Birtist á Friður.is 20. apríl 2005
Um 500 manns voru handteknir í Belgíu 16. apríl vegna mótmælaaðgerða gegn kjarnorkuvopnum. Nálægt 1000 manns tóku þátt í þessum aðgerðum.
Andstæðingar kjarnorkuvopna í Belgíu hafa síðan 1997 haldið upp herferð gegn kjarnorkuvopnum undir nafninu Bombspotting, en bandarísk kjarnorkuvopn hafa verið staðsett í Kleine Brogel herstöðinni í Belgíu síðan 1963. Í þessari baráttu eru gjarnan notaðar aðferðir borgarlegar óhlýðni. Fjöldi fólks hefur tekið þátt í þessum aðgerðum, allt upp í 2000 manns (sjá www.bomspotting.be).
Í tilefni af NPT-ráðstefnunni, sem hefst í New York 2. maí, voru skipulagðar aðgerðir 16. apríl á þremur stöðum í Belgíu, við höfðustöðvar NATO í Brussel, við aðalhernaðarstjórnstöð NATO (SHAPE) í Mons og við Kleine Brogel herstöðina. Einnig voru óauglýstar aðgerðir við NATO-herstöðina í Gooik. Þessar aðgerðir voru skipulagðar sem borgaralegar eftirlitsaðgerðir.
Ásamt Bombspotting átti Greenpeace aðild að þessum aðgerðum, en þessi samtök hafa haldið upp kröfunni um að NATO verði kjarnorkuvopnalaust bandalag. Fjölmargir liðsmenn Greenpeace komu frá þeim sex NATO-ríkjum þar sem nú eru sannanlega kjarnorkuvopn, Ítalíu, Þýskalandi, Belgíu, Bretlandi, Tyrklandi og Hollandi. Alls eru þar 480 kjarnorkuvopn, þar af 20 í Belgíu. Einnig voru þátttakendur frá allmörgum öðrum löndum.
Þá hafa um 200 af alls 589 bæjarstjórum í Belgíu brugðist við ákalli borgarstjóra Hírósíma og Nagasakí um algera útrýmingu kjarnorkuvopna fyrir árið 2020. Þeir leggja til að öll kjarnorkuvopn Bandaríkjanna verði flutt frá Kleine Brogel herstöðinni. Einnig sendu þeir nefnd úr sínum hópi til viðræðna við Karle De Gucht utanríkisráðherra um NPT-ráðstefnuna og hugmyndir um að Belgía hafi frumkvæði að alþjóðlegri ráðstefnu um algert bann við kjarnorkuvopnum í samræmi við 6. grein NPT-samningsins. Meðal nefndarmanna var borgarfulltrúi frá Brussel fyrir hönd borgarstjórans, Freddy Thielemans. Á blaðamannafundi kynnti nefndin áætlanir bæjarstjóranna um baráttu fyrir algerri útrýmingu kjarnorkuvopna fyrir árið 2020. Bæjarstjórar úr öllum stjórnmálaflokkum styðja þessa áætlun. (Sjá www.motherearth.org/m4p/list_nl.php).