Einar Ólafsson forsíða greinar
Birtist
í Fréttablaðinu 28. febrúar 2004
Ríkisstjórnin hefur boðað
lög um skattalækkanir þegar að loknum yfirstandandi kjarasamningum. „Ef
samningar takast á næstu dögum eða vikum þá er komið að ríkisstjórninni að
skila sínu í þeim efnum,“ er haft eftir fjármálaráðherra í Fréttablaðinu 24.
febrúar. Þannig virðist fjármálaráðherra setja þetta sem innlegg í þessar
samningaviðræður í þeirri von að verkalýðshreyfingin líti á það sem kjarabót og
sætti sig þar með við hóflegar launahækkanir.
Það er hins vegar
ákaflega hæpið að líta á skattalækkanir sem kjarabætur. Megintilgangurinn með
sköttum er að standa undir kostnaði við velferðarkerfið, heilbrigðiskerfið,
skólakerfið o.s.frv. Ef þessi kostnaður er ekki greiddur gegnum skattana þarf
að greiða hann einhvern veginn öðru vísi. Gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu er
þegar hafin. Og tal um skólagjöld verður æ háværara. Annar megintilgangur
skattkerfisins er jöfnun lífskjara. Þess vegna eru borgaðir hærri skattar af
háum launum en lágum. Þannig eru kostnaður lágtekjufólks vegna
heilbrigðisþjónustu, skólagöngu o.þ.h. niðurgreiddur. Með skattalækkunum er
dregið úr þessari niðurgreiðslu. Þær valda sem sagt auknum útgjöldum hjá
láglaunafólki. Þess vegna verður verkalýðshreyfingin að bregðast við boðuðum
skattalækkunum með hærri launakröfum til handa láglaunahópunum.
© Einar
Ólafsson
Sjá
aðrar greinar um skattamál:
Ögmundur
Jónasson: Skattastefna VG er ávísun á
kjarabætur
http://www.ogmundur.is/news.asp?ID=654&type=one&news_id=1132
Atli Gíslason:
Skattastefna ríkisstjórnarinnar - umhyggja fyrir
auðmönnum
http://vg.is/postur/?t=obj&oid=357
Steingrímur
J. Sigfússon: Velferð eða skattalækkanir?
Einar Árnason
og Ólafur Ólafsson: Skattalækkun, fyrir hverja?
http://www.feb.is/htm/hagsmunamal/hagfraedi/skattlaekun.htm
Einar Árnason
og Ólafur Ólafsson: Óþolandi útúrsnúningar
stjórnvalda
http://www.feb.is/htm/hagsmunamal/hagfraedi/otholandi.htm