halda nokkur yfirlitserindi (45 mín., plenary) í stórum sal en einnig er reiknað með 50-80 styttri erindum (20 mín.) þar sem líffræðingum gefst kostur á að kynna rannsóknir sínar. Þá er einnig gert ráð fyrir að margir vilji kynna rannsóknir með veggspjöldum. Við viljum hvetja alla líffræðinga að draga fram það nýstárlegasta sem þeir hafa í handraðanum og kynna á ráðstefnunni.

Nánari upplýsingar fást hjá ráðstefnustjórn í netföngunum sigsnor@hi.is eða biologia@centrum.is

Ráðstefnugjöld hafa ekki verið endanlega ákveðin en verður stillt í hóf.

Aðalfundur föstudaginn 30.apríl
Stjórn Líffræðifélags Íslands minnir á aðalfund félagsins, sem haldinn verður á föstudag, 30. apríl. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Vísindasiðanefndar að Laugavegi 103, 5.hæð og hefst kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, eins og áður hefur verið auglýst. Stjórn LÍ hvetur félagsmenn til að mæta og taka þátt í umræðum um starfsemi félagsins.

Sett inn 9.feb 2004

Miðvikudaginn 11 febrúar kl. 16:00 í stofu 132 í Náttúrufræðahúsi HÍ, mun María Ingimarsdóttir gangast undir meistarapróf við líffræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands og halda fyrirlestur um verkefni sitt:

ÁHRIF HITAFALLANDA Á SMÁDÝRALÍF HÁHITASVÆÐA Á REYKJANESI OG VIÐ ÖLKELDUHÁLS

Jarðhitasvæði mynda afmörkuð búsvæði sem einkennast meðal annars af meiri hita og raka en finnst þar í kring. Markmið þessarar rannsóknar var að finna út hvað einkennir samfélag þeirra smádýra sem eru á ferli á heitri jörðu háhitasvæða og hvernig það breytist með hitafallanda. Smádýr voru veidd í fallgildrur sem staðsettar voru á hitafallanda tveggja háhitasvæða, á Reykjanesi og við Ölkelduháls. Til að athuga hvort smádýr nýti sér hitann til aukinnar virkni yfir veturinn voru gildrurnar á Reykjanesi látnar ganga í eitt ár. Jarðvegshiti var mældur við gildrurnar og hula mismunandi gróðurflokka metin. Tegundasamsetning smádýra er mjög ólík á rannsóknasvæðunum tveimur en þau eiga samt margt sameiginlegt. Tegundasamsetning breyttist mjög mikið eftir hitafallanda, það mikið að aðeins fáar tegundir fundust bæði á heitri (>50°C á 10 cm dýpi) og kaldri (<20°C á 10 cm dýpi) jörðu og mun færri tegundir fundust á heitri jörðu en þeim sem kaldara var. Í mesta hitanum breyttist virkni smádýra tiltölulega lítið yfir árið en tegundasamsetning þeirra smádýra sem voru virk á hverjum tíma breyttist hins vegar talsvert þar sem kaldara var. Þegar virkni einstakra tegunda var skoðuð eftir hitafallanda kom í ljós að jarðvegshiti hefur áhrif á virkni smádýra en hann þarf þó að vera nokkuð mikill til að hafa áhrif til aukinnar virkni.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi er Jón S. Ólafsson, Dósent við líffræðiskor Háskóla Íslands

Meðleiðbeinandi er Erling Ólafsson, Skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands

Prófdómari er Guðmundur Halldórsson, Skordýrafræðingur hjá Skógrækt ríkisins

Fyrirlesturinn er opinn öllum meðan húsrúm leyfir

Tilkynningar 2002
Tilkynningar 2001
Tilkynningar 2000