Um mig
Hundarnir mínir
Hvolpar
Áformuð got
Got
Íslenski fjárhundurinn
Í sveitinni ...
Myndir
Krækjur
Uppfærslur

 

Forsíða

fæðingardagur 13.06.1994

Reykjadals Snögg

HD FRI - Augu FRI

Reykjadals Snögg

Reykjadals Snögg ISO3130/94 var gulkolótt með snöggan feld.  Hún var kröftug og vel byggð tík.  Hún var sýnd á nokkrum sýningum og fékk alltaf 1.einkunn, hún var með heilbrigðar mjaðmir HD-FRI og heilbrigð augu.
Snögg átti 11 afkvæmi úr þremur gotum.  Fyrsta gotið átti hún með Sunnusteins Mugg ISO3414/95.  Úr því goti komu 4 rakkar, Krapi, Thor, Brokkur og Móri sem ég hélt eftir.
Annað gotið átti hún með Sindra Snæúlfi ISO4663/97.  Úr því goti komu 3 hvolpar, Smali, Staka Sól og Saga sem ég hélt eftir.
Þriðja gotið átti hún einnig með Sindra Snæúlfi ISO4663/97.  Úr því goti komu 4 hvolpar, Fóa Feikirófa, Sámur, Tinni og Korpur sem ég hélt eftir.

Snögg var kröftug og dugleg tík.  Líkt og móðir hennar var hún dugleg í leit að hreiðrum vissrar fuglategundar, en hún var eins og nafnið bendir til ákaflega snögg og mátti ekki vera að því að bíða eftir því að ég kæmi til þess að taka eggið úr hreiðrinu heldur færði mér eggin hvert á fætur öðru úr mörgum hreiðrum.  Aldrei braut hún eggin heldur færði mér þau alveg heil.

Snögg var góð móðir og fædd til þess að ala af sér afkvæmi.  Reyndar var hún góð við allt ungviði hvort sem það voru börn, kálfar eða lömb.   

Reykjadals Snögg var fædd 13 júní 1994 og dó 21 október 2006.

Reykjadals Snögg
HD FRI*
Augu: FRI
Spori Sámur frá Ólafsvöllum
IS02450/92
Stássi frá Götu
IS01217/87
Seifur Garðagull
IS00664/83
Týra
IS00065/81
Katla
IS01129/86
Prins frá Ólafsvöllum
IS00013/80
Píla
IS00028/81
ISCH Íslands-Garða- Kara
IS02200/91
HD FRI*
Seifur Garðagull
IS00664/83
ISCH Íslands-Garða- Tinni
IS00015/76
Trýna
IS00031/78
Skovridergaardens- Kraka
IS01683/89
Serkur
IS00014/82 HD FRI
Íslands-Garða- Laila
IS00969/85 HD FRI

 

 

Smellið á myndina til að sjá hana stærri! Smellið á myndina til að sjá hana stærri!
Smellið á myndina til að sjá hana stærri! Smellið á myndina til að sjá hana stærri!

Smellið á myndina til að sjá hana stærri!

 

© Brynhildur Inga Einarsdóttir. Afritun óheimil án leyfis. Umsjón vefs.