Einar Ólafsson forsíða greinar
Birtist á fridur.is
1. júlí 2003
uppfært 30. júlí
Þau samtök og
hreyfingar sem beittu sér í vetur gegn innrásinni í Írak hafa nú í vor haldið
fundi og ráðstefnur um framhald baráttunnar. Samstaða hefur skapast um ýmis
tilefni til aðgerða á næstu mánuðum. Hér skal tíundað það helsta:
30. ágúst: Annað friðarþing alþýðunnar í London.
http://www.stopwar.org.uk/index.asp
27. september: Alþjóðlegur baráttudagur gegn stríði og
heimsvaldastefnu og fyrir samstöðu með þjóðum Palestínu, Íraks og öðrum þeim
sem búa við hernám, kúgun og hótanir heimsvaldasinna. Á ráðstefnu í Berlín 25.
apríl kom til tals að efna til alþjóðlegs baráttudags í haust og var
dagsetningin 27. september þá nefnd. Ástæðan fyrir þessari dagsetningu er að
þennan dag árið 2000 hófst seinni Intifadan sem svo hefur verið kölluð,
þ.e. uppreisn Palestínumanna, en þá er einnig ár liðið frá fjölmennum
mótmælagöngum í Róm, Kaíró og víðar. Einnig voru ræddir dagarnir 9. til13.
september meðan ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar verður í Cancún í
Mexíkó, en á ráðstefnum friðarhreyfingarinnar í vor var almennt lögð áhersla á
tengsl vaxandi hernaðarhyggju og hinnar kapítalísku hnattvæðingar. Það varð úr
að stefnt yrði að alþjóðlegum baráttudegi 27. september. Bandarísku samtökin International
A.N.S.W.E.R. tóku þessa dagsetningu upp á ráðstefnu sinni í 17.-18. maí og
ráðstefnur friðarhreyfingarinnar í Japan 24.-25 maí og í Genf 31. maí tóku
undir þessa hugmynd. Nú þegar hafa m.a. danska hreyfingin Nej til Krig
og breska hreyfingin Stop the War Coalition hafið undirbúning. Sjá
http://www.internationalanswer.org/news/update/052103m17rpt.html
http://www.stopwar.org.uk/article.asp?id=260503
Í þessu samhengi
er vert að minna á alþjóðlegu mannréttindagönguna sem áætluð er dagana 4.-25.
september frá Tel Aviv til Jerúsalem. Sjá
Á ráðstefnunni í
Genf var litið til september sem upphaf nýrrar aðgerðalotu friðarhreyfingarinnar.
Gert er ráð fyrir að hreyfingin verði sýnileg við ýmisleg tilefni svo sem:
13. september: Aðgerðir vegna ráðherrafundar
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Cancún í Mexíkó. Í yfirlýsingu frá
ráðstefnu sem var haldin í Mexíkóborg í maí, Hemispheric and
Global Assembly against the FTAA and the WTO, og birt hefur
verið á ýmsum vefsíðum (svo sem www.asc-hsa.org,
www.corpwatchindia.org og http://www.focusweb.org) er gert ráð fyrir
alþýðuráðstefnu 9.-14. september, alþjóðlegum baráttudegi gegn WTO 9. september og miklum
mótmælaaðgerðum gegn hnattvæðingu og stríði 13. september. Friðarhreyfingin virðist líta til 13.
september sem alþjóðlegs baráttudags enda er sá dagur laugardagur og áætlað að
aðgerðir þann dag beinist að hluta gegn stríði. Sjá
http://chiapas.mediosindependientes.org/display.php3?article_id=105234
http://espora.org/cancun03/index.pl?InformaciOn
http://mexico.indymedia.org/front.php3?article_id=5673
http://www.internationalanswer.org/news/update/071603calend.html#sep13rep
25.-26.
október: Önnur
Kaíró-ráðstefnan gegn árásarstefnu Bandaríkjanna
http://www.stopwar.org.uk/article.asp?id=250603
12.-15.
