Einar Ólafsson  forsíða  greinar


Einar Ólafsson:

Evrópskur vinstriflokkur stofnaður

17. janúar 2004

Evrópski vinstriflokkurinn (European Left, Die Partei der Europäischen Linken) var stofnaður í Berlín 11. janúar 2004. Stofnun flokksins á sér langan aðdraganda. Síðastliðin tíu ár hafa ýmsir róttækir vinstriflokkar í Evrópu skipst á skoðunum og unnið að nánara samstarfi . Að hinum nýja evrópska flokki standa ellefu flokkar. Ákveðið var að stíga þetta skref nú til geta hafið undirbúning að kosningunum til Evrópuþingsins í júní.

Þeir flokkar sem helst hafa haft frumkvæði að stofnun flokksins eru Sósíalíski lýðræðisflokkurinn (Partei des Demokratischen Sozialismus - PDS) í Þýskalandi, Endurreisnarflokkur kommúnista (Partito della Rifondazione Comunista - PRC) á Ítalíu og Fylking vinstrimanna og umhverfissinna (SYNASPISMOS) á Grikklandi. Aðrir flokkar sem stóðu að stofnun flokksins voru Sósíaldemókratíski verkamannaflokkurinn (Eesti Sotsiaaldemokraatliku Tööpartei - ESDTP) í Eistlandi, Vinstriflokkurinn (déi Lénk, la Gauche) í Lúxemburg, Kommúnistaflokkur Austurríkis (Kommunistische Partei Österreichs), Kommúnistaflokkur Frakklands (Parti communiste français, Kommúnistaflokkur Slóvakíu (Komunistická strana Slovenska - KSS), Vinstrieiningin (Izquierda Unida) á Spáni, Kommúnistaflokkur Bæheims og Mæri (Komunistická strana Cech a Morav - KSCM), Tékklandi og Sósíalíski lýðræðisflokkurinn (Strana demokratickeho socialismu - SDS) í Tékklandi.

Nokkrir fleiri stjórnmálaflokkar áttu fulltrúa á fundinum en ákváðu að taka ekki þátt í stofnun flokksins heldur halda sambandi við hann. Þessir flokkar voru: AKEL (Anorthotiko Komma Ergazomenou Laou - Framfaraflokkur verkalýðsins) á Kýpur,     Sósíalistaflokkurinn (Socialistische Partij) í Hollandi, Sósíalíski vinstriflokkurinn (Sosialistisk Venstreparti) í Noregi, Vinstrabandalagið (Vesemmisto Liitto, Vänsterförbundet) í Finnlandi, Kommúnistaflokkur Grikklands (Komounistiko Komma Elladas - KKE) og tveir vinstriflokkar frá Katalóníu.

Helstu áherslur Evrópska vinstriflokksins eru í lauslegri þýðingu:

1. Engin gereyðingarvopmn í Evrópu heldur sameiginleg öryggisstefna án NATO eða hernaðarbandalags Evrópusambandsins.
2. Tilfærsla auðsins frá hinum ríku til hinna fátæku, samstaða og félagsleg stefna sem miðar að fullri atvinnu, umhverfisstefna og skattur á brask. Fólk verði í fyrirúmi í stað gróða.
4. Enga atlögu að mannréttindum í nafni barátti gegn hryðjuverkum heldur opin Evrópa og hæli fyrir fælóttamenn.
5. Engin viðskiptastríð á kostnað vanþróaðra landa heldur frumkvæði að efnahagslegu og pólitísku samstarfi sem miðar að jöfnuði.
6. Komið verði í veg fyrir að fjölmiðlar safnist á færri hendur og tryggt að fjölbreyttar skoðanir fái aðkoma fram og allir fái notið fjölbreytilegra upplýsinga, menningar og menntunar.
7. Settar verði takmarkanir á útblástur koltvísýrings, útflutning úrgangs og nýtingu orkulinda og skóga.
8. Stemmt verði stigu við kynferðislegri mismunun af völdum hnattvæðingar og stefnt að jafnrétti karla og kvenna.
9. Barátta gegn ofurvaldi auðmagns og auðvalds og fyrir annarri skipan mannlífs, vinnu, framleiðslu og skiptingar gæðanna.

