|
Einar Ólafsson |
Við eigum völ á öðruvísi
veröld |
NPT-samningurinn og
kjarnorkuafvopnun
|
|
eftir Einar Ólafsson
|
|
Samningurinn um að hefta útbreiðslu kjarnavopna eða á ensku Treaty on the Non-Proliferation of Nuclear Weapons,
var gerður 1. júlí 1968 en tók gildi 5. mars 1970. Oft er samningurinn stuttnefndur á ensku Non-Proliferation
Treaty eða NPT-samningurinn. Ísland er meðal stofnaðila að samningnum (1) en aðeins þrjú ríki hafa
ekki fullgilt hann: Indland, Helstu atriði NPT-samningsins
Í inngangi samningsins lýsa samningsaðilar yfir „þeirri ætlun sinni að
stöðva kjarnavopnakapphlaupið eins fljótt og auðið er og 6. grein samningsins þykir mörgum mjög mikilvæg.
Skv. henni skuldbinda samningsaðilar sig „til þess að halda áfram í góðri trú
samningum um raunhæfar ráðstafanir varðandi stöðvun
kjarnorkuvopnakapphlaupsins innan skamms tíma og eyðingu kjarnavopna og um
samning um almenna og algjöra afvopnun undir ströngu og raunhæfu, alþjóðlegu
eftirliti.“ Í 7. grein er þess sérstaklega getið að ekkert í
samningnum raski rétti hvaða ríkjahóps sem er til að Í 8. grein er ákveðið að fimm árum eftir
gildistöku samningsins skuli haldin ráðstefna til að endurskoða framkvæmd
hans en síðan geti meirihluti samningsaðila fengið ráðstefnur kallaðar saman
á fimm ára fresti til endurskoðunar hans. Í 10. grein
er kveðið á um að 25 árum eftir gildistöku samningsins skuli kalla saman
ráðstefnu til að ákveða hvort samningurinn eigi að vera áfram í gildi. Þau ríki sem eru skilgreind og viðurkennd sem kjarnorkuvopnaríki (stundum
nefnd P-5 ríkin) í samningnum eru: Bretland,
Bandaríkin, Rússland (áður Sovétríkin), Frakkland og Kína. Bretland, Bandaríkin og Rússland voru stofnaðilar en
Frakkland og Kína fullgiltu samninginn ekki fyrr en 1992. A.m.k. þrjú önnur
ríki eiga kjarnorkuvopn (stundum nefnd D-3 ríkin), Indland, Pakistan og
Ísrael. Ekkert þeirra á aðild að samningnum. Nokkur önnur ríki hafa á
undanförnum árum verið talin eiga kjarnorkuvopn eða vera að koma sér þeim
upp: Írak, Íran, Norður-Kórea, Líbýa og Sýrland (2). Þau hafa öll fullgilt samninginn. Þá voru Suður-Afríka og
Brasilía einnig farin að vinna að því að koma sé upp kjarnorkuvopnum á sínum
tíma en voru þá ekki orðin aðilar að samningnum. Sú gagnrýni hefur komið fram að hugtakið kjarnorkuvopn er
hvergi skilgreint í samningnum en stórveldin urðu ásátt um að hann tæki ekki
til burðartækja fyrir kjarnorkuvopn. Þessi skilningur var nauðsynlegur til að
samningurinn gengi ekki í berhögg við ýmsa samninga og skuldbindingar ríkja
innan NATO og eflaust einnig Varsjárbandalagsins. Þannig getur samningurinn
t.d. ekki hindrað staðsetningu bandarískra kjarnorkuvopna í Þýskalandi,
Ítalíu, Hollandi og Belgíu, svo nokkur NATO-ríki séu nefnd, á meðan þessi
vopn eru undir bandarískri stjórn (3). Það er mikilvægt að átta sig á að samningurinn byggist í
grundvallaratriðum á samkomulagi milli tveggja ríkjahópa: kjarnorkuvopnalausu
ríkin samþykktu að koma sé ekki upp kjarnorkuvopnum gegn því að
kjarnorkuvopnaríkin bindu enda á kjarnorkuvopnakapphlaupið innan skamms tíma
og tækju síðan til við algjöra afvopnum. NPT-samningurinn 1970-1990
Ráðstefnur til endurskoðunar samningsins hafa verið haldnar
á fimm ára fresti frá gildistöku hans. Þegar fyrsta ráðstefnan var haldin
árið 1975 höfðu 91 ríki fullgilt samninginn. Á ráðstefnunni lýstu mörg
ríkjanna, sem ekki áttu kjarnorkuvopn og stóðu utan við vestur- og
austurblokkir kalda stríðsins, óánægju sinni með það sem þau kölluðu einhliða
túlkun samningsins og fólst í að megináhersla var lögð á skyldur þeirra en
síður litið til réttinda þeirra (í samningnum eru ákvæði um jafnrétti til
friðsamlegar nýtingar kjarnorku) eða skyldna kjarnorkuvopnaríkjanna.
