Kayakferð yfir Djúp um Jökulfirði og Snæfjallaströnd


Ef þú hefur athugasemdir eða vantar upplýsingar
þá er póstfangið,
haranja@centrum.is
Þessi ferð yfir Djúp og um Jökulfirði  var farin í júlí 2004 og tók 8 daga. Þáttakendur voru undirritaður, Haraldur Njálson og Ragnar Björnsson ,báðir á P&H Quest kajökum frá Sportbúðinni Títan sem reynst hafa okkur afbragðsgóðir ferðabátar.
 Veðrið í ferðinni var alveg einstaklega gott eins og myndirnar bera með sér og við skipulögðum ferðina þannig að dagleiðirnar væru hæfilega stuttar og nægur tími til þess að skoða sig um og slæpast.
 Við gátum líka hagað því svo til að þegar ferðinni lauk tóku við bráðskemtilegir siglingadagar á Ísafirði með allskonar uppákomum við allra hæfi, óhætt að mæla með þeim fyrir kayakfólk!
 Mjög auðvelt er að ferðast um þetta svæði, lendingar víðast góðar og svo ganga bátar frá ferðaþjónustu Hafsteins og Kiddýar eins og strætó um svæðið þannig að auðvelt er að fá far með báta og búnað ef menn t.d. treysta sér ekki til að róa yfir djúpið vegna veðurs, svæðið er í skjóli frá mestu haföldunni en þó ber að geta þess að þarna getur hvesst mjög skyndilega og standa þá vindstrókarnir út firðina og geta verið mjög hvassir. Einnig hafa ferðalangar á Hornströndum og Jökulfjörðum vaknað upp við alhvíta jörð  um hásumarið þannig að betra er að vera við öllu búinn.



Naust

Fyrsti leggur  var róinn að næturlagi frá Hnífsdal, yfir djúpið og  náttstaður var rétt utan við Grunnavík við eyðibýlið Naust. Þar voru svefnpokarnir teknir upp og við lögðurm okkur i morgunsárið undir berum  himni í dýrðlegu veðri.


Grunnavík


Um þrjúleitið sama dag var haldið inn í Grunnavík  og litast um.


Í Grunnavík

Grunnavík


Grunnavík


Höfnin í Grunnavík


Höfðaströnd


Gathamrar  skammt  innan við Grunnavík


Blundur


Horft yfir í Veiðileysufjörð





Næsti náttstaður var við eyðibýlið Höfða.





Horft yfir í Lónafjörð frá Höfðabót.

Daginn eftir var róið stuttan spöl yfir í Kjós hinumegin við Leirufjörðinn og afgangurinn af   deginum
notaður  til að ganga á Drangajökul.











Útsýnið af Drangajökli  er frábært og vel þess virði að þramma á hann.





Hátt uppi





Lagst til svefns og lúnir ganglimirnir hvíldir eftir erfiði dagsins.





Við leiði Fjalla Eivindar á Hrafnsfjarðareyri.


Frá Kjós var róið inn Harafnsfjörð og áð við leiði fjalla Eyvindar, og þaðan sem leið lá inn Lónafjörð





Fjallið Einbúi í botni Lónafjarðar




Í Lónafirði áðum við í tvo daga og lituðumst um og ætluðum að ná okkur í fisk og grilla.en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir um allan fjörð fengum við ekki kvikindi.





Einn styrktur kakóbolli fyrir svefninn











Tjaldstæðið í Lónafiði var á eyri c.a. fyrir miðjum firði norðan megin en þar er góð lending (betri en að Kvíum) og gott undir tjald.





Í Rangala innst í Lónafirði





Það er nauðsynlegt að okkar mati að taka sér góðan tíma á degi hverjum í svona ferð, í að setja tærnar upp loft og gera ekki neitt!























Kvíar við mynni Lónafjarðar





Í bæjardyrunum að Kvíum.





Húsið að kvíum er greinilega notað sem skjól í misjöfnum veðrum af ferðafólki í Jökulfjörðum.






Horft út um gluggann í átt að staðarhlíð.











Rennt fyrir fisk úti fyrir mynni veiðileysufjarðar, en þar gekk betur en í Lónafirði.





Við vorum ekki þeir einu á ferðinni um Jökulfirðina þessa daga, þótt ekki sæum við marga.





Á Hesteyri





Lengsta dagleiðin var úr lónafirði, að Kvíum, þaðan á Hesteyri og að gömlu síldarbæðslunni á Stekkeyri, og endaði svo út á Sléttunesi. En þar sváfum við í fyrsta og eina skiptið í tjaldinu, ekki vegna veðurs því það var alveg einstakt alla ferðina, heldur vegna þess að þar var flugan alveg að drepa okkur.





Lagt af stað af Sléttunesi yfir á Snæfjallaströnd.





Horft frá Snæfjallaströnd yfir Djúpið, fjallið vinstramegin heitir Hestur.





Síðustu nóttina var áð við eyðibýlið Gullhúsá á Snæfjallaströnd.





Ferðin á enda og framundan stórskemmtilegir siglingadagar á Ísafirði.

Efst á síðu

Til baka