|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Kjarnorkuvopnalaus Evrópa?
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
1. júní 2005 Endurskoðunarráðstefnu NPT-samningsins um bann við útbreiðslu
kjarnorkuvopna sem hófst í New York 2. maí lauk þann 27. Andstæðingar
kjarnorkuvopna voru ekki sérlega bjartsýnir með þessa ráðstefnu enda hefur horft
heldur illa með kjarnorkuafvopnun síðan síðasta ráðstefna var haldin fyrir
fimm árum og má helst kenna bandarískum stjórnvöldum um eins og rakið var í
grein hér á síðunni 22. maí. Því miður reyndist ekki ástæða til bjartsýni. Skammarleg tímasóun, sagði
Rebecca Johnson frá The Acronym Institute sem fylgdist með ráðstefnunni og
hefur flutt af henni fréttir á vefsíðunni www.acronym.org.uk/npt/index.htm. Fyrri
ráðstefnum (þ.á.m. tveim síðustu 1995 og 2000) hefur stundum lokið með
lokaskjali sem hefur gefið fyrirheit um að aðildarríki samningsins muni vinna
enn frekar að markmiðum hans, sem eru annars vegar að hefta útbreiðslu
kjarnorkuvopna og hins vegar að útrýma kjarnorkuvopnum með öllu. Lokayfirlýsing
þessarar ráðstefnu var hins vegar innantómt formsatriði. Margir telja Bandaríkin bera höfuðábyrgð á árangusrleysi ráðstefnunnar. Þau
hafi engan vilja sýnt til að stuðla að árangri enda er það yfirlýst stefna
bandarískra stjórnvalda að efla kjarnorkuvopnabúnað sinn. En þótt ráðstefnan sjálf hafi ekki borið mikinn árangur er ýmislegt
jákvætt í gangi. 21. apríl samþykkti öldungadeild belgíska þingsins ályktun
um kjarnorkuafvopnun og krafðist þess að öll bandarísk kjarnorkuvopn í Belgíu
verði flutt brott, en Belgía er eitt af sex NATO-ríkjum í Evrópu þar sem eru
bandarísk kjarnorkuvopn. Í byrjun maí, við upphaf NPT-ráðstefnunnar, sagði
Joschka Fischer utanríkisráðherra Þýskalands að hugsanlegt væri að
ríkisstjórnarflokkarnir hefðu frumkvæði að því að öll kjarnorkuvopn yrðu
flutt frá Þýskalandi og skömmu seinna tilkynnti Peter Struck
varnarmálaráðherra að hann hygðist taka málið upp innan NATO. Varnarmálaráðherra
Frakklands, Michele Alliot-Marie, hefur tekið undir með hinum þýska
starfsbróður sínum og einn af leiðtogum belgískra sósíaldemókrata, Dirk van
der Maelen, hefur lýst því yfir að ríkisstjórn Belgíu ætti að hafa frumkvæði
að því innan NATO að öll kjarnorkuvopn verði fjarlægð frá Evrópu enda væri
það í stefnuskrá Flæmska sósíalistaflokkins að Evrópa yði lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði. Ályktunartillaga um brottflutning kjarnorkuvopna
hefur nú verið lögð fyrir belgíska þingið. http://www.motherearth.org/news/news.php |
|
|