Sérstaklega var litið til þess hvort kjarnorkuvopnaríkin hefðu staðið við
skuldbindingar sínar gagnvart 6. greininni. Bandaríkin og Sovétríkin töldu
hins vegar að með samningsviðræðunum sem kallað voru SALT I væru þau að
uppfylla þessar skuldbindingar. Þrátt fyrir ágreining lauk ráðstefnunni með
lokayfirlýsingu þar sem m.a. komu fram áhyggjur vegna vígbúnaðarkapphlaupsins
þrátt fyrir ákveðna áfanga í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna á
undanförnum árum og aðildarríkin, sérstaklega kjarnorkuvopnaríkin, voru hvött
til að vinna enn frekar að því að koma 6. greininni í framkvæmd. Þegar önnur ráðstefnan var haldin árið 1980 hafði
aðildarríkjunum fjölgað í 112. Umræðurnar voru að miklu leyti á svipuðum nótum
og árið 1975. En nú tókst ekki að ná samkomulagi um lokayfirlýsingu og
stafaði það einkum af ágreiningi varðandi 6. greinina. Kjarnorkuvopnalausu
ríkin kröfðust fullgildingar SALT II samingsins sem leiðtogar Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna undirrituðu árið 1979 en Bandaríkin heyktust á að fullgilda
eftir innrás Sovétríkjanna í Afganistan. Einnig gagnrýndu mörg hlutlaus ríki
aðstoð og samvinnu kjarnorkuvopnaríkjanna við ríki sem ekki áttu aðild að
samningnum og töldu að með því ynnu þau gegn markmiðum samningsins. Þá var
einnig til umræðu hvernig mætti tryggja öryggi kjarnorkuvopnalausu ríkjanna,
einkum hinna hlutlausu, en þau töldu þörf á því þar sem þeim væri meinað að
koma sér upp kjarnorkuvopnum. Við þriðju ráðstefnuna 1985 hafði aðildaríkjunum enn fjölgað
í 131. Sum ríki í Afríku og Mið-Austurlöndum lýstu þá áhyggjum yfir því að
Ísrael og Suður-Afríka væru að koma sér upp kjarnorkuvopnum, en hvorugt ríkið
var þá aðili að samningnum. Eins og á fyrri ráðstefnunum tveimur snerust
umræðurnar mest um 6. greinina og hversu lítt miðað í átt til afvopnunar. Í
því sambandi lýstu margir vonbrigðum sínum yfir því að þríhliða viðræður
Sovétríkjanna, Bretlands og Bandaríkjanna um bann við tilraunir með
kjarnorkuvopn sem hófust árið 1977 höfðu ekki haldið áfram eftir 1980. Þrátt
fyrir ágreining tókst að setja saman lokayfirlýsingu þar sem kom fram mikill
stuðningur við samninginn. Á þessari ráðstefnu lýstu margir yfir stuðningi
við möguleika á kjarnorkuvopnalausum svæðum sem getið er um í 7. grein
samningsins og fögnuðu Rarotonga-samningum um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Suður-Kyrrahafinu sem var lokið í ágúst 1985 og tók gildi árið eftir. Við fjórðu ráðstefnuna árið 1990 voru aðildarríkin orðin
140. Ennþá stóðu þó tvo af hinum viðurkenndu kjarnorkuvopnaríkjum (P-5 ríkjum),
Kína og Frakkland, utan samningsins. Þau gerðust ekki aðilar að honum fyrr en
1992 en höfðu þó áheyrnarfulltrúa á ráðstefnunni 1990. Á ráðstefnunni var upp
ágreiningur um ýmislegt, svo sem um friðsamlega notkun kjarnorku,
öryggisákvæði sem fjallað er um í 3. grein samningsins og tryggingu fyrir
öryggi kjarnorkuvopnalausu ríkjanna. Þótt ekki hefði komið til neinna brota á
fyrstu tveimur greinum samningsins voru nú uppi áhyggjur um að útbreiðsla
tæknilegrar þekkingar gæti leitt til „láréttrar“ útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Varðandi 6. greinina, sem kveður á um afvopnun, þótti nokkuð hafa þokast
áfram við að hægja á vígbúnaðarkapphlaupinu á undanförnum árum, en þó höfðu
mörg ríki, einkum utan Vesturlanda, áhyggjur af að þróun nýrra vopna á vegum
kjarnorkuvopnaríkjanna gæti leitt til „lóðréttrar“ útbreiðslu kjarnorkuvopna.