Nokkrir þessara flokka hafa einnig tekið þátt í Nýja evrópska vinstrivettvanginum (New European Left Forum), sem var stofnaður árið 1991, And-kapítalísku vinstrihreyfingunni (European Anti-Capitalist Left – EACL), sem er óformlegt bandalag róttækra vinstriflokka sem hafa komið saman á ráðstefnur á undanförnum árum, og flestir þeirra eiga aðild að sambandi vinstriflokkanna á Evrópuþinginu (GUE/NGL - European United Left / Nordic Green Left), sem myndaðist á árunum 1989 til 1994.

Varðandi afstöðu norrænu vinstriflokkanna til stofnunar evrópsks vinstriflokks má vitna í orð Stellan Hermannsson frankvæmdastjórda NGL-hópsins á landsfundi Vinstrihreyfinarinnar græns framboð 8. desember 2004:

Innan skamms er von á ákvörðun frá æðstu stjórnendum Evrópusambandsins um að allir þegnar innan þess þurfi á evrópskum stjórnmálaflokki að halda. Að sjálfsögðu hafa norrænu vinstri grænu flokkarnir neikvæða afstöðu til þessarar ákvörðunar. Flokka á að byggja upp neðan frá, frá grasrótinni, en ekki Brussel. En innan skamms munu evrópskir stjórnmálaflokkar verða staðreynd. Vinna við að stofna evrópskan vinstriflokk er þegar hafin. Við fylgjumst með þessari þróun en ætlum ekki að ganga í evrópskan vinstriflokk. Sænsku, finnsku, norsku og dönsku vinstriflokkarnir þurfa að svara þessu með því að þróa, styrkja og renna betri undirstöðum undir norræna flokkasamstarfið – með því að mynda samfylkingu norrænna vinstri-grænna. Í byrjun þessa ferlis ákvað Vinstrihreyfingin-grænt framboð ekki að taka þátt. Ég held að ástæða þess hafi verið á sínum tíma að þið höfðuð ekki mótað ykkar skoðun á evrópskum flokkum nákvæmlega. Í dag er ástandið öðruvísi, áformuð uppbygging NGLA er líkleg til að leiða til enn betur skipulögðu flokkasamstarfi norrænu flokkanna. Ég vona að Vinstrihreyfingin – grænt framboð íhugi vandlega þann vettvang sem nú er í mótun, og ég vona – og ég segi það fyrir hönd allra hinna fjögurra vinstriflokkanna á Norðurlöndunum – að þið ákveðið að verða þátttakendur í NGLA.“

European Left: http://www.european-left.org/

Sjá yfirlýsingu um stofnun Evrópska vinstriflokksins:

http://www.pds-online.de/politik/aktuell/view_html?zid=1139&bs=1&navi=no

http://www.lenk.lu/sujet/article.asp?id=386

Aðrar fréttir:

sjá  New European Party Of The Left Founded  

og

http://ots.apa.at/meldung.php?schluessel=OTS_20040112_OTS0120&typ=


Sjá einnig ræðu Stellan Hermannson framkvæmdarstjóra Nordic Green Left-hópsins á landsfundi VG 8. nóvember 2003:

http://www.vg.is/kate.php?fmPageID=9&fmExpandTo=00.03.00&fmObjNewsAction=GetNews&fmObjNewsID=545

 

 

Norrænt vinstra-grænt flokkabandalag (Nordic Green Left Alliance - NGLA) var stofnað í Reykjavík 1. febrúar 2004. Sjá: http://www.sf.dk/index.php?menu=997