|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Ríkisstjórnarsamstarf með beisku bragði
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
10. maí 2009
Klukkan
rúmlega 9 í morgun hófst flokksráðsfundur Vinstri grænna. Fyrir þennan fund
var lögð samstarfsyfirlýsing Vinstri grænna og Samfylkingar - yfirlýsing um
ríkisstjórnarsamstarf. Eftir miklar umræður var hún samþykkt með meirihluta
atkvæða á þriðja tímanum. Um þessa
yfirlýsingu má hafa ýmis orð, hún er auðvitað málamiðlun og í henni er margt
gott, ýmislegt sem betur mætti fara og einhvers er kannski að sakna sem þar
ætti að vera. Ein ríkisstjórn á ekki - og getur ekki - starfað eftir
einhverri fullkominni starfskrá, mörg verkefni ríkisstjórna eru þess eðlis að
hún verður að vinna úr þeim eftir því sem aðstæður leyfa. Og því er það með þessa yfirlýsingu, að þótt inntak
hennar sé mikilvægt svo langt sem það nær, þá er hitt jafnmikilvægt hvernig
spilað verður úr því. Eitt mál var
það sem helst stóð í mörgum fundarmönnum. Það var ESB-málið. Á landsfundi
Vinstri grænna í mars var samþykkt afdráttarlaust að VG teldi „að
hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins". Jafnframt
sagði í yfirlýsingu fundarins: „Landsfundur VG leggur áherslu á að
aðild Íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu." Margir félagar
í VG telja að með þessu hafi fundurinn hafnað því að VG standi að
aðildarumsókn, en verði umsókn lögð fram verði niðurstaðan lögð undir
þjóðaratkvæði. Í
samstarfsyfirlýsingunni, sem flokksráð VG samþykkti í dag, var sagt eitthvað
á þá leið (ég er ekki með hana við höndina þegar ég skrifa þetta), að
utanríkisráðherra muni leggja fyrir vorþingið (þ.e. nýhafið þing) tillögu um
aðildarumsókn. Síðan er sagt að báðir flokkar virði sjónarmið hins og með því
er opnað fyrir að þingmenn VG geti greitt atkvæði gegn tillögunni án þess að
setja stjórnarsamstarfið í uppnám. Þetta er ekki
hægt að túlka öðruvísi en svo að VG standi að þessari aðildarumsókn, jafnvel
þótt allir þingmenn greiði atkvæði gegn henni. Með þessari yfirlýsingu hefur
VG einfaldlega, ásamt Samfylkingunni, falið utanríkisráðherra að leggja
tillögu um aðildarumsókn fyrir þingið. Sjálfur er ég
eindregið á móti aðild að ESB og ég tel mótsögn í því fólgna að standa að
aðildarumsókn ef ég er fyrirfram á móti aðild, ef ég sem sagt hef ekki trú á
því að aðildarviðræður mundu skila einhverju sem ég gæti stutt. Þetta á við
um mig persónulega og þetta tel ég að eigi líka að eiga við um Vinstrihreyfinguna
- grænt framboð. Hér tel ég að
Samfylkingunni hafi tekist að þvinga forystu VG til að samþykkja þessa
málsmeðferð þar sem stjórnarsamstarf hefði ella ekki verið í boði. Þetta atriði í
samstarfsyfirlýsingunni gat ég ekki samþykkt og greiddi því atkvæði gegn
henni. Það var mér svo sem ekki ljúft, því að ég styð ég hana að öðru leyti
og þessa ríkisstjórn. Sjá líka: Þingið
greiði atkvæði - til þess er það Samstarfsyfirlýsing
ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs |
|
|