Síðast uppfært 2.5.2009
Sú hreyfing sem upphaflega var þekkt
undir nafninu „Andófshreyfingin gegn hnattvæðingu“ hefur smám saman
innan eigin raða fengið öllu jákvæðara heiti: Global Justice Movement,
sem hér er þýtt sem „Alþjóðlega réttlætishreyfingin“. Einnig er hún
stundum kölluð „Andkapítalíska hreyfingin“. Undanfarin 7-8 ár eða
svo hefur mikið verið skrifað um stefnu þessarar hreyfingar og hvað felist í
hugmyndinni um „öðruvísi veröld“, sem fram kemur í aðalkjörorði
hennar, sem á ensku hljóðar Another world is possible, en er þýtt hér
sem „Við eigum völ á öðruvísi veröld“ (og má vera að betri þýðingu
megi finna).
Í þessum greinaflokki er birtur
útdráttur úr bókum og greinum um þetta efni. Þessar greinar verða til smám
saman og eru settar á netið þegar mynd kemst á þær en eru ekki endilega
fullfrágengnar. Orðalag getur því verið nokkuð hrátt. Í þessari umræðu er
eitthvað af orðum og hugtökum sem ekki liggur beint við hvernig á að þýða á
íslensku, allt frá nafngiftum þessarar hreyfingar og slagorðum hennar yfir til
ákveðinna stefnuatriða eins og t.d. „lókalísering“. Vel má
vera að betri þýðingarlausnir séu til en hér koma fram. Það efni sem ekki er
fullfrágengið er auðkennt sem drög.
Greinar:
1. Inngangur. Hreyfingin í sögulegu
samhengi
2. Greining á mismunandi viðhorfum og skoðanahópum
innan alþjóðlegu réttlætishreyfingarinnar
5. Grenndarstefna
Listi yfir nokkrar þeirra bóka og greina sem fjalla um þetta efni (listinn er
frá 2007 þannig að nýrri bækur eru ekki á honum):
Alternatives to Economic
Globalization. A Better World is Possible.
Describes steps you can take as a consumer, worker,
depositor and investor, and as a citizen to help transform the global economic system
and create a better world!
Michael Albert: Parecon. Life
After Capitalism.
Sjá einnig Parecon Website, http://www.zmag.org/parecon/indexnew.htm
Greg Buckman: Globalization: Tame
it or Scrap it? Mapping the Alternatives of the Anti-globalization Movement.
Alex Callinicos: An
Anti-Capitalist Manifesto.
Susan George: Another World is
Possible if...
Colin Hines: Localization: A
Global Manifesto.
John Madeley: A People’s
World.
George Monbiot: The Age of
Consent. A Manifesto for a
Simon Tormey: Anti-Capitalism: A
Beginner’s Guide.
Michael Woodin og Caroline Lucas: Green
Alternatives to Globalisation. A Manifesto.
Einnig er vert að benda á bækur
Boris Kagarlitsky í bókaflokknum Recasting Marxism, en þær fjalla um
stöðu og vanda vinstri hreyfingarinnar á tímum hnattvæðingar:
New Realism. New Barbarism.
Socialist Theory in Era of Globalization.
The Twilight of Globalization:
Property, State and Capitalism.
Greinar á netinu:
Yfirlit yfir greinar á netinu: http://notendur.centrum.is/~einarol/andoftengl.html
Þetta
yfirlit var tekið saman haustið 2002 og vantar því ýmislegt sem síðar hefur
birst.