Um mig
Hundarnir mínir
Hvolpar
Áformuð got
Got
Íslenski fjárhundurinn
Í sveitinni ...
Myndir
Krækjur
Uppfærslur

 

Forsíða

fæðingardagur 22.09.1997

Reykjadals Móri IS04742/97

HD FRI  -  Augu FRI  

 

Reykjadals Móri er rauðkolóttur með mjóa blesu (sem reyndar er horfin). 
Hann hefur verið sýndur og fengið 1.einkunn.  Móri er kröftugur karlhundur með góða beinabyggingu, góðan feld, góða skottstöðu, léttar og kröftugar hreyfingar, hann er einspora, 46 cm á hæð.

Móri er góður félagi og vinnuhundur með næmt þefskyn sem hefur oft sannað sig.
Einn veturinn í sveitinni skall á með stórhríð áður en fé var komið í hús. Nokkrar kindur grófust í fönn svo ég fór með Móra út að leita, það tók hann ekki langan tíma að finna féð þar sem það var grafið undir snjó.  Svo var það eitt sumarið að við vorum að svipast um eftir fénu.  Móri hljóp á undan og stoppaði skyndilega við litla holu í túninu og neitaði að fara þaðan þó ég kallaði á hann.  Hann stakk trýninu af og til í holuna og þefaði og gekk þarna fram og tilbaka.  Ekkert hljóð heyrðist úr holunni og ég sá ekkert en þar sem ég þekkti minn hund og treysti, fór ég heim og sótti skóflu og vasaljós.  Það tók langan tíma og stækka holuna og kom ég þá niður á gjótu þar sem lítið skítugt og hrætt lamb lá.

Reykjadals Móri
IS04742/97
HD FRI B
Augu: FRI
Sunnusteins- Muggur
IS03414/95
HD FRI*
Íslands-Garða- Askur
IS02195/91
Seifur Garðagull
IS00664/83
Skovridergaardens- Kraka
IS01683/89
Flögu- Sunna
IS01994/90
HD FRI*
Sámur frá Kolsholti
IS01685/89
Vala
IS00872/84
Reykjadals- Snögg
IS03130/94
HD FRI*
Spori Sámur frá Ólafsvöllum
IS02450/92
Stássi frá Götu
IS01217/87
Katla
IS01129/86
ISCH Íslands-Garða- Kara
IS02200/91
HD FRI*
Seifur Garðagull
IS00664/83
Skovridergaardens- Kraka
IS01683/89

 

Smellið á myndina til að sjá hana stærri! Smellið á myndina til að sjá hana stærri!
Smellið á myndina til að sjá hana stærri! Smellið á myndina til að sjá hana stærri!
Smellið á myndina til að sjá hana stærri! Smellið á myndina til að sjá hana stærri!

© Brynhildur Inga Einarsdóttir. Afritun óheimil án leyfis. Umsjón vefs.