Eldra Fréttabréf

Fréttabréf Hafnarfjarðarkirkju Sumar 1997

2. tbl. - 18. árg. - Útgefandi: Hafnarfjarðarkirkja - Ritstjóri:
Jónatan Garðarsson - Ábm. Gunnþór Ingason - Upplag: 4.000 eintök.

ÞAÐ LÍF.
Það líf, sem í brjósti bærist
er blóðnært og taugum bundið
en allt sem þar innra hrærist
er enn ei skilið fundið.

Þó mannsmyndin ytri birtist
sem mótast hafi af jörðu
þar vitundin er sem virtist
ei vaxin úr efni hörðu.

Hvaðan er hún þá runnin?
Handan við ytri myndir
er sem við sjáum brunninn
við sjáaldurs djúpu lindir.
Gunnþór Ingason

Guðsþjónustur kl. 11:00 á sunnudögum.
Í sumar verða guðsþjónustur kl. 11:00 hvern helgan dag,
en ekki kl. 14:00 eins og verið hefur í vetur. Verður þessi
háttur hafður á fram á haustið, nema þegar annað er tekið
fram.

Sumarleyfi og viðverutímar presta.
Nú eru sumarleyfi presta að hefjast og mun séra
Þórhallur Heimisson annast helgihaldið í júní, séra
Bjarni Þór Bjarnason héraðsprestur Kjalarnessprófastsdæmis
fyrstu tvær vikurnar í júlí og síðan séra
Gunnþór Ingason og séra Þórhildur Ólafs frá miðjum
júlí og út ágústmánuð.

Þjóðlagaguðsþjónusta í tilefni Jónsmessu.
Sunnudagskvöldið 22. júní kl 21:30 verður haldin
Þjóðlagamessa í tengslum við Jónsmessu. Þjóðlagatríó
undir stjórn Arnar Arnarsonar gítarleikara annast
tónlistarflutning og séra Þórhallur Heimisson messar.
Er þetta í annað sinn sem boðið er upp á þjóðlagamessu í
Hafnarfjarðarkirkju, en hin fyrri var í febrúar s.l.
og vakti verulega athygli. Eru allir hvattir til að
mæta til kirkju að kvöldi 22. júní n.k. og taka þátt í
helgistundinni.

Þingvallaferð 8. júní.
Brugðið verður nokkuð út af venju sunnudaginn 8. júní.
Þá fellur guðsþjónustan niður, en farið verður frá
Hafnarfjarðarkirkju með áætlunarbifrðeið kl. 11:00 árdegis
og er förinni heitið til Þingvalla. Þar mun
Þingvallaklerkur taka á móti hópnum og fylgja
honum um söguslóðir þjóðgarðsins. Áð verður á
góðum stað utan dyra og nesti etið ef veður leyfir.
Ferðinni lýkur með guðsþjónustu í Þingvallakirkju.
Stendur öllum til boða að taka þátt í þessu ferðalagi.

Messa á Víkingahátíð og opin kirkja.
Séra Þórhallur Heimisson mun halda keltneska messu á
Víðistöðum á meðan Víkingahátíðin fer fram hér í bæ
dagana 7. - 12. júlí. Á sama tíma verður bæjarbúum
og öðrum þátttakendum Víkingahátíðarinnar boðið að
sækja kirkjuna heim, skoða hana, kynna sér sögu
hennar eða njóta friðar og kyrrðar. Verður þetta
kynnt nánar þegar dregur nær hátíðinni.

Opin kirkja í sumar.
Hafnarfjarðarkirkja stendur öllum opin á meðan
prestar og kirkjuþjónar eru að störfum frá kl

9:00 til 18:00 virka daga. Safnaðarheimilið
Strandberg og kapellan eru opin á sama tíma.
Sími kirkjuþjóna er 555 1295 og sími presta er
555 4166.

Áhugaverðar kvöldvökur á miðvikudögum í júní.
Öll miðvikudagskvöld í júní stýrir séra Þórhallur Heimisson
kvöldvökum þar sem hann mun halda fyrirlestra um hin
ýmsu efni og verða síðan umræður á eftir. Síðastliðið
sumar voru haldnar fjölmennar kvöldvökur með sama sniði,
sem þóttu einstaklega skemmtilegar og athyglisverðar.
Á námskeiðunum verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum:

4. júní ,,Kristin trú og dulspeki".
Hvað er mystík eða dulspeki? Hvernig opinberast
mystíkin í trúarbrögðunum og að hvaða leiti má kalla
kristna trú dulspeki?
11. júní ,,Djöfullinn"
Hvernig birtist hann í Biblíunni, hvaða hlutverki
gegnir hann og hvernig hafa hugmyndirnar um
,,Andstæðinginn" þróast? Hvaðan kemur hið illa og
hvað er hið illa?
18. júní ,,Er líf eftir dauðann?"
Hvað segir kristin trú um það? Hver er
framtíðarvon okkar?
25. júní ,,Endurholdgunarkenningin"
Hvaðan er þessi kenning komin? Hvernig hefur hún þróast
og um hvað fjallar hún? Hvað segir kristin trú okkur um
þessa kenningu?

