Birtist í Fregnum, fréttabréfi
Upplýsingar, Félags bókasafna- og upplýsingafræða, júní 2005
Nokkuð hefur verið rætt um hugsanleg áhrif GATS-samnings Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um þjónustuviðskipti á bókasöfn, en eins og kunnugt er var Ísland eitt 13 ríkja sem opnuðu á svið bókasafna og annars safnastarfs við stofnun WTO 1. jan. 1995. Síðan hafa fimm ríki bæst við. Með þessu er fátt sem kemur formlega í veg fyrir að einkaaðilar geti rekið bókasafnaþjónustu í samkeppni við opinber bókasöfn, en bæði IFLA og EBLIDA hafa haft áhyggjur af að slíkt geti grafið undan samfélagslegu hlutverki bókasafna. Upphaflega virðast einkum tveir fyrirvarar hafa komið í veg fyrir að erlendir aðilar gætu settu hér upp bókasafnaþjónustu. Annars vegar að þeim bæri að sækja um leyfi (skv. takmörkunum á markaðsaðgangi sem giltu fyrir öll svið) og hins vegar að jafnréttiskjör þeirra nái ekki til niðurgreiðslna né annars fjárhagslegs stuðnings.
Nú er í gangi svokölluð Doha-samningalota hjá WTO sem hófst að loknum ráðherrafundinum í Doha í Katar haustið 2001 og á að ljúka fyrir árslok 2005, en nú í haust verður ráðherrafundur WTO í Hong Kong. Tilboð á sviði þjónustuviðskipta var lagt fram af Íslands hálfu vorið 2003. Þar var engu breytt varðandi svið safna sérstaklega en fyrirvarinn um að sækja bæri um leyfi var felldur niður. Endurskoðað tilboð var lagt fram 31. maí 2005, en þar var engu breytt frekar hvað þetta varðar.
Sennilega er ákvæðið um niðurgreiðslur eða fjárhagslegan stuðning mikilvægast. En þá er þess líka að geta að í skuldbindingaskrá samningsins er þess sérstaklega getið að enn hafi ekki verið skilgreint í samningnum hvað átt sé við með niðurgreiðslu eða fjástuðningi (subsidies).
Það eru reyndar ýmis fleiri svið sem þarf að hafa í huga varðandi áhrif GATS-samningsins á bókasöfn svo sem fjarskiptaþjónusta varðandi rafrænar upplýsingar, menntaþjónusta og rannsóknarþjónusta, sem og útlán myndbanda/diska og möguleikar á frekari útvíkkun á starfsemi bókasafna. Einnig þarf að huga að öðrum samningi á vegum WTO, TRIPS-samingnum um hugverkaréttindi. Allt þetta er til athugunar á vettvangi IFLA og EBLIDA sem væntanlega munu senda fulltrúa til Hong Kong vegna ráðherrafundarins í haust.
Það er í eðli GATS-samningsins að stöðugt er haldið áfram að færa fleiri svið undir hann og afnema fyrirvara sem settir eru í upphafi. Hann gengur ekki til baka. Stefnt er að því að sem flest svið þjónustu séu á almennum markaði þar sem einkafyrirtæki geta skapað sér arð. Því þarf stöðugt að vera á varðbergi. (Sjá nánar greinar í Bókasafninu 2004, einkum grein Páls H. Hannessonar – aðgengilegar á slóðinni: http://notendur.centrum.is/~einarol/Greinar.html).
Einar Ólafsson