En aðalágreiningurinn varðaði framkvæmd 6. greinarinnar, sérstaklega varðandi
allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn, en um það atriði hafði líka
verið ágreiningur árið 1985. Enginn ágreiningur var þó um að takmarkið væri
slíkt allsherjarbann, spurningin var bara hvernig og hvenær. Á þessari
ráðstefnu var rætt um hlutverk Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Almennt
var álitið að öryggisákvæði hennar hefðu skipt miklu máli og ástæða væri til
að styrkja þau enn frekar. Hins vegar kvörtuðu mörg kjarnorkuvopnalaus ríki,
einkum þróunarríki, yfir því að þeim væri gert erfitt fyrir að koma sér upp
kjarnorkutækni til friðsamlegrar notkunar. Þá kom líka enn upp og enn sterkar
en fyrr umræðan um tryggingu fyrir öryggi kjarnorkuvopnalausu ríkjanna. Þá
var einnig áberandi stuðningur við kjarnorkuvopnalaus svæði. Þótt ekki tækist
að koma saman lokaályktun, ekki síst vegna ágreinings um 6. greinina, var
almennt álitið að ráðstefnan hefði verið árangursrík og meginniðurstaðan væri
eindreginn stuðningur við samninginn. Endurskoðunarráðstefnan 1995
Samningurinn kvað á um að eftir 25 ár skyldi tekin ákvörðun
um hvort hann ætti að vera áfram í gildi um óákveðinn tíma eða framlengdur um
ákveðinn tíma. Nú höfðu bæst við 38 aðildarrríki, þar á meðal Frakkland og
Kína, og þá voru þau orðin 178. Þetta var fyrsta ráðstefnan eftir að
Sovétríkin liðu undir lok og jafnframt voru nú öll hin viðurkenndu
kjanorkuvopnaríki (P-5 ríkin) orðin aðilar. Eins og við mátti búast var ágreiningur fyrst og fremst um
framkvæmd afvopnunarákvæðisins í 6. grein og öryggisákvæðin og ákvæðin um
friðsamlega notkun kjarnorku í 3. og 4. grein. Varðandi framkvæmd 6.
greinarinnar voru kjarnorkuvopnalausu ríkin almennt sammála um að kjarnorkuvopnaríkin
þyrftu að sýna meiri vilja til að ná takmarkinu um kjarnorkuafvopnun. Áhersla
var lögð á að viðræðum um um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn
(CTBT-samningurinn) lyki ekki seinna en 1996, eins og raunar varð, að sem
fyrst yrðu hafnar og til lykta leiddar viðræður um kjarnkleyf efni og að
kjarnorkuvopnaríkin skuldbindu sig til að til að ganga lengra í fækkun
kjarnorkuvopna en kveðið var á um í START II samningnum sem var undirritaður
1993 en hefur raunar enn ekki tekið gildi. Kjarnorkuvopnaríkin héldu því fram að vígbúnðarkapphlaupinu
væri lokið og vísuðu til fækkunar vopna í kjölfar START-samninga
Bandaríkjanna og Rússlands og að sömu tilhneigingar gætti hjá Bretlandi og
Frakklandi. En þrátt fyrir þetta var það álit margra annarra ríkja að í raun
héldi kjarnorkuvopnakapphlaupið áfram ef litið væri til tæknilegrar þróunar
kjarnorkuvopna að undanförnu. Meirihluti kjarnorkuvopnalausu ríkjanna,
sérstaklega þau hlutlausu, kröfðust þess að viðræðum um útrýmingu hverskyns
kjarnorkuvopna yrði hraðað. Það var mikið til einhugur um að myndun kjarnorkuvopnalausra
svæða stuðlaði að friði og öryggi bæði svæðisbundið og alþjóðlega og væru
skref í áttina að kjarnorkuvopnalausum heimi. Samningar um Afríku og
Suðaustur-Asíu voru þá í deiglunni og því var fagnað og einnig var áhugi á
myndun kjarnorkuvopnalauss svæðis í Mið-Austurlöndum. Hins vegar náðist ekki
samkomulag um tillögu Hvíta-Rússlands um kjarnorkuvopnalaust svæði í
Mið-Evrópu. Fram að þessu hafði aldrei verið upp ágreiningur um fyrstu
tvær greinar samningsins en nú héldu hlutlausu ríkin því fram með stuðningi
nokkurra annarra að sum kjornorkuvopnaríkin hefðu farið út fyrir bókstaf og
anda 1. greinarinnar með flutningi kjarnokuvopna sín á milli og með samvinnu
við hópa kjarnorkuvopnalausra ríkja vegna svæðisbundinna ráðstafana. Hins
vegar var ekki um nein brot að ræða gagnvart 2. greininni nema af hálfu Íraks
en hins vegar voru uppi áhyggjur um framkvæmd samkomulags um öryggisákvæði
milli Norður-Kóreu og Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Þá lýstu mörg ríki,
