|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Ríkisstjórn Íslands á móti kjarnorkuafvopnun
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist á Friður.is 27.
apríl 2005 Það hefur verið áberandi
að innan Sameinuðu þjóðanna og á öðrum vettvangi, svo sem ráðstefnum vegna
NPT-samningsins um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna, hafa aðildarríki
Samtaka óháðra ríkja sýnt miklu meiri lit í viðleitninni við að útrýma
kjarnorkuvopnum en kjarnorkuveldin og bandalagsríki þeirra, í seinni tíð
einkum ríki Mið- og Vestur-Evrópu, sem hafa frekar þvælst fyrir þeirri
viðleitni, og er Ísland ekki undanskilið. Nú hafa Evrópuríkin Svíþjóð og
Írland tekið höndum saman við Brasilíu, Egyptaland, Nýja Sjáland og
Suður-Afríku (New Agenda Coalition – NAC-ríkin) í þeirri von að hægt
verði að byggja brú þarna á milli. 13. október
sl. afgreiddi allsherjarþingið ályktunartillögu þessa ríkjahóps. Þessi
tillaga var ákaflega diplómatísk og fólst aðallega í ákorun til ríkja heims
um að Sjá: |
|
|