|
Einar Ólafsson Saga um eyra Einu sinni var strákur sem nennti ekki í skólann og sagðist vera illt í
maganum. Þá sagði pabbi hans: „Ég ætla að leggja eyra á magann og hlusta.“ Og hann fór út í búð og
keypti eyra og lagði á magann á honum. Og eyrað festist á magann. Eftir það
borðaði strákurinn bara hljóð, tóna og lög. Þegar hann var svangur og
kallaði: „Mamma, pabbi, hvað er í matinn?“ og þau voru blönk eða höfðu gleymt
að fara út í búð svöruðu þau: „Æ, þú færð bara Gamla Nóa í dag.“ Þá sagði
strákurinn: „Getum við ekki haft óbókonsert eftir Mozart?“ „Nei,“ sögðu mamma
og pabbi, „það verður í sunnudagsmatinn. En á jólunum færðu Töfraflautuna.“ En
pabbi, mamma og systir hans höfðu ekki eyra á maganum og fengu aldrei svona
gott að borða, hvorki Gamla Nóa né óbókonsert eftir Mozart og ekki heldur
Töfraflautuna. © Einar Ólafsson |