11.09.2002
Árleg ráðstefna Líffræðifélags
Íslands í samvinnu við Siðfræðistofnun Háskólans verður haldin
laugardaginn 14. september í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Aðgangseyrir er 1000 kr og 500 kr fyrir skuldlausa L.Í. félaga, velunnara
Siðfræðistofnunar og nema.
SIÐFRÆÐI OG LÍFVÍSINDI
Vits er þörf
10:00 - 10:15 Setning - Ólöf Ýrr Atladóttir,
formaður Líffræðifélags Íslands
10:15 - 10:45 Vilhjálmur Árnason - Siðfræðin
og lífvísindin. Inngangserindi
10:45 - 11:15 Einar Mäntylä - Eru'ða
breytt matvæli ?
11:15 - 11:30 Kaffihlé
11:30 - 12:00 Þorvarður Árnason - Um (mögulegar)
samræður líffræðinga og siðfræðinga
12:00 - 12:30 Ágústa Guðmundsdóttir
12:30 - 13:00 Eggert Gunnarsson - Siðfræði
dýratilrauna
13:00 - 14:00 Hádegishlé
14:00 - 14:30 Kári Stefánsson - Mannerfðafræði
- Til hvers? Inngangserindi
14:30 - 15:00 Bryndís Valsdóttir - Siðferðilegt
sjónarhorn á einræktun fósturvísa
15:00 - 15:30 Kristbjörn Orri Guðmundsson
-
Stofnfrumurannsóknir
15:30 - 15:45 Kaffihlé
15:45 - 16:15 Stefán Hjörleifsson -
Erfðavísindi og samfélag
16:15 - 16:45 Pallborðsumræður
Ólafur Andrésson stórnar pallborði
17:00 - 18:00 Móttaka í Skólabæ
Ráðstefnurit (Word skjal)
18.04.2002
15.04.2002
AÐALFUNDUR LÍFFRÆÐIFÉLAGS ÍSLANDS 2002.
Aðalfundur Líffræðifélags Íslands 2002 verður haldinn þriðjudaginn 30.
apríl. Fundurinn verður að venju í stofu G-6 að Grensásvegi 12, en athygli
félagsmanna er vakin á þeirri nýbreytni að í ár hefst fundurinn kl. 17:00.
Mæting á Aðalfund hefur verið með eindæmum léleg undanfarin ár og er það
von stjórnar að þessi nýja tímasetning henti félagsmönnum e.t.v. betur en
sú sígilda. Þeir, sem áhuga hafa á að mæta, ættu því auðveldlega að geta
skotizt á Aðalfundinn á leið heim úr vinnu.
Kveðið er á um dagskrá Aðalfundar í 5. grein laga félagsins og skal
hún vera sem hér segir:
a. Skýrsla stjórnar.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
c. Lagabreytingar.
d. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.
e. Inntaka nýrra félaga.
f. Ákvörðun félagsgjalda.
g. Önnur mál.
Engar lagabreytingar liggja fyrir Aðalfundi að þessu sinni, en sérstök
athygli félagsmanna er vakin á liðnum “önnur mál” að þessu sinni. Til
stendur að ræða erindið “Hvert stefnir félagið?” Fyrirlestrar hafa verið
meginuppistaðan í starfsemi félagsins frá upphafi, en undanfarin ár hefur
framboð á fyrirlestrum um líffræðileg málefni stóraukizt. Samfara því
hefur aðsókn að fyrirlestrum Líffræðifélagsins dregizt verulega saman og er
því brýnt að félagið finni auk þess aðra farvegi fyrir starfsemi sína.
Nokkrar hugmyndir hafa komið fram sem kynna á á Aðalfundinum og því eru
félagsmenn sem áhuga hafa á framgangi félagsins (sem vonandi eru sem
flestir) eindregið hvattir til að mæta og ræða þessi mál.