einkum í Mið-Austurlöndum, yfir áhyggjum vegna kjarnorkuvopnaþróunar Ísraels
og þær áhyggjur voru teknar upp í ályktun ráðstefnunnar um Mið-Austurlönd. Þar sem ráðstefnunni bar skylda til að afgreiða spurninguna
um hvort samningurinn ætti að gilda áfram um óákveðinn tíma eða tímabundið
gafst ekki tími til að afgreiða ýmis mál sem ágreiningur var um og þess vegna
afgreiddi hún enga lokaályktun. Þó að meirihluti aðildarríkjanna væri fylgjandi því að
samningurinn gilti áfram ótímabundið var enginn einhugur um það. En í ljósi
þess að meirihlutinn var því fylgjandi tók ráðstefnan ákvörðun um það að
samningurinn skyldi gilda áfram ótímabundið. Tvær aðrar ákvarðandi mynduðu
líka forsendu fyrir þessari ákvörðun. Fyrsta ákvörðunin var um að efla undirbúningsvinnuna að
endurskoðun samingsins samkvæmt ákvæðum 8. greinarinnar um
endurskoðunarráðstefnu á fimm ára fresti. Ákveðið var að halda árlega
undirbúningsfundi fyrir ráðstefnuna árið 2000 frá árinu 1997 og nánari
útlistun um hvernig vinnunni skyldi hagað. Önnur ákvörðunin var um grundvallaratriði og markmið
varðandi hindrun útbreiðslu kjarnorkuvopna og afvopnun. Lögð var áhersla á að
öll ríki gerðust aðilar að samningnum og þau ríki sem á vantaði hvött til
þess. Í öðru lagi var lögð áhersla á að samningurinn gengdi hlutverki sínu að
koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnorkuvopna. Í þriðja lagi var hnykkt á
nauðsyn afvopnunar. „Í þessu skyni staðfesta kjarnorkuvopnaríkin
skuldbindingu sína samkvæmt 6. grein um að halda áfram í góðri trú samningum
um raunhæfar ráðstafanir varðandi eyðingu kjarnorkuvopna.“ Til þess að
tryggja framkvæmd 6. greinarinnar var sagt nauðsynlegt að ljúka samningum um
allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn eigi síðar en árið 1996, að
taka upp samningaviðræður um bann við framleiðslu kjarnkleyfra efna sem hægt
yrði að nota í kjarnorkuvopn og að kjarnorkuvopnaríkin færu gagngert að fækka
kjarnorkuvopnum með það að markmiði að útrýma þeim. Í fjórða lagi var lögð
áhersla á mikilvægi kjarnorkuvopnalausra svæða, einkum þar sem spenna ríkti
og voru Mið-Austurlönd sérstaklega nefnd. Látin var í ljós ósk um að fleiri
kjarnorkuvopnalaus svæði væru orðin að veruleika þegar næsta
endurskoðunarráðstefna hæfist árið 2000. Í fimmta lagi var lögð áhersla á að
öryggi kjarnorkuvopnalausu ríkjanna yrði tryggt varðandi notkun eða hótun um
notkun kjarnorkuvopna og var vísað til nýlegrar ályktunar allsherjarþings SÞ
númer 984 frá 11. apríl 1995. Í sjötta og sjöunda lagi voru atriði varðandi
styrkingu Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og friðsamlega nýtingu
kjarnorku. Þá var einnig var samþykkt ályktun um Mið-Austurlönd. CTBT-samningurinn
Það gekk eftir að samningur náðist um allsherjarbann við
tilraunum með kjarnorkuvopn, CTBT-samningurinn, í september 1996. Nú hafa 175
ríki undirritað hann og 120 fullgilt hann. En samningurinn tekur ekki gildi
fyrr en 44 ríki sem tilgreind eru í viðauka við hann hafa fullgilt hann, en
það eru þau ríki sem hafa yfir að ráða kjarnorkuvopnum eða kjarnaofnum. Enn
hafa aðeins 33 af þessum ríkjum fullgilt hann en þessi eru eftir: Indland,
Pakistan og Norður-Kórea, sem hafa enn ekki undirritað hann, og Bandaríkin,
Kína, Kólumbía, Egyptaland, Indónesía, Íran, Ísrael og Víetnam, sem hafa
undirritað hann en ekki fullgilt. Alþjóðaráðstefnur hafa verið haldnar til að
þrýsta á um fulla gildistöku samningsins. Fastaráð samningsins í Vínarborg
telur að forsenda þess að samningurinn taki gildi sé að Bandaríkin fullgildi
hann. Þau voru meðal fyrstu ríkja til að undirrita hann og Bill Clinton lagði
áherslu á fullgildingu hans en öldungadeildin hafnaði því og ekki jukust
vonir um það með valdatöku Bush (4). Álit Alþjóðadómstólsins frá 1996 og
tillögur Malasíu á allsherjarþingum SÞ um eftirfylgni þess
8. júlí 1996 sendi Alþjóðadómstóllinn frá sér ráðgefandi
álit um lögmæti þess að hóta beitingu kjarnorkuvopna eða beita þeim.
