|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Utanríkisráðherra undirritar
samning um bann við klasasprengjum og fagnar gagnflaugakerfi Bandaríkjanna
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist á Friðarvefnum, www.fridur.is, 9. des. 2008 Utanríkisráðherra Íslands var á
annasömu ferðalagi í byrjun desember. Dagana
4. til 5. desember sat hún ráðherrafund Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) í Helsinki. Þar flutti hún ávarp og komst meðal
annars svo að orði: „Ég vona að okkur sé öllum ljóst að virkilegu
samevrópsku öryggi verður ekki náð með því einfaldlega að tryggja að við séum
betur vopnuð. Það er reyndar sérstaklega
aðkallandi að standa vörð um grundvallarsamninginn um vopnaeftirlit í Evrópu,
CFE-samninginn (Samningur um hefðbundinn herafla í Evrópu/Treaty on
Conventional Armed Forces in Europe).“ (leturbreyting mín) Sjá nánar: Utanríkisráðuneytið: Utanríkisráðherra
ávarpar ráðherrafund ÖSE Samningur um bann við klasasprengjum
Miðvikudaginn 3. desember kom
utanríkisráðherrann við í Osló og undirritaði
þar alþjóðlegan samning um bann við klasasprengjum. Samningurinn bannar
þróun, framleiðslu, notkun, birgðasöfnun og afhendingu klasasprengja. Alls voru það fulltrúar 110 ríkja sem
undirrituðu samninginn í Osló á miðvikudag og fimmtudag, en búist er við að
allmörg ríki til viðbótar undirriti hann á næstunni. Það veldur hins vegar
áhyggjum að nokkur mikilvæg ríki hafa ekki sýnt vilja til að undirrita hann,
þar á meðal Bandaríkin, Rússland, Kína, Indland, Pakistan og nokkur
Miðausturlönd. En til þess var tekið að Afganistan sá sig um hönd á síðustu
stundu og undirritaði samninginn í blóra við vilja Bandaríkjanna að sögn New
York Times, sem segir þetta til merkis um viðleitni afgönsku
ríkisstjórnarinnar til að sýna sjálfstæði gagnvart Bandaríkjunum. Sjá
nánar: Utanríkisráðherrar NATO styðja gagnflaugaáætlun BandaríkjannaDagana 2. til 3. desember var haldinn í Brussel utanríkisráðherrafundur
NATO. Ályktun fundarins (final communiqué) var afgreidd fyrri daginn.
Þar var farið yfir ýmis málefni, einkum varðandi áframhaldandi stækkun og
þróun NATO. Í 32. lið ályktunarinnar er fjallað um gagnflaugaáætlun
Bandaríkjanna: „Útbreiðsla langdrægra eldflauga (ballistic
missiles) er vaxandi ógn við herafla bandalagsins, yfirráðasvæði þess og
íbúa. Eldflaugavarnir eru hluti víðtækari viðbragða gagnvart þessari ógn.
Þess vegna fögnum við því mikilvæga framlagi til verndar bandalagsríkjunum
gegn langdrægum eldflaugum sem felst í fyrirhuguðum gagnflaugastöðvum
Bandaríkjanna í Evrópu. Að fyrirlagi Búkarest-fundarins erum við að kanna
leiðir til að tengja þessa getu við núverandi átak NATO til eldflaugavarna
sem leið til að tryggja að hægt verði að samþætta hana eldflaugavörnum sem í
framtíðinni munu ná til NATO í heild.“ Fjallað
er nánar um þetta, samningum við
Tékkland og Pólland um aðstöðu vegna gagnflaugakerfis Bandaríkjanna er fagnað
og boðað að þessar áætlanir verði þróaðar áfram, fjallað um þær nánar á fundi
varnarmálaráðherra NATO í Kraká í febrúar og skýrsla síðan lögð fyrir
leiðtogafund bandalagsins á 60 ára afmæli þess í byrjun apríl 2009. Ekki er neina frétt að finna um þetta á vef
utanríkisráðuneytisins né neinum íslensku fjölmiðli, en í frétt frá Associated
Press 3. desember er sagt að allir
utanríkisráðherrar NATO hafi undirritað yfirlýsingu um stuðning við þróun
gagnflaugastöðva í Póllandi og Tékklandi. Þess má geta að leiðtogafundur
NATO í Búkarest í byrjun apríl 2008, sem utanríkisráðherra og
forsætisráðherra sátu, lýsti líka samstöðu við gagnflaugaáætlun Bandaríkjanna,
þótt utanríkisráðherra myndi það ekki nokkrum mánuðum seinna. Árið 2002 sögðu Bandaríkin einhliða upp ABM-samningnum frá
1972 um takmörkun gagnflaugakerfa vegna áforma sinna um að setja upp
gagnflaugakerfi. Ásamt öðrum þáttum, svo sem útþenslu NATO til austurs, er
uppsögn Bandaríkjanna á ABM-samningnum og uppsetning gagnflaugakerfisins af
mörgum talin mikilvæg ástæða þess að Rússar sögðu sig frá CFE-samingnum
umhefðbundin vopn í Evrópu árið 2007. Það má því svo sannarlega taka undir áður tilvitnuð orð
utanríkisráðherra á ÖSE-fundinum í Sjá
nánar: Meeting of NATO Foreign
Ministers 2.-3. Dec. 2008. Final communiqué NATO
backs US missile shield over Russian protest - Associated Press Gagnflaugakerfið
og „virka utanríkisstefnan“ Bandarísk
eldflaugastöð í Póllandi Samkomulag
um gagnflaugastöð undirritað í Prag Tilvitnanir lauslega þýddar úr ensku
af -eó |
|
|