|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Kosningarnar í Bretlandi:
Róttæka vinstrið og græningjar sækja á
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist á Morgunpósti VG 9. maí 2005 Það bar til tíðinda í nýafstöðunum þingkosningum í Bretlandi að í fyrsta
sinn síðan 1945 var kosinn þingmaður til vinstri við Verkamannaflokkinn. Það
var George Galloway sem bauð sig fram fyrir nýlegan flokk, Respect, en hann fékk 35,9% atkvæða í
kjördæmi sínu, Bethnal Green and Bow í Lundúnum. Fylgi flokksins var reyndar
mjög misjafnt, víðast hvar milli 1 og 6% en í fjórum kjördæmum fékk hann
milli 17 og 28% atkvæða. Þessi flokkur var stofnaður í janúar 2004. Nafnið er eiginlega skammstöfun og stendur fyrir Respect,
Equality, Socialism, Peace, Environmentalism, Community, and Trade unionism.
Áður hafði verið starfandi kosningabandalag undir nafninu Socialist
Alliance, en það náði aldrei verulegu fylgi. Kjölfestan í því bandalagi var
byltingarsinnaður flokkur trotskíista, Socialist Workers Party
(sumir segja reyndar líka ófriðarvaldur). Það má segja að með hinni gífurlega
öflugu hreyfingu sem varð til í Bretlandi í aðdraganda innrásarinnar í Írak
og samtökunum Stop the War Coalition hafi skapast grundvöllur
fyrir endurskipulagningu hinnar róttæku vinstri hreyfingar. The Socialist
Alliance fór að vinna að því en það var þegar George Galloway, þingmaður
Verkamannaflokksins, var rekinn úr flokknum vegna andstöðu sinnar við
Íraksstríðið í október 2003 að skriður komst á málið. Það sem er kannski nokkuð sérstakt við þennan flokk er að meðal
stuðningsmanna hans og félaga er mikið að innflytjendum og fólki af erlendum
uppruna, meðal annars múslímar sem hafa tekið virkan þátt í andstöðunni við
stríðið, en gengi flokksins hefur verið best í kjördæmum þar sem er mikið af
innflytjendum og verkafólki. Flokkurinn bauð fyrst fram hálfu ári eftir að hann var stofnaður, í kosningunum
10. júní 2004. Þann dag voru þrennslags kosningar í Bretlandi, það voru
kosningar til Evrópuþingsins, sveitarstjórnarkosningar í nokkrum hlutum
landsins og kosningar borgarstjóra og til þingsins í Lundúnum (London
Assembly). Í kosningunum til Evrópuþingsins bauð Respect fram í öllum
kjördæmum og fékk 1,7% atkvæða á landsvísu en 4,8% í Lundúnum og 7,4% í
Birmingham en allt upp í 15 og 18% í einstökum borgarhlutum. Flokkurinn fékk
upp í 10% í nokkrum öðrum bæjum, þ.á.m. Leicester og Bradford. Þótt atkvæðatölurnar séu ekki háar að meðaltali yfir allt landið, þá
hefur Respect náð betri árangri í þessum tvennum kosningum en flokkar til
vinstri við Verkamannaflokkinn hafa áður náð (ef Græningjar er ekki taldir
með). Í Skotlandi hefur Skoska sósíalistaflokknum
reyndar vegnað nokkuð vel að undanförnu en hinsvegar tapaði hann fylgi nú,
fékk milli 2,5 og 5,5% atkvæða eftir kjördæmum (Respect hefur ekki stofnað
deildir í Skotlandi en styður Skoska sósíalistaflokkinn þar).
Kosningafyrirkomulagið í Bretlandi er hins vegar ólýðræðislegt og mjög
óhagstætt fyrir nýja flokka. Þess vegna er gengi flokks eins og Respect í
Bretlandi ekki alveg sambærilegt við það sem gerist í öðrum löndum. En með
hægri þróun Verkamannaflokksins gæti skapast meiri þörf fyrir valkost til
vinstri við hann. Það er spurning hvort Respect muni valda því hlutverki. Kommúnistaflokkur Bretlands hefur ekki
gengið til liðs við Respect en Sósíalistaflokkurinn,
lítill marxískur flokkur, bauð sumsstaðar fram en veitti Respect
gagnrýninn stuðning í öðrum kjördæmum. Hann telur það vera ætlun Galloways
með þátttöku í Respect að „endurheimta“ Verkamannaflokkinn, knýja
hann til að færa sig aftur til vinstri. Sósíalísk stefna Respect sé ekki nógu
skýr og í ákafa sínum við að fá atkvæði múslíma hafi frambjóðendur freistast
til vafasamra yfirlýsinga, til dæmis gegn fóstureyðingum. Græningjar, The Green Party, unnu líka á þótt ekki næðu þeir
neinum þingmanni. Þeir eiga hins vegar samtals 63 bæjarfulltrúa (bættu 10 við
sig 2004), tvo þingmenn á Evrópuþinginu og tvo á Lundúnaþinginu. Þessi
flokkur á rætur að rekja aftur til ársins 1973 og vann mikinn sigur í
Evrópukosningunum 1989 en hefur af ýmsum ástæðum ekki vegnað eins vel síðan.
Eftir stofnun Respect voru gerðar tilraunir til samvinnu milli Respect og
Græningja, en þær hafa ekki borið árangur. Sjá nánar: |
|
|