Einar Ólafsson

Veljum öðruvísi veröld 


 

Flugfélag eða fjárfestingafélag?

 

eftir Einar Ólafsson

 

 

 

Birtist í Morgunpósti VG 10. janúar 2006

Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 8. janúar var greint frá miklum viðskiptum með hlutabréf í Íslandsbanka. Meðal þeirra sem tóku þátt í þessum viðskiptum var FL Group, sem var áður Flugleiðir upp á íslensku, meðan enn mátti nota það tungumál, en svo bara Icelandair upp á ensku. Núna sem sagt FL Group. Nafnbreytingin varð til vegna ákveðinnar eðlisbreytingar á fyrirtækinu, ef ég skil rétt. Á heimasíðu þess, www.flgroup.is, er það kynnt svo: „FL GROUP er fjárfestingarfyrirtæki með sérstaka áherslu á fjárfestingar í flug- og ferðaiðnaðinum.“ Og vissulega ber heimasíðan það með sér að áhersla sé lögð á flug- og ferðaiðnaðinn. Þar er vísað í The Icelandair Group, The FL Travel Group og Bluebird, sem er umboðs-, sölu-, og þjónustufyrirtæki í flugfrakt.

Þetta fjárfestingafyrirtæki, FL Group, á 16,5% í Íslandsbanka eftir umrædd viðskipti skv. frétt á visir.is en átti áður tæp 5% skv. upplýsingum á heimasíðu bankans þennan sama dag. Í frétt RÚV er vitnað í ónefnda sérfræðinga og kunnuga menn og sagt: „Eftir að Íslandsbanki er kominn í hendur manna, sem væntanlega hafa sömu sýn á framtíð bankans, gera menn ráð fyrir að þess verði ekki langt að bíða að þeir hefji nýja sókn. Til þess þurfi þó að efla fyrirtækið, þ.e. Íslandsbanka, sérstaklega ef ætlunin er að sækja meira fram erlendis. Bent er á að sömu menn ráða miklu innan Íslandsbanka og FL Group og augljóst sé að með samruna þessara tveggja fyrirtækja yrði til gríðarlega öflugt fyrirtæki. Einnig er bent á að FL Group sé fyrst og fremst fjárfestingafélag, flugrekstur og ferðaþjónusta sé ekki sá rekstur sem skilar því arði.“

Oft heyrist í seinni tíð sú klisja að ríkið eða sveitarfélög, einu nafni opinberir aðilar, eigi ekki að standa í rekstri sem einstaklingar geti séð um. Þetta er bara svona klisja sem oft er sett fram án rökstuðnings og því mætti svo sem setja fram aðra klisju jafngilda: Af hverju ættu einstaklingar að vera að standa í því sem opinberir aðilar geta séð jafn vel um?

Hvor klisjan um sig er auðvitað jafn lélegur rökstuðningur hvort heldur er fyrir eða móti opinberum rekstri eða einkarekstri.

Í ályktun frá 38. þingi Sambandi ungra sjálfstæðismanna sl. haust er eftirfarandi gullkorn að finna: „Opinber rekstur leikskóla er tímaskekkja. Einkaframtakið þarf að hafa svigrúm í leikskólakerfinu enda eru einkaðilar betur til þess fallnir að sinna starfsemi leikskóla en stjórnmálamenn.“

Ef við göngum út frá þessum rökstuðningi, þá má spyrja: Er fyrirtæki, sem fyrst og fremst er fjárfestingarfélag, yfirleitt til þess fallið að stunda flugrekstur? Nú er það auðvitað ekki svo að stjórnmálmennirnir reki sjálfir leikskólana. Til þess er ráðið fagfólk. Ef það er eitthvað óeðlilegt að opinberir aðilar standi á bak við rekstur leikskóla og stjórnmálamenn ábyrgist bakland þess reksturs, þá er varla neitt eðlilegra að maður sem kemur með reynslu úr rekstri byggingarvöruverlsunar, sem sagt Hannes Smárason fyrrum starfsmaður BYKO, sé forstjóri fyrirtækis sem stendur í flugrekstri, enda er flugreksturinn bara aukageta fyrirtækisins ef marka má frétt Ríkisútvarpsins. Jóhannes í Bónus var vissulega fagmannlegur í sjónvarpinu skömmu fyrir jólin þar sem hann sást ganga milli hillustæða í Bónus, en er eitthvað eðlilegt að þeir feðgar, hann og Jón Ásgeir, séu að reka fjölmiðla?

Ég veit það ekki. Ég verð hins vegar ekki var við að faglegur metnaður geisli yfirleitt af 10-11 búðum Baugs sem ég versla í. Það er svo sem ekkert nýtt að Flugleiðir, eða hvað sem það fyrirtæki hefur heitið gegnum tíðina, standi í ýmsu braski. En í upphafi voru það þó flugmenn og áhugamenn um flug og flugsamgöngur, sem stóðu í þessum rekstri. Væntanlega hafa þeir haft einhvern metnað á því sviði. En er einhverju að treysta þegar aðalmetnaður eigendanna felst í arðvænlegum fjárfestingum og nánast bara tilviljun að það var flugfélag en ekki eitthvert annað fyrirtæki sem varð grundvöllurinn að þeirri starfsemi eftir að þeir hættu í byggingavörubransanum eða hvar þeir voru. Væri þessi starfsemi kannski bara eins vel fyrir komið í höndum opnberra aðila sem legðu megináherslu á að fyrirtækið stæði sig vel í flugrekstri en ekki almennum fjárfestingum? Eða verður kannski rekstur leikskóla einhverntíma einhverskonar aukageta hjá FL Group eða Baugur Group?

 

 

 

 

 


Einar Ólafsson – forsíðagreinar