Birtist á Friður.is 21.3.2005
Að minnsta kosti 500 manns tóku þátt í mótmælafundi gegn Íraksstríðinu á Ingólfstorgi í Reykjavík 19. mars. Ávörp fluttu Sveinn Aðalsteinsson og Ugla Egilsdóttir. Dreift var spjöldum með nöfnum 730 fórnarlamba stríðsins, eitt fyrir hvern dag frá innrásardeginum 20. mars 2003. Fundargestir nældu nafnspjöldunum síðan á borða sem var borinn að Stjórnarráðinu og stillt upp fyrir framan það. Þar hafði hópur ungmenni frumkvæði að táknrænum gjörningi þar sem þau lögðust á götuna fyrir framan borðann með nafnspjöldunum.
Á Akureyri héldu stríðssandstæðingar fund í Kaffi Karólína og mættu þar milli 50 og 60 manns. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður og Steinunn Rögnvaldsdóttir nemi fluttu ávörp, ljóð voru lesin og sungnir söngvar.
Þessir fundir voru liður í aðgerðum sem voru nú um helgina á meira en þúsund stöðum víðsvegar um heim til að mótmæla stríðinu og hernáminu í Írak og krefjast friðar.
Mótmælaaðgerðir gegn Íraksstríðinu hafa verið í meira en 750 borgum og bæjum í Bandaríkjunum, jafnvel yfir 1000. Þetta eru a.m.k. tvöfalt fleiri staðir en fyrir ári síðan.
Í Evrópu voru aðgerðir í fjölmörgum borgum og bæjum. Í Svíþjóð voru aðgerðir á meira en 20 stöðum, sömuleiðis í Þýskalandi, á allmörgum stöðum í Noregi og Danmörku og fjölmörgum öðrum stöðum í Evrópu. Á vefsíðunni www.march19th.org eru skráðir 62 staðir í Evrópu en trúlega eru þeir miklu fleiri.
Í Kanada voru aðgerðir í tugum borga og bæja og einnig víða í Ástralíu, á Nýja Sjálandi, í Asíu og Rómönsku Ameríku en á færri stöðum í Afríku. Vitað er um hátt í 900 staði þar sem einhverjar aðgerðir hafa verið þessa helgi en trúlega eru þeir enn fleiri, sennilega vel á annað þúsund.
Svo virðist vera sem þessir fundir og mótmælagöngur hafi alla jafna ekki verið jafnfjölmennar og t.d. 18. janúar og 15. febrúar 2003. Hins vegar virðast aðgerðirnar nú hafa verið á fleiri stöðum sem sýnir að hreyfingin gegn stríðinu er lifandi og líklega virk á fleiri stöðum en fyrr þótt hún nái ekki jafnmörgum í svona aðgerðir og í aðdraganda stríðsins þegar umræðan var meiri og ákafari. Sumsstaðar voru þó mjög margir þátttakendur. Í Istanbul voru um 15-20 þúsund manns en þar tóku verkalýðsfélög þátt í aðgerðunum. 20-25 þúsund manns voru í Los Angeles og San Francisco. 15 þúsund manns voru í göngunni í New York þegar hún lagði af stað. Lögreglan í London segir að 45 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngu þar, en aðrir nefna hærri tölur, jafnvel 200 þúsund að sögn Socialist Worker.
Í Brussel voru aðgerðir með svolítið öðru sniði. Þar er að hefjast leiðtogafundur Evrópusambandsins (ETUC) og af því tilefni boðaði Evrópusamband verkalýðsfélaga til fjöldaaðgerða til varnar félagslegum réttindum í Evrópu og gegn hinni svokölluðu Bolkestein-tilskipun. ETUC bauð öðrum samtökum að vera með en ýmis friðar- og baráttusamtök skipulögðu mótmælaaðgerðir gegn Íraksstríðinu og voru þær tengdar aðgerðum verkalýðshreyfingarinnar. Talið er að 80-100 þúsund manns hafi tekið þátt í þeim
Sjá nánar:
http://indymedia.us/en/topic/m192005/archive.shtml
http://www.socialistworker.co.uk/article.php4?article_id=6087
http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/middle_east/4364305.stm
CALL TO ACTION of the ANTI-WAR
ASSEMBLY, World Social Forum 2005, Porto Alegre, Brazil
Call of the Assembly
of Social Movements made at the European Social Forum 2004, London
Sjá myndir frá Reykjavík
http://flickr.com/photos/einarolafsson
http://flickr.com/photos/gudbjorg