Einar Ólafsson

Forystumaður Verkalýðssambands Íraks myrtur

9. janúar 2005 

 

Alþjóðafulltrúi nýlega stofnaðs Verkalýðssambands Íraks (IFTU), Hadi Salih, var myrtur á heimili sínu í Bagdad 4. janúar síðastliðinn. Talið er að það hafi verið fylgismenn Saddams Hussein sem frömdu ódæðið.

 

Meðal annarra sem ég hitti og átti tal við á þingi Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga í byrjun desember var sendinefnd Verkalýðssambands Íraks, þar á meðal, Hadi Salih.

 

Hadi Salih var 58 ára þegar hann var drepinn. Ungur að árum fór hann berjast fyrir frelsi verkalýðshreyfingarinnar en verkalýðshreyfingin hafði verið tiltölulega öflug í Írak þar til verkalýðsfélögin voru lögð undir eftirlit og stjórn ríkisins. Hann var handtekinn og dæmdur til dauða fyrir þessa baráttu árið 1969 en slapp með að sitja í fangelsi í fimm ár og síðan í útlegð í Svíþjóð. Þar hélt hann áfram að vinna að verkalýðsmálum og var meðal hvatamanna að Lýðræðislegu verkalýðshreyfingunni sem var stofnuð árið 1980 í óþökk stjórnvalda. Eftir fall Saddams Hussein gat Hadi Salih snúið heim úr útlegðinni sem frjáls maður. Engu að síður var hann andvígur innrásinni og barðist gegn hernáminu. Hann var einn af stofnfélögum Verkalýðssambands Íraks í maí 2003 og leit svo á að skipulagning frjálsrar verkalýðshreyfingar væri grundvallaratriði ef takast ætti að koma á frjálsu lýðræðissamfélagi í Írak.

 

Í samræðum mínum við þá félaga lögðu þeir áherslu á að gera yrði greinarmun á hryðjuverkamönnum og raunverulegum baráttumönnum fyrir frjálsu Írak. Sá munur kemur skýrt fram í morðinu á Hadi Salih.

 

Mynd: Í boði borgarstjórnar Miyazaki í Japan 6. desember 2004 í japönskum hátíðarbúningi (happi). F.v. Jutiar Noori Abdullah forseti Verkalýðssambands íraska Kúrdistan, Einar Ólafsson og Hadi Salih.

 

Sjá einnig:

Minningarorð á vefsíðum

Alþjóðsambands frjálsra verkalýðsfélaga

Verkalýðssambands Íraks 

U.S. Labor Against the War

Labour Friends of Iraq