Alþjóðdómstóllinn sendi þetta álit frá sér að beiðni Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna en dómstóllinn starfar á vegum þeirra. Þessi beiðni var
samþykkt með ályktun númer 49/75 K 15. des. 1994, en hún var lögð fyrir
þingið af hálfu aðildarríkja Samtaka hlutlausra ríka. Spurning var á þessa
leið: „Er hótun um beitingu eða beiting kjarnorkuvopna undir nokkrum
kringumstæðum leyfileg samkvæmt alþjóðalögum?“ Tillagan var samþykkt með 78
atkvæðum, á móti voru 43 ríki, þ.á.m. Ísland, 38 sátu hjá. Meðal þeirra sem
voru á móti og sátu hjá voru flest eða öll NATO-ríkin og mörg fyrrum
austantjaldsríki (5). Meginniðurstaða dómstólins var að hvorki beiting
kjarnorkuvopna né hótun um að beita þeim stæðist alþjóðalög. Þessi niðurstaða
var rækilega rökstudd, einkum út frá sérstöðu þessara vopna, gífurlegum
eyðingarmætti og afdrifaríkum afleiðingu ef þeim yrði beitt. Því væri notkun
þeirra ólögleg og þar með væri líka ólöglegt að hóta því að beita þeim. Með
þessu hafði dómstóllin svarað því sem allsherjarþingið lagði fyrir hann en að
eigin frumkvæði kvað hann líka upp úr með það að skuldbindingin í 6. grein
NPT-samningsins um eyðingu kjarnorkuvopna þýddi einfaldlega að öllum ríkjum
sem ættu kjarnorkuvopn bæri skylda til að eyða þeim. Þetta hefði verið
samþykkt af nær öllum ríkjum heims og sú samþykkt gilti líka fyrir þau þrjú
ríki sem ekki hafa fullgilt sáttmálann (6). Kjarnorkuvopnaríkin hafa reynt að beita rökum til að fara að
fara kringum dóminn en meirihluti ríkja heims hefur ekki fallist á þau rök.
Malasía lagði ályktunartillögu fyrir allsherjarþingið (nr. 51/45 M 10. des.
1996) haustið 1996 með tilvísun m.a. til 6. greinar NPT-samningsins og til
dómsins, um að öll ríki uppfylli skyldu sína varðandi kjarnorkuafvopnun með
því að hefja strax á næsta ári samningaviðræður með það fyrir augum að „ná
sem fyrst samkomulagi um bann við þróun, framleiðslu, prófun, staðsetningu,
birgðasöfnun, flutningi, hótun eða notkun kjarnorkuvopna og um undirbúning
eyðingu þeirra“, og var hún samþykkt í desember það ár með atkvæðum 115
ríkja. 22 ríki greiddu atkvæði gegn henni en 32, þ.á.m. Ísland, sátu hjá.
Þessi tillaga hefur síðan verið lögð fram á flestum þingum og hafa atkvæði
fallað á svipaðan hátt og hefur Ísland ýmist verið á móti eða setið hjá.
