|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Góðærinu er ekki lokið
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist á www.ogmundur.is
6.11.2008 – af því að það var ekkert góðæri. Góðæri er
þegar vel árar þannig að hægt er, vegna veðurfars eða annarra náttúrulegra
skilyrða, að afla vel, hvort sem er til sjávar eða sveita, án þess að ganga á
auðlindina. Og skynsamir menn leggja þá fyrir til mögru áranna. Hið svokallaða góðæri undanfarinna ára var blekking.
Það var ekkert til að leggja fyrir. Það byggðist ekki á meiri fiskafla, meiri
uppskeru til sveita eða meiri framleiðslu í verksmiðjum. Okkur var sagt að
það væri verið að skapa auð, en þessi auður var ekkert annað en síhækkandi
tölur sem hringsóluðu á rafrænan hátt milli tölvukerfa banka og
fjármálafyrirtækja. Og þó urðu þessar tölur að auði í höndum útvalinna manna
í lykilstöðum. En þessi auður var ekki nýr auður, hann kom ekki úr neinni
framleiðslu og því síður af himnum ofan. Hann var sjálftekið lán og reyndar
þýfi. Það hlaut að koma að skuldadögum. Og nú skulu þeir
borga sem minnst nutu blekkingarinnar, sem ekki eyddu um efni fram, heldur
unnu sína vinnu af samviskusemi og heiðarleika. Og unglingarnir og börnin,
vinnuafl framtíðarinnar. Góðærið var þjófnaður. Á árum áður var notað orðið
arðrán, sem þýðir að arðinum af vinnu almennings er rænt. Það er það sem
gerðist. Hefur eitthvað tapast? Engin hús hafa brunnið í
eldsvoðum eða hrunið í jarðskjálftum. Enginn hefur sett jarðskálftana í sumar
í samhengi við það sem nú dynur yfir. Eldgos hafa ekki lagt lönd í eyði. Það
hefur ekki orðið uppskerubrestur eða aflabrestur, engin snjóflóð hafa
eyðilagt mannvirki og langt er liðið frá meiriháttar skipsskaða. Ekkert hefur
eyðilagst. En margir hafa tapað þótt ekkert hafi brunnið, hrunið eða sokkið. Það er jafnrangt að líkja kreppunni við náttúruhamfarir
og kalla undanfarandi tímabil góðæri. Kreppa er í raun skuldadagar, þegar
skuldum braskaranna og arðræningjanna er velt yfir á alþýðuna. Í kreppunni
nær arðránið hámarki, þá er farið í vasa almennings og arðinum af vinnu hans
stolið til að borga sýndargróða undanfarinna ára, sem var í raun fyrirfram
nýttur ránsfengur. Hið svokallaða góðæri og kreppan eru í raun tvö stig í
arðránsferlinu. Kreppur eru ekki náttúruhamfarir. Þær eru kannski
óhjákvæmilegur fylgifiskur kapítalismans. En kapítalisminn er ekki
náttúruafl, hann er samfélagskerfi og samfélagskerfum er hægt að breyta eða
bylta. |
|
|