24. okt. 2004
Þriðja
Evrópska sósíalforum lauk í London 17. október síðastliðinn. Undir lok þessarar
miklu samkomu var haldinn fundur alþýðuhreyfinga (Assembly of Social Movements)
sem sendi frá sér yfirlýsingu (Call
of the Assemby of Social Movements). Í þeirri yfirlýsingu er meðal
annars getið ýmissa mála sem lögð verður áhersla á á næstunni, þar á meðal
dagsetningar fyrir baráttudaga og mótmælaaðgerðir.
9.-16.
nóvember er alþjóðleg vika til baráttu gegn apartheid-múrnum í Palestínu.
10.-11.
desember verða evrópskir baráttudagar í tilefni af því að 10. desember 1948
samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna mannréttindayfirlýsingu sína.
Mótmælaaðgerðir
í febrúar 2005 í tilefni af ráðherrafundi NATO í Nice.
Mótmælaaðgerðir
í júlí 2005 í tilefni af fundi hinna svokölluðu G8-ríkja í Skotlandi.
Lýst
var yfir stuðningi við alþjóðlegan dag gegn ofbeldi gagnvart konum 25. nóvember
næstkomandi.
Lagt
var til að 2. apríl 2005 verði baráttudagur gegn rasisma og takmörkunum á
ferðafrelsi yfir landamæri Evrópu.
Lýst
var yfir stuðningi við mótmælafund í janúar 2005 í Barcelona vegna fundar
Zapateros, Chiracs og Schröders um stjórnarskrá Evróðusambandsins.
Lýst
var yfir stuðningi við mótmælaðgerðir 11. nóvember gegn hinni svokölluðu
Bolkenstein-áætlun.
Loks
var ákveðið að stefna að alþjóðlegum mótmælaaðgerðum gegn stríði, rasisma og
nýfrjálshyggju 19. mars 2005, en 20. mars verða liðin tvö ár frá því að
innrásin í Írak hófst og jafnframt verður fundur Leiðtogaráðs Evrópu í Brussel
dagana 22. og 23. mars. Sérstök áhersla verður lögð á aðgerðir í Brussel.