Meðal þeirra ríkja sem hafa verið á móti eða setið hjá eru flest eða öll
NATO-ríkin og mörg fyrrum austantjaldsríki og öll kjarnorkuvopnaríkin nema
Indland og Pakistan sem hafa greitt atkvæði með þessum tillögum. Rétt er að
geta þess að allsherjarþingið hefur tekið fyrir á undanförnum árum margar
aðrar ályktunartillögur sem snúast á einhvern hátt um kjarnorkuafvopnun og
verður það ekki rakið nánar hér (7). Kjarnorkuvopnalaus svæði
Eins og fram hefur komið er vikið að möguleikum á
kjarnorkulausum svæðum í NPT-samningnum og endurskoðunarráðstefnurnar hafa
hvatt til myndunar slíkra svæða. Rarotonga-samningurinn um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Suður-Kyrrahafinu var gerður árið 1985 og tók gildi árið eftir. Áður
hafði hafði verið samið um kjarnorkuvopnalaust svæði á Suðurskautslandinu
árið 1959 með gildistöku 1961, bann við tilraunum með kjarnorkuvopn í
andrúmsloftinu, geimnum og neðansjávar (PTBT-samningurinn, fyrirrennari
CTBT-samningsins) árið 1963, bann við staðsetningu kjarnorkuvopna á hafsbotni
(Seabed Arms Control Treaty eða Seabed Treaty) tók gildi árið 1972 og
Tlatelolco-samningurinn um kjarnorkuvopnalaust svæði í Rómönsku Ameríku og
Karíbahafinu var gerður árið 1967 en tók gildi 1968. Síðan hafa bæst við
Bangkok-samningurinn um Suðaustur-Asíu 1995 með gildistíma frá 1996 og
Pelindaba-samningurinn 1996, en hann hefur ekki enn komið til framkvæmda (8). Þannig hafa nú verið gerðir samningar um að mestallt
suðurhvel jarðar sé kjarnorkuvopnalaust svæði. Áhugi hefur verið fyrir myndun
kjarnorkuvopnalauss svæðis í Mið-Austurlöndum en hugmyndir um
kjarnorkuvopnalausa Mið-Evrópu hafa ekki náð fram að ganga. Lagðar hafa verið
fyrir allsherjarþingið tillögur um kjanorkuvopnalaus svæði í Mið-Asíu. Einnig
hafa verið uppi hugmyndir um kjarnorkuvopnalaus svæði í Suður-Asíu og
Norðaustur-Asíu sem tæki til Japans, Norður- og Suður-Kóreu, Tævan og hluta
Kína, Mongólíu og Rússlands. Þess hugmyndir eru þó vonlitlar nú í ljósi
afstöðu Norðu-Kóreu og Bandaríkjanna sem þyrftu væntanlega að vera aðilar að
slíku samkomulagi. Þá hafa líka hafa verið uppi hugmyndir um
kjarnorkuvopnalaus svæði á Norður-Atlantshafi og Norðurlöndum og
kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og grannsvæðum Norðurlanda er á
stefnuskrá hóps vinstrisósíalista og umhverfissinna í Norðurlandaráði. Einnig
hafa einstök lönd eins og Mongólía og Austurríki lýst yfir
kjarnorkuvopnaleysi og ríki innan kjarnorkulausra svæða, Filippseyjar og Nýja
Sjáland, hafa sett lög sem ganga lengra en hinar svæðisbundnu yfirlýsingar. Á
Alþingi Íslendinga hafa nokkrum sinnum verið lögð fram frumvörp um kjarnorkuvopnalaust
Ísland en verið hafnað með tilvísun til skuldbindinga Íslands gangvart NATO.
Loks er þess að geta að fjölmörg sveitarfélög víða um heim hafa samþykkt
yfirlýsingar um að viðkomandi sveitarfélög séu kjarnorkuvopnalaus svæði. Í
árslok 2002 höfðu 92 af 105 sveitarfélögum sem þá voru á Íslandi samþykkt
friðlýsingu fyrir kjarnorku-, sýkla- og efnavopnum (9). Endurskoðunarráðstefnan 2000
Í samræmi við ákvarðanir ráðstefnunnar 1995 var sett upp
undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna 2000 sem koma saman árlega síðustu þrjú
árin fyrir ráðstefnuna. Á fundum hennar var fyrst og fremst rætt um algildi
samningsins, þ.e. að öll ríki heims ættu að eiga aðild að honum, bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna, kjarnorkuafvopnun, viðræður um bann við
framleiðslu kjarnkleyfra efna fyrir kjarnorkuvopn, öryggistryggingu fyrir
aðildarríki NPT-samningsins, myndun kjarnorkuvopnalausra svæða, friðsamlega
notkun kjarnorku og ályktunina um Mið-Austurlönd sem var samykkt á
ráðstefnunni 1995. Á fundum nefndarinnar var áberandi ágreiningur milli
