Birtist í Fréttablaðinu 17.
febrúar 2005
Það eru að verða tvö ár síðan Bandaríkjamenn og Bretar réðust inn í Írak í trássi við alþjóðalög og heimildir Sameinuðu þjóðanna með opinberum stuðningi þrjátíu af nærri tvöhundruð ríkjum heims. Víðast hvar sýndu skoðanakannanir að mikill meirihluti fólks væri á móti þessum aðgerðum og aldrei í sögunni hafa önnur eins mótmæli verið, ekki einu sinni þegar þau risu hæst á tímum Víetnamstríðsins.
Og þessi tvö ár hafa verið skelfileg ár í Írak, þar sem íbúarnir eru þó ýmsu vanir. Tugir þúsunda óbreyttra borgara í Írak hafa látið lífið, jafnvel yfir 100 þúsund manns og á annað þúsund lífum ungra Bandaríkjamanna hefur verið fórnað. Enn fleiri eru særðir, margir örkumla fyrir lífstíð. „Við urðum að koma þessum manni frá,“ segja Halldóraranir og Davíðarnir þegar öll önnur rök eru fallin. Við vissum það öll, þessar milljónir, tugir milljóna óbreyttra borgara sem fórum út á strætin í janúar og febrúar 2003 að það var engin gereyðingarvopn að finna í Írak, og okkur var aldrei sagt að aðalatriðið væri að koma Saddam Hussein frá völdum enda hefðum við ekki heldur samþykkt þau rök. Því að við vissum það öll að það er mikla olíu að finna í Írak. Og virt samtök og stofnanir, þ.á.m. Sameinuðu þjóðirnar spáðu miklu mannfalli og hörmungum og að þetta stríð mundi standa lengi. Þessar spár hafa meira og minna gengið eftir.
Allt þetta áttu Halldórarnir og Davíðarnir, sem auðsveipir fylgdu Bush og Blair, að vita. Þess vegna eru þeir ábyrgir, það þýðir ekkert að setja upp sauðslegan sakleysissvip. Þeir bera sína ábyrgð á dauða og limlestingum tuga ef ekki hundraða þúsunda óbreyttra borgara í Írak allt frá börnum upp í gamalmenni. Sú ábyrgð verður ekki frá þeim tekin.
Hreyfingin sem varð til gegn stríðinu er í fullu fjöri. Helgina 19. til 20. mars verður efnt til mótmæla gegn Íraksstríðinu um allan heim (sjá www.march19th.org) en þá verða tvö ár liðin frá því það hófst. Væntanlega verður líka mótmælt stríðinu gegn Palestínu og stríði og hernaðarhyggju almennt. Og þá er mikilvægt að allir sem vettlingi geta valdið komi út á göturnar og láti í sér heyra. Í Reykjavík verða væntanlega einhverjar aðgerðir laugardaginn 19. mars og hugsanlega víðar á landinu. Skráið þennan dag hjá ykkur – 19. mars eftir hádegi: mótmælaaðgerðir.