Eftir Guðbjörgu Sveinsdóttur
Birtist á vefsíðu
Rauða kross Íslands
|
Guðbjörg
Sveinsdóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands skrifar Eftir nokkurra daga dvöl á jarðskjálftasvæðinu er margt
sem hefur komið á óvart. Það er mjög sérstakt að horfa upp á eyðilegginguna
því múrsteinshús hafa hrunið eins og spilaborgir. Sums staðar er fólk enn að
krafsa í rústunum eftir einhverju nýtilegu. Íranski Rauði hálfmáninn er
ótrúlega vel skipulagður og fyrsta áfallahjálparteymi félagsins var komið á
staðinn daginn eftir jarðskjálftann. Jarðskjálftinn 26. desember
skildi Bam borg og nærliggjandi þorp eftir sem rústir einar. Af um 110 þúsund
íbúum svæðisins eru líklega á milli 30 og 40 þúsund manns látnir. Af 20
þúsund manns sem slösuðust voru 18 þúsund flutt á brott. Um 69 þúsund manns
eru heimilislausir og sú tala á eftir að hækka þegar fólk kemur til baka
eftir að hafa búið hjá ættingjum og vinum annars staðar í landinu um hríð.
Eyðileggingin er með ólíkindum því 25 þúsund byggingar eru ónýtar, þar af 180
skólar, þrír háskólar, tvö sjúkrahús og fimm aðrar heilbrigðisstofnanir. Eins og nærri má geta er þörf á sálrænum stuðningi
gífurleg. Flestir hafa misst náinn ættingja. Eftir fyrsta áfallið fór mikill
kraftur og virkni í að leita að ástvinum og veraldlegum eigum í rústunum.
Síðan einkenndust viðbrögðin af dofa og streitu. Margir sitja í tjöldum sínum
og fara ekki út, ríghalda í börnin sín og geta ekki séð af þeim, gráta
stöðugt eða eru alveg frosnir. Á sjúkrahús Alþjóða Rauða krossins og Rauða
hálfmánans koma sífellt fleiri með óljós einkenni sem líkjast mjög
áfallastreitu. Fyrir okkur útlendingana hefur verið afar áhugavert að
fylgjast með vinnu íranska teymisins sem við störfum mest með. Um er að ræða
hreyfanleg sex manna teymi sem reyna að fara á þrjá til fjóra staði á dag.
Þegar komið er á staðinn skipta þau með sér verkum og kalla saman börn á
staðnum. Börnin eru látin teikna og syngja sitjandi saman í hring. Farið er
með þau í alls kyns leiki og að lokum er útdeilt leikföngum, skriffærum og
skriftarbókum. Það er stórkostlegt að sjá hvernig fjölgar í hópnum og hvað
þeim líður vel með að fá leyfi til að leika sér og hlæja. Fullorðnir karlar
standa álengdar og fylgjast með og brosa þegar þeir sjá börnin að leik. Vinna okkar sem erum að meta ástandið og þarfirnar hefur
hingað til falist í að fara á ýmsa staði og tala við þolendur jarðskjálftans
og við heimamenn og útlendinga sem eru að sinna hjálparstarfi. Á næstu dögum
munum við gera áætlun til næstu sex mánaða, sem líklega mun felast í því að
útbúa tvö tjöld fyrir sálrænan stuðning á hverju hinna ellefu svæða sem
borginni er skipt í. Okkur er að verða ljósara hversu mikilvægt er að hafa
erlenda sérfræðinga á staðnum til þess að ýta á ýmsa hluti og styðja við það
góða starf sem íranskir starfsfélagar okkar eru að inna af hendi. Við kynnumst því æ betur hvernig menningin og trúarbrögðin
hjálpa fólki til að takast á við áfall sem þetta. Fjölskyldutengslin eru mjög
sterk, samfélagið samheldið og í ákveðnum skorðum og í trúarbrögðunum er
mikið af sorgarúrvinnsluþáttum sem við höfum ekki áður kynnst. Það er alveg
ljóst að þeir sem vinna beint með fólkinu þurfa að þekkja vel til siða, menningu
og trúarbragða. Menn frá tyrkneska Rauða hálfmánanum komu hingað og setti upp
tvær tjaldbúðir. Daginn eftir báðu þeir okkur um ráðleggingar og við lögðum
til að komið yrði upp stóru tjaldi þar sem konurnar á staðnum hefðu aðstöðu
til að Hinir tyrknesku starfsfélagar okkar hafa líka komið upp
fjórum tjöldum fyrir skóla. Þeir fundu húsgögn úr skóla sem hrundi í
nágrenninu og skólastjóra sem hafði misst alla fjölskylduna en vildi halda
áfram að Við í áfallahjálparteyminu búum í stórum tjaldbúðum sem
hefur verið komið upp á svæði þar sem áður var haldinn útimarkaður. Við höfum
ágætis vinnutjald með tveimur plastborðum og sex plaststólum. Það er heitt á
daginn en kólnar á næturnar þó ekki sé lengur næturfrost eins og fyrstu
dagana eftir að skjálftinn reið yfir. Matur hefur verið af skornum skammti en
nú á að fara að bjóða upp á heitan mat á kvöldin og nóg vatn er á flöskum svo
við höfum ekki yfir neinu að kvarta.
Af því fólki sem kemur á sjúkrahús er um helmingur með
einkenni áfallastreitu. Fólk kvartar undan því að sums staðar gangi illa að
sinna frumþörfunum. Mikil þörf er fyrir upplýsingar. Fólk kvíðir framtíðinni
og spyr, „hvernig verður þetta, hver hugsar um okkur“? og
svo framvegis. Meðal þess sem við höfum lagt til er að sérstakt tjald verði á
sjúkrahússvæðinu fyrir sálrænan stuðning og fræðslu. Bam, 16. janúar 2004. |