Bandaríkjaher
á Íslandi
Birtist í
Fréttablaðinu 10. nóv. 2004
Í Fréttablaðinu 8. október er vikið að sögugöngu Samtaka
herstöðvaandstæðinga um „mótmælaslóðir“ á laugardaginn og sagt að það hafi
verið vel við hæfi því sjálf séu samtökin fyrir löngu orðin sögulegt fyrirbæri
sem fáir aðrir en miðaldra og eldri borgarar landsins hafi heyrt um. En þessi
samtök eru reyndar í fullu fjöri þótt það sé auðvitað markmið þeirra að gera
sig óþörf. Ungt fólk hefur að undanförnu verið að ganga í samtökin, ungt fólk
sem veit að þessi samtök eru í forystu fyrir friðarbaráttu hér á landi,
skipuleggja mótmælaaðgerðir gegn stríðinu í Írak, halda uppi baráttu gegn
kjarnorkuvopnum, andæfa uppbyggingu íslensks hers í dulbúningi friðargæsluliðs,
taka þátt í alþjóðlegu samstarfi friðarhreyfinga og eru með í að byggja upp
alþjóðlegt samstarf herstöðvaandstæðinga. Það er útlit fyrir að starfsemi
herstöðvarinnar hér dragist saman en ekki að hún verði lögð niður né heldur að
Ísland gangi úr NATO. Því miður er baráttunni ekki lokið og margt ungt fólk
veit það.