Einar Ólafsson forsíða greinar
9. okt. 2001
Hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september vöktu
samhug um allan heim sem líklega er einstæður í sögunni. Hins vegar ríkir engan
veginn sami samhugur um viðbrögð Bandaríkjastjórnar.
Í skoðanakönnun sem Gallup http://www.gallup-international.com/terrorismpoll_figures.htm
gerði samtímis í 35 löndum um miðjan september taldi yfirgnæfandi meirihluti að
ekki ætti að gera innrás í það land eða þau lönd sem hýstu hryðjuverkamennina
heldur freista þess að draga þá fyrir dóm þegar sannanir væru fyrir hendi. Í
Vestur-Evrópu voru það víðast hvar milli 10 og 20% sem vildu innrás en 70 til
85% andvígir. Í Vestur-Evrópu tóku innan við 10% ekki afstöðu en heldur fleiri
í Austur-Evrópu. Í Rómönsku-Ameríku var enn meiri andstaða við hernaðarárásir.
Af þessum 35 löndum var aðeins í þremur meirihluti með árásum, í Bandaríkjunum
54% en 30 á móti og óvenju margir óákveðnir eða 16%, í Ísrael voru 77% með
árásum en 19 á móti og í Indlandi voru 72% með en 28 á móti.Niðurstaðan var
hins vegar engan veginn jafn afgerandi þegar spurt var um hvort viðkomandi væri
samþykkur því að hans land tæki þátt hernðaraðgerðum ef til þeirra kæmi. Í
Vestur-Evrópu var afgerandi meirihluti meðmæltur því í 10 löndum en jafn
afgerandi meiri hluti andvígur í þremur löndum. Utan Vestur-Evrópu var
meirihluti hlynntur því aðeins í Tékklandi, Indlandi, Ísrael og Kóreu. Ísland
var ekki með í þessari könnun.
Um leið og Bush fór að tala um hernaðaraðgerðir
hófust mótmælaaðgeðir. Þar til loftárásirnar hófust á Afganistan 7. október
hefur tekist að afla upplýsinga um a.m.k. 275 fundi víðs vegar um heim til að
mótmæla hernaðaraðgerðum og ofbeldi, hinn fyrsti í Toronto strax 11. sept.
Þessar upplýsingar voru fengnar með því að senda
út á netinu beiðni um upplýsingar um fundi og niðurstöðunni hefur síðan verið
dreift á póstlistum hinnar alþjóðlegu andófshreyfingar. Eflaust hafa ekki
skilað sér upplýsingar um alla fundi sem haldnir hafa verið. En þessir fundir
sem upplýsingar eru um hafa verið haldnir í 60 löndum. Upplýsingar eru um
fjölda þátttakenda í 184 af þessum fundum og samanlagt hafa 344 þúsund manns
tekið þátt í þeim.
Stærstu fundirnir voru á eftirtöldum stöðum:
20. sept. 5000 manns í Berkeley í Bandaríkjunum,
22. sept. 5000 í Flórens, 24. september 1800 manns í Tókíó og aftur 4000 manns
28. sept.
27. sept. var 30 þúsund manna fundur í Napólí, en
sá fundur hafði verið skipulagður með löngum fyrirvara vegna fundar
varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem stóð til að yrði í Napólí en var fluttur í
skyndi til Brussel. Annar fundur sem skipulagður hafði verið fyrirfram var í
Ottawa 6. október vegna þingmannafundar NATO.
29. sept. var alþjóðlegur mótmæladagur og þá voru
a.m.k. 90 fundir víðs vegar um heim. Í San Francisco var 10 þúsund manna fundur
en 16. september höfðu 4000 manns safnast saman þar. Í London voru 3000 manns
en einnig var 3000 manna fundur þar 21. sept. og 4000 manna fundur 22. sept. og
þar hafa að auki verið a.m.k. fjórir smærri fundir. 3000 manns voru á fundi í
Berlín en 22. september var 5000 manna fundur þar. 1500 manns voru í Vancouver
í Kanada en þar var einnig 3000 manna fundur 23.september. 3000 manns voru á
fundi í Aþenu en tveim dögum fyrr var þar 10 þúsund manna fundur. Í Zürich var
200 manna fundur en daginn áður höfðu 3000 manns safnast saman þar. Í París
voru 6000 manns og aftur 5000 þann 6. október. 10 þúsund manns tóku þátt í
fundi í Barcelona en þar höfðu áður verið þrír smærri fundir. Í Frankfurt voru
5000 manns, 3000 í Los Angeles, 3500 í Montreal, 100 þúsund í Róm, 25 þúsund í
Washington.
Í Washington var einnig 6000 manna fundur 30.
september en þann dag voru líka fundir mjög víða. Auk fundarins í Washington
voru stærstu fundirnir þann dag í Amsterdam, 5000 manns, í Brighton á Englandi,
4000, í Genf 5000 og í Bangalore á Indlandi var 5000 manna fundur 2. október.
Síðan hafa fjölmargir fundir verið haldnir og enn
fremur var vitað um 18 fundi í undirbúningi eftir 7. október. En strax að
kvöldi 7. október fóru að berast fréttir af fundum sem ákveðnir voru í skyndi.
Á nokkrum stöðum urðu mótmælafundir strax að kvöldi sunnudagsins og mánudaginn
8. október voru fundir víða og sumir allfjölmennir, svo sem 10 þúsund manns í
Berlín. Í Bandaríkjunum voru boðaðir fundir og mótmælagöngur í fjölmörgum
borgum, einnig í Danmörku, Bretlandi, í tugum borga á Ítalíu, Spáni, víða í
Svíþjóð, Austuríki, Kanada o.s.frv. Og næstu daga hafa verið boðaðar
mótmælaaðgerðir enn víðar. Sjá nánar hér (http://indymedia.org)
© Einar Ólafsson