|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Alþjóðasamtök
herstöðvaandstæðinga
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
24. febrúar 2005 Herstöðvaandstæðingar frá 18 löndum í öllum heimsálfum notuðu tækifærið
til að ráða ráðum sínum þegar þeir komu saman í Upphaf þessa samstarfs má rekja til ráðstefnu sem var haldin í Í ljósi þessa þótti ástæða til að hefja markvissari baráttu gegn
herstöðvum Bandaríkjanna og samhæfa þessa baráttu betur víða um heim. Í
kjölfarið var komið á fót póstlista á netinu til umræðu og upplýsingamiðlunar
og nú eiga fulltrúar frá 48 löndum aðild að honum og eru SHA þar á meðal. Á fjórða
alþjóðlega sósíalforum í Mumbai á Indlandi í janúar 2004 var notað tækifærið
til að koma saman og ræða málin. Þá var rætt um að koma þessu samstarfi á
fastara form og skipuleggja alþjóðlega ráðstefnu herstöðvaandstæðinga. Á fundinum í Porto Alegre var rætt um hvers konar form skyldi vera á
þessu samstarfi og voru menn á því að hafa þetta allavega enn um sinn
lauslegt samstarf, svokallað „network“ en
þó var samþykkt að gefa þessu bandalagi nafn sem er á ensku International
Network Against Foreign Military Bases en hafa jafnframt til daglegs
brúks styttra heiti: NO-BASES Network. Þegar hugmyndin að þessu bandalagi kom fyrst upp var einkum rætt um
bandarískar herstöðvar. Síðan hefur verið rætt um hvort væri rétt að láta
þetta ná til baráttu gegn herstöðvum almennt en að svo komnu máli er
niðurstaðan sú að einbeita sér að erlendum herstöðvum þó að menn séu nokkuð
sammála um að vera á móti öllum herstöðvum og þá líka þeim herstöðvum sem
herveldin hafa heima fyrir. En í reynd verður megináhersla væntanlega lögð á
baráttu gegn hinu yfirþyrmandi og sívaxandi herstöðvaneti Bandaríkjanna. Á fundinum var líka rætt um skipulagningu alþjóðlegrar ráðstefnu
herstöðvaandstæðinga. Myndaður var starfshópur til að undirbúa hana og er
stefnt að því að hún verði snemma árs 2006. Ekki er enn ljóst hvar hún verður
haldin. Önnur alþjóðleg ráðstefna um herstöðvar er í undirbúningi á Kúbu dagana
7.-10. nóvember að frumkvæði þarlendra samtaka. Væntanlega verður hægt að
nýta þá samkomu til að hittast og ræða hið alþjóðlega samstarf og
ráðstefnuundirbúninginn frekar. Enn sem komið er hefur þetta alþjóðlega samstarf fyrst og fremst falist í
því að skiptast á skoðunum og upplýsingum. Rætt hefur verið um hvernig sé
hægt að samhæfa baráttuna þannig að hún ná betri slagkrafti og meðal annars
hafa verið uppi hugmyndir um að skipuleggja alþjóðlegan baráttudag gegn
herstöðvum Unnið hefur verið að því að koma upp vefnum www.nobases.org þar
sem hvert land hefur sínar síður og er nú smám saman að koma efni inn á hann,
m.a. um Ísland. Þá er í vinnslu kort yfir bandarískar herstöðvar og eru drög
að því aðgengileg á netinu á slóðinni: http://respectsacredland.org/no-us-bases/ Að lokum samþykktu fundarmennn að hvetja til öflugra mótmæla gegn hernámi
Íraks, styrjöldum almennt og hernaðarhyggju dagana 19.-20. mars. Skýrslu um fundinn í Porto Alegre má finna á pdf-formi á slóðinni: www.tni.org/acts/wsf5bases.pdf |
|
|