Íslenski fjárhundurinn
er mikill dýrgripur og hluti af menningararfi íslensku þjóðarinnar.
Talið er að íslenski fjárhundurinn sé einn af elstu hundategundum
jarðarinnar. Hann hefur sterka skapgerð og er forvitinn, fjörugur,
glaðvær, barngóður, gáfaður og
duglegur vinnuhundur. Hann er tryggur vinur og óþreytandi félagi í leik og
starfi, hann er því tilvalinn fjölskylduhundur og vinnufélagi, bæði
elskulegur og vitur. Hann er að eðlisfari mjög sjálfstæður og sumir segja
að hans helsti galli sé, að hann haldi að hann sé maður.
Íslenski fjárhundurinn
er vinnuhundur sem þarf að hafa eitthvað fyrir stafni. Best er því
að gefa honum eins mikinn tíma og hægt er meðan hann er ungur og
nota tímann til að kenna honum og kynnast honum. Hann er um margt
merkilegur og hann hefur alla eiginleika til að verða fjörugur og
skemmtilegur félagi, hann er félagslyndur og mannglöggur. Ef hann
treystir einhverjum og þykir vænt um hann, mun hann gegna af vilja og
sannri gleði. Íslenski fjárhundurinn er vel greindur og það er auðvelt
að kenna honum. Hann er góður smalahundur hvort sem um er að ræða
að smala fé, hestum eða nautgripum.
Íslenski fjárhundurinn
hefur sérlega góðan feld sem þarfnast lítillar umhirðu og hentar
vel íslensku veðurfari. Sagt er að góður feldur hans blotni aldrei
inn að skinni þannig að í snjó og vætu nægi hundinum að hrista
sig og sé hann þá þurr. Hárafarið er með tvennu móti, ýmist snöggt
eða loðið.
Aðal útlitseinkenni
hans eru spitslagað höfuð, upprétt eyru og hringað skott, ásamt
sporum á afturfótum, svokölluðum "fjársporum" (úlfaklóm)
sem gefa fætinum stærra spor og nýtist hundinum vel í snjó og mýrlendi.
Íslenski fjárhundurinn
þroskast frekar hægt og er ekki fullvaxinn fyrr en um 18 mánaða
aldur. Fullur útlitsþroski, svo sem vöðvafylling og jafnvægi í
byggingu, getur tekið allt að 2-3 ár.
Æskileg hæð rakka er
46 cm og tíka 42 cm.
Litabrigði eru með ýmsu
móti, en þó skal einn aðallitur ávalt vera ríkjandi.