|
Einar Ólafsson |
Veljum öðruvísi veröld |
Bókaverðir á Alþjóðlega samfélagsþinginu (WSF)
|
|
|
eftir Einar Ólafsson |
|
|
|
Birtist
í Fregnum, fréttabréfi Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða,
haustið 2006 Alþjóðlega
samfélagsþingið (World Social Forum) verður haldið í sjöunda sinn í Nairobi í
Kenýa 20.-25. janúar nk. Þing er kannski ekki nákvæm þýðing, þetta er frekar
vettvangur til umræðna og yfirskrift þessa vettvangs er: „Við eigum völ
á öðruvísi veröld“ (á ensku „Another world is possible“). Þetta
er opin vettvangur þar sem hundruð hópa og samtaka frá öllum heiminum taka
þátt og þátttakendur hafa undanfarin ár verið um eða yfir hundrað þúsund. Á fjórða
alþjóðlega samfélagsþinginu í Mumbai á Indlandi árið 2004 var haldið málþing
um hlutverk bókasafna og upplýsingafræða í lýðræðislegu samfélagi. Finnsku
bókavarðasamtökin áttu þátt í undirbúningi þessa málþings en meðal
þátttakenda var Kay Raseroka, sem þá var forseti IFLA. Í umræðum á málþinginu
lagði Raseroka til að bókaverðir og upplýsingafræðingar tækju þátt í
samfélagsþingunum með því að safna, skrá og flokka það gífurlega magn af ýmis
konar efni sem fellur til á þessum vettvangi. Fjöldi sjálfboðaliða kemur að
ýmsum verkefnum á þessum þingum, m.a. túlkar sem hafa myndað með sér samtök
undir nafninu Babels (www.babels.org, sjá líka grein á Wikipedia). Að undanförnu hefur verið unnið að undirbúningi þessa verkefnis á alþjóðlega samfélagsþinginu í Nairobi. Á samfélagsþinginu 2006 í Bamako í Malí var haldinn undirbúningsfundur og svo aftur í Nairobi í júlí sl., en sá fundur var styrktur af finnska sendiráðinu í Kenýa. Að verkefninu koma Bókasafnasamtök Kenýa (Kenya Library Association), Progressive African Library & Information Activists’ Group, Network Institute for Global Democratization, Information for Social Change og fleiri aðilar. Jafnframt er verið að undirbúa málþing á samfélagsþinginu þar sem meðal annars verður rætt um
Áður en
samfélagsþingið hefst mun hópurinn sem að þessu verkefni stendur skipuleggja
í tengslum við heimsþing Alþjóðaráðs fulltrúafræðslu (International Council
for Adult Education - www.icae.org.uy), sem verður haldið í
Nairobi nokkrum dögum fyrr, málþing um efnið „fullorðinsfræðsla,
félagslegar hreyfingar og bókasöfn“. Nánari upplýsingar: Mikael
Böök: Librarians and the World Social Forum, unite! The WSF goes to the library World Social Forum |
|
|