kjarnorkuvopnaríkjanna og aðildarríkja Samtaka hlutlausra ríkja (Non-Aligned
Movement – NAM) einkum um framkvæmd 6. greinarinnar. Varðandi kjarnkleyf
efni var sett upp nefnd á Afvopnunarráðstefnunni í Genf (10) en henni hefur ekki tekist að komast að niðurstöðu. Þegar kom að ráðstefnunni 2000 áttu aðeins fjögur ríki eftir
að fullgilda samninginn, Indland, Ísrael, Pakistan og Kúba. Þrátt fyrir
margvíslegan ágreining á ráðstefnunni tókst henni að koma sér saman um
lokaskjal, en það hafði ekki tekist síðan 1985 (11). Merkasta framlag hennar þykir þó vera samþykkt hennar um
13 skref til algerrar afvopnunar (12). Meðal þeirra má nefna:
En skref númer 6 er það sem mesta athygli hefur vakið og
oftast er vitnað til:
Endurskoðunarráðstefnan 2005: horfur ekki góðar
Síðasta endurskoðunarráðstefna var haldin 2. til 27. maí
2005. Í sem stystu máli má segja að hún hafi borið heldur lítinn árangur, en
annars vísast til tveggja greina sem birtust á Friðarvefnum 20. maí 2005,
„Baráttan gegn kjarnorkuvopnum og ábyrgð Bandaríkjanna“, og 3. júní 2005,
„Kjarnorkuvopnalaus Evrópa?“ (14). En þegar þetta er skrifað er staðan varðandi
kjarnorkuafvopnun ekki sérlega góð. Að margra mati hefur þróunin ekki gengið
eins og skyldi. Bretland, Frakkland og Rússland hafa staðfest CTBT-samninginn
en ekki Kína og Bandaríkin. Kínversk stjórnvöld hafa þó nýverið lýst yfir
stuðningi sínum við hann en bandarísk stjórnvöld hafa hins vegar lýst því
yfir að þau styðji hann ekki. Þótt öll kjarnorkuvopnaríkin, sem eiga aðild að
NPT-samningnum, hafi staðið við loforð sín um að stunda ekki
tilraunasprengingar hafa þau þróað aðrar aðferðir til að prófa
kjarnorkusprengjur og alla vega Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Rússland
hafa stundað slíkar prófanir og unnið að þróun nýrra kjarnorkuvopna. Varðandi
fækkun kjarnorkuvopna og skref í átt til eyðingar þeirra hefur þróunin orðið
hægari á undanförnum árum og jafnvel öfug í sumum atriðum. Að vísu var
undirritaður samningur í Moskvu í mars 2003 milli Bandaríkjanna og Rússlands
um að hvort ríki um sig fækki kjarnaoddum sínum í 1700 til 2200 á næstu tíu
árum. En bæði Bandaríkin og Rússland vinna að þróun nýrra tegunda
kjarnorkuvopna, bresk stjórnvöld hafa lýst því yfir að kjarnorkuafvopnun komi
ekki til í náinni framtíð, Frakkar hafa ekki gert neitt varðandi fækkun
kjarnorkuvopna síðan á árunum 1996-1998 og eru að þróa ný vopn og talið er að
Kína hafa bæði aukið og endurbætt kjarnorkuvopnabirgðir sínar. Í desember
2001 sögðu bandarísk stjórnvöld upp ABM-samningnum og tók uppsögnin gildi 13.
júní 2002 og START II samningurinn sem var undirritaður árið 1993 hefur enn
ekki gengið í gildi. 27. desember 2005 Einar Ólafsson (Uppfært 14. apríl 2009) (1) Auglýsing þar um er dagsett 23. okt.
1969 og birtist ásamt samningstextanum í C-deild Stjórnartíðinda 1969. Þar er
samningurinn kallaður Samningurinn um að dreifa ekki kjarnavopnum.
Enskan texta þessa samnings og annarra samninga á þessu sviði er hægt að
nálgast t.d. á vefslóðinni http://disarmament.un.org:8080/TreatyStatus.nsf. Um forsögu og upphaf samningsins er fjallað í 4. riti
Öryggismálanenfdar eftir Albert Jónsson og Þórð Ingva Guðmundsson, Samningar
um afvopnum og takmörkun vígbúnaðar, 1985, s. 45-48. Í þessu riti er
einnig fjallað um aðra samninga um afvopnun og takmörkun vígbúnaðar til
ársins 1985, bæði tvíhliða samninga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og
fjölþjóðasamninga. (2) The Acronym Institute for Disarmament Diplomacy
hefur tekið saman upplýsingar um þetta á vefsíðunni http://www.acronym.org.uk/wmd/index.htm. (3) Albert Jónsson og Þórður Ingvi
Guðmundsson, Samningar um afvopnun og takmörkun vígbúnaðar, 1985, s.
