|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Einkavæðingu mótmælt í Pakistan, þjóðnýtingar krafist í Bólivíu
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
4. júní 2005 Oftar en marga grunar eru verkföll og almenn mótmæli víða um heim gegn
einkavæðingu og öðrum aðgerðum í anda nýfrjálshyggjunnar. Fréttir um slíkt berast
sjaldnast hingað gegnum íslenska fjölmiðla og þá í skötulíki. Oft er talað um
að heimurinn sé að skreppa saman, á tímum hnattvæðingar er talað um
heimsþorpið. Og satt er það að þróunin er mjög sú sama um allan heim og
samtengd, stefna sú sama, nýfrjálshyggja og sama stórfyrirtækið að störfum í
ótal löndum. En samt þykir varla taka því að nefna það þótt liggi við
byltingarástandi í landi eins og til dæmis Bólvíu. Þá getur orðið ansi langt
endanna milli í heimsþorpinu. Þó hefur eitthvað verið minnst á ólgu í Bólivíu að undanförnu. Þessi ólga
hófst í fyrri hluta maí og 16. maí söfnuðust um 100 þúsund manns saman fyrir
framan þinghúsið í höfðuðborginni La Paz. Þetta voru aðallega verkamenn,
bændur, kennarar og námsmenn frá El Alto sem er 770 þúsund manna bær eða
nánast fátækrahverfi rétt utan við La Paz, að mestu byggt frumbyggjum sem eru
meirihluti íbúanna í Bólivíu.. Upphafið má reyndar rekja mörg ár til baka.
Árið 1985 voru olíuiðnaður Bólivíu einkavæddar. Þá þegar hófst andóf gegn
þessari einkavæðingu og nýfrjálshyggjunni sem hefur einungis aukið á fátækt
frumbyggjanna. Á 10. áratug síðustu aldar uppgötvuðust miklar gaslindir sem
einnig voru einkavæddar. Síðla árs 2003 jaðraði við uppreisnarástandi í
landinu þegar alþýða manna krafðist þess að olíu- og gasiðnaðurinn yrði
þjóðnýttur. Þetta hefur verið kallað gasstríðið, og það stendur enn.
Forsetinn, Gonzalez Sánchez de Lozada, hrökklaðist frá völdum en við tók
varaforsetinn, Carlos Mesa. Þá voru reyndar liðin rúm þrjú ár frá því að
uppreisn varð í bænum Cochabamba eftir að vatnið var einkavætt og fyrirtækið
Bectel fékk einkarétt á því. Þannig tengist nú Cochabamba og Reyðarfjörður í
heimsþorpinu. Mesa komst til valda meðal annars vegna loforða um að þjóðnýta
gasiðnaðinn. En hann hefur verið milli steins og sleggju þar sem
annars vegar eru olíufyrirtækin og innlendir og erlendir auðmenn en alþýðan
hins vegar. Stjórnin ákvaða að hækka skatta á olíu- og gasvinnsluna. Það var
of mikið að dómi olíufyrirtækjanna en alþýðan krafðist þjóðnýtingar. Í raunni
eru þessir atburðir framhald langvinnra átaka í landi þar sem mikil fátækt
ríkir og arðránið hefur aukist enn frekar með einkvæðingu og öðrum aðgerðum í
anda nýfrjálshyggjunnar. Og eins og oftast þegar langur aðdragandi er að atburðum
er bakgrunnur þeirra flókanri en skýrt verður í stuttri grein. Í fréttum
hefur verið talað um kröfur um aukna sjálfstjórn héraða. Frumbyggjarnir hafa
löngum krafist meiri sjálfstjórnar en nú er aðallega um að ræða kröfur um
aukna sjálfstjórn Santa Cruz og Tarija héraðanna austast og syðst í landinu
þar sem helstu gaslindirnar eru. Þær kröfur koma einkum frá auðstéttinni sem
vill með því verða óháðari stjórninni í La Paz og áhrifum uppreisnargjarnrar
alþýðu á hana, en frumbyggjarnir og verkalýðs- og bændahreyfingin í þessum
héruðum eru andvíg þessum kröfum. Að undanförnu hafa tugir þúsunda safnast saman á strætum og torgum La Paz
og jafnframt hefur verið ólga í Santa Cruz. Enn sér ekki fyrir endann á
gasstríðinu í Bólivíu. Meðan alþýða Bólivíu berst fyrir þjóðnýtingu olíu- og gasiðnaðarins er
háð hörð barátta hinum megin á hnettinum, í Pakistan, gegn einkavæðingu
símans. 26. maí skipulagði Verkamannaflokkur Pakistan mótmælaaðgerðir gegn
einkavæðingunni og síðan hefur baráttan haldið áfram. 62 þúsund verkamenn í
níu verkalýðsfélögum hafa tekið þátt í verkföllum og mótmælaaðgerðum og hafa
hótað því að loka öllum símalínum 6. júní ef stjórnin verður ekki við kröfum
þeirra. Allar einkavæðingaráætlanir stjórnarinnar eru í uppnámi vegna þessa. (7. júní. Þessi grein var skrifuð 4. júní. Átökin héldu
áfram í landinu og 6. júní bauðst Mesa til að segja af sér en óeirðir héldu
samt áfram. Þá fór fréttaflutningur heldur að aukast hérna megin í
heimsþorpinu.) Sjá nánar um Bólvíu: Sjá nánar um Pakistan: |
|
|