nóvember: Önnur ráðstefna
evrópskra alþýðuhreyfinga (European Social Forum – ESF) í París. Hér er ekki endilega
verið að tala um alþjóðlegar mótmælaaðgerðir heldur er ætlunin að hafa
ráðstefnu friðarhreyfinganna sem einn dagskrárlið þar. Vert er að minnast þess
að það var á fyrstu ráðstefnu ESF í Flórens 9. nóvember 2002 sem hundruð
þúsunda tóku þátt í mótmælagöngu gegn stríðsáformum. Sjá
http://www.fse-esf.org/rubrique.php3?id_rubrique=1
16.-21. janúar
2004: Fjórða
heimsráðstefna alþýðuhreyfinganna (World Social Forum) á Indlandi. Eins
og í París er gert ráð fyrir að fundur friðarhreyfinganna verði meðal annarra
funda. Samskonar fundir verða væntanlega á öðrum svæðisbundnum ráðstefnum
alþýðuhreyfinganna. Sjá
http://www.forumsocialmundial.org.br/home.asp
Alþjóðlegur
dagur gegn bandarískum herstöðvum: Á Jakarta-ráðstefnunni var lagt til að einhvern tíma á fyrri hluta ársins
2004 verði alþjóðlegur baráttudagur gegn bandarískum herstöðvum. Lagt var til
að Friðarbandalag Asíu (Asian Peace Alliance) hafi frumkvæði að
undirbúningi.
Heimurinn
hafnar Bush: Á
Jakarta-ráðstefnunni var lagt til að hafin verði herferð undir kjörorðinu Heimurinn
hafnar Bush sem muni ná hámarki í september 2004 þegar
Repúblikanaflokkurinn heldur landsfund sinn í New York.
Aðgerðir í
Bandaríkjunum
4. júlí: Bandaríska hreyfingin er einnig með áform
um ýmsar sérstakar aðgerðir heima fyrir. Það sem hæst ber eru fyrirhugaðar
aðgerðir í Fíladelfíu á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí. Þá stendur til
að opna einhverskonar stofnun, The National Constitution Center, og
forsetinn verður á staðnum. Hátt á annað hundrað samtaka í Bandaríkjunum standa
að þessum aðgerðum. Jafnframt hvatti ráðstefnan í Jakarta í maí til þess að
bandarískar vörur verði sniðgegnar þennan dag. Sjá
26.-27. júlí: Komum í veg fyrir annað Kóreu-stríð! 27.
júlí verða 50 ár liðin frá því að gert var vopnahlé í Kóreu-stríðinu. Þetta
vopnahlé stendur enn og stríði Bandaríkjanna við N-Kóreu hefur aldrei lokið
formlega. Gert er ráð fyrir alþjóðlegum fundi í Washington 26.-27. júlí og
mótmælaaðgerðum við Hvíta húsið 27. júlí. Sjá
http://www.nodutdol.com/mission/index.php
25. október: Alþjóðleg ganga til Pentagon undir
kjörorðinu Heimurinn sameinast gegn bandarískri hernaðarhyggju. Þessi
dagur er m.a. valinn vegna þess að þá eru tvö ár liðin síðan föðurlandslögin
svokölluðu voru sett í kjölfar hryðjuverkanna 11. september. Sjá
http://www.internationalanswer.org/campaigns/o25/index.html
19.-21.
nóvember: Mótmælaaðgerðir
í Miami í tilefni af ráðherrafundi FTAA (Free Trade Area of the Americas).
Aðgerðir þessa daga eru bæði á áætlun International A.N.S.W.E.R. og United
for Peace and Justice.
22.-23.
nóvember: Árlegar
mótmælaaðgerðir gegn School of Americas, herskólanum í Ft. Benning, þar
sem helstu stríðsglæpamenn Rómönsku Ameríku hafa m.a. verið þjálfaðir.
Sumarið 2004: Þá munu stóru flokkarnir tveir halda
landsfundi sína, Demókrataflokkurinn í Boston í júlí og Repúblikanaflokkurinn í
New York í september. Nú þegar eru helstu friðahreyfingar Bandaríkjanna farnar
að huga að aðgerðum í sambandi við þessa fundi.
© Einar Ólafsson