Vordagar Hafnarfjarðarkirkju.
Vordagar, fræðslu og leikjanámskeið fyrir 8 ára börn,
voru nýverið haldnir annað árið í röð í
Hafnarfjarðarkirkju. Að þessu sinni voru það
börn fædd 1989 sem tóku þátt í námskeiðinu,
sem hófst þriðjudaginn 27. maí og lauk á
Sjómannadaginn 1. júní með hátíðahöldum.
Leiðbeinendur á vegum Kjalarnessprófastsdæmis
sáu um fjölbreytta dagskrá innan dyra, en
handknattleiksfólkið Aron Kristjánsson og
Hulda Bjarnadóttir sáu um leikina utandyra.
Verður þetta námskeið fastur liður í
starfinu á næstu árum.

Sumarbúðir í bæ í ágúst
Hafnarfjarðarkirkja stendur fyrir
sumarnámskeiðum í ágúst fyrir börn
á aldrinum 7 - 12 ára, (fædd: 1985 - 1990).
Dagskráin samanstendur af leikjum innanhúss
sem utan og verður farið í ýmsar stuttar ferðir um
bæjarfélagið. Yfirumsjón hefur Bára Friðriksdóttir.
Einnig verður haldið námskeið fyrir unglinga á aldrinum 14 - 15 ára
(fædd: 1982 - 1983) í ágúst. Allar nánari upplýsingar og
skráning er í Hafnarfjarðarkirkju í síma 555 1295.

Námskeið fyrir 7 - 12 ára:
1. námskeið 5. ágúst - 8. ágúst.
2. námskeið 11. ágúst - 15. ágúst.
3. námskeið 18. ágúst - 22. ágúst.

Unglinganámskeið (14 - 15 ára):
18. ágúst - 22. ágúst

Kórinn á faraldsfæti.
Kór Hafnarfjarðarkirkju hélt ánægjulega tónleika í kirkjunni 25. maí.
Kórinn flutti kórlög og trúarsöngva,
auk þess sem kórstjórinn Natalia Chow og
Valdimar Másson fluttu nokkrar
tvísöngsaríur við undirleik Helga Péturssonar.
Kórinn fór síðan með tónleikadagskrá sína norður í
Eyjafjörð og söng fyrir norðanmenn í Dalvíkurkirkju
laugardaginn 31. maí við góðar undirtektir.

Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju.
Aðalfundur Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju var
haldinn 13. febrúar 1997. Stjórn félagsins skipa:
Margrét Guðmundsdóttir formaður, Sigrún
Sigurbjartsdóttir ritari og Elsa Guðjónsdóttir gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Hafdís Jóhannesdóttir,
Ingveldur Einarsdóttir, Ingibjörg Sigmundsdóttir,
Magnea Þórsdóttir og Guðrún Eiríksdóttir.
Þriðjudaginn 6. maí s.l. bauð Kvenfélagið ,,Fjallkonurnar",
sem starfar við Fella- og Hólakirkju, Kvenfélagi
Hafnarfjarðarkirkju til vorfundar síns,
sem var skemmti- og hattafundur.
Farið var með rútu frá Hafnarfjarðarkirkju
og skemmtu allir sér vel.

Góð ferð á Skeiðarársand.
Dagsferð var farin á vegum Kvenfélags
Hafnarfjarðarkirkju á Skeiðarársand 26. apríl.
Fjölmenni tók þátt í ferðinni sem var hin
ánægjulegasta í alla staði. Ari frá Hofi
tók á móti hópnum þegar komið var austur,
en hann er þaulkunnugur öllum staðháttum þar.

50, 60 og 70 ára fermingarbörn.
Á bænadegi Þjóðkirkjunnar 8. maí s.l. sóttu 50, 60 og 70 ára
fermingarbörn messu sem séra Gunnþór Ingason stýrði.
Séra Sighvatur Birgir Emilsson, sem var í 50 ára hópnum,
kom frá Noregi og predikaði. Boðið var til kaffisamsætis
í Gaflinum eftir messuna, þar sem fólki gafst tækifæri
til að rifja upp gömul kynni. Þátttaka var mjög góð eins
og myndirnar bera með sér.

Dagur aldraðra vel heppnaður.
Um 250 manns sóttu guðsþjónustu í Hafnarfjarðarkirkju
á degi aldraðra sem bar upp á uppstigingadag 8. maí að
þessu sinni. Séra Þórhildur Ólafs annaðist helgihaldið
og síðan var boðið til skemmtidagskrár og kaffisamsætis
í Gaflinum á eftir og var góður rómur gerður að
viðurgerningi öllum. Ekki hefur annar eins fjöldi
sótt þessa guðsþjónustu áður, þó þær séu jafnan fjölsóttar.

Boðsímar presta:
Séra Gunnþór Ingason 846-4691
Séra Þórhallur Heimisson 846-5091
Séra Þórhildur Ólafs 846-4692