47. (4) Um CTBT-samninginn, sjá http://www.reachingcriticalwill.org/legal/ctbt/ctbtindex.html, http://www.acronym.org.uk/ctbt/ og vefsíðu undirbúningsnefndar CTBT-stofnunarinnar (CTBTO)
í Vín, http://www.ctbto.org. (5) Þessi ályktun er aðgengileg í gagnasafni SÞ, http://www.un.org/documents/resga.htm, en einnig á vef Malaysian
Institute for Nuclear Technology Research (MINT), http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga49_75K.htm.
(6) Um dóminn, sjá http://www.lcnp.org/wcourt/adlegalintro.htm, sjá líka
umfjöllun Elíasar Davíðssonar: http://www.aldeilis.net/islfrid/kjarnorku1.html
og http://www.aldeilis.net/islfrid/kjarnorku2.html.
Útdráttur dómstólsins sjálfs: http://www.icj-cij.org/icjwww/idecisions/isummaries/iunanaummary960708.htm.
Dómurinn í heild: http://www.icj-cij.org/icjwww/icases/iunan/iunan_judgment_advisory%20opinion_19960708/iunan_judgment_toc.htm
(7) Umræddar ályktanir má flestar finna á vef Malaysian Institute for Nuclear Technology
Research (MINT): http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga51_45M.htm http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga52_38O.htm http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga53_77W.htm http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga54_54Q.htm http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga55_33X.htm http://www.mint.gov.my/policy/nuc_disarm/unga56_24S.htm sbr. líka http://disarmament2.un.org/vote.nsf (8) Um kjarnorkuvopnalaus svæði, sjá http://www.nuclearfiles.org/redocuments/treaties-nwfz.html og http://www.tni.org/nukes-docs/nwfz.htm. Frumvarp um kjarnorkuvopnalaust Nýja-Sjáland,
Tlatelolco-samningurinn og samanburður á Rarotonga-samningnum og
Tlatelolco-samningnum eru birt á íslensku sem fylgiskjöl með frumvarpi um
friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorku- og eiturefnavopnum á þinginu 1999-2000, http://www.althingi.is/altext/125/s/0655.html. Umræður, tillögur og samningar um kjarnorkuvopnalausa
svæði með sérstakri áherslu á umræður um slíkt svæði á Norðurlöndum fram til
1982 er til umfjöllunar í 3. riti Öryggismálanefndar eftir Þórð Ingva
Guðmundsson, Kjarnorkuvopnalaus svæði. Tillögur á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og umræður á Norðulöndum. 1982 (9) http://fridur.is/listi.asp?nr=208. (10) Confernece on Disarmament (D-CD),
sem sett var á fót á vegum SÞ 1979, hefur ásamt allsherjarþinginu verið
aðalvettvangur umræðna um afvopnunarmál og vígbúnðareftirlit en hefur verið
meira og minna óstarfhæf vegna ágreinings síðan 1996. (11) http://www.reachingcriticalwill.org/legal/npt/2000FD.pdf. (12) http://www.reachingcriticalwill.org/legal/npt/13point.html. (13) Um endurskoðunarráðstefnuna 2000, sjá: http://disarmament2.un.org/wmd/npt/nptrevhome.html
og ítarlega skýrslu í tímariti The Acronym Intistute, Disarmament
Diplomacy, no. 46, maí 2000: Rebecca Johnson, „The 2000 NPT Review
Conference: A Delicate, Hard-Won Compromise“, http://www.acronym.org.uk/46npt.htm. Um hvort skrefin
þrettán hafi verið stigin: NGO Shadow
Report on Nuclear Disarmament: Accountability is Democracy Transparency is
Security. Nuclear Weapon States’
Compliance with the 13 Steps http://www.reachingcriticalwill.org/legal/npt/shadowreport/13steps.pdf (14) Um endurskoðunarráðstefnuna 2005,
sjá: http://www.acronym.org.uk/npt/index.htm og http://www.reachingcriticalwill.org/legal/npt/nptindex1.html#docs. |
|
Helstu atriði NPT-samningsins NPT-samningurinn 1970-1990 Endurskoðunarráðstefnan 1995 CTBT-samningurinn Álit Alþjóðadómstólsins frá 1996 og tillögur Malasíu á
allsherjarþingum SÞ um eftirfylgni þess Kjarnorkuvopnalaus svæði Endurskoðunarráðstefnan 2000 Endurskoðunarráðstefnan 2005: horfur ekki góðar |
Einar Ólafsson – forsíða – greinar