|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Allir flokkar fylgja
hernaðarhyggjunni - nema Vinstri græn
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist á visir.is 9. maí 2007 undir fyrirsögninni Hernaðarhyggjan
er á kjörseðlinum Samtök
hernaðarandstæðinga hafa sent fyrirspurnir til þeirra flokka sem standa að
framboðum til Alþingis í vor um afstöðu þeirra til varnarsamnings Íslands og
Bandaríkjanna og aðildar Íslands að NATO. Svör bárust frá Vinstri-grænum,
Samfylkingunni, Íslandshreyfingunni og Framsóknarflokknum og hafa þau verið
kynnt í fréttabréfi samtakanna, Dagfara, og á Friðarvefnum. Allir
flokkarnir nema VG eru andvígir uppsögn varnarsamningsins og úrsögn Íslands
úr NATO. Frjálslyndi flokkurinn svaraði ekki en vísaði í stefnuskrá sína þar
sem segir „varnarsamstarf Íslands innan NATO verður að breytast með
tilliti til breytinga í alþjóðastjórnmálum“. Ekkert er minnst á varnarsamninginn
og vægast sagt óljóst hvað meint er með fullyrðingu um að varnarsamstarfið
þurfi að breytast. En varaformaður flokksins sagði nýverið á fundi Varðbergs
að varnarsamningnum bæri að viðhalda. Sjálfstæðisflokkurinn svaraði engu. Hér sem víðar birtist
sérstaða Vinstri-grænna. Enginn annar flokkur treystir sér til að taka
afstöðu gegn hernaðarsamstarfi við það stórveldi sem á undanförnum árum hefur
hvað eftir annað gert ólögmætar innrásir í önnur lönd með skelfilegum
afleiðingum og þráfaldlega brotið gegn alþjóðalögum og mannréttindasáttmálum.
Enginn annar flokkur virðist gera sér grein fyrir þróun NATO til æ
árásargjarnara hernaðarbandalags. Útþenslustefna
og kjarnorkuvopn Hvað sem um
NATO mátti segja á árum áður, þá hélt það sig þó innan svæðis
aðildarríkjanna, en nú þenst það út og stendur í stórræðum utan síns svæðis. Þannig
heldur NATO uppi hernámi í Afganistan í kjölfar innrásar forysturíkis síns,
Bandaríkjanna, og kallar það friðargæslu. Það tekur virkan þátt í blóðbaðinu
í Írak. Það heldur uppi starfsemi kringum Miðjarðarhafið og í Miðausturlöndum
til að treysta ítök Bandaríkjanna þar. Á undanförnum árum hafa tengsl NATO
við Ísrael verið að styrkjast. Og innra skipulagi bandalagsins hefur verið
breytt til að gera það skilvirkara í sífellt árásargjarnari stefnu sinni. Kjarnorkuvopn
eru hluti af vígbúnaði NATO og NATO hefur áskilið sér rétt til að beita
kjarnorkuvopnum. Það hefur verið notað sem röksemd gegn tillögum um
kjarnorkuvopnalaust Ísland að það samrýmist ekki aðild okkar að NATO. Sérstaða VG Samfylkingin
gefur sig út fyrir að berjast fyrir bættum kjörum alþýðu. Hernaðarstefna
Bandaríkjanna og NATO beinir fjármagninu frá velferðarmálum til gífurlegrar
sóunar vegna vígvæðingar. Almenningur líður fyrir hernaðarstefnuna.
Almenningur líður fyrir tilveru NATO og hernaðarsamstarf við Bandaríkin. Íslandshreyfingin
gefur sig út fyrir að berjast fyrir umhverfisvernd. Auk óheftrar gróðahyggju
er hernaðarstefnan einhver mesta ógnunin við umhverfisverndina. Það þarf enginn að velkjast í vafa um hvar Sjálfstæðisflokkurinn stendur þótt hann hafi ekki látið svo lítið að svara fyrirspurn SHA. Sjálfstæðisflokkurinn er gersamlega staðnaður hvar sem á er litið, fastur í stóriðjulausnum og frjálshyggju sem varð úrelt fyrir hundrað árum, en auk þess hangir flokkurinn í hernaðarstefnu Bandaríkjanna hversu siðlaus sem hún er. Og hinir flokkarnir, allt frá Framsókn til Samfylkingar fylgja með. Aðeins Vinstri græn hafa skynsemi og þor til að taka aðra afstöðu. Kjósum gegn hernaðarstefnunni 12. maí. |
|
|