Einar Ólafsson  forsíða  greinar


 

 

Tókýó-yfirlýsingin 26. maí 2003

 

lauslega þýtt – eó

Frumtextinn er aðgengilegur á slóðinni

http://www.stopwar.org.uk/article.asp?id=260503

 

Alþjóðlega samstöðuráðstefnan var haldin í Ósaka og Tókýo 24.-25. maí 2003 til að fjalla um áhyggjur almennings vegna hernámsins í Írak og æ víðtækari aðgerða víðs vegar um heim í anda ný-heimsvaldastefnunnar undir forystu Bandaríkjanna.

 

Við höfum rætt og komist að niðurstöðu um eftirfarandi grundvallandi greiningar á núverandi stöðu í alþjóðmálum og samþykkt eftirfarandi alþjóðlega aðgerðaáætlun. Við setjum þessa yfirlýsingu fram í samhengi við Kaíró-yfirlýsinguna frá desember 2002. og ætlum henni að styrkja alþjóðlega baráttu gegn heimsvaldastefnunni.

 

Baráttan gegn stríði við Írak sem háð var um allan heim þróaðist yfir í gífurlega mikla alþýðuhreyfingu til að stöðva stríðið áður en það byrjaði. Með þessari baráttu tókst að einangra herskáustu talsmenn alþjóðakapítalismans og stríðsstefnunnar og fresta stríðáætlunum þeirra um marga mánuði. Þótt okkur tækist ekki að koma í veg fyrir stríðið að þessu sinni verður það sjálfstraust sem almenningur ávann sér gegnum þessa baráttu ekki aftur tekið.

 

Það er hlutverk þjóða heims að umbylta og leysa upp núverandi styrjaldarkerfi hnattvæðingarinnar sem setur einokunaröfl auðvaldsins ofar hagsmunum almennings. Fyrir alla muni verðum við að kom í veg fyrir fyrirbyggjandi árásir á Norður-Kóreu þar sem hættan á notkun kjanorkuvopna verður notuð sem átylla.

 

Við, þátttakendur í Alþjóðlegu samstöðuráðstefnunni, leggjum áherslu á:

 

Alþjóðlega

 

  1. Við krefjumst þess að hernámslið Bandaríkjanna og Bretlands verði tafarlaus dregin til baka og við lýsum því yfir að hernámið er svívirðilegt og skammarlegt brot á alþjóðalögum.

 

  1. Við krefjumst rannsóknar á stríðglæpum í Írak og að sá veruleiki sem fórnarlömb stríðsins búa við verði dreginn fram í dagsljósið. Við krefjumst þess að komið verði á fót alþjóðlegri eftirlitsmiðstöð lýðræðis í Írak til að tryggja öryggi írösku þjóðarinnar, réttlæti og sjálfsákvörðunarrétt.

 

  1. Við leggjum til að stofnaður verði alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll alþýðunnar (an international Peoples’s War Crimes Tribunal) til að láta Bush, Blair og aðra stríðglæpamenn standa fyrir máli sínu vegna stríðsglæpa sinna og láta þá biðjast afsökunar og greiða skaðabætur.

 

  1. Við fordæmum öll fyrirtæki sem hagnast á styrjöldum og hernámum víðsvegar um heim, svo sem Bechtel, Halliburton, Caterpillar o.s.frv.

 

  1. Við fordæmum fjölmiðlafyritæki eins og Fox, CNN, BBC, NHK, Murdoch, sem færa almenningi falskar upplýsingar um styrjaldir og þjóna hagmunum hinna pólitísku forréttindahópa í stað almennings sem þeir ættu að vera ábyrgir gagnvart.

 

  1. Við viljum stöðva öll frekari stríð sem í bígerð eru í nafni heimsvaldastefnunnar undir forystu Bandaríkjanna áður en þau hefjast. Við lítum svo á að Norður-Kórea, Sýrland, Íran og Kúba séu í mestri hættu nú og lýsum samstöðu okkar með alþýðu þessara landa.

 

  1. Við krefjumst þess að bundinn verði endir á hernám Ísraela í Palestínu, að landnemabyggðir Ísraela verði leystar upp og sjálfsákvörðunarréttur og mannréttindi Palestínumanna verði viðurkennd.

 

  1. Við horfumst í augu við hrikalega ógn síonismans gagnvart Palestínumönnum og skuldbindum okkur til að styðja Palestínumenn í baráttu sinni fyrir að fá að lifa í eigin landi.

 

  1. Við fordæmum hernaðarlegan, efnahagslegan og pólitískan stuðning Bandaríkjastjórnar við glæpi síonista gagnvart Palestínumönnum og krefjumst þess að hún láti af þessum stuðningi og geri Ísrael ábyrgt gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum.

 

Svæðisbundið

 

  1. Við styðjum alþjóðlegu ráðstefnuna gegn stríði í Suður-Kóreu og Japan 15. ágúst 2003 og alþjóðlegu friðaraðgerðirnar 27. september gegn hernámi Íraks, heimsvaldastefnu undir forystu Bandaríkjanna og til að minnast intifada (uppreisn) Palestínumanna.

 

  1. Við styðjum and-kapítalísku hreyfingarnar í Suður-Kóreu í baráttu þeirra gegn heimsvaldastefnunni undir forystu Bandaríkjanna og gegn stríði, sérstaklega gegn stríði á Kóreu-skaganum.

 

  1. Við andæfum hverskyns fyrirbyggjandi árásum undir forystu Japans og Bandaríkjana gegn Norðu-Kóreu undir fölsku yfirskyni kjarnorkuógnunar.

 

  1. Við andæfum hverskyns íhlutun Bandaríkjanna á Kyrrhafssvæði Asíu, hvort sem er efnhagsleg eða hernaðarleg, og krefjumst þess að þær þjóðir sem búa á þessu svæði fái að ráða málefnum þess.

 

  1. Við andæfum hverskyns heimsvaldatilburðum Japans og fordæmum stuðning Japans við heimsvaldasinnaðar aðgerðir undir forystu Bandaríkjanna.

 

Staðbundið

 

  1. Við lýsum því yfir að „stríðið gegn hryðjuverkum“ undir forystu Bandaríkjanna er yfirskyn fyrir enn frekari sókn heimsvaldastefnunnar og fyrir skerðingu borgaralegs frjálsræðis og glæpsamlegri kynþáttahyggju heima fyrir.

 

  1. Þessi alþjóðlega alþýðuhreyfing er grasrótarhreyfing gegn heimsvaldastefnunni, heimsvaldstefnu þar sem  sem Bandaríkin ráða förinni. Við hvetjum almenning hvarvetna til að skipuleggja eigin andstöðu á heimaslóðum sínum, á vettvangi skóla og vinnustaða, á götunum

 

26. maí 2003, Tókýó

 

 

Samþykkt af fulltrúum eftirtalinna samtaka:

Lýðræðislega sósíalistahreyfingin (Japan)
Zenko (Japan)
Linking Peace and Life (Japan)
Global Peace Action (Japan)
Global Exchange (Bandaríkin)
A.N.S.W.E.R. (Bandaríkin)
International Action Center (Bandaríkin)
Partei des Demokratischen Sozialismus - PDS (Þýskaland)
Stop the war Coalition (Bretland)
Just Peace-Muslim for a just peace (Bratland)
Socialist Political Alliance (Kórea)
Labor People Council (Kórea)