Einar Ólafsson forsíða
greinar
birtist á Morgunpósti VG 7. okt. 2004
Dagana 15. til 17. október verður í þriðja sinn haldin
ráðstefna evrópskra alþýðuhreyfinga, Evrópskt sósíalfórum, eða upp á enska
tungu European Social Forum. Að þessu
sinni hefur ráðstefnunni verið valinn staður í London, en í janúar síðastliðnum
var fjórða heimsráðstefnan haldin í Mumbai á Indlandi.
Furðu hljótt hefur verið um þessar ráðstefnur í íslensku
fjölmiðlum, það hefur varla verið minnst á þær, og hafa þær þó dregið að sér
tugi þúsunda þátttakenda, þarna hafa verið saman komnir áhrifamestu og virtustu
gagnrýnendur þess efnahagslega og pólitíska kerfis sem nú er ráðandi um allan
heim og þarna hafa verið tekin fyrir ótal viðfangsefni ekki aðeins til að
gagnrýna heldur líka til leita nýrra lausna, enda hefur kjörorð þessara samkoma
verið að við eigum völ á öðruvísi veröld, á ensku Another world is possible eða á spænsku Un otro mundo es posible.
Fyrsta heimsráðstefnan var haldin í borginni Porto Alegre í
Brasilíu í janúar 2001. Þá hafði hin alþjóðlega andófshreyfing gegn
hnattvæðingu farið mjög vaxandi um nokkurra ára skeið, einkum þó frá mótmælunum
miklu gegn Alþjóðaviðskiptastofnuninni í Seattle haustið 1999. Þessi hreyfing
hafði fyrst og fremst birst sem andófshreyfing en fór nú æ meir að koma fram
undir jákvæðum formerkjum og er nú gjarnan kölluð baráttuhreyfing fyrir
hnattrænu rétttlæti, Global Justice
Movement, en sumir vilja frekar kalla hana andkapítalísku hreyfinguna.
Helstu mótmælaaðgerðirnar hafa verið vegna funda Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar,
Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins auk Evrópusambandsins og annarra
svæðisbundinna bandalaga fyrir utan mótmæli gegn stríði á undanförnum misserum.
Einnig hafa verið mótmælaaðgerðir vegna hinna árlegu funda forsvarsmanna stórfyrirtækjanna
og áhrifamestu stjórnmálamannanna, World
Economic Forum, sem hafa venjulega verið haldnir í janúar í Davos í Sviss.
Á þeim fundum hafa verið lagðar línurnar varðandi hið alþjóðlega efnhagskerfi.
Nú kom upp sú hugmynd að halda á sama tíma ráðstefnu alþýðunnar til að leggja
línurnar fyrir öðruvísi veröld, veröld á forsendum alþýðunnar. Þessi ráðstefna
var kölluð á ensku World Social Forum,
á spænsku Foro Social Mundial o.s.frv.
Það er álitamál hvernig beri að þýða þetta á íslensku, þetta er ekki beinlínis
ráðstefna heldur frekar vettvangur til að koma saman og ræða málin, vettvangur
fyrir margar ráðstefnur, fundi, málstofur, listrænar uppákomur og mótmælaaðgerðir.
Fyrstu heimsráðstefnu alþýðuhreyfinga, ef við notum það orð,
var sem sagt valinn staður í Porto Alegre í Brasilíu. Það var lögð rík áhersla á
að staðurinn yrði í þriðjaheimslandi og Brasilía varð fyrir valinu af því að þar
voru mjög sterkar hreyfingar eins og hin öfluga hreyfing landbúnaðarverkamanna
og leiguliða, MST, og verkalýðssambandið CUT. Borgaryfirvöld í Porto Alegre
voru líka mjög jákvæð, en Verkamannaflokkurinn, PT, hefur stjórnað borginni í
mörg ár.
Það var búist við nokkur hundruð manns til Porto Alegre í
janúar 2001 en 20 þúsund manns mættu. Árið eftir komu nær 100 þúsund manns og
annað eins þriðja árið. Þá var ákveðið að halda fjórðu ráðstefnuna í Mumbai sem
áður hét Bombay á Indlandi og enn var þátttakan svipuð.
Fljótlega var farið að halda svæðisbundnar ráðstefnur milli
heimsráðstefnanna. Haldnar hafa verið Asíu-, Afríku- og Ameríkuráðstefnur,
ráðstefnur fyrir Miðjarðarhafssvæðið og svæðið kringum Amazon, í einstökum
löndum svo sem Indlandi, Nýja Sjálandi-Aotearoa, Danmörku (nú í byrjun október),
Brasilíu, og jafnvel fyrir einstakar borgir, t.d. í Boston og a.m.k. fjórar borgir
í Svíþjóð. Fyrsta Evrópuráðstefnan var í Flórens haustið 2002 og komu þar saman
um 65 þúsund manns víðsvegar að úr Evrópu. Þeirri ráðstefnu lauk síðan með
milljón manna mótmælagöngu gegn fyrirhugaðri innrás í Írak. Í fyrra var
Evrópuráðstefnan haldin í París og nágrenni og hana sóttu um 50 þúsund manns.
Og nú er undirbúningur að þriðju ráðstefnunni langt kominn í
London. Meira en þúsund samtök hafa tekið þátt í að undir búa allskyns fundi og
samkomur og er þegar búið að skrá á dagskrána meira en 900 samkomur. Það eru
margvísleg samtök sem koma að þessu, verkalýðsfélög, friðarsamtök,
mannréttindasamtök, samtök gegn kynþáttahyggju, hjálparsamtök o.s.frv. Búast má
við tugum þúsunda þátttakenda en óvíst að fréttir af ráðstefnunni nái hingað
með haustskipum. Hins vegar er hægt að fá fréttir gegnum internetið, sjá nánar
á http://notendur.centrum.is/~einarol/.