Saga Spaða
Spaðar voru stofnaðir í janúar 1983 af nokkrum ungum mönnum
sem höfðu verið að leika sér á hljóðfæri hver í sínu horni eða saman
í minni hópum.
Magnús Haraldsson gítarleikari og Guðmundur Ingólfsson bassaleikari
störfuðu saman í dúettnum Lighthomers, og með Guðjóni Grétari Óskarssyni
söngvara, Guðmundi "litla jaka" Guðmundssyni gítarleikara og Ragnari
Pikkaló trommara í bílskúrshljómsveitinni DC 10.
Gunnar Helgi Kristinsson hafði lært á píanó frá unga aldri og spilaði
m.a. með hjómsveitinni Trash á árum áður.
Guðmundur Andri Thorsson dundaði sér við að semja sögur í anda Guðrúnar
frá Lundi og við að þýða blústexta.
Guðmundur Guðmundsson spilaði blúsa fyrir sjálfan sig og þá sem vildu
heyra en kom ekki nálægt neinu sem tengdist músík eftir 1970.
Aðalgeir Arason var eitthvað að glamra á gítar og fékk öðru hvoru lánuð
einhver skrítin hjóðfæri hjá Nonna bróður sínum.
Guðmundur Ingólfsson bjó svo vel að eiga Sony sound-on-sound segulbandstæki
og tók upp ýmis hugverk fyrrgreindra manna, eins eða fleiri í senn.
Brátt sáu þessir ungu menn að það var ekkert sniðugt að hver væri að
spila í sínu horni þar sem hæfileikar og hugmyndaauðgi allra gætu leitt
einhvers ennþá meira og stórkostlegra. Þar með voru Spaðar stofnaðir.
Stofnmeðlimir Spaða voru:
- Aðalgeir Arason - mandólín
- Guðjón Grétar Óskarsson - trommur
- Guðmundur Guðmundsson - gítar
- Guðmundur Ingólfsson - bassi
- Guðmundur Andri Thorsson - söngur og munnharpa
- Gunnar Helgi Kristinsson - harmónikka
- Magnús Haraldsson - gítar og banjó
En hvað átti nú að spila?
Menn komu úr ýmsum áttum og höfðu ólíkar meiningar um músík. E.t.v.
var einn hlutur sem réði mestu um það hvert stefnan var tekin. Það var
lítil einradda harmónikka sem fengin var að láni hjá Guðmundi Litla
Jaka og sett í hendurnar á Gunnari Helga. Auk þess virtist músík frá
Búlgaríu og öðrum löndum Balkanskagans höfða til allra. Sérstaða Spaða
ræðst svo af því að menn sem hafa alist upp við bítlamúsík og blús fara
að semja gömludansalög við rammíslenska sveita'sælu'texta.
Auk Stofnmeðlima Spaða sem allir koma fram á síðustu útgáfu
Spaða "Úr
Segulbandasafninu 1983-2003" hafa eftirfarandi verið með í lengri
eða
skemmri tíma:
- Sigurður G, Valgeirsson - trommur
- Guðmundur Pálsson - fiðla
- Hjörtur Hjartarson - klarinett, flautur og rafgítar
- Helgi Guðmundsson - munnharpa
- Kristinn Pétur Magnússon (KP) - kraftasöngur
- Ásgeir Óskarsson - trommur
- Eiríkur Stephensen - klarinett og saxafónn
- Jón Thoroddsen - söngur, slagverk
- Þorbjörn Magnússon - conga
- Ragnar Sigurðsson - túba
- Páll Sigurðsson - baritónhorn
- Snæbjörn Guðmundsson - flautur
- Anna Hólmfríður Yates - söngur
- Hjörleifur Jónsson - trommur
Spaðar hafa öðru hvoru farið í hljóðver og tekið upp lög og
hafa milli 40 og 50 lög með þeim dreifst
á kassettum um heiminn og 31 lag á tveimur geisladiskum.